Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 13
rvflr T o r rrrtrvA or/Tt^om* TrwoAa s?r MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 13 Vatnslitamynd eftir Svein Friðriksson. sínum. Ungveijinn Gabor Zabors- zky er einn af fremstu listamönnum á þessari sýningu. Vestur-Þjóðverj- inn Wolfgang Troschke á þama mjög hressileg verk. Svona mætti lengi telja, en látum staðar numið að sinni. Þáttur íslands er mikill, og eins og áður segir, eru flestir sýnendur héðan. Þar kennir margra grasa og þar hefði mátt grisja að ósekju. Þeir sem vöktu mesta athygli mína að þessu sinni voru Balthasar og Bragi, Ragnheiður og Jón Óskar, Sigrid Valtingojer, Edda Jónsdóttir og Ingunn Eydal. Það ánægjuleg- asta við íslenska framlagið er, að það hefur vissan svip, sem sver sig í ætt við umhverfi okkar, svo að ekki verður um villst, og það er sannarlega góðs viti hjá jafn ungri listgrein og grafík er hérlendis. Hér er stiklað á stóru af eðlileg- um ástæðum. Það má að ýmsu finna í sambandi við þessa sýningu, t.d. er hvergi getið fæðingarárs þátt- takenda, hvorki í merkingu ein- stakra verka né í hinni glæsilegu sýningarskrá. Þetta er ákúruvert, og þá eru klossamir að baki innrömmunarinnar til litillar gleði fyrir augað. í heild er þó meiri ástæða til að fagna þessari sýningu en finna að. Við skulum þvi loka augum fyrir því sem miður fer, en njóta þess, sem þar er að hafa og sýnir okkur hjartslátt samtíðarinn- ar. Myndllst Valtýr Pétursson Nú stendur yfir listahátíð í Hallgrímskirkju, mikið af hljómiist og söng, og í anddyri kirkjunnar hefur verið komið fyrir lítilli og yfírlætislausri sýningu á vatnslita- myndum Sveins Snorra Friðriks- sonar við Passíusálma séra Hallgríms, þeim hinum sömu og fylgdu lestri sálmanna á föstu í sjónvarpinu. Þessar myndir Snorra em miklu frambærilegri þama í anddyrinu en í sjónvarpi, og maður hefur ekki staldrað lengi við, þegar upp renn- ur sá sannleikur, að miðillinn hefur ekki skilað þessum myndum sem skyldi. Vatnslitir Sveins Snorra em ferskir og lifandi og koma svo vel út á þessari litlu sýningu, að vart er hægt að þekkja þær fyrir sömu verk og sýnd vom á sínum tíma í víðfeðmasta fjölmiðli landsins. Þar verkuðu myndimar miklu lausari og virtust helst til sætar í litnum, en þegar fmmmyndimar em skoð- aðar, kemur allt annað í ljós. Myndimar em lifandi og tengjast á einkar skemmtilegan hátt inni- haldi sálmanna, og allt annað og meira út úr þessum verkum að hafa en sjónvarpið gaf til kynna. Listvinafélag Hallgrímskirkju hefur haft forgöngu um þessa lista- hátíð á vígsluári kirkjunnar og hefur unnið þama gott og þarft verk. Um söng og hljómlist ræði ég ekki hér, en ég hvet fólk til að kynnast vatnslitamyndum Sveins Snorra, þær em þess fyllilega verð- ugar og listamanninum og öllum, sem að hafa staðið, til mikils sóma. þessu númeri næröu sambandi viö allar verslanir aö Laugavegi 13 FRAMDRIF ÍSLENSKRA FJÖLMIÐLA TÍMASPRENGJA í tönnunum. Kvikasilfur mengar mannslíkamann. Hvað gerist og hvernig? UNGFRÚ ísland 1967 í opnuviðtali. Guðrún Pétursdóttir var full- trúi íslands í fegurðarsam- keppnum erlendis fyrir tuttugu árum síðan. STARFSMENN Bandaríska sendiráðsins njóta ekki verndar íslenskra laga. Fá ekki veikindafri né sumarfri eftir íslenskum lög- um. ÍSLENSKIR krakkar reyndust tala ótrú- lega góða ensku, þegar út- sendarar HP léku túrista og spurðu til vegar að járnbraut- arstööinni í miðbæ Reykja- víkur. FRAMURSTEFNA fyrir bi. Um uppákomur og skemmtilegheit í listsköpun. Myndlist Valtýr Pétursson Það hefur verið dálítil andakt um nokkum tíma í Gallerí íslensk list á Vesturgötu 17, en nú hefur starf- semin lifnað aftur við, og hinn ágæti málari, Elías B. Halldórsson, efnir þar til sýningar á nýjum verkum sínum. Elías bjó um árabil norður á Sauðárkróki, og ekki verður með sanni sagt, að mikið færi fyrir hon- um í myndlistarlífinu í höfuðborg- inni á þeim árum, en Elías var þess meir á ferð í höfuðstað Norður- lands, Akureyri, og haslaði sér þar rækilega völl, eftir því sem undirrit- aður hefur fregnað. Nú er Elías fluttur suður yfír heiðar og hefur hafið þátttöku í myndlistarlífinu í þessari einkennilegu borg, þar sem annar hver maður er nefndur mynd- listarmaður og það, sem af gengur, skáld eða hljómlistafólk. Já, margir eru kallaðir, en fáir útvaldir, eins og þar stendur, en fullyrða má, að Elías B. Halldórsson sé alvöru mál- ari. Elías sýndi nýverið nokkrar myndir á Kjarvalsstöðum með fé- lögum sínum og vakti athygli með kraftmiklum og litríkum abstrakt- myndum, sem voru allar af stærri gerðinni, ef svo mætti að orði kveða. Nú eru formötin minni, en í þeim gæðaflokki, að eftir verður tekið. Þama á Vesturgötu 17 er 41 verk, mestmegnis olíulitir á pappír og striga ásamt tveim tréristum. Nú sýnir Elías jöfnum höndum ab- strakt- myndir og fígúratívar og kemur þorpið nokkuð við sögu í fyrirmyndum hans, landslag og náttúrstemmningar. Litameðferð Elíasar er nokkuð sérstæð og hefur persónulegan tón sem yfirleitt fellur vel að viðfangsefni hans. Hann heldur myndfletinum nokkuð ákveðið í skefjum og lætur ekki undan augnabliks duttlungum, en samvefur form og lit á þann hátt í myndflötinn, að áhorfandinn verð- ur partur af verkinu og upplifír mjmdverkið á sinn persónulega hátt. Það eru aðlaðandi verk, sem Elías sýnir að sinni, og þau njóta sín vel á þeim ágæta sýningarstað, sem Vesturgata 17 er. Hér er engin listspíra á ferð, heldur fullmótaður og reyndur mál- ari, sem er ekki að eltast við alheimstiskuna. Hann heldur sínu striki og skáldlegu innsæi, sem að vísu á það til að vera dáltíð sérvitr- ingslegt, en það er einlægt, satt og Elías Halldórsson rétt í alla staði, og það er mikill kostur og sjaldgæfur nú á dögum, þegar flestir virðast stæla sama tískukónginn. Elías B. Halldórsson er einn af þeim örfáu íslensku mál- urum, sem vinna af einlægni og á eigin og íslenskum forsendum. Habitat»Káess gjafavöruverslurrKáess húsgagnaverslun*Mothercare*Skrifstofur 1 Laugavegi ) 3, 101 Reyfgavik. ! I ! Elías B. Halldórsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.