Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.02.1988, Blaðsíða 1
80 SÍÐUR B/C 29. tbl. 76. árg.______________________________ FÖSTUDAGUR 5. FEBRÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Morgunblaðið/Krístinn Ingvarsson/AP KA UPIÐ EKKIFISKINN ÞEIRRA Eins og fram hefur komið hér í blaðinu hafa Greenpeace-samtökin hrund- ið af stað áróðursherferð gegn íslenskum fiskafurðum á Bretlandi, Bandaríkjunum og Vestur-Þýskalandi í því skyni að knýja íslensk stjóm- völd til þess að láta af hvaíveiðum í vísindaskyni, en vísindaveiðamar telja samtökin yfirskyn eitt. í gær var veggspjaldi komið fyrir á fjölföm- um stað í Lundúnaborg og var meðfylgjandi mynd tekin þegar starfsmenn Greenpeace unnu að því að setja það upp. Sem sjá má stendur skutul- byssan nokkuð upp úr veggspjaldinu, en i baksýn er Esjan. Fyrirsögn veggspjaldsins er: „Kaupið ekki fisk af slátrara," en undir er letrað: „íslendingar drepa hvali. Kaupið ekki fiskinn þeirra. Greenpeace." Sjá nánari fregnir á síðu 29. Holst ræðir sovéska flot- ann í Bonn og Washington Bandaríkjaf orseti: Hyggst hvergi láta af stuðn- ingi sínum við kontrana Washington og Tegucigalpa, Reuter. FULLTRÚI Bandarikjaforseta, veittist í gær harðlega að fulltrúa- deild Bandaríkjaþings fyrir að fella beiðni forsetans um fjár- hagsaðstoð við kontraskæruliða, sem beijast gegn stjóm sandínista í Nicaragua. I sömu yfirlýsingu var þeim áminningarorðum beint að sandínistastjóminni i Managua að hún mætti ekki hvika frá þeim breytingum i lýðræðisátt sem kveðið er á um í friðarsamkomu- lagi Mið-Ameríkuríkja. í yfírlýsingu Marlins Fitzwater sagði meðal annars að þessi úrslit í þinginu „kiþptu undirstöðunni undan baráttu hinna hugrökku karla og kvenna [kontraskæruliða] á þessari viðkvæmu stundu friðarviðleitni í Mið-Ameríku.“ Fitzwater ítrekaði að kontramir nytu enn stuðnings forsetans, en vildi ekki tjá sig um með hvaða hætti forsetinn hygðist styðja þá. Sagði hann aðeins að forsetinn hygðist nú ráðfæra sig við leiðtoga þingsins sem og leiðtoga Mið-Ameríkuríkja um „með hvaða hætti mætti best byggja á hinum mikla árangri Mið-Ameríku- stefnu okkar undanfarin sex ár“. Vísaði Fitzwater til þess að þegar Reagan hefði náð kjöri hefði Costa Rica verið eina lýðræðisríkið í Mið- Ameríku, en nú væri Nicaragua eitt það ekki. í ríkjum Mið-Ameríku var ákvörð- un fulltrúadeildarinnar yfírleitt fagnað, en í Hondúras leyndi stjóm- in ekki áhyggjum sínum af því að stjóm sandínista kynni að hætta við frekari breytingar í lýðræðisátt. Leiðtogar kontraskæruliða sögðu að vissulega væru úrslitin þeim von- brigði, en lýstu því þó jafnframt yfír að þeir hygðust ekki hætta frelsis- baráttunni í heimalandi sínu. Sjá forystugrein á miðopnu og nánari fregnir af úrslitum at- kvæðagreiðslunnar á síðu 24: „Verðum að láta reyna á . . .“ JOHAN Jergen Holst, varnar- málaráðherra Noregs, heldur i dag til viðræðna við ráðamenn í Vestur-Þýskalandi og í Banda- ríkjunuin. Talsmaður norska .utanrikisráðuneytisins sagði við blaðamann Morgunblaðsins að Holst hygðist meðal annars ræða breytingar sem Sovétmenn hafa gert á hluta kafbátaflotans á Noregshafi, sem skýrt var frá í Morgunblaðinu f gær. Johan Jargen Holst sagði í ræðu er hann flutti á miðvikudag að fram hefðu komið vísbendingar um að Sovétmenn hefðu komið stýriflaug- um fyrir í kafbátum sem áður hefðu borið langdrægar kjamorkueld- flaugar. Sagði hann Norðmenn hafa af því áhyggjur að risaveldin kæmu til með að leggja meiri áherslu en áður á langdrægar stýriflaugar í skipum og kafbátum. Holst sagði Sovétmenn ráða yfír langdrægri stýriflaug sem bæri teg- undarheitið SS-N 21 og svipaði henni til hinnar bandarísku Toma- hawk-flaugar. „Margt bendir til þess að kafbátar, sem áður báru lang- drægar kjamorkuflaugar, hafí verið teknir til hafnar og að gerðar hafí verið á þeim breytingar til þess að þeir geti borið SS-N 21-flaugar,“ sagði norski vamarmálaráðherrann. Bætti hann við að þessi þróun gæti raskað stöðugleika og skapað spennu á norðurslóðum. Auk þess kynni ríkjum Evrópu að standa ógn af nýjum kjamorkuvopnum sem koma myndu í stað þeirra landeld- flauga uppræta skal, samkvæmt afvopnunarsáttmálanum, sem undir- ritaður var í Washington í desember. James Webb, flotamálaráðherra Bandaríkjanna, sem staddur var hér á landi í gær og í fyrradag, kvaðst ekki vilja tjá sig um þetta mál er hann var inntur álits á blaðamanna- fundi sem haldinn var í gær í Ráðherrabústaðnum. Webb kom hingað til lands til að kynna sér starfsemi vamarliðsins á Keflavíkur- flugvelli, auk þess sem hann átti viðræður við Þorstein Pálsson, for- sætisráðherra, og Steingrím Hermannsson, utanríkisráðherra. Webb sagði á fundinum að það eftir- lit sem vamarliðið hefði með ferðum sovéskra kafbáta væri ákaflega mik- ilvægt fyrir aðildarríki Atlantshafs- bandalagsins í ljósi þeirrar ógnar sem stafaði af kafbátaflota Sovét- manna á Norðurhöfum. Sjá viðtal við Webb á síðu 24. Waldheim-málið: Júgóslavar svara nefnd- inni í dag Belgrað, AP. BÚIST er við þvi að í dag svari júgóslavnesk stjórnvöld beiðni alþjóðlegrar rannsóknamefnd- ar um aðstoð við rannsókn á meintri aðild Kurts Waldheim, Austurrikisforseta, að stríðs- glæpum nazista. Enn er ófundið frumrit sím- skeytis, sem birt var í Der Spiegel á dögunum, en það var sagt geta bent til sektar Waldheims. Sagn- fræðingurinn Dusan Plenca, sem sagður er hafa fundið skeytið, segist hins vegar ætla að birta það nk. sunnudag. Israel: Tveir hermenn falla í árás PLO ísrael, Reuter. ÞRÍR palestínskir hryðjuverkamenn laumuðust i gær inn fyrir landamæri ísraels og drápu tvo ísra- elska hermenn í sama mund og ríkin fyrir botni Miðjarðarhafs bjuggu sig undir komu sérlegs sendi- manns Bandaríkjaforseta, en vænst er að hann hafi nýjar tillögur um heimastjórn Palestínuaraba í far- teskinu. Talsmaður ísraelshers sagði að einn hryðjuverka- mannanna hefði verið felldur og annar handtekinn, en sá þriðji komst óhultur yfír norðurlandamærin á ný. Hryðjuverkamennimir særðu einn hermann auk hinna föllnu um það bil U/2 km fyrir innan landamærin. í borginni Sídon í suðurhluta Líbanons lýsti talsmað- ur Frelsissamtaka Palestínu (PLO) hryðjuverkinu á hendur samtaka sinna. Talið er að með árásinni hafí PLO viljað hvetja til frekari óeirða Palestínuaraba á hemumdum svæðum ísraels á vesturbakka Jórdanár og Gaza-svæðinu. Frá því að óeirðimar þar hófust fyrir tæpum tveimur mánuðum hafa 43 Palestínuarabar látið lífíð í þeim. Þá var tilkynnt í gær að ekki yrði af fyrirhugaðri för grísks skips til ísraels með útlæga Palestínuaraba. PLO, sem felldur var i hryðjuverkaárás samtak- anna í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.