Morgunblaðið - 29.11.1987, Blaðsíða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1987
Austurbæjarbíó
Fá hús þóttu betri til
tónleikahalds vegnagóðs
hljómburðar. Það þótti líka
brúklegt til leiksýninga. í
Austurbæjarbíói voru haldnar
hinar geysivinsælu
miðnæturskemmtanir til ágóða
fyrir húsbyggingarsjóð
Leikfélags Reykjavíkur. Bíóið
hefurnúskiptumnafnoger .
í höndum nýrra eigenda, sem
jafnframt hafa gertá þvi
verulegar endurbætur til að
það hæfi betur til bíósýninga
en um leið er það orðið óhæft
til tónleikahalds, hvað þá
leiksýninga.
Lindarbær
í Lindarbæ var vettvangur fyrir leikhópa um árabil. Hérkomst
hin eftirminnilega Leiksmiðja á legg. Gríma hafði hér sýningar um
árabilsem þóttu merkt innlegg í menningarlífið. Þegar
Alþýðuleikhúsið flutti suður fyrir um áratug setti það niður
bækistöðvar sínar í Lindarbæ. Nemendaleikhús Leiklistarskóla
íslands hefur starfað hér innandyra og standa þær ekki öðrum opnar
lengur.
I gær: Á götunni
f dag: Undir sjávarmáli
Á morgun: Fokið í flest skjól
Húsnæðismál
atvinnuleikhópa hafa
verið til umræðu hin
síðari ár í hinni ört
vaxandi höfuðborg.
Jafnframt því sem í
borginni eru byggð
stærri og glæsilegri
hús til ýmissa nota því
minni möguleikar eru
fyrir leikhópa að
verða sér úti um
viðunandi húsaskjól.
Þar við bætist að
rýmið sem þeir fá til
af nota verður æ
óhentugra og smærra
með árunum. Þó er
leikhópunum að
fjölga. Náttúran
verður ekki lamin
með lurk.
í húsnæðiseklunni hefur reynt
ótrúlega á þanþol hugmyndaflugs
og útsjónarsemi, sem ekki þarf
endilega að eiga neitt skylt við leik-
list, við að reyna að útbúa leiksýn-
ingar í þau salarkynni sem bjóðast
pg eru oft óíbúðarhæfir kjallarar,
rök háaloft eða þegar best lætur
salarkynni þar sem rekin er önnur
starfsemi. Slíkt húsnæði er oft illa
búið til að hýsa leiksýningar og
verða því skiljanlega oft árekstrar
á milli þeirrar meginstarfsemi sem
í húsinu er rekin og leikhópsins sem
þar fær að gista. Leikhópamir
reyna þó að semja sig að staðhátt-
um og jafnvel velja verk sem falla
að þeirra starfsemi sem fyrir er og
hefúr forgang. En hætt er við þeg-
ar svo þröngur stakkur er leiklist-
inni skorinn, að lítið verði eftir af
því „frelsi" sem stundum er kennt
við íeikhópa og þeir byggja tilveru
sina á.
Aðeins tveir „leikhópar" hafa
fengið varanlegt skjól fyrir starf-
semi sína og þeir hafa verið nefndir
eftir þeim: Iðnó og Þjóðleikhúsið.
' Það var stór stund fyrir leiklist í
landinu þegar Iðnó var byggt fyrir
tæpri öld og Leikfélag Reykjavíkur
fékk þar samastað. Það þótti glæsi-
legt á sinni tíð, eins og Þjóðleikhúsið
þótti rúmri hálfri öld síðar. Þessi
tvö hús hafa veitt siq’ól þeirri leik-
listarstarfsemi sem hefur orðið
burðarás í leikmenningu þessarar
þjóðar og er orðinn óijúfanlegur
þáttur hennar. Án húsnæðis hefði
þessi starfsemi aldrei náð þeim
áfanga því leiklist þarf skjól, helst
eigið húsnæði eða „sérherbergi".
Það er fróðlegt að líta yfir sögu
húsnæðismála leikhópa. I fljótu
bragði má tína til um tvo tugi húsa
sem oftar en einu sinni hafa með
misgóðum árangri verið notuð til
leikstarfsemi, þó ekki verði þau öll
talin hér. Sum hafa verið til þessa
brúks eingöngu um lengri eða
skemmri tíma, önnur hafa hýst
Talíu sem homkerlingu. Nokkur
þeirra hafa verið rifín. Þar má nefna
Ejalaköttinn og Hafnarbíó. Salur í
Nýlistasafninu var rifínn að hálfu
strax eftir að leikhópar höfðu haft
þar viðkomu, svo hann var óhæfur
til leiksýninga eftir það. Þess má
geta hér í framhjáhlaupi að íslensk-
ur leikhópur sýndi í ævagömlum
helli í Edinborg fyrir nokkmm
árum. Hann var vitaskuld jafnaður
við jörðu stuttu síðar. .
Fáein hús hafa vegna starfsemi
sinnar úthýst leikhópum, sem áttu
þar um tíma samastað. Má þar
nefna Félagsstofnun stúdenta,
Tjamarbæ, Lindarbæ og Sjálfstæð-
ishúsið við Austurvöll.
Nokkur veitingahús hafa hleypt
leikhópum til sín en þeim eru þá
settar ýmsar skorður, þvi veitinga-
húsareksturinn er að sjálfsögðu
aðal búgreinin: Broadway, Gaukur
á Stöng, Djúpið og í Kvosinni. Það
er umhugsunarvert að tvö síðast-
nefndu eru ásamt kjallaranum í
Hlaðvarpanum undir sjávarmáli. En
þau eru einmitt það skjól sem leik-
hópum hefur boðist upp á síðkastið.
Fjalakötturinn
Fyrrá öldinni voru revíur sýndar hér fyrir fullu húsikvöld eftir kvöld.jafnhliða bíósýningum. Húsið
varjafnað viðjörðu fyrirnokkru.
Tjarnarbær
Litla leikfélagið sýndi bér eftirminnilegar sýningar og fleiri
leikhópar eins og t.d. Grima og Stúdentaleikhúsið. Tjamarbær er í
eigu Háskólans núna og er notaður til fyrirlestrahalds.
Stúdentaleikhúsið reyndi um tíma aðfá það til sýningahalds en
dyrum hefur verið lokað á leikstarfsemi, nema með einni
undantekningu: Ferðaleikhúsið hefur fengið þar inni í tvo mánuði
á sumrin fyrir landkynningarsýningar ætlaðar erlendum
ferðamönnum.
Hafnarbíó
Alþýðuleikhúsið hefur staðið lengst núlifandi leikhópa í
húsnæðisbasli. Því tókst að fá Hafnarbíó leigt á annað ár undir
starfsemi sína. Á þeim tima komu yfir 30.000 áhorfendur á sýningar
leikhússins ogþaðánþess aðlátyrðiá aðsókn í önnur Ieikhús.
Eigendur gerðu boð fyrir Alþýðuleikhúsmenn 1982 ogsögðu þeim
að rýma húsið með hraði, þvíþað ætti að rífa svo annað hús gæti
risið. Engan tíma mátti missa oggátu leikhúsmenn rétt forðað
fátæklegum eigum sínum út áður en það varjafnað viðjörðu.
Ekkert hús hefur risið þar enn.
-
!