Morgunblaðið - 14.10.1987, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
232. tbl. 75. árg.
MIÐVIKUDAGUR 14. OKTÓBER 1987
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Mikhail Gorbachev:
Kerfið verður
skorið niður
Moskvu, Reuter.
MIKHAIL Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, hét því í gær að skera
skriffinnskuna í landinu niður við trog en tók fram, að hann væri
ekki að boða menningarbyltingu á borð við þá, sem var í Kína á
sínum tíma.
Gorbachev lét þessi orð falla á
fundi í Leningrad og sagði, að Sov-
étríkin yrðu fyrir óskaplegu tjóni
bæri herferð hans fyrir samfélags-
legri og efnahagslegri endumýjun
engan árangur. „Við höfum tekið
upp nýjar stjómunaraðferðir og
verðum nú að skera niður kerfið.
Við eigum aðeins að halda þeim
mönnum eftir, sem þörf er fyrir,
en ég tel, að nú séu þeir allt að
helmingi of margir," sagði hann.
Gorbachev hét að reka burt þá
embættismenn, sem stæðu í vegi
fyrir umbótum, og sagði, að hér
væm engin gamanmál á ferðinni
heldur sjálf framtíð lands og þjóð-
ar. Lagði hann þó áherslu á, að
ekki yrði um að ræða neina menn-
ingarbyltingu í líkingu við þá
kínversku. Veik hann einnig að
„hinum dimmu dögum" í sögu þjóð-
arinnar og sagði, að hún og flokkur-
inn hefðu þrátt fyrir allt lifað þá
af. Nefndi hann ekki við hvaða at-
burði hann ætti en hann hefur áður
minnst á fjöldamorðin í tíð Stalíns.
Búast sumir við, að hann muni
gera þeim tíma betri skil áður en
haldið verður upp á 70 ára afmæli
byltingarinnar í næsta mánuði.
New York Times:
Varað við fjölgun
sníkjudýra í fiski
Bandaríska stórblaðið The New York Times birtir í dag frétt um
sníkjudýr og orma í fiski og rekur umræðuna, sem orðið hefur um
þessi mál í kjölfar uppákomunnar í Vestur-Þýskalandi. Er þar sagt,
að sníkjudýrunum fari fjölgandi í fiski um allan heim og sé sérstak-
lega varasamt að borða hráan fisk en japanskir réttir, sem gerðir
eru úr honum, hafa verið mjög vinsælir vestra um skeið.
Reuter.
HEMSINS HÆSTIMAÐUR
Mósambíkmaðurinn Gabriel Mondlane, sem er talinn vera hæsti
maður í heimi, og kona hans, Maria, komu í gær til Suður-Afríku
þar sem hann mun gangast undir aðgerð á mjöðm. Urðu læknarn-
ir að byrja á því að lengja skurðarborðið þvi að Mondlane, sem er
42 ára gamall, er hvorki meira né minna en 2,46 metrar á hæð.
Framkvæmda-
stjóri NATO:
Er þriðji
maðurinn
lausnin?
Bonn, Reuter.
Norðmenn geta sætt sig við
þriðja frambj óðandann til emb-
ættis framkvæmdastjóra Atlants-
hafsbandalagsins til að hindra,
að Vestur-Þjoðveijinn Manfred
Wörner hreppi starfið. Var þetta
haft í gær éftir norskum stjórnar-
erindrekum en talsmaður norsku
stjómarinnar ber á móti því.
Norska stjómin, sem tilkynnti
framboð Káres Willoch, fyrrum for-
sætisráðherra, í ágúst sl. er sögð
vera mjög óánægð með framkomu
vestur-þýskra stjómvalda og fínnst
sem þau hafi gefíð í skyn, að Wöm-
er, fyrrum vamarmálaráðherra, sé
ömggur með að fá embætti fram-
kvæmdastjórans þegar Carrington
lávarður lætur af því næsta sumar.
' Er það haft ónefndum embættis-
mönnum norskum í Ósló og Bonn,
að slagurinn milli Willochs og Wöm-
ers kunni að skaða samskipti
þjóðanna og því sé rétt að huga að
þriðja frambjóðandanum. Sögðu
þeir, að kominn væri tími til, að ein
af smáþjóðunum í NATO fengi fram-
kvæmdastjórann og því væri unnt
að sættast á Leo Tindemans, ut-
anríkisráðherra Belgíu.
Per Paust, talsmaður norska ut-
anríkisráðuneytisins, sagði í gær, að
stjómin hefði ekki gert neinar sam-
þykktir um þriðja frambjóðandann
og ummæli embættismannanna væri
ekki opinber stefna.
í frétt blaðsins segir, að sníkju-
dýmnum hafí fjölgað vegna aukinn-
ar sela- og hvalagengdar og séu
það slæmar fréttir fyrir bandaríska
neytendur sem aðra. Kemur þar
fram, að vitað sé um 50 sýkingartil-
felli f Bandarílq'unum en að talið
sé, að 30 milljónir manna um allan
UNESCO:
Auknar Ukurá
kjöri M’Bows
Paris, Reuter.
í GÆR jukust líkurnar á, að
Amadou M’Bow, umdeildur
framkvæmdastjóri UNESCO,
Menningarmálastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, verði kjörinn í
embættið í þriðja sinn. Vantar
hann aðeins þijú atkvæði upp á
endanlegt kjör.
í fyrstu tveimur atkvæðagreiðsl-
unum fékk M’Bow 18 atkvæði en
23 í gær og helsti mótframbjóðandi
hans, spænski lífefnafræðingurinn
Federico Mayor, fékk í gær 18 og
tvöfaldaði fylgi sitt. Fjórða at-
k\'æðagreiðsian fer fram í dag en
í þeirri fímmtu, sem hugsanlega
verður í kvöld, verður kosið á milli
tveggja efstu.
A Vesturlöndum ríkir mikil
óánægja með M’Bow og hafa
Bandaríkjamenn, Bretar og Singap-
ore-búar sagt sig úr stofnuninni.
Danir, Vestur-Þjóðveijar, Hollend-
ingar og Belgar hafa hótað því
sama verði M’Bow kjörinn og Is-
lendingar og Finnar hafa einnig
látið að því liggja.
heim séu sýktar. Séu einkum þijár
físktegundir varasamastar, þorsk-
ur, Kyrrahafslax og önnur fiskteg-
und til, sem einnig lifír í Kyrrahafí.
í blaðinu eru raktar ýmsar verk-
unaraðferðir og haft eftir sníkju-
dýrafræðingum, að í þessum efnum
geti enginn verið öruggur nema
fískurinn sé frystur vel eða soðinn.
Þá var minnst á eitt sérstakt tilfelli
í San Francisco og var þar um að
ræða japanska réttinn „sushi" en
hann er gerður úr hráum fiski og
hefur átt sívaxandi vinsældum að
fagna sl. áratug.
Friðarverðlaun Nóbels:
V erðlaunaveiting-
unni almennt fagnað
San Jose, Reuter.
„ÞETTA er mesti gleðidagur í
lífi minu,“ sagði Oscar Arias
Sanchez, forseti Costa Rica, sem
Reuter
VETURINN BOÐAR KOMUSÍNA
Fyrstu spjóar haustsins féllu í gær i Sviss og þykir það heldur
með fyrra fallinu. Kýrnar i Lenzerheide, sem er i austanverðu
landinu, létu sér þó ekki bregða enda öllu vanar frá siðastliðnu
sumri, sem var bæði kalt og votviðrasamt. íbúarnir á þessum slóð-
um hafa hins vegar nokkrar áhyggjur af fannkomunni og óttast,
að veturinn verði harður.
í gær hlaut frið-
arverðlaun
Nóbels. Fékk
hann þau fyrir
framlag sitt til
friðar í Mið-
Ameríku og
hefur veiting-
unni almennt
verið fagnað og
hún talin geta
aukið líkumar á ®*car Ariaa
framgangi frið-
aráætlunar Ariasar og fjögurra
annarra forseta
í þeim heimshluta.
„Við vorum öll sofandi þegar
útvarpið sagði frá tíðindunum og
vissum ekkert fyrr en nokkrum
stundum síðar,“ sagði Silvia Elena
Arias, tíu ára gömul dóttir forset-
ans. „Hann var að sjálfsögðu
ánægður en hringdi samt í allar
áttir til að vera viss um, að þetta
væri ekki gabb."
Verðlaunaveitingunni var fagnað
ákaflega í Costa Rica og í gær var
um fátt annað rætt í fjölmiðlunum.
Stjómarandstæðingar sem stuðn-
ingsmenn Ariasar voru sammála
um, að hún yki líkumar á, að frið-
aráætlunin frá 7. ágúst næði fram
að ganga og í sama streng tóku
talsmenn annarra ríkisstjóma í
Mið-Ameríku og Samtaka Amerík-
uríkja. Var ekki síst farið lofsam-
legum orðum um hana í Nicaragua.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti óskaði Ariasi tii hamingju með
verðlaunin og sagði, að hann hefði
átt þau skilin fyrir að hafa mtt leið-
ina til friðar í Mið-Ameríku. Ýmsir
repúblikanar aðrir hafa þó gagn-
rýnt veitinguna ,og sagði t.d. Jack
Kemp, sem sækist eftir útnefningu
sem forsetaframbjóðandi, að hún
væri mistök því að friðaráætlun
Ariasar og annarra myndi ekki leiða
til friðar í Nicaragua.
Demókratar hafa hins vegar
hrósað norsku nóbelsnefndinni í
hástert fyrir „framúrskarandi val“
og segja þeir, að ákvörðunin sé í
raun áfall fyrir Reagan, sem hafí
kallað friðaráætlunina „alvarlega
gallaða".
Sjá bls. 30.