Morgunblaðið - 05.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.03.1988, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B OG LESBÓK 54. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 5. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunbiaðsins Waldheim kærð- ur fyrir morð Vínarborg. Frá Hróbjarti Darra, fréttaritara Morgnnblaðsins í Austnrríki. Reuter Starfsmenn stórs vörumarkaðar stilla sér upp fyrir framan verzlunina til þess að vama fulltrúum rikis- stjórnarinnar inngöngu og koma þar með í veg fyrir lokun hennar. Spurðist út að leggja ætti hald á sjóði vöruhússins vegna peningaskorts stjórnarinnar i Panama. KURT Waldheim, forseti Aust- urrikis, hefur verið kærður fyrir morð. Að kærunni standa 300 Austurrikismenn og eru þar á meðal virtir rithöfundar og lista- menn. Ríkissaksóknara Austurríkis var afhent kæran á miðvikudag og hef- ur Der Falter, eitt vikublaðanna í Vín, birt útdrátt úr henni. í blaðinu er einnig grein eftir Walter Oswalt, sem átti frumkvæði að því að kær- an á hendur Waldheim var lögð fram. Nú hefur verið sett lögbann á blaðið að beiðni forsetans. í kærunni er því haldið fram að Waldheim hafí átt aðild að morðum, sem framin voru í Júgóslavíu og Gríkklandi á tímabilinu frá því í marz 1942 og þar til í apríl 1943. Er kæran byggð á skýrslu alþjóð- legu sagnfræðinganefndarinnar, sem kannaði fortíð Waldheims og meinta hlutdeild hans í hryðjuverk- Bönkum lokað í Panama vegria dollaraþurrðar Panamaborg, Reuter. ÖLLUM bönkum í Panama var lokað í gær þar sem eigur Pan- amabúa í Bandaríkjunum hafa verið frystar og greiðsiur fyrir afnot af Panamaskurðinum verið stöðvaðar. Bankarnir verða lok- aðir þar til eigurnar verða af- hentar. Bandariskir þingmenn leggja nú hart að stjórn Ronalds Reagans, forseta, að grípa til frekari aðgerða er leitt gætu til falls Manuels Antonio Noriega, hershöfðinga, valdamesta manns Panama. Að sögn Michaels Armacost, aðstoðarutanrikisráð- herra, verður tvímælalaust gripið til frekari aðgerða. Talsmaður seðlabanka Panama sagði ástæðuna fyrir lokun bank- ann'a þá að bankinn hefði of lítinn forða af Bandaríkjadollurum til þess að bankakerfið gæti starfað með eðliiegum hætti. „Óvenju mikil“ eft- irspum hefur verið eftir dollurum, Húsarústí Teheran Björgunarmenn leita fólks í rústum íbúðarblokkar í Teheran eftir eldflaugaárás íraka á borgina. íranir og írakar hafa hald- ið uppi eldflaugaárásum hvor á höfuðborg annars alla vikuna. Færðust þeir i aukana í fyrradag og linnti árásum ekki í gær. Samkvæmt síðustu fregnum er talið að jafnvel hundruð óbreyttra borgara hafi fallið í árásunum. Sjá ennfremur „íranir sprengdu ...“ á bls. 28. að hans sögn. Bandaríska utanríkisráðuneytið tilkynnti í gær að Juan Sosa, sendi- herra Panama í Washington, hefði nú forráð yfír eigum Panamabúa í Bandaríkjunum. Sendiherrann er hliðhollur Eric Arturo Delvalle, fyrr- um forseta, sem rekinn var úr emb- ætti í síðustu viku. Bandaríkjastjóm iítur einnig á Delvalle sem forseta Panama. Sex öldungadeildarmenn lögðu í gær fram frumvarp um bann við innflutningi frá Panama og útflutn- ingi bandarískrar vöm þangað. Fmmvarpið gerir einnig ráð fyrir banni við bankaviðskiptum við Pan- ama og ógildingu loftferðasamnings ríkjanna. Utanríkisnefnd Öldungadeildar- innar skoraði í gær á stjóm Reagans að setja aukinn þrýsting á Noriega. Sagði í ályktun nefndarinnar að Delvalle, fyirum forseti, nyti stuðn- ings bandarísku þjóðarinnar í til- raunum sínum til að endurreisa lýð- ræði og borgaralega stjóm í Pa- nama. Flugfélagið Air Panama hætti í gær öllu áætlunarflugi til Banda- ríkjanna um óákveðinn tíma af ótta við að flugvélar þess yrðu kyrrsettar þar í landi. Verzlanir og iðnfyrirtæki afhenda vömr aðeins gegn reiðufé og er því búizt við að bankaiokunin sé upphaf- ið á miklum örðugleikum í Panama. Andstæðingar Noriega hershöfð- ingja afléttu í gær allsheijarverk- falli, sem staðið hafði í viku. um nasista í seinni heimsstyijöld- inni, svo og öðmm gögnum, sem fundizt hafa um herþjónustu Wald- heims. Þegar Waldheim bað um lögbann á Der Falter sagði hann gagnrýni á sig og sakargiftir vera orðnar óþolandi. Oswalt sagði í samtali við fréttaritara Morgunblaðsins í gær að Waldheim vildi greinilega láta múlbinda andstæðinga sína. í kæmnni em mörg atvik, sem sögð em sýna meðsekt Waldheims, dregin fram. Meðal annars aftaka brezkra hermanna, en brezka ríkis- stjómin hefur nýlega óskað eftir sérstakri rannsókn á því atviki. Kurt Waldheim Deílur ísraela og Araba: Shultz kynnti form- legar friðartillögur Tel Aviv. Damaskus. Kairó. Reuter. GEORGE Shultz, utanríkisráð- herra Bandarfkjanna, ræddi í gær við ráðamenn f ísrael, Sýrlandi og Egyptalandi og afhenti þeim formlegar tillögur Bandaríkja- stjórnar til lausnar deilumálum í Miðausturlöndum. Seint í gær- kvöldi hélt hann frá Kairó áleiðis til Washington. Bandaríkjamenn leggja til að haldin verði alþjóðleg ráðstefna um fríð í Miðausturlöndum í Genf í næsta mánuði. Einnig að beinar samningaviðræður Jórdana og Pa- lestínumanna annars vegar og ísra- ela hins vegar um sjálfstjóm Pa- lestínumanna á hemumdu svæðun- um, Vesturbakkanum og Gazasvæð- inu, hefjist um miðjan maí. Skal samningum um þriggja ára sjálfs- forræði í reynsluskyni, sem kæmi til framkvæmda í febrúar 1989, lok- ið fyrir október er kosningar færu fram á svæðunum. Þá leggja Banda- ríkjamenn til að samningaviðræður um varanlegan frið milli ísraela og Araba hefjist næstkomandi desemb- er, óháð stöðu annarra samningavið- ræðna um iyktir deilumála. Nánir samstarfsmenn Yitzhaks Shamirs, forsætisráðherra ísraels, sögðu tillögumar óaðgengilegar fyr- irlsraela. Shamir sagðist andvigur aiþjóðlegri friðarráðstefnu og að hann vildi að reynslutími sjálfsfor- ræðis Paiestínumanna á herteknu svæðunum yrði fimm ár. Shimon Peres, utanríkisráðherra, sagðist sammála tillögum þeim, sem Shultz hefði haft fram að færa. Viðbrögð við heimsókn Shultz til Damaskus og Kairó höfðu ekki borizt er Morg- unblaðið fór í prentun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.