Morgunblaðið - 18.08.1987, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 18.08.1987, Blaðsíða 54
TPTTf)Á ftf ®TpAOin,tTWfí fTKTA UJMnr\5TnM MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1987 + * Utvegsbanki Islands hf Vilja kaupa öll hlutabréf ríkisins Jóni Sigurðssyni, viðskiptaráðherra, afhent tilboðið. Morgunblaðið/KGA FULLTRUAR 33 aðila í sjávarút- vegi, þjónustu, Iðnaðarbanka og Verzlunarbanka gengu á fund Jóns Sigurðssonar, viðskiptaráð- herra, klukkan 15.00 í gær og afhentu honum tilboð í 76% hlutafjár Útvegsbanka íslands hf. og er það allt hlutafé sem enn er í eigu ríkissjóðs. Ef af kaupun- um verður er stefnt að því að Útvegsbankinn og Iðnaðarbank- inn sameinist á næsta ári og hugsanlega einnig Verziunar- bankinn. Síðastliðinn föstudag lagði Sam- band íslenskra samvinnufélaga og þrjú fyrirtækja þess fram tilboð í 67% hlutafjár Útvegsbankans. Und- anfama mánuði hafa aðilar í sjávarútvegi, undir forustu Lands- sambands íslenskra útvegsmanna, Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna og Sölusambands íslenskra físk- framleiðenda, unnið að því að safna hlutafé fyrir meirihluta í bankanum. Tilboð Sambandsins kom þessum aðilum á óvart en þegar fréttist um það komst verulegur skriður á hlut- aQársöfnun þeirra. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins höfðu safnast loforð fyrir 645 milljónum króna þegar á laugardagsmorgun. Eftir það samþykktu bankaráð Iðn- aðarbankans og Verzlunarbankans að leggja fram 50 milljónir króna hvor banki. Þá bættust einnig fleiri aðilar í hópinn. Á fundi sem haldinn ' var á skrifstofu LÍÚ kl. 11.00 í gærmorgun var endanlega gengið frá tilboðinu. Og kl. 15 gengu full- trúar tilboðsgjafa á fund viðskipta- ráðherra, eins og áður segir. Áttu ekki von á tilboði Kristján Ragnarsson, formaður LÍÚ, sagði þegar hann var spurður um ástæður þess að tilboð þessara aðila hefði ekki verið lagt fram fyrr og áður en Sambandið gerði sitt tilboð: „Vegna þess að okkur hafði ekki unnist tími til að safna þessu hlutafé. Viðskiptaráðherra fyrri ríkisstjómar gaf okkur frest til 15. nóvember nk. til þess að ganga frá þessu máli. Við áttum ekki von á því að það mundi berast tilboð í meirihluta hlutafjár innan þess tíma. Við teljum að þeim sem tilboð- ið gerðu hafi verið kunnugt um það að við höfðum rætt þetta og að stjóm LÍÚ samþykkti 11. maí að leggja fram 50 milljónir króna til að stuðla að samstöðu um kaup á þessum bréfum." I tilkynningu sem forsvarsmenn tilboðsgjafa lögðu fram á blaða- mannafundi í gær segir orðrétt: „Þegar sett vom lög um stofnun hlutafélagsbanka um Útvegsbanka Islands sl. vor, var eftir því leitað af síðustu ríkisstjóm að sjávarút- vegurinn keypti meirihluta í hinu nýja hlutafélagi, enda var sett ákvæði í hin nýju lög, að heimila Fiskveiðasjóði Islands að kaupa 20% af hlutafénu, sem stjóm Fisk- veiðasjóðs samþykkti með sam- hljóða atkvæðum að nýta. I framhaldi af því samþykkti stjórn LÍÚ á fundi sínum 11. maí sl. að leggja fram 50 milljónir króna til kaupa á hlutafé og hafa forystu um, ásamt Sölumiðstöð hraðfrysti- húsanna og Sölusambandi ísl. fiskframleiðenda, að safna hlutafé fyrir meirihluta í bankanum. Var þegar hafíst handa við þetta verk, en viðskiptaráðuneytið hafði veitt frest til 15. nóvember í haust til kaupa á hlutafé. Nú hafa þeir atburðir gerst sem knýja á um að ljúka málinu fyrr. Heftir það leitt til þess að 33 aðilar hafa bundist samtökum um að kaupa allt óselt hlutafé ríkissjóðs í Útvegsbanka íslands hf. að fjárhæð 760 milljónir króna að nafnverði. Hefur verið leitað til mikilvægra viðskiptavina sjávarútvegsins og nokkurra annarra aðila um að gera þessi kaup möguleg. Eins og áður er að vikið er boð- ist til að kaupa allt óselt hlutafé ríkissjóðs og greiða það á 5 árum eins og óskað er eftir í útboðstil- kynningu viðskiptaráðuneytisins frá því í júní sl. Ennfremur að greiða nú þegar 6% af hlutafénu í stað 5% sem óskað er eftir í út- boðstilkynningunni og hefur ávísun fyrir þessari upphæð að viðlögðu álagi vegna vísitöluhækkunar sam- tals að upphæð kr. 47.822.385,- verið afhent viðskiptaráðuneytinu." Eimskip annar stærsti hluthafinn Að þessu tilboði standa 33 aðilar í sjávarútvegi, þjónustu, tveir bank- ar og einstaklingar. Ef viðskipta- ráðherra tekur tilboðinu verður Eimskip annar stærsti hluthafínn í Útvegsbankanum með 10% hluta- §ár. Stærstur verður Fiskveiðasjóð- ur íslands sem á þegar 20% hlutafjár. Þriðji stærsti hluthafinn verður Lífeyrissjóður verslunar- manna. Hér til hliðar er birtur listi yfír þá sem standa að tilboðinu og þar má sjá að 5 fyrirtæki bjóða hvert um sig í 50 milljónir króna. „Með þessu erum við að veija stöðu okkar í útflutningi á sjávaraf- urðum og flutningum á aðföngum fyrir fískvinnsluna," sagði Þórður Magnússon, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Eimskips þegar hann var spurður um ástæður þess að félagið hefur ákveðið að falast eftir 100 milljónum króna af hlutafé Útvegsbankans. „í annan stað vilj- um við stuðla að aukinni hag- kvæmni í bankakerfinu með sameiningu banka og stærri rekstr- areiningum." Ákvörðun Eimskips um hlutafjárkaupin var tekin þegar síðastliðinn föstudag, eftir að tilboð Sambandsins lá fyrir. Sameining banka Á blaðamannafundi sem forustu- menn SÍS héldu eftir að þeir höfðu afhent viðskiptaráðherra tilboð sitt gerði Guðjón B. Ólafsson forstjóri þess mikinn greinarmun á tilboðinu og kaupum aðila í sjávarútvegi á hlutabréfum í Útvegsbankanum: „Það er verulegur munur á því hvort slíkir aðilar sameinast um að kaupa hlut í bankanum, eða eins og í því tilfelli sem hér um ræðir, að það sé annar banki sem sameinast Út- vegsbankanum." Ætlun Sambands- ins er að sameina Samvinnubank- ann og Útvegsbankann, eignist það hlutabréfín í Útvegsbankanum. Þá lýsti Valur Arnþórsson stjórnar- formaður SIS yfir áhuga á að Alþýðubankinn tæki þátt í þeirri sameiningu. Tilboðsgjafamir 33 og bankaráð Iðnaðarbankans hafa hins vegar gert með sér samkomulag þar sem gert er ráð fyrir að Útvegsbankinn og Iðnaðarbankinn sameinist á næsta ári, eða þegar reikningsupp- gjör bankanna fyrir þetta ár liggur fyrir. Samkomulagið hljóðar orð- rétt: „Það er ásetningur undirrit- aðra, að beita sér fyrir því, að Iðnaðarbanki Islands hf. og Útvegs- banki Islands hf. sameinist. Miðað er við að sameiningin eigi sér stað í kjölfar ársuppgjörs fyrir árið 1987.“ Undir þetta rita Kristján Ragnarsson fyrir hönd tilboðsgjafa og Davíð Sch. Thorsteinsson for- maður bankaráðs Iðnaðarbankans hf. Samhliða þessu samþykkti bankaráð Verzlunarbankans bókun sem opnar möguleika á enn frekari samvinnu og sameiningu. Bókunin hljóðar svo: „Bankaráð samþykkir að kaupa hlutafé fyrir allt að 50 milljónir króna í Útvegsbanka ís- lands hf. í því skyni að efla einka- banka og einkarekstur. Jafnframt opnast möguleikar á enn frekara samstarfí milli bank- anna í framtíðinni, sem þannig geti skapað grundvöll fyrir sameiningu einkabanka." Á síðari hluta 1986 fóm fram viðræður um sameiningu Iðnaðar- banka, Verzlunarbanka og Útvegs- banka. Upp úr þessum viðræðum slitnaði, eins og kunnugt er. Nú er afstaða Verslunarbankans til sam- einingar ekki jafn eindregin og Iðnaðarbankaps og var spurt um ástæðu þess. Árni Gestsson formað- ur bankaráðs Verzlunarbankans sagði að hlutabréfakaupin nú bæri að með allt öðmm hætti en viðræð- umar síðastliðið ár: „Þetta er miklu breiðari fylking sem stendur að þessu og það er búið að tryggja sölu þess hlutafjár sem óselt var. Þannig að þetta lítur allt öðmvísi út en þá. Auk þess em skilmálam- ir sem em boðnir af ríkissjóði aðrir og hagstæðari en fyrir áramót vegna þess að ríkissjóður tekur á sig skuldbindingar bankans og þær skuldir sem ekki fást greiddar. Þetta var ekki svo þegar rætt var um sameiningu bankanna." Davíð Sch. Thorsteinsson for- maður bankaráðs Iðnaðarbankans sagði að afstaða Iðnaðarbankans væri óbreytt frá því í janúar sl. Hann vitnaði í bréf bankans til Seðlabankans 19. janúar eftir að slitnað hafði upp úr viðræðunum við Verzlunarbankann: „Iðnaðar- bankinn er hins vegar reiðubúinn til að ræða aðra kosti í endurskipu- lagningu bankakerfísins sem leitt gætu til aukinnar hagkvæmni." í þessu sambandi benti Kristján Ragnarsson formaður LIÚ á að báðir bankamir legðu fram 50 millj- ónir króna: „Það verður að teljast áhersluatriði í þessu sambandi." Hann tók einnig undir með Árna Gestssyni að allur viðskilnaður ríkisins við bankann væri skýr með lögunum um Útvegsbanka Islands hf. Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra: Ríkið geri ekki upp á milli aðila „MENN verða að átta sig á því að það er grundvallaratriði að ríkisvaldið geri ekki upp á milli aðila, að það sé farið að viður- kenndum reglum og viðteknum viðskiptaháttum í svona málum,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, fjármálaráðherra, þegar hann var spurður um álit hans á nýja tilboðinu. „Eg lét hafa það eftir mér vegna tilboðs Sambandsins og samstarfs- aðila þess að það væri tilboð sem ekki væri hægt að hafna af ein- hverjum pólitískum ástæðum," sagði Jón Baldvin og bætti við: „í raun og vem eru höfuðatriðin ein- föld. Ríkið hefur ákveðið að bjóða hlutabréf sín í Útvegsbankanum til kaups og auglýst þá ákvörðun og kveðið á um verð og kjör. Það sem gerðist var að Sambandið og sam- starfsaðilar þess gerðu tilboð í þessa eign og fullnægðu áður auglýstum skilmálum. Þegar annar aðili leggur fram tilboð sem í fljótu bragði virð- ist ríkinu hagstæðara verður að skoða það vandlega. En jafnframt verða menn að hugsa til málsmeð- ferðarinnar, þ.e.a.s. þegar vara er boðin til kaups á ákveðnum skilmál- um og einhver aðili býðst til að kaupa og fullnægir settum skilyrð- um, hver verður réttur hans við það að annar bíður betur. Ég held að á þessu stigi þurfí að fara vandleg athugun á því hver sé réttarstaða aðila.“ _ A Tilboð í Utvegsbankann UM LEIÐ og fulltrúar 33 aðila í ýmsum starfsgreinum lögðu fram nýtt tilboð í hlutabréf ríkisins í Útvegsbanka íslands hf. voru greiddar fram 6% út- borgun af andvirði hlutabréf- anna. . Samband íslenskra samvinnu- félaga og þijú fyrirtækja þess lögðu fram tilboð í hlutabréf Út- vegsbankans síðastliðinn föstu- dag. Tilboðin eru þó í mörgu ólík. Sambandið bauð í 67% hlutafjár bankans eða 670 milljónir króna á nafnverði. Tilboðið í gær hljóðar hins vegar upp á 76% hlutafjár eða 760 milljónir króna. Með öðr- um orðum 90 mjlljónum króna hærra en tilboð SÍS. Þegar Sambandið lagði fram tilboð sitt voru greiddar 33,5 millj- ónir króna eða 5% nafnverðs sem útborgun. Hins vegar greiddur aðstandendur síðara tilboðsins 6% af andvirði hlutabréfanna eða i 47,8 milljónir króna þegar nafn- verð hefur verið reiknað sam- kvæmt hækkun lánskjaravísi- tölunnar. I útboði ríkisins er gert ráð fyrir að þeir sem kaupi hlutabréf fyrir er fyrir lægri upphæð en 100 þúsund krónur staðgreiði. Ef keypt er fyrir hærri upphæð en fyrir minna en eina milljón geta kaupendur fengið 95% lánað til þriggja ára. Aðilar sem kaupa hlutafé fyrir meira en eina milljón geta fengið 95% lánað til allt að 5 ára. Ef keypt eru hlutabréf fyr- ir hærri uphæð en 10 milljónir króna getur kaupandi samið um sérstök greiðslukjör. Sambandið og fyrirtæki þess fóru fram á slíkar viðræður og eins og kom fram í frétt Morgunblaðsins síðastliðinn laugardag hafði SÍS lagt til að greiða hluta hlutaíjár- ins á fímm árum en hluta á sjö árum. Síðara tilboðið gerir hins vegar ráð fyrir að hlutaféð sé allt greitt á fímm árum. í útboði ríkis- ins er ákvæði um að eftirstöðvar séu verðtryggðar og beri meðal- vexti verðtryggðra skuldabréfal- ána. Hér á eftir er tilboð aðilanna 33ja: Undirritaðir aðilar gera hér með svofellt kauptilboð í hlutabréf Ríkissjóðs Islands í Útvegsbanka íslands hf. 1. Gert er tilboð um kaup á hlutabréfum, samtals að fjáhæð á nafnvirði 760.000.000 — sjö hundruð og sextíu rnilljónir króna — með lánskjaravísitöluálagi nú 4,87365 stig, samtals nú að and- virði kr. 797.039.740 — sjö hundruð níutíu og sjö milljónir þijátíu og níu þúsund sjö hundruð og fjönitíu krónur. 2. Útborgun verði 6% af and- virði hlutabréfanna að Qárhæð á nafnvirði 45.600.00 — fjörutíu og fímm milljónir sex hundruð þús- und krónur — með lánskjaravísi- töluálagi 4,87365 stig, samtals að andvirði kr. 47.822.384 — fjör- utíu og sjö milljón átta hundruð tuttugu og tvöþúsund þijú hundr- uð áttatíu og fjórar krónur. 3. Eftirstöðvar kaupverðsins verði lánaðar til 5 ára og bundnar lánskjaravísitölu miðað við kaup- dag og beri vexti, sem eru meðaltal vaxta verðtryggðra útl- ána á hveijum tíma samkvæmt auglýsingum Seðlabanka íslands. Gjalddagar verði misserislega, í fyrsta sinn hinn 30. apríl 1988. 4. Hver og einn tilboðsgjafa um sig mun gera sérstaka grein fyrir þeim tryggingum, sem hann mun leggja fram til tryggingar eftir- stöðvum kaupverðs þeirra hluta- bréfa, sem hann skuldbindur sig að kaupa. 5. Tilboðsgjafar gera þann fyr- irvara, að um fleiri kaupendur og tilflutning á íjárhæðum milli aðila geti orðið um að ræða frá því sem í tilboði þessu greinir. 6. Nöfn þeirra aðila, er standa að tilboði þessu og fjárhæð hluta- bréfa, sem hver þeirra gerir tilboð um kaup á, er sem hér á eftir greinir: Reykjavík, 17. ágúst 1987. Nafn tilboðsgjafa.Nafnverð í millj. Eimskipafélag ísl. 100 Lífeyrissj. verslunarmanna 60 Iðnaðarbanki íslands 50 Landss. ísl. útvegsmanna 50 Sölumiðst. hraðfrystih. 50 Tiyggingamiðstöðin hf. 50 Verzlunarbanki íslands hf. 50 Olíufélagið Skeljungur hf. 40 Hraðfiystist. Vestmannaeyja 35 H. Jónsson arkitekt 25 Thor Ó. Thors forst. 25 Ögurvík hf., Reykjavík 25 Grandi hf., Reykjavík 20 Síldar- og fiskimjölsverksm. Rvk. 20 Hraðfrystistöðin í Rvk. 15 ísfélag Vestmannaeyja 15 Andri, Reylqavík 10 Fiskanes, Grindavík 10 Hekla hf., Reykjavík 10 Hraðfry stihús Eskifj arðar hf. 10 Hrönn hf., ísafirði 10 Miðfell hf., Hnífsdal 10 Sjóvátryggingafélag Isl. 10 SoffaníasCecilssonútgm., 10 Fiskveiðahlutaf. Venus 10 Globus hf., Reykjavík 5 H. Benediktsson hf., Reykjavík 5 Kristján Guðmundss. útgm., Rifi 5 Magnús Gamalíelsson hf., Ólafsf. 5 Mjölvinnslan hf., Hnífsdal 5 Siglfirðingur hf., Siglufírði 5 Útgerðarfélag Flateyrar hf. 5 Þorbjöm hf., Grindavík 5 Samtals 760
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.