Morgunblaðið - 20.06.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.06.1987, Blaðsíða 1
64 SÍÐUR OG LESBÓK STOFNAÐ 1913 136. tbl. 75. árg. LAUGARDAGUR 20. JÚNÍ 1987 Prentsmiðja Morgunblaðsíns Spánn: 15 létust í spreng- # ingn í stórmarkaði Hawke sigurviss BOB Hawke, forsætisráðherra Ástralíu brosti sigurviss til við- staddra er hann heimsótti sjúkra- hús eitt í Melboume í kosning-abar- áttunni á dögunum. Þingkosningar fara fram í Ástralíu 11. júlí og er flokki hans, Verkamannaflokkn- um, spáð sigri. Sagði Hawke í útvarpsviðtali að þetta væri þægi- legasta kosningabarátta er hann hefði háð. Deildar meiningar eru innan Pijálslynda flokksins, aðal- stjómarandstöðuflokksins, um skattalækkunartillögur, sem verið hafa aðalkosningamál flokksins cg sagði talsmaður hans í gær að þær væm gallaðar og þyrftu endur- skoðunar við. Suður-Kórea: Hertar aðgerðir ef óeirðum linnir ekki Seoul, Washington, Lausanne. Reuter. LOGREGLUMAÐUR beið bana í götuóeirðum í Suður-Kóreu í gær og var það fyrsta mannslátið í óeirðum þeim er staðið hafa þar yfir undanfama 10 daga. Nokkr- um klukkustundum áður hafði forsætisráðherra landsins lýst því yfir að stjóra sín myndi grípa til róttækra ráðstafana ef átök- unum linnti ekki. Lee Han-key, forsætisráðherra, hvatti þjóðina í sjónvarpsávarpi til þess að sýna stillingu svo ekki þyrfti að grípa til sérstakra ráðstaf- ana til að koma á friði. Ekki til- greindi hann hveijar þessar ráðstafanir væru, en undanfama daga hefur gengið sá orðrómur að stjómin myndi lýsa yfir herlögum í landinu. Til átaka kom þó víða í Suður-Kóreu í gærkveldi. Meðal þeirra sem gagnrýnt hafa stjóm- völd er yflrmaður kaþólsku kirkj- unnar þar í landi, Kim Sou-hwan, kardináli. í viðtali við virt dagblað í Seoul sakaði hann stjómvöld um að beija niður réttlátar óskir fólks- ins um lýðræði. „Rætur vandans liggja í því að stjómvöld bijóta lög, en ekki í því að fólkið lætur í ljósi andstöðu við þau lögbrot," sagði Kim. Ronald Reagan, Bandaríkjafor- seti, sagði í gær í Washington að hann hefði miklar áhyggjur af ástandinu í Suður-Kóreu. Talsmað- ur forsetans, Marlin Fitzwater, sagði að Bandaríkjastjóm hefði hvatt stjómina í Seoul til þess að taka upp viðræður við stjómarand- stöðuna og reyna að flnna friðsam- lega lausn deilumálanna. Er Fitzwater var spurður hvort Reagan hefði sent Chun Doo Hwan, forseta Suður-Kóreu, bréf þar sem ráðið væri frá því að beita mótmælendur hörku, sagði hann að viss bréfa- skipti hefðu átt sér stað. í Wash- ington vex þeirri skoðun fylgi að Bandaríkjastjóm eigi að beita Seoul-stjóm þrýstingi svo komið verði á lýðræðisíegum stjómarhátt- um í Suður-Kóreu. Hafa Edward Kennedy, öldungadeildarþingmaður frá Massachusetts, og 6 aðrir öld- ungadeildarþingmenn lagt fram fmmvarp um að beitt verði efna- hagsþvingunum í þessu skjmi. Sagði Fitzwater að slíkt kæmi ekki til greina. Michele Verdier, talsmaður al- þjóðlegu ólympíunefndarinnar, sagði í gær í Lausanne í Sviss að staðið yrði fast við þá ákvörðun að halda Olympíuleikana í Seoul, þrátt fýrir óeirðimar í landinu undan- fama daga. Borgarstjóri Los Angeles, Tom Bradley, hefur lýst því yfír að með stuttum fyrirvara sé hægt að færa leikana til Los Angeles þar sem þeir vom haldnir árið 1984. Reuter Almenningur í Suður-Kóreu hefur ekki farið varhluta af átökunum undanfaraa daga. Á þessari mynd sést móðir ásamt tveimur sonum sínum leita skjóls eftir að táragasi hefur verið sprautað yfir mann- fjölda. í baksýn eru óeirðalögreglumenn. Sovétríkin: Námsmaður leidd- ur fyrir aftökusveit Moskva, Reuter. TVÍTUGUR námsmaður hefur Barcelona. Reuter. SRENGJA sprakk i bifreiða- geymslu stórmarkaðs í borginni Barcelona á Spáni í gær. 15 manns biðu bana og 30 særðust, Þýsk-frönsk herdeild á döfinni? Bonn, Reuter. HELMUT Kohl, kanslari Vest- ur-Þýskalands, varpaði fram þeirri hugmynd f gær að stofn- uð yrði herdeild sem skipuð yrði bæði frönskum og vestur- þýskum hermönnum undir einni stjórn. Hann telur að þetta gæti styrkt framlag ríkjanna til varna Atlantshafs- bandalagsins (NATO). Frakkar og Vestur-Þjóðveijar hafa unnið mjög náið saman í Evrópubandalaginu og raddir orðið sífellt háværari í báðum löndunum um nauðsyn víðtækari samvinnu. Kohl sagði ljóst að hugmyndin stofnaði á engan hátt i voða samvinnunni við Banda- ríkjamenn þar sem þeir hefðu oft hvatt til aukinnar samvinnu Evrópuríkja á hemaðarsviðinu. margir mjög illa. Aðskilnaðar- samtök Baska, ETA, segjast bera ábyrgð á hryðjuverkinu, sem er hið versta á Spáni síðan árið 1985. Felipe Gonzalez, forsætis- ráðherra Spánar, sneri þegar heim úr óopinberri heimsókn sinni til Brasiliu er hann frétti um atburðinn. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í bifreið í bifreiðageymslu Hip- ercor-markaðarins, sem er í eigu E1 Corte Ingles-verslunarhringsins. Var hún mjög öflug og tók .það slökkviliðsmenn tvo klukkutíma að bijótast í gegn um eld og eitraðan reykjarmökk til að komast niður í geymsluna. Átta karlar, flmm kon- ur og tvö böm létu lífið og 18 hinna særðu eru sögð illa haldin. íbúar hverfísins, þar sem verslunin er, em aðallega verkamenn og hengdu þeir í gær svört sorgarbönd á fána Kata- lóníu, til að sýna samúð sína með fómarlömbunum. Yflrvöld borgarinnar sögðu að 45 mínútum áður en sprengjan sprakk hefði verið hringt í lögregl- una og sagt að sprengja myndi springa í borginni, en ekki hvar. Ifyrr í þessari viku var sent aukalið lögreglu- og þjóðvarðliðsmanna til Katalóníu þar sem búist var við aðgerðum skæruliða ETA. Sagði innanríkisráðherra Spánar, Jose Barrionuevo, í gær á blaðamanna- fundi skömmu fyrir sprenginguna að vitað væri að sveit hryðjuverka- manna á snæmm ETA væri í Barcelona. Kvaðst hann hafa hvatt ýmis fyrirtæki til þess að herða öryggisráðstafanir vegna þessa. verið dæmdur til dauða í borg- inni Alma Ata í Kazakhstan í tengslum við uppþot í borginni 17.-18. desember sl. Fjórir menn, þar af tveir ungir háskólanemar, hafa verið dæmdir til allt að 15 ára erfiðisvinnu í þrælkunarbúð- um vegna óeirðanna. Hinn dauðadæmdi heitir K. Ryskulbekov og stundaði nám við arkitektaskólann í Alma Ata. Hann verður leiddur fyrir aftökusveit. Honum er gefíð að sök að hafa verið valdur að dauða tæknimanns sovézka sjónvarpsins, sem gerst hafði lögreglumaður í sjálfboða- vinnu og tekið þátt í að binda endi á óeirðimar í Kazakhstan. Um 3.000 manns tóku þátt í óeirðunum. Tveir menn biðu bana og 200 særðust. Uppþotin leiddu til þess að leiðtogi Kommúnista- flokks Kazakhstan, Dinmukhamed Kunyaev, var settur af og Rússinn Gennadv Kolbin settur í hans stað. Skýrsla OECD: Launakostn- aður hár á Norðurlöndum Parfs, Reuter. í NÝÚTKOMINNI skýrslu Efna- hags- og f r amf arastof nunarinnar, OECD, kemur meðal annars fram að kjarasamningar á Norðurlönd- um muni koma niður á útflutn- ingsatvinnuvegum landanna. Spáð var að þjóðarframleiðsla ykist lítillega í Svfþjóð og Finnlandi og að atvinnuleysi yrði svipað. í Danmörku og Noregi er hins vegar gert ráð fyrir að þjóðarframleiðslan minnki og atvinnuleysi aukist sem og verð- bólga. Sjá grein á síðu 28. Reuter Mikill reykjarmökkur steig upp úr bifreidageymslunni eftir sprengingnna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.