Morgunblaðið - 17.07.1987, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 17.07.1987, Blaðsíða 34
34 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 17. JÚLÍ 1987 Stjörnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Ágæti stjömuspekingur. Ég hef mikinn áhuga á að vita hvað stjömumar segja um mig og manninn minn og okkar samskipti. Ég er fædd 1. 2. 54 kl. 15.30 í Reykjavík og hann er fædd- ur 22. 1. 55 kl. 15.27 í Reykjavík. Með fyrirfram þakklæti." Svar: Ég verð að segja eins og er að mér fannst kort ykkar saman blátt áfram hlægileg. Ekki á neikvæðri merkingu, heldur vegna þess hversu margt er líkt í þeim. Þið hafði bæði Sól í Vatnsbera, Tungl á sömu gráðu í Stein- geit, Merkúr í Vatnsbera og í ofanálag Ljón Rísandi og Fisk á Miðhimni. Það em einungis Venus og Mars af persónulegu þáttunum, sem ekki eru í sömu merkjum. Þú hefur Venus í Vatnsbera og Mars í Sporðdreka og hann hefur Venus í Bog- manni og Mars í Hrút. Eigið vel saman Þetta táknar að þið eigið vel saman. Þið eigið að geta skilið hvort annað, bæði hugmyndalega og tilfínn- ingalega og jafnframt eiga þarflr ykkar t.d. hvað varðar heimili og daglegt lífsmynst- ur að vera líkar. Þrjósk Það sem gæti háð ykkur er það að þið eruð kannski of lík, eruð t.d. bæði ráðrík og stjómsöm og eigið til að vera stíf á ykkar meiningu. Þið þurfið því stundum að gera málamiðlanir. Þú ættir t.d. að varast að segja að maðurinn þinn sé frekur, bara af því að hann vill ekki hlýða ráðríkinni í þér, og öfugt. Þetta ætti þó ekki að koma oft upp þar sem þið eruð vel samstíga. Hið ólíka Mars í Sporðdreka í þínu korti táknar að þú ert dulari og varkárari t.d. hvað varðar framkvæmdir. Hrúturinn er meira drífandi og fljótfær- ari. Venus í Bogmanni er einnig félagslega eirðar- lausari og opnari en Venus í Vatnsbera. Fleira er ólíkt en plássið leyfirekki ítarlega umfjöllun. Föst fyrir Merki þín, Vatnsberi, Stein- geit, Ljón, Sporðdreki, eru öll föst fyrir, sterk og stjórn- söm. Þú ert því að upplagi ákveðin og föst fyrir. Þér gæti hætt til að vera of þrjósk og stöð, þ.e. breyta ekki nógu mikið til að taka þá áhættu sem þig langar til að taka. Félags/ynd Sterkur Vatnsberi í 7. húsi táknar að þú ert félagslynd og þarft á öðm fólki að halda. Þú finnur t.d. sjálfa þig í nánu samstarfi við aðra. Þetta táknar að þið hjónin þurfið á hvort öðru að halda, en táknar einnig að þú hefur hæfileika til að vinna með fólki í félagslegu starfi. Fullkomnunar- þörf Sterkur Satúmus, m.a. í spennuafstöðu við Sól og Rísandi, táknar að þú hefur skipulagshajfileika og sterka fullkomnunarþörf, Það síðasttalda getur leitt til of mikillar kröfuhörku og þess að þú bælir sjálfa þig niður. Þú þarft að trúa meira á sjálfa þig og gera það sem þig langar til að gera. GARPUR rvWD A 1 CMO UYKAuLbNo LJÓSKA FERDINAND Fröken? MARCIE 5AV5 VOU g éAVE MER AN "A" | ON MER PAPER... I Magga segir að þú hafir gefið henni A fyrir rit- gerðina hennar ... YOU COULP VE 60T TUE 5AME PAPER FROM ME FOR A "P-MINU5" Þú hefðir getað fengið sömu ritgerð hjá mér fyrir falleinkunn SMÁFÓLK Af hverju að borga meira en maður þarf? Umsjón: Guðm. Páll Arnarson Sex hjörtu er sterkur samn- ingur á spilin að neðan, en þó er hætta á að gefa tvo slagi á láglitina. Eða hvað? Norður gefur; AV á hættu. Norður ♦ G ¥ÁD92 ♦ ÁG965 ♦ K102 Suður ♦ - ¥ KG865 ♦ D2 ♦ ÁG9763 Vestur Noirður Austur Suður — 1 tíguli 2 spaðar 3 hjörtu 3 spadar 4 spaðar Pass 5 lauf Pass 5 tíglar Pass 5 spaðar Pass 6 lauf Pass 6 hjörtu Pass Pass Pass Vestur kemur út með smáan spaða upp á ás austurs. Hver er besta spilamennskan? Tromp- in liggja 2-2. Þrennt kemur til greina eftir að hafa tekið tvisvar tromp: I fyrsta lagi einfaldlega að svína fyrir tígulkónginn og reyna svo að komast að skiptingunni. Gall- inn við þessa áætlun er sá að seint verður hægt að vita með vissu hvort spaðinn skiptist 7-5 eða 6-6. I öðra lagi kemur til greina að toppa laufið. Þá vinnst spilið þótt austur eigi drottninguna þriðju, því þá verður hann að spila sér í óhag. En í þessari legu verður helst að finna þriðju og bestu leiðina: Norður ♦ G ♦ ÁD92 ♦ ÁG965 ♦ K102 Vestur ♦ K109543 ¥ 103 ♦ 43 ♦ D54 Austur ♦ ÁD8762 ¥74 ♦ K1087 ♦ 8 Suður ♦ - ¥ KG865 ♦ D2 ♦ ÁG9763 Hún felst í því að taka laufás og spila laufi á tíuna. Þá má austur að skaðlausu fá slag á drottninguna. Umsjón Margeir Pétursson Á opnu móti í Kecskemet í Ungveijálandi í júní kom þessi staða upp í skák Svíans Johnny Hector, sem hafði hvítt og átti leik og heimamannsins Tibor Karolyi, sem er alþjóðlegur meistari. I Sé kW iii i 4 ó k Á %. t? & . 'í' X1. Það er viðurkennd staðreynd að þrír léttir menn era yfirleitt öflugri en drottning ef þeir ná á annað borð að vinna saman. Þessi staða er engin undantekn- ing, því það varð mjög brátt um svart: 20. Bh6! og svartur gafst upp. Eftir 20. - gxh6, 21. Rf6+ - Kh8, 22. Hxh6 er hann óvetj- andi mát og að öðram kosti fellur peðið á g7 með óstöðvandi sókn hvíts í kjölfarið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.