Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.01.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B 2. tbl. 76. árg. ÞRIÖJUDAGUR 5. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Afganistan: Franskur bladamaður dæmdur fyrir njósnir Islamabad, Reuter. FRANSKUR blaðamaður, sem komst inn fyrir landamæri Afg- anistans í fylgd með afgönskum frelsissveitum, var í gær dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir njósnir. Sérstakur „byltingardómstóll" kvað dóminn upp og sagði út- varpið i Kabúl, höfuðborg Afganistans, að blaðamaðurinn hefði verið staðinn að því að afla hernaðarlega mikilvægra upp- lýsinga fyrir erlendar leyniþjón- ustur. Saudi-Arabía: Tekjur út- lendinga skattlagðar Alain Guillo var handtekinn 12. september sakaður um njósnir og fyrir að hafa hvatt skæruliða til áframhaldandi baráttu gegn afg- anska stjómarhemum, sem nýtur stuðnings innrásarliðs Sovétmanna. Fjöldi vestrænna blaðamanna og ljósmyndara hefur komist inn yfir landamæri Afganistans í fylgd með frelsissveitum á þeim níu ámm sem 15ðin em frá því átök blossuðu upp í landinu. Landið hefur verið lokað frá því Sovétmenn gerðu innrás árið 1979 og fátt er um áreiðanleg- ar fréttir af gangi styrjaldarinnar. A sunnudag staðfesti óvilhallur heimildarmaður Reuters-fréttastof- unnar að stjómarhemum og innrás- arliðinu hefði tekist að koma hjálpargögnum til bæjarins Khost, sem skæmliðar höfðu setið um í þrjá mánuði. Skæmliðar segjast enn sitja um bæinn. Reuter Egypskir lögfræðingar efndu í gær til mótmæla í Kaíró vegna þeirrar ákvörðunar ísraelsstjórnar að vísa níu Palestínumönnum úr landi. Mennimir kveiktu í pappaspjaldi með mynd af ísraelska fánanum en mótmælin fóm friðsamlega fram. Riyadh, Reuter. TEKJUR útlendinga sem starfa í Saudi-Arabíu verða skattlagðar á þessu ári samkvæmt konung- legri tilskipun, sem birt hefur verið í fjölmiðlum. Síðustu tólf árin hafa útlendingar ekki þurft að greiða tekjuskatt í Saudi- Arabíu og hefur fjöldi erlendra sérfræðinga látið freistast af skattleysinu. Frá og með 21. janúar verður útlendingum gert að greiða skatt af launum sínum og munu þeir sem hafa yfir 620.000 ísl. kr. í árslaun lenda í efsta skattþrepinu, sem kveður á um að þriðjung tekna beri að greiða í ríkissjóð. Ibúar Saudi-Arabíu munu eftir sem áður njóta skattleysis. Að sögn starfsmanna erlendra sendiráða voru símalínur rauðglóandi í gær er fréttir bárust um ákvörðun yfir- valda. Var því almennt spáð að menn myndu flykkjast úr landi en talið er að um fjórar milljónir út- lendinga búi og starfí í Saudi- Arabíu. ísraelar hyggjast vísa níu Palestínumönnum úr iandi: Egyptar vara við versn- andi samskiptum ríkjanna Amman, A-Ram, Damaskua, Tel Aviv, Kuwait, Beirút, Reuter. RÍKISSTJÓRNIR flestra arabaríkja hafa fordæmt þá ákvörðun stjórnvalda i ísrael að vísa níu Palestínumönnum úr landi. Mennirn- ir eru sakaðir um að hafa hvatt til mótmæla Palestínumanna á hernumdu svæðunum í síðasta mánuði. Bandaríkjastjórn hefur lagst gegn ákvörðun þessari .og Egyptar, sem einir arabaríkja hafa gert friðarsáttmála við Israela, hafa varað við því að þetta kunni að spilla samskiptum rikjanna. Óeirðir brutust út á vesturbakkanum i gær og samtök öfgafullra Palestínumanna hafa hótað grimmilegum hefndum fyrir loftárásir ísraela á Libanon um helgina. Sagnfræðingar segja Israels- stjórn beita fyrir sig 40 ára gömlu lagaákvæði sem leitt var í gildi er Bretar réðu þessu landsvæði sem Snjólaust íþýsku Ölpunum Reuter Einmana fjallageit horfír yfir skíðasvæðið í Oberstdorf í Vestur- Þýskalandi, en undanfarna daga hefur fjölmörgum skíðamótum verið frestað í Ölpunum vegna snjóleysis. í Oberstdorf neyddust menn til að nota gervisnjó til þess að keppni í skíðástökki gæti farið fram, en engu að síður mættu þúsundir manná til að fylgjast með mótinu. þá hét Palestína. Yitzhak Yzem- itsky, leiðtogi skæruliðahreyfingar gyðinga, sem nú er betur þekktur sem Yitzhak Shamir, forsætisráð- herra Israels, var þá rekinn úr landi í samræmi við lagaákvæði þetta. Yitzhak Shamir sagði í viðtali í gær að brottvísun væri þyngsta refsing sem unnt væri að beita gegn verstu óeirðaseggjunum og því væri ákvörðun stjórnvalda fylli- lega réttlætanleg. Um 1.200 Palestínumenn voru handteknir í óeirðum á hernumdu svæðunum í síðasta mánuði en 240 hefur verið sleppt. 24 féllu fyrir byssukúlum ísraelskra hermanna í óeirðunum. Talsmaður stjómvalda í Egypta- landi sagði í gær að ísraelskum ráðamönnum hefði verið tilkynnt að brottvísun Palestínumannanna gæti haft alvarlegar afleiðingar fyr- ir samskipti ríkjanna. Fréttir herma að stjórnvöld hafí neitað að ræða við fulltrúa ísraelsstjómar um ástandið á hemumdu svæðunum. Frelsissamtök Palestínu (PLO) hafa hvatt Egypta til að loka sendiráði ísraela í Kaíró og hryðjuverkasam- tök, sem kennd em við Abu Nidal, hafa lýst yfir því að þess verði hefnt grimmilega geri ísraelar mennina brottræka. Fleiri arabaríki hafa for- dæmt Israelsstjóm fyrir ákvörðun þessa. Palestínumenn á vesturbakkan- um grýttu ísraelska hermenn í gær sem beittu gúmmíkúlum og tára- gasi til að dreifa mannfjöldanum. Gífurleg reiði ríkir í röðum Pal- estínumanna vegna þess að ísra- elskur hermaður skaut 25 ára gamla konu til bana í óeirðum á sunnudag. Þá hafa samtök öfga- fullra Palestínumanna, sem njóta stuðnings Sýrlendinga, hótað að hefna loftárása ísraela á búðir Pal- estínumanna og drúsa í Suður- Líbanon um helgina, sem urðu 19 manns að bana. Sjá einnig „ísraelar gera loft- árásir . . .“ á bls. 28. Gaslindir f inn- ast í Barentshafi Osló, Reuter. TALSMAÐUR norska olíufyrir- tækisins, Statoil, skýrði frá því í gær að gaslindir hefðu að líkind- um fundist á hafsbotni í austan- verðu Barentshafi. Fundur þessi hefur orðið til þess að vekja vonir manna að nýju um að í Barentshafi leynist verulegar olíu- og gaslindir. Hákon Larvik, talsmaður Statoil, sagði í viðtali við Reuters-fréttastofuna að tilrauna- boranir á þessum slóðum lofuðu góðu en kvað enn of snemmt að segja til um hversu mikið gas væri þar að finna. Á síðasta ári voru fimm holur boraðar á botni Barents- hafs en þar reyndist engar auðlindir að finna. Að sögn Larviks hefur gas ekki fundist svo austarlega áður en bæði Norðmenn og Sovétmenn hafa borað í tilraunaskyni á þessum slóð- um á undanfömum árum. Hlutabréf hækkaí New York New York, Reuter. HLUTABRÉF snarhækkuðu í verði á fjármálamarkaðin- um í Wall Street í gær og er þetta fjórða mesta hækk- un i sögu hlutabréfaviðskipta í New York. Dow Jones-hlutabréfavísital- an hækkaði um 76,42 stig og var hún skráð á 2.015,25 stig er viðskiptum lauk í gærkvöldi. Sérfræðingar voru sammála um að hækkun á gengi dollars í gær hefði valdið mestu um verðhækkun hlutabréfanna auk þess sem jákvæðar hagtölur bárust frá Bandaríkjunum. Dollarinn styrktist í gær gagn- vart helstu gjaldmiðlum er seðlabankar Sviss, Vestur- Þýskalands og Japans gripu til samræmdra aðgerða til að forða frekara falli hans. Sjá einnig „Aðgerðir seðla- banka . . .“ á bls. 29.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.