Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 27 til S ovétríki anna Moskva. Szczecin, Póllandi. Reuter. TALSMAÐUR sovéska utanríkis- ráðuneytisins sagði í gœr að ekki Chernobyl-slysið Réttarhöld hefjast 7. júlí Moskva. Reuter. RÉTTARHÖLD yfir þeim sem taldir eru bera ábyrgð á slysinu í kjarnorkuverinu í Chernobyl ■' Sovétríkjunum í fyrra, hefjast 7. júlí. Talsmaður sovéska utanríkis- ráðuneytisins, Boris Pyadyshev, sagði á blaðamannafundi í Moskvu í gær, að réttarhöldin færu fram í bænum Chemobyl, sem er um 18 km. frá kjamorkuverinu. Verður erlendum fréttamönnum leyft að fylgjast með framgangi mála. Ekki hefur verið sagt hverjar sakagiftir em né heldur hveijir verði dregnir fyrir dóm. En orðrómur er uppi um að það verði fyrrum æðsti stjóm- andi kjamorkuversins, yfirverk- fræðingur þess og aðstoðarmaður hans. 26. apríl í fyrra kviknaði í einum af fjórum kjarnaofnum versins og sprakk hann. Gerðist þetta eftir að starfsmenn versins höfðu sýnt mik- ið kæmleysi við framkvæmd til- rauna er yfírvöld sögðu eftir slysið að þeir hefðu ekki haft neitt leyfi fyrir. Að minnsta kosti 31 maður lét lífíð í slysinu, margir slösuðust og 135.000 manns vom fluttir frá heimkynnum sínum vegna geisla- virkni er gætti í mörgum löndum. Koma Reagans til V-Berlínar: Mestu örygg- isráðstafanir í áratugi Vestur-Berlín. Reuter. LÖGREGLAN í Vestur-Berlín hef- ur gert mestu öryggisráðstafanir, sem um getur þar f borg í ára- tugi, þar sem óttast er, að til ofbeldisverka komi í framhaldi af mótmælaaðgerðum, sem efnt verð- ur til vegna komu Ronalds Reagans Bandaríkjaforseta þang- að í dag. Heimildarmenn í öryggissveitum borgarinnar sögðu, að 10.000 sér- þjálfaðir lögreglumenn yrðu í við- bragðsstöðu, og hefðu 1000 þeirra komið frá flugleiðis frá Vestur- Þýskalandi gagngert af þessu tilefni. Með heimsókn forsetans er verið að undirstrika stjómmálalegan og hemaðarlegan stuðning Banda- ríkjanna við Berlín á 750. afmælisári borgarinnar. stæði til að bjóða Jóhannesi Páli páfa II til Sovétríkjanna á næst- unni. Páfi hafði látið þau orð falla í fyrradag i ræðu er hann hélt í Póllandi, að hann vildi gjarnan sækja Litháen heim í ár og taka þátt í hátíðahöldum í til- efni þess að 600 ár eru liðin síðan kristni var þar lögtekin. Árið 1984 kunngerði páfi að hann hefði ekki fengið leyfi sové- skra yfírvalda til að heimsækja Litháen og sögðu talsmenn páfa- garðs í gær að beiðni um ferðaleyfi hefði ekki verið endumýjuð. Á næsta ári eru liðin 1.000 ár frá því kristni var lögtekin í Rússlandi. Jóhannes Páll páfi II, baðst í gær fyrir við gröf foreldra sinna í Kraká í Póllandi, áður en hann lagði af stað til börga við Eystrasalt. í gær söng hann messu í borginni Szezec- in að viðstöddu fjölmenni. Kom til átaka er hópur ungs fólks reyndi að ganga undir fánum Samstöðu, hinna bönnuðu samtaka verkalýðs- félaga, að kirkjunni þar sem messan var. Eru það fýrstu átökin milli lög- reglu og almennings sem heyrst hefur um í þessari þriðju Póllands heimsókn páfa. í gærkveldi var ráðgert að Lech Walesa og fjölskylda gengi á fund páfa. Sagði Walesa við fréttamenn í gær eftir að vinnu hans við Lenin skipastöðina lauk, að hann myndi ræða við páfa af hreinskilni og segja honum þá skoðun sína að nauðsyn- legt væri að ' endurskipuleggja pólskt þjóðlíf á grundvelli kristinnar hugmyndafræði. Páfi biðst Fyrir við gröf foreldra sinna. Reuter Nýr sjón- varpssími Reuter, Tókýó. JAPÖNSKU fyrirtækin Sony og Nippon hafa þróað örsmáan sjón- varpssíma sem fæst fyrir mun lægra verð en áður hefur tíðkast. Þeir símar sem nú eru á markaðn- um kosta um 2,8 milljónir króna og eru nær eingöngu notaðir af stórfýrir- tækjum til þess að halda símaráð- stefnur. Nýju símana má nota með venju- Iegu símkerfi. í þeim er myndavél sem notar háþróaða örflögu og fjögurra tommu svart-hvítur sjónvarpsskjár. Þegar þessir sjónvarpssímar koma á markaðinn í Japan í júlí munu þeir kosta um 14 þúsund krónur. MALLORCA Úrval í fararbroddi. Allt frá því að íslending- ar fóru fyrst í sólarferðir til Mallorca hefur Úrval verið í fararbroddi íslenskra ferðaskrif- stofa á þessari vinsælu eyju og ávallt fundið bestu staðina á hverjum tíma. Fyrst var það Magaluf-ströndin, síðan Alcudiaflóinn og nú það allra nýjasta og besta: SA COMA STRÖNDIN. Þar dvöldu nokkur hundruð íslendinga á síðastliðnu sumri við frábærar aðstæður. Hinn landskunni og eldfjörugi Kristinn R. Ólafsson í Madrid verður fararstjóri í Sa Coma. Hann tekur á móti farþegum við komuna, skipuleggur skoðunarferðir til markverðustu staða eyjarinnar og heldur uppi lífi og fjöri meðan á dvölinni stendur. Brottför/ Heimkoma: Dagar: 6. júní—20. júní 14 uppselt 20. júní—1 1. júlí 21 uppselt 22. júní—13. júlí 21 laussæti 13. júlí—3. ágúst 20 laus sæti 3. ágúst—24. ágúst 21 örfá sæti laus 24. ágúst—8. sept. 15 örfá sæti laus 7. sept.—28. sept. 21 uppselt 8. sept,—3. okt. 25 laus sæti 3. okt,—31. okt. 28 laus sæti KOMDU MEÐ TIL MALLORCA SSiliBiMi FERÐASKRIFSTOFAN URVAL VAUSTURVÖLL, PÓSTHUSSTRÆTl 13 10I REYKJAVlK Umboðsmenn Úrvals um land allt: mmmmm SlMI 26900 Páfi óvelkominn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.