Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 1
96 SIÐURB 73. tbl. 76. árg. SUNNUDAGUR 27. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Vopnasölumálið: North og Poin- dexter saklausir - segir Reagan Bandaríkjaforseti Washíngton, Reuter. RONALD Reagan Bandaríkja- forseti hefur lýst yfir sakleysi fyrrum aðstoðarmanna sinna, sem nú eru fyrir rétti vegna vopnasölumálsins svokallaða. Þar með hefur Reagan brotið þá hefð, að forseti Bandaríkjanna ræði ekki um sakamál, sem eru fyrir rétti. Reagan lýsti þessu yfir á fundi með námsmönnum, sem voru í heimsókn í Hvíta húsinu, og átti þar við Oliver North ofursta og John Poindexter, fyrrum öryggis- ráðgjafa. Að sögn lögfræðinga geta þessi ummæli forsetans dregið dilk á eftir sér. Einnig er talið, að þau geti vakið pólitískar deilur eins og átti sér stað árið 1970, þegar Ric- hard Nixon, þáverandi forseti, lýsti Charles Manson sekan um fjölda- morð áður en Manson var dæmdur fyrir að myrða leikkonuna Sharon Tate og fleira fólk. Fram að þessu hefur Reagan aðeins sagt um vopnasölumálið, að hann viti ekki til þess, að nein lög hafi verið brotin. En á föstudag gekk hann miklu lengra og lýsti þá North og Poindexter saklausa. „Ég verð bara að vona, að þeir verði sýknaðir, því að ég held ekki, að þeir haf. gert neitt af sér eða framið neinn glæp,“ sagði hann og endurtók enn fremur ummæli, sem hann viðhafði í viðtali við Time 1986: „Ég held enn, að Ollie North sé hetja." Breskur heimskautafari: Osonlagið heldur í okkur öllum líf inu Tókýó, Reuter. BRESKI heimskautafarinn og umhverfisverndarmaðurinn Ro- bert Swan beindi þeim tilmælum til Japana í gær, að þeir legðu sitt af mörkum til verndunar ósonlags jarðar. Swan, sem var oddviti frægs suðurskautsleiðangurs árið 1985, er nú í hnattferð til að berjast fyrir Persaflóastríðið: Rannsókn vegna efna- vopnaárása Sameinuðu þjóðunum, Reuter. TVEIR sérfræðingar, sem starfa á vegum Sameinuðu þjóðanna, munu halda til írans eftir helgina að kröfu stjórn- valda þar vegna meintra efna- vopnaárása Iraka, sem sagðar eru hafa kostað 5.000 manns lífið. íranir fullyrtu í síðustu viku að 5.000 manns hefðu fallið í efnavopnaárás íraka á bæinn Halabja. Bærinn tilheyrir írökum en hersveitir írana hafa náð hon- um á sitt vald. í Iqolfar árásarinn- ar fóru stjómvöld í íran fram á það að Sameinuðu þjóðimar sendu nefnd sérfræðinga til landsins en samkvæmt alþjóða- samþykktum er bannað að beita efnavopnum á stríðstímum. Talsmaður Sameinuðu þjóð- anna skýrði frá því á föstudag að ákveðið hefði verið að senda tvo menn til írans og yrði annar þeirra læknismenntaður. Sendi- herra írana hjá Sameinuðu þjóð- unum sagði í gær að mennirnir kæmu til Irans á morgun en ekki væri enn ljóst hvort þeim yrði heimilað að fara til Halabja. því, að fólk kaupi ekki úðavörur, sem notast við klórflúorkolefni. Samkvæmt áliti vísindamanna stuðlar þetta efni að eyðingu óson- lagsins. Swan sagði, að heiminum stafaði þegar hætta af gatinu, sem komið væri á ósonlagið yfir Suðurskauts- landinu. „Ósonlagið heldur í okkur öllum lífinu,“ sagði hann á fundi með japönskum fréttamönnum. Hann varaði við því, að gatið, sem nú er á stærð við Bandaríkin, gæti hækkað hitastig og valdið bráðnun á suðurskautsísnum og þar með fært afganginn af heiminum í kaf. Swan ætlar að efna til sex manna leiðangurs á norðurpólinn til þess að vekja athygli á baráttu sinni. Tungl á Eyjafjallajökli Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson. •• Oryggissveitir halda uppi gæslu í Armeníu: Stj ómvöld leysa upp bar- áttunefnd þjóðemissinna YFIRVÖLD í sovétlýðveldinu Armeníu hafa leyst upp nefnd armen- skra andófsmanna sem skipulagt hefur baráttu þeirra fyrir þvi að landbúnaðarhéraðið Nagorno-Karabakh verði afhent Armenum að nýju. Hundruð sovéskra öryggisvarða halda uppi gæslu í Jerevan, höfuðborg Armeniu, en boðað hafði verið til mótmæla i gær þar í borg eftir að ljóst varð að Sovétstjórnin hugðist ekki ganga að kröf- um Armena. Armenskir andófsmenn sögðu að borgarbúar hygðust halda sig heima við og sýna samstöðu sína á þann hátt. Sovésk dagblöð skýrðu frá því í gær að forsætisnefnd Æðsta ráðs Armeníu hefði „stöðvað starfsemi Karabakh-nefndarinnar“ og stað- festu viðmælendur Reuters-frétta- stofunnar þær fregnir. Dagblaðið Izvestia greindi og frá því að arm- enskir þjóðernissinnar hefðu sjálfir ákveðið að leysa upp undimefndir, sem komið hafði verið á fót í verk- smiðjum í lýðveldinu til að skipu- leggja baráttuna. Stjómvöld í Moskvu lýstu yfir því í síðustu viku að ekki kæmi til greina að ganga að kröfum Armena og breyta landamærum sovétlýð- veldanna Armeníu og Azerbajdzh- an. Hundruð þúsunda manna söfn- uðust saman í Jerevan um síðustu mánaðamót og kröfðust þess að Nagomo-Karabakh yrði sameinað Armeníu að nýju en það hefur til- heyrt Azbajdzönum síðustu 65 árin. Samhliða tilkynningu Sovét- stjómarinnar var fjölmennt herlið sent til Jerevan til að koma í veg fyrir mótmæli, sem þjóðernissinnar höfðu boðað til í gær. Heimildar- menn JZeuíers-fréttastofunnar sögðu að flórir menn hefðu verið handteknir og væri einn þeirra meðlimur Nakomo-Karabakh- nefndarinnar. Hundmð öryggi- svarða héldu uppi gæslu á götum Jerevan en yfírvöld í lýðveldinu hafa lagt bann við hvers kyns fjöldafundum og mótmælum í borg- inni. Á föstudagskvöld komu þekkt- ir armenskir listamenn fram í sjón- varpi 'og hvöttu landa sína til að sýna stillingu. Armenskir andófs- menn sögðu í gær að íbúarnir hygð- ust sýna samstöðu sína með því að halda sig heima þannig að Jerevan yrði líkust „draugabæ".
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.