Morgunblaðið - 24.07.1987, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.07.1987, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 165. tbl. 75. árg._FÖSTUDAGUR 24. JÚLÍ 1987 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Fj órir menn fórust í flugslysi við Blönduós Flugvélin TF-PRT, Piper Cherokee Arrow, á siysstað. í Qarska sést til Blönduóss. Morgunbiaðið/KGA. Sovétmenn staðfesta tilboð Gorbachevs: Útrýming v-þýskra eldflauga skilyrði fyrir samkomulagi Washington, Moskvu, Genf, Reuter. FJÓRIR menn fórust þegar lítil einshreyfils flugvél fórst skömmu eftir flugtak frá flug- vellinum á Blönduósi í gærdag. Ókunnugt er um orsakir slyssins. Að sögn Jóns ísbergs sýsiumanns fórust með vélinni þeir Friðrik Dungal, rafvirki Bæjargili 88, Garðabæ, Gunnar Guðmundsson, raftæknir, Garði MosfeUssveit, Magnús Ingi Sigurðsson, við- skiptafræðingur, Jörfabakka 30 og Rafn Ragnarsson, flugmaður, Safamýri 31. Vélin, sem bar einkennisstafina TF-PRT og er af gerðinni Piper PA-28, kom til Blönduós í fyrra- kvöld frá Ólafsfirði á heimleið til Reykjavíkur. Vegna slæms skyggn- is að talið er ákváðu mennimir að bíða næsta dags á Blönduósi en halda þá áfram. Vélin tók á loft frá flugvellinum á Blönduósi klukkan 13.15, en brot- lenti skömmu síðar neðarlega í Hnjúkum í landi bæjarins Röðuls um fjóra kílómetra suður af Blöndu- ósi og um 600 metra frá bænum. Þoka og súld var þegar slysið varð og skyggni ekki nema nokkur hundmð metrar. Fólk frá bænum Sauðanesi, næsta bæ sunnan við Röðul, heyrði til vélarinnar og kom á slysstaðinn örfáum mínútum síðar. „Það var svarta þoka og súld. Við vomm stödd út við bílinn þegar við heyrð- um vélarhljóð. Vélarhljóðið hækkaði skyndilega, eins og vélinni væri gefíð afl, síðan þagnaði það snögg- lega og heyrðist dynkur," sagði Páll Þórðarson, bóndi í Sauðanesi, í samtali við Morgunblaðið um kvöldmatarleytið í gær. Lögreglunni og læknum á Blönduósi var strax gert viðvart og vom þeir komnir á slysstað um tíu mínútum síðar, en mennimir vom allir látnir þegar að var komið. Loftferðaeftirlitið og Flugslysa- nefnd hafa rannsókn slyssins með höndum og komu menn frá þessum aðilum á slysstað um kvöldmatar- leytið í gær. Sjá ennfremur viðtal og mynd- ir á bls. 18. A FUNDI samnmganefhda risa- veldanna í Genf i gær lögðu Sovétríkin fram formlega tillögu um að útrýma ölium skamm- og meðaldrægum kjarnorkuflaug- um sinum og Bandarikjanna út um allan heim, en ekki aðeins i Evrópu. Það skilyrði var þó sett fyrir því að samkomulag um slikt næðist, að Pershing-flaugar Vestur-Þjóðverja verði ekki und- anskildar. Leiðtogar á Vestur- löndum brugðust almennt vel við tilboði Sovétmanna, en Þjóðverj- ar og Bandarikjamenn vilja þó ekki samþykkja skilyrðið um Pershing-flaugarnar. Fyrsti varautanríkisráðherra Sovétríkjanna, Yuli Vorontsov, sagði í gær að það væri algert skil- yrði af hálfu Sovétmanna að Pershing-flaugamar 72, sem eru í eigu V-Þjóðverja en bera banda- ríska kjamaodda, yrðu teknar með í samningunum. Hann tilgreindi þijú önnur atriði, sem yrði að upp- fylla. Þau eru: Raunvemleg útrýming allra flauganna, sem um yrði samið, en ekki breyting í aðra gerð vopna, eftirlit með því að báð- ir aðilar fylgist að í niðurskurði sínum og réttur beggja risaveld- anna til að krefjast sannana fyrir eyðingu flauganna. Stjómmálaleiðtogar ýmissa vest- rænna ríkja bmgðust jákvætt við tillögum Sovétmanna í gær. Þjóðar- öryggisráðgjafi Bandaríkjaforseta, Frank Carlucci, lét svo um mælt, að með tillögum sínum hefðu Sovét- menn aukið líkumar á fundi leið- toga stórveldanna á næstunni. Hann sagði hins vegar að skilyrðið um flaugamar í Þýskalandi væri óþörf hindmn af hálfu Sovétmanna. „Við samþykkjum ekki þá skoðun þeirra að Pershing-flaugamar eigi að vera á samningaborðinu," sagði Carlucci og bætti við að Reagan forseta væri mikið í mun að til þess kæmi ekki. Kohl, kanslari Vestur-Þýska- lands, og Genscher, utanríkisráð- herra, fögnuðu sovésku tillögunum og sögðu þær mikilvægt skref á leiðinni til afvopnunar, en talsmað- ur þýsku sambandsstjómarinnar í utanríkismálum, Friedhelm Ost, ítrekaði þá skoðun Vestur-Þjóð- verja, að afvopnunarviðræðumar í Genf skuli aðeins snerta vopn risa- veldanna, en ekki eldflaugar annarra ríkja, þar með talið Vest- ur-Þýskalands. Tindemans, utanríkisráðherra Belgíu, gríska stjórnin og Margaret Thatcher lýstu yfir ánægju sinni með fmmkvæði Sovétmanna. Thatcher sagði að stjóm sín myndi taka heils hugar á móti slíku boði, ef því fylgdu engin skilyrði. Sjá ennfremur sögu afvopnunar- viðræðnanna á blaðsíðu 20. Babylon endurreist Babylon, írak. Reuter. VERIÐ er að endurreisa Babyl- on hina fomu i írak og stendur til að verkinu verði lokið í sept- ember nk. Þá verður haldin mikil hljómlistarhátíð er standa á í 30 daga. Listamenn frá 40 ríkjum koma þar fram og verður sjónvarpað um allan heim frá helstu atburðum. Forseti írak, Saddam Hussein, hefur veitt margar milljónir dollara til þessa verkefnis. Segja embættis- menn stjómarinnar að með þvf að endurreisa hina fomfrægu borg, því sem næst í upprunalegri mynd, eigi að sýna umheiminum að íraska þjóðin láti ekki deigan síga, þrátt fyrir stríðið við írani, er staðið hefur í sjö ár. Allt sem tengist hátíðinni á að vera eftirmynd þess sem tíðkaðist í Babylon fyrir 25 öldum, fatnaður- inn, söngurinn og jafnvel maturinn líka. Verið er að reisa nýjan bæ fyrir ferðamenn í nágrenni Babyl- onborgar og þar eru allar bygging- ar í hinum foma stfl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.