Morgunblaðið - 17.03.1988, Blaðsíða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 17. MARZ 1988
(MBOl
Irröernational
Reiknivélar
Mjög góð greiðslukjör.
&SAMBANDSINS
ÁRMÚLA3 SÍMAR 6879/0-68 1266
Hjólhýsi - tjaldvagnar - kerrur
Höfum opnað sölutjaldið og vegna mikillar eftirspurnar vantar
okkur allar gerðir af ofangreindu á söluskrá.
Sölutjaldið,
Borgartúni 26 (bak við Bílanaust).
GisllJónsson og Co. hf.,
sími 626644.
Glæsileg karlmannaföt
margir litir.
Klassísk snið og snið fyrir yngri menn.
Verð kr. 5.500,-, 8.900,- og 9.900,-
Terylenebuxur kr. 1.195,-, 1.395,-, 1.595,- og
1.795,- teryl./ull/stretch.
Gallabuxur kr. 790,-, 850,- og 875,- sandþvegnar.
Flauelsbuxur kr. 795,-
Andrés,
Skólavörðustíg 22a,
sími 18250.
Af serstokum astæðum er til sölu svo til
ónotað Muskateer hjólhýsi 14 fet.
Húsið er með öllum búnaði, t.d. tvöföldu gleri,
ískáp, hita o.s.frv.
GísliJónsson & Co- hf.9
Sundaborg 11,
símar 626644, 686644.
Tilbúinn eftir
fimm mínútur
5 bragötegundir
ROYAL
SKYNDIBÚÐINGARNIR
ÁVALLT FREMSTIR
ENGIN SUÐA
AF ERLENDUM VETTVANGI
^ eftir Óla Bjöm Kárason
Ar hínna glöt-
uðu tækifæra
Sagan af því hvernig Robert Dole
missti af forsetaembættinu
ÞEIR sem keppa ætla að útnefningn Repúblikanaflokksins fyrir
forsetakosningarnar 1992 ættu að læra af mistökum Roberts Dol-
es, leiðtoga flokksins i Öldungadeildinni. Eftir sætan sigur yfir
George Bush, varaforseta, í Iowa, benti allt til að Dole yrði forseta-
efni repúblikana og að lfkindum næsti forseti Bandaríkjanna. En
eftir röð mistaka, óreiðu og ósfjórnar á Dole enga möguleika og
„þrumuþriðjudaginn" 8. mars tapaði hann fyrir Bush, jafnvel i
Washington-rfki, sem allir töldu öruggt vígi. Þegar Bush fékk síðan
yflr helming atkvæða i Illinois, en Dole aðeins 36% virtist leikurinn
endanlega tapaður fyrir Dole, enda hafði hann sjálfur hamrað á
þvi að í Illinois yrði taflinu snúið við eftir ósigurinn 8. mars. Marg-
ir fylgismenn Doles eru hins vegar famir að huga að kosningabar-
áttunm 1992.
Margir ráðgjafar Doles vildu
að hann drægi sig í hlé eftir
útreiðina á 8. mars og mun eigin-
kona hans Elizabeth, fyrrverandi
samgönguráðherra, hafa verið í
þeirra hópi. Dole vildi hins vegar
bíða eftir að Jack Kemp hætti
keppni sem hann og gerði fimmtu-
daginn 10 mars. Og þá var það
orðið of seint fyrir Dole að kveðja
með reisn.
Fyrir aðeins mánuði virtist allt
vera Dole ( hag, eftir sætan sigur
í Iowa. Bush átti erfitt uppdráttar
og var lífsnauðsynlegt að vinna í
forkosningunum í New Hamphire,
viku eftir Iowa. Allt benti hins veg-
ar til að varaforsetanum tækist það
ekki og aðeins tveimur dögum fyr-
ir kosningamar sýndu flestar skoð-
anakannanir að Dole hefði foryst-
una. En eins og frambjóðendur
árið 1992 geta lært af mistökum
Doies, þá geta þeir vissulega lært
af vel skipulagðri baráttu Bush.
Honum tókst að snúa dæminu al-
gjörlega við á nokkrum dögum og
Dole beið afhroð. (í fyrstu forkosn-
ingum skiptir ekki öllu að koma
fyrstur í mark heldur ekki síður
að ná betri kosningu en búist var
við. Forkosningar eru keppni um
að gera betur en allir eiga von á.)
Rangar ákvarðanir og
fjáraustur
Donald Devine, fyrrum ráðgjafi
Doles, segir í viðtali við banda-
rfska stórblaðið The Wall Street
Joumal, að framboð öldungar-
deildarþingmannsins hafi verið
dæmi um framboð sem tapast
vegna rangra ákvarðana, og
fjárausturs. En það sem skiptir
mestu er að Dole vantaði stefnu,
vantaði þema í kosningabarátt-
una. Það eina sem hann virtist
vera tilbúinn að bjóða var reynsla
sem leiðtogi repúblikana í Öld-
ungadeildinni. Kjósendur voru
litlu nær um skoðanir frambjóð-
andans.
í New Hampshire lagði Bush
mikla áherslu á andstöðu við
skattahækkanir og í sjónvarps-
auglýsingum var gefíð fyllilega í
skyn að Dole væri ekki treystandi
í skattamálum. Skattar eru eitur
í beinum íbúa Hew Hampshire og
Dole hélt því fram eftir að niður-
stöður kosninganna lágu fyrir að
neikvæðar auglýsingar varafor-
setans væru helsta skýringin á
því að hann beið lægri hlut.
Neikvæðar auglýsingar kunna
að vera hluti af skýringum fyrir
tapi Doles, en eru langt frá því
að segja alla söguna. íbúar New
Hampshire hreinlega treystu Dole
ekki þegar á reyndi og honum
reyndist um megn að vinna tiltrú
þeirra. Sjónvarpsauglýsing, þar
sem stefna Doles í skattamálum
var skýrð út, var aldrei birt, vegna
þess að frambjóðandanum vafðist
tunga um tönn. í vikunni fyrir
forkosningamar í New Hampshire
hélt Dole ræðu í kvöldverði
repúblikana í Nashua og átti að
nota hluta hennar í auglýsingu
undir yfírskriftinni „Engir skatt-
ar“. En Dole var þreyttur og í
stað þess að segja að hann myndi
beita neitunarvaldi sem forseti
gegn skattahækkunum þá sagðist
hann ætla að nota neitunarvaldið
til að koma í veg fyrir skattalækk-
anir.
Ráðgjafar Doles reyndu að
klippa myndbandið, en það gekk
ekki og aftur var reynt að mynda
ræðu í Háskóla Hew Hampshire
en þá var frestur sjónvarpsstöðv-
anna til að skila inn auglýsingum
útrunninn. Richard Wirthlin, sem
vann skoðanakannanir fyrir Dole,
taldi auglýsinguna ekki mikil-
væga, þar sem skattamál væru
ekki stórmál fyrrir kjósendur.
Raunin varð önnur.
Tækifæri glatað
En kannski gerði Dole stærstu
mistökin síðastliðið haust. Þá virt-
ist Dole eiga möguleika á að fá
Lamar Alexander, fyrrverandi
ríkisstjóra Tennessee, til liðs við
sig sem varaforsetaefni. Alexand-
er er mikilsvirtur og áhrifamikill
í stjómmálum í Suðurríkjunum.
Bandalag við hann hefði styrkt
stöðu Doles verulega í keppninni
við Bush.
The Wall Street Journal greindi
frá því síðastliðinn mánudag, að
Alexander hefði átt fund með
Dole og Rath, ráðgjafa frambjóð-
andans, í New Hampshire þegar
sá fyrstnefndi heimsótti ríkið til
að fylgja dóttur sinni í skóla,
snemma í september. Á fundinum
var rætt um möguleika þess að
Alexander tæki þátt í kosninga-
baráttunni, sem varaforsetaefni
Doles. Alexander virtist hafa
áhuga og byrjað var á uppkasti
að ræðu þar sem bandalagið var
tilkynnt. En hugmyndin varð að
engu í herbúðum Doles.
Með Alexander sér við hlið, sem
varaforsetaefni, hefði Dole styrkt
stöðu sína í Suðurríkjunum, eins
og áður er sagt. Og þrýstingur á
Bush að tilkynna varaforsetaefni
hefði aukist vemlega. (Það er
kaldhæðnislegt að Alexánder er
meðal þeirra sem Bush telur hæ-
fasta í embætti varaforseta.)
Óstjórn
Samkomulagið í herbúðum Do-
les var ekki gott og deilur loguðu
milli Bill Brocks kosningastjóra
annars vegar og annarra ráðgjafa
Doles hins vegar. Að auki vantaði
skipulagslegan aga og þegar
ákvarðanir um stjóm og her-
kænsku vom teknar vom afleið-
ingar þeirra oft hroðalegar.
Það virðist einnig sem haldið
hafi verið illa á peningum. í sept-
Reuter
Dole er kampakátur á þessari
mynd, sem tekin var eftir sigur
hans í Iowa á dögunum. Hætt
er þó við þvi að kappinn sé nið-
urdregnari núna.
ember á liðnu ári hafði Dole varið
1,4 milljónum dollara minna í
framboðið en Bush. Sérfræðingar
þess fyrmefnda reiknuðu með að
vegna þessa gæti Dole varið svip-
uðum fjármunum fyrir þriðjudag-
inn 8. mars og Bush. En í októb-
er snerist dæmið við. Dole hefur
eytt 3 milljónum dollumm meira
en Bush. Afleiðingin er sú að á
meðan varaforsetinn á um 5,5
milljónir dollara í banka er Dole
nær búinn með sjóðinn.
Frambjóðendur sem ekki höfðu
yfir nægilegum fjármunum að
ráða á 8. mars vom í raun dæmd-
ir til að bíða lægri hlut (Jesse
Jackson, er undantekning). Ólfkt
kosningunum í Iowa og New
Hampshire em frambjóðendur
nær algjörlega háðir fjölmiðlum
og þá fyrst og fremst ljósvakafjöl-
miðlum.
Ekki hættur
Dole segist ekki vera hættur
og kveðst vera sigurstranglegri
en Bush í forsetakosningunum í
nóvember. Skoðanakannanir hér
í Bandaríkjunum benda hins vegar
til annars. Á mánudag birti ABC-
sjónvarpsstöðin niðurstöður könn-
unar þar sem borið var saman
fylgi einstakra frambjóðenda.
Bush nýtur jrfir 60% fylgis meðal
repúblikana og Mikael Dukakis
nýtur mest stuðnings meðal
demókrata. Bush myndi og vinna
alla frambjóðendur demókrata
með yfirburðum ef forsetakosn-
ingamar fæm fram nú. Dole biði
hins vegar lægri hlut gegn Duk-
akis, en hefði sigur á Albert Gore
og Jesse Jackson.
Röksemdir Doles em að vopna-
söluhneykslið muni hafa neikvæð
áhrif á forsetaframboð Bush og
jaftivel gera honum ókleift að
vinna kosningamar. Með þessar
röksemd að vopni bindur Dole
vonir við að koma ( veg fyrir að
Bush nái meirihluta fulltrúa á
landsfund repúblikana. Þá yrði
að velja forsetaframbjóðandann
með öðmm hætti og vonast Dole
til þess að hann reynist hlutskarp-
ari í slíku uppgjöri, hvaða fótur
sem annars er fyrir því haldi hans.
Til þess að vama Bush meiri-
hluta landsfundarfulltrúa þarf
hann að vinna að meðaltali 65%
fulltrúa í þeim ríkjum sem eftir
era. Og til að vinna meirihluta
verður Dole að vinna tæplega
90%. Að öllum Kkindum er það
útilokað, en með stuðningi óháðra
fulltrúa og fulltrúa annarra fram-
bjóðenda vonar Dole hið besta.
Bush nýtur greinilega vinsælda
Ronalds Reagans og hollustu
sinnar við forsetann í Illinois, eins
og annars staðar. Eða eins og
Robert Dole sagði í viðtali við
ABC-siónvarpsstöðina á mánu-
dag: „Eg get haft sigur á George
Bush en ekki Ronald Reagan."