Morgunblaðið - 04.02.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 4. FEBRÚAR 1988
15
Könnun lögreglunnar:
Aðeins 3
kerrur af
57 í lagi
„Fólk virðist ekki
þekkja reglurnar,“
segir Skarphéðinn
Njálsson varðsljóri.
VEGALÖGREGLAN gerði ný-
lega könnun á ástandi fólksbíla-
kerra. 57 bílar með kerrur voru
stöðvaðir. í flestum tilfellum var
um að ræða hesta- eða vélsleða-
kerrur og reyndust einungis
þijár þeirra standast þær kröfur
sem lög gera til búnaðar af þessu
tagi.
„Þessum málum hefur litið verið
sinnt fram að þessu og reglumar
ekki kynntar fólki sérstaklega,"
sagði Skarphéðinn Njálsson varð-
stjóri vegalögreglunnar. „Það
virtist yfirleitt koma fólki á óvart
að búnaðurinn væri ólöglegur".
„Aðgerðimar tóku mið af þessu,"
sagði Skarphéðinn. „Yfirleitt var
mönnum veittur ríflegur frestur, til
að bæta úr og koma með bflinn og
kerruna í Bifreiðaeftirlitið til skoð-
unar að nýju. Ég held að það muni
gefa góða raun því fólk vill hafa
þessi mál í lagi,“ sagði Skarphéð-
inn.
„Það er greinilega mikið um það
að menn fái kerrur lánaðar hjá
kunningjunum og hugsi um það eitt
að koma vélsleða eða hrossi á milli
staða en athugi ekki hvort kerrum-
ar passi við útbúnað bflanna sem
eiga að draga þær,“ sagði Skarphéð-
inn Njálsson. „Algengast var að
tengin væm ekki í lagi. Ýmist pass-
aði ekki saman dráttarkúla bflsins
og festingin á kermnni eða þá að
tengin vom ekki nógu öflug. Ör-
yggiskeðjur með splittuðum bolta
vantaði hjá flestum. Einnig þurfa
kerramar að vera með ljósabúnað.
ef þær skyggja á afturljós drátt-
arbflsins og allar kerrar eiga að
vera útbúnar tveimur glitaugum.
Glitaugun eiga að vera þríhymd,
15 cm hver hlið, og eitt hom á að
snúa upp. Margir flaska á því að
kerra má aldrei standa meira en 10
cm út fyrir dráttarbfllinn hvom
megin. Sumir höfðu stuðst við um-
ferðarlögin um það að mesta leyflleg
breidd ökutækja væri 2,35 metrar
en ekki athugað breidd dráttartæk-
isins," sagði Skarphéðinn.
„Við viljum hvetja menn, sem
eiga eða ætla að smíða sér kermr,
til að leita upplýsinga hjá Bifreiða-
eftirlitinu um það hvort hugmyndir
þeirra samrýmist þeim reglum sem
em í gildi," sagði Skarphéðinn
Njálsson. „Kermr sem em illa úr
garði gerðar og ekki í samræmi við
lög auka hættuna á slysum, öku-
maður hefur verri stjóm en ella á
bifreiðinni og við þeklq'um mörg
dæmi um óhöpp sem má rekja til
þessa.“
Félag rækju- og- hörpu-
diskframleiöenda:
Mótmæla
hámarks
vinnslukvóta
Á ALMENNUM fundi Félags
rækju- og hörpudiskframleið-
enda á þriðjudag var samþykkt
að óska eftir því við Halldór
Ásgrímson sjávarútvegsráð-
herra, að ekki verði settur
hámarks vinnslukvóti á rækju-
verksmiðjur.
Fundurinn beinir þessum tilmæl-
um til ráðherra vegna umræðna að
undanfömu um að vinnslukvóti
verði settur á verksmiðjumar í
framhaldi af veiðikvóta fyrir smá-
báta.
STORUTSOLUMARKAÐUR
HEFST Á MORGUN
KL. 13 Á FOSSHÁLS113-15
FJÖLDI FYRIRTÆKJA
- gífurlegt vöruúrval
Steinar Hljómplötur - cassettur ____________
Karnabær ■ Bowaparte - Garbé - Tískufatnaður og efní
Gefjun - Fatnaóur o.m.tl.
Axel 6 - Skófatnaður
Hummel - Sportvörur alls konar
Radíóbær - Hljómtæki o.m.fl.
Kári - Sængurfatnaður o.m.fl.
Ánar - Fatnaður ___________
Bylgjubúðin - Patnaður
Skóglugginn - Skór
Mæra - Skartgripir o.m.fl.
Theódóra - Tískufatnaður
IMafnlausa búðin - Efni
Heildsalan Blik - l-atnaður