Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 06.01.1988, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B STOFNAÐ 1913 3. tbl. 76. árg. MIÐVIKUDAGUR 6. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Bandaríkjanna, George Shultz, var á ferðalagi í Noregi og Danmörku. Gro Harlem Brundtiand: Kjamorkuvopna- laust svæði kann að minnka spennu Segir umræðu um slíkt þó engan veginn einkamál Norðurlandanna Ósló, Reuter. GRO HARLEM Brundtland, forsætisráðherra Noregs, telur að kjarn- orkuvopnalaust svæði á Norðurlöndum kunni að minnka spennu milli austurs og vesturs, en í viðtali við JZeufers-fréttastofuna sagði hún meðal annars: „Við teljum svo sannarlega að kjarnorkuvopna- laust svæði á Norðurlöndum geti orðið hluti af stærri mynd samkomulags austurs og vesturs." í næstu viku kemur Nikolaj Ryzh- kov, forsætisráðherra Sovétríkjanna, í opinbera heimsókn til Noregs. Brundtland sagðist vonast til þess að heimsókn Ryzhkovs gæti borið þann árangur að deilur Nor- egs og Sovétríkjanna um nýtingar- rétt auðlinda í Barentshafi yrðu úr sögunni. „Norðmenn hafa gefið það ótvírætt til kynna að þeir séu tilbún- ir til málamiðlunar, séu Sovétmenn reiðubúnir til hins sama.“ Sagði hún að von um slíkt væri í raun grund- völlur heimsóknarinnar og að samskipti Noregs og Sovétríkjanna gætu oltið á máli þessu. Brundtland sagði að embættis- menn á Norðurlöndum reyndu nú að koma sér saman um sameigin- lega afstöðu til kjamorkuvopna- lausra svæða. „Við viljum vera tilbúin ef þróun mála verður á þann veg að spennuslökun og minnkandi vopnabúnaður á Norðurlöndum verður raunhæfur möguleiki.“ Hins vegar tók hún fram að málið þyrfti að ræða á vettvangi NATO og Varsjárbandalagsins, það væri ekki einkamál Norðurlandanna. Hugmyndin um kjamorkuvopna- laust svæði á Norðurlöndum er gömul, en óx ásmegin í október síðastliðnum, þegar Míkhaíl Gor- batsjov gerði það að tillögu. sinni í ræðu, sem hann flutti í Múrmansk, að dregið yrði úr vopnaskaki á norð- urslóðum. Bandamenn Noregs, Danmerkur og Islands í Atlantshafsbandalag- inu hafa ákaft varað við hugmynd- um af þessu tagi, nú síðast í desember, þegar utanríkisráðherra Sovéskir listamenn: Vilja opna safn í Tsjernobyl Reuter. SOVÉSKIR listamenn ráðgera að opna safn til að endurskapa það andrúmsloft sem ríkti í yfirgefnu þorpunum i grennd við Tsjernobyl. Að sögn fréttastofunnar Tass verð- ur safninu ætlað að sýna fólki hvílík ógn kjamorkan væri ef ranglega væri farið með hana, en úr þorpunum yflr 100.000 manns fluttir á brott. Markaðurinn: Reuter Situr við sama á her- numdu svæðunum Óeirðir vom enn sem fyrr á hemumdum svæðum ísraela og var einn Palestínumaður felldur eftir að hann og félagar hans höfðu grýtt varðsveit ísraelskra hermanna. í Bin Zair-háskólanum gengu stúdent- ar um með fána Frelsissamtaka Palestínu, PLO, og héldu á lofti myndum af Yasser Arafat, leiðtoga samtakanna. Þeir létu allófrið- lega, en ísraelskir hermenn skárust ekki í leikinn. Jórdanir fóm í gær fram á tafarlausan fund öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna um ástandið á hemumdu svæðunum og er talið að ráðið komi saman í dag. Sovétríkin: „Umbótatil- raunir“ valda verkfalli Moskvu, Reuter. AÐ SÖGN fréttarits verslunar- ráðuneytisins Sovétríkjanna kom til verkfalls i matvöruverslun nokkurri síðastliðinn september. Neituðu starfsmenn hennar al- farið að hlíta nýjum reglum um starfshætti. Blaðið, Sovjetskaja Torgovlja, sagði að Úníversam-verslun nr. 60 hafi verið ein sex matvömverslana í Moskvu, sem gert var að sæta ýmsum breytingum á starfsháttum, en þær fólust aðallega í því að allir starfsmenn hennar vom gerðir ábyrgir fyrir vörarýrnun af völdum þjófnaðar og úreldingar. Að sögn blaðsins gengu breyting- arnar þegjandi og hljóðalaust fyrir sig í hinum verslununum fimm, en í Úníversam nr. 60 brást starfs- fólkið hið versta við og fór í verkfall. Eftir að búðin hafði verið lokuð í tæpar tvær vikur vom starfsfólkinu settir úrslitakostir: annaðhvort tæki það þátt í þessari umbótatilraun eða hætti. 14 af 18 kassadömum ákváðu að hætta og níu aðrir starfs- menn sigldu í kjölfarið. Mjög óvenjulegt er að skýrt sé frá verkalýðsdeilum í Sovétríkjun- um, en fréttaskýrendur telja ekki ósennilegt að með frétt þessari hafi einhver viljað vekja athygli á því að ekki séu allir í sjöunda himni vegna svonefndra umbótatilrauna Míkhaíls Gorbatsjovs. Bandaríkjadalur hækkar í verði og verðbréf einnisr New York-bonr. Reuter. New York-borg, Reuter. Bandaríkjadalur hækkaði mjög í verði í gær og í kjölfar Snjóar í Evrópu Reuter Frá því var sagt hér í blaðinu í gær að snjólaust væri í þýsku Ölpun- um. Þá brá svo við að snjóa fór og er nú víðast hvar hvít jörð, þó svo að snjórinn sé reyndar ekki mikill. Veðurfræðingar telja að lítil hætta sé á snjóþyngslum á næstunni og hefur sums staðar verið gripið til þess ráðs að búa til snjó eða nota gervisnjó frekar en að treysta á Móður náttúm. í Saas-Fee í Sviss em menn þó heppnari, en þar er meðfylgjandi mynd einmitt tekin. þess hækkuðu verðbréf í Wall Street og á öðrum verðbréfa- mörkuðum heimsins einnig. Gjaldeyrisvíxlarar sögðu að seðlabankar Bandaríkjanna, Vestur-Þýskalands, Ítalíu, Sviss, Kanada og Austurríkis hefðu enn á ný gripið harkalega í taumana til þess að dalurinn félli ekki frekar. Talið er að bankamir hafi keypt milli tvo og þijá millj- arða Bandaríkjadala á opnum markaði í þessu skyni. Þessar ráðstafanir urðu til þess að auka verðbréfasölum hugrekki — fyrst í Evrópu og síðar þegar kaup- höllin í Wall Street var opnuð. Fyrstu 30 mínútumar í Wall Street hækkaði Dow Jones-verðbréfavísi- talan um 51 stig. Þegar dagur var allur var ávinnipgurinn hins vegar nokkm minni, eða um 16,25 stig. Svipaða sögu var að segja um aðra verðbréfamarkaði og í Lund- únum hækkaði Financial Times- verðbréfavísitalan um 42,1 stig. Marlin Fitzwater, talsmaður Hvíta hússins, lýsti yfir ánægju sinni með aukna tiltrú manna á markaðnum og sagði að sér virtist sem dalurinn myndi ná þeim stöð- ugleika, sem stjórnvöld í Washing- ton sæktust eftir. Annars staðar vom menn þó ekki jafnbjartsýnir og sögðu að afskipti seðlabanka leystu engin vandamál — þau væm til þess eins fallin að kaupa tíma. Hins vegar væm áhyggjur manna af viðskipta- og fjárlagahalla Bandaríkjanna litlu minni en áður. Í Evrópu notuðu bankar í Frakk- landi og Sviss tækifærið til þess að lækka vexti, en á sama tíma féll gull nokkuð í verði og hefur verð þess ekki verið lægra í sex vikur. V estur-Þýskaiand: 118 Pólverjar stinga af frá borði í Liibeck LUbeck, Reuter. HÓPUR 118 Pólveija ákvað á sunnudag að framlengja skemmtiferð sína til Vestur- Þýskalands svo um munaði, því þegar leið að brottför skips þeirra, frá hafnarborginni Liibeck, var þá hvergi að f inna. Hópurinn hafði farið í skoðunar- og verslunarferð um borgina, sem er við Eystrasalt, skammt frá Iandamæmm Austur-Þýskalands, en komu ekki aftur til skips. Pólveijarnir komu um borð í skemmtiferðaskipinu Wawel og hafa allir gildar vegabréfsáritanir til Vestur-Þýskalands. Á liðnu ári notuðu 4.625 Pólverj- ar tækifærið í skemmtisiglingum sem þessum og ákváðu að freista gæfunnar í vestri. Það er um 40% meira en árið 1986, en þá stungu 3.250 Pólverjar af frá borði í vest- ur-þýskum höfnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.