Tíminn - 09.10.1965, Blaðsíða 9
LAUGARÐAGUR 9. október 1965
TIMINN
æp;
■ .
:
Martin Borman 1945. Myndin er tekin rétt fyrir striðsiok og fléttann
frá Berlfn.
íSil
Martin Borman 1965? — Þannig getur hugsazt að stríðsglæpamaður-
inn líti út í dag. Hárið var farið að þynnast áður en hann hvarf og
drætfirnir í andlitinu hafa skerpzt vegna aldurs.
Segist geta handtekið
Martin Bormann hefur meS
réttu veriS kallaSur ,Jifandi
draugur." SíSastliSin 20 ár
hefur hans veriS leitaS ákafar
en nokkurs annars manns. Rúm
lega ein milljón króna eru
settar til höfuSs honum. Samt
sem áSur tekst honum, sakir
klókinda sinna, aS sleppa undan
óvinum sínum. A5 einum und
ansMldum. ÞaS er erMóvinur
hans nr. 1. Þeir eru í sitt hvorri
heimsálfunni, og hiS víSáttu-
miMa. Atlantshaf liggur á milli
þeirra. En leitarmaSurínn get
ur fylgzt meS hverju spori
hans.
Oft hefur veriS sagt, aS
Martin Bormann sé látinn. Lög
reglusérfræSingar fjögurra
stórvelda hafa þannig afskrif
aS hann. En erkióvinur Bor-
manns er ekki á sama máli-
Fyrir fáeinum dögum sagði
1 hann:
— Eg veit, að hann er í
Argentínu. Eg veit nákvæmlega
hvar hann er. Eg get náS í
hann hvaSa dag sem vera skal.
Þetta eru ekki orS manns,
sem er aS reyna aS koma nafni
sínu í heimsfréttirnar. Hann
heitir Tuviah Friedman. Hann
fékk Adolf Eichmann í net
sitt. Hann hefur dregiS um
1000 stríðsglæpamenn fram
fyrir dómarana. Hann situr á
lítilli skrifstofu í Haifa og
stjórnar stórkostlegri' „leyni-
þjónustu", sem nær til allra
heimsálfa. Hann er þekktur
sem maSurinn, sem aldrei gefst
upp — maSurinn, sem alltaf
f nær takmarki sínu — handsam
á ar stríSsglæpamanninn, sem
H hann leitar að, — þótt þaS
6 taki áratugi.
Þess vegna efast enginn um
orS hans, þegar hann segír að
Bormann dvelji í Argentínu.
Dæmdur til dauða.
Martin Bormann er í, dag
65 ára aS aldri. Hann er sá
síSasti af stórglæpamönnum
þý2kra nazista, sem ekki hefur
enn tekiS út refsingu sína. Ár-
iS 1947 var hann dæmdur í
Niirnberg, viS stríðsglæparétt-
arhöldin þar, til dauSa. Hann
var fjarstaddur.
Tuttugu ár eru liðin frá
falli Hitlers-Þýzkalands, og
þessa tvo áratugi hefur mikiS
veríð rætt um Martin Bormann
og líf hans og starf á tímum
nazista hefur veriS rannsakaS
nákvæmlega af fjölda sagnfræS
inga.
Bormann fæddist í Halber-
stadt 17. júní áriS 1900. Er
fyrri heimsstyrjöldin hófst, fór
hann beint úr skólanum og á
vígstöðvarnar. Er friður var
saminn, hóf hann starf innan
ýmíssa öfgaflokka. Hann var
nazisti áSur en Hitler kom fram
á hiS pólitíska sjónarsviS. ÁriS
1924 var hann dæmdur í eins
árs fangelsi fyrir þátttöku I
morði á einum félaga sínum,
sem hafði legiS undir grun
um aS vera njósnari í hinni
alræmdu Svartstakkasveit, sem
Bormann var í tengslum viS.
Hann starfaSi meS Hitler frá
byrjun og stjama hans reis
fljótt hjá foringjanum. Þegar
Hess flúSi til Englands áriS
1941, varð Bormann staðgeng
íll Hitlers í hans stað.
Kínverskur múr.
Martin Bormann varð áhrifa
mesti . óþekktasti og um leið
leyndardómsfyllsti nazista-
broddi Þýzkalands. Hann reisti
eins konar kínverskan múr um
hverfis Hítler með því að
stjóma öllum málum hans
sjálfur. Hann stóð á þröskuldi
hins allra heilagasta — eng
inn gat fengið neitt hjá for
ingjanum án þess að hafa rætt
málið við Bormann fyrst.
1. maí 1945 flúði hann ásamt
nokkram öðrum úr loftvarnar-
byrgi Hítlers. Fregnir af flótt
anum gegnum Berlín eru óljós
ar. Sumir telja, að hann hafi
drepizt, Þegar brot úr sprengju
kúlu hitti hann í höfuðið. En
lík hans hefur aldrei fundizt.
Er almennt talið, að hann hafi
sloppið frá Berlín og farið um
Spán, Mið-Austur-lönd og það
an til Suður-Ameríku. En það
er einungis ágizkanir. Sumir
segjast hafa séð hann í flestum
ríkjum frá Ástralíu til Svíþjóð
ar.
20 ára draugur.
Margir þykjast hafa séð Bor-
mann á þessum 20 árum, sem
liðin era frá hvarfi hans. Hér
er stutt yfirlit yfir slíkar til-
kynningar:
1945: — Tveir menn, sem
þekktu Bormann vel, segjast
hafa séð hann í Sýrlandi.
1946: — Varsjár-útvarpið til-
kynnti, að Bormann hafi þrisv
ar talað tíl þýzku þjóð-
arinnar 1 leynilegum útvarps-
sendingum. — Forsætísráð-
herra Bayern fullyrti, að Bor
mann væri leiðtogi um 4000
SS-hryðjuverkamanna, sem
héldu til í fjöllunum Þar. Her
menn Bandamanna „fínkembdu'
Munchen-svæðið en án árang
urs.
19‘47: — Fullyrt, að Bormann
hafi sézt í Ástralíu- Jafnframt
leituðu tveir lögregluforingjar
frá Scotland Yard að honum í
Egyptalandi. Herforingi einn,
Maðurinn, sem kom Eichman í gálgann, og hefur náð 1000 stríðs-
glæpamönnum. Tuviah Friedmann veit hvar Borman er í Argentfnu.
sem flúði frá Sovétríkjunum,
fullyrti, að Bormann væri þar,
enda hefði hann starfað fyrir
Rússa allt frá því árið 1943.
1?49: — Fullyrt að hann hafi
sézt á landamærum AusturríMs
og Ítalíu.
1950: — Sagt var, að Bormann
héldi til í klaustri einu á Suð
ur Spáni. Væri hann þar yfir
maður öflugrar nazistahreyfing
ar, sem hefði það takmark að
endurreisa hernaðarveldi Þýzka
lands.
1952: — Fullyrt að hann hafi
hafi sézt í Brasilíu.
1953: — ítalir fullyrða, að hann
starfi við járnbrautirnar 1 Bol
ivíu.
1961: — Sagður hafa látizt i
Mið-Austurlöndum, þar sem
hann hafi verið velefnaður fjár
málamaður.
1962: — Leyniþjónustur Banda
ríkjanna, Bretlands og ísraels
fullyrða, að Bormann hafi
sloppíð til Argentínu árið 1946.
Hafi hann látizt þar árið 1958
á einkasjúkrahúsi í suðurhluta
landsins.
1964: — Nýjar fullyrðingar um
að Bormann sé á lífi auka enn
leitina að Bormann. Vestur-
Þýzkaland leggur um 1 milljón
króna til höfuðs honum.
Nýnazistahreyfingarnar í
Vestur-Þýzkalandi hafa einnig
reynt að notfæra sér orðróminn
um, að Bormann væri á lífi.
Þannig skrifaði fyrrverandí flug
maður hans nýlega í vikublað
eitt, að hann hefði hitt Bor-
mann fyrir nokkrum árum.
Hafi hann þá lýst því yfir að
hann ynni að því að endur-
reísa þúsundáraríkið!
Gamall og siúkur.
En þótt Bormann sé á lífi,
þá þarf enginn að óttast neitt
af hans hendi. í dag er hann
gamall maður og margir sjúk
dómar þjá hann. Það getur
hann m. a. þakkað matgræðgi
sinni fyrr á tímum.
Einkaritari hans hefur sagt
eftirfarandi um Bormann:
— Hann var mikill aðdáandi
swing-tónlistar. Á ferðalögum
sínum hafði hann alltaf plötur
með sér. í ástarmálum var
hann ótrúlega gagnrýnislaus.
Stúlkumar í Obersalzberg, þar
sem hann bjó, og þar sem kona
hans ól honum 10 börn köll
uðu hann „nautið“. Óvinir hans
kölluðu hann djöfulinn.
Allt þetta og míklu meira
veit Tuviah Friedman um Bor
mann. Friedman fyrrverandi
liðsforingi í frelsisher Pól-
verja, sem vígt hefur líf sitt
leitinni að Þýzkum stríðsglæpa
mönnum.
í dag er hann 42 ára gamall.
Hann fæddist í litlum pólskum
bæ, Radom. Þjóðverjarnir komu
þangað, þegar hann var 17
ára. Hann var ásamt foreldrum
sínum og systkinum, rekinn í
eitt hinna óhugnanlegu ghettóa,
og síðar var hann fluttur frá
einum þrælkunarbúðunum til
annarra. Hann lifðí af hungur
og farsóttir og að lokum tókst
honum að flýja inn í skógana,
þar sem hann lifði á rótum og
hráum kartöflum í mánuði.
Nazistar myrtu svo til alla fjöl
skyldu hans.
Þegar Rússar tóku Pólland
á sitt vald, gaf hann kost á
sér til þátttöku í leitinni að
stríðsglæpamönnunum, og síð
ar starfaði hann á vegum banda
rísku hemaðaryfirvaldanna i
Vestur-Þýzkalandi að þeirri
leit.
Á skrifstofu Friedmans i
Framhald á bls. 12