Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 31.03.1988, Blaðsíða 1
168 SÍÐUR B/C/D 76. tbl. 76. árg. Frakkland: Enn aukast vinsældir Mitterrands París, Reuter. VINSÆLDIR Francois Mitterr- ands Frakklandsforseta hafa auk- ist á þeim tíma sem liðinn er frá þvi hann gjörði heyrinkunnugt að hann hygðist gefa kost á sér í forsetakosningunum í næsta mán- uði. Stjórnmálaskýrendur höfðu margir hveijir spáð hinu gagn- stæða en ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar, sem birtar voru í frönsku vikuriti í gær, mun forsetinn vinna öruggan sigur í báðum lotum kosninganna. Samkvæmt skoðanakönnun viku- ritsins VSD mun forsetinn, sem orð- inn er 71 árs að aldri, fá 40 prósent atkvæða í fyrri lotu kosninganna sem fram fer 24. apríl. Hefur fylgi Mitt- errands aukist um þrjú prósent frá því hann tilkynnti þann 22. mars að hann hygðist bjóða sig fram að nýju. Jacques Chirac, forsætisráðherra og frambjóðandi hægri manna, fengi 21 prósent atkvæða. Fylgi Raymonds Barre mældist 16 prósent og hefur það minnkað um fimm prósent frá þ'ví í síðustu könnun vikuritsins. Síðari lota kosninganna fer fram 8. maí og verður þá valið milli tveggja efstu manna. Mitterrand fengi sam- kvæmt könnuninni 56 prósent at- kvæða stæði slagurinn milli hans og Chiracs og 57 prósent gegn Barre. Sjá einnig „Barre reynir að“ .. á bls. 34. Svíþjóð: Átu eftir- læti dýra- garðsgesta Stokkhólmi, Reuter. DAPURLEG örlög bjarndýrs- húnsins Molly hafa vakið gífurlega reiði meðal dýra- vina í Svíþjóð. Komið hefur í jjós að starfsmenn dýragarðs- ins i Stokkhólmi aflífuðu dýr- ið í nóvember á síðasta ári og efndu siðan til happdrættis þar sem hinir heppnu hlutu kjötið af skepnunni i vinning. Molly var gefið nafn á síðasta ári eftir að efnt hafði verið til samkeppni meðal skólabarna um hvað dýrið skyldi heita. Bjarn- 1 dýrshúnninn, sem var 18 mán- aða er hann var tekinn af, var í miklum metum í Svíþjóð og þyrptust menn í dýragarðinn í Stokkhólmi til að berja hann augum. Malin Bergman, sem átti hug- myndina að því að húnninn yrði nefndur Molly, var miður sín er hún frétti um voðaverk starfs- mannanna. „Hvemig gátu þeir gert þetta? Hvemig gátu þeir gefið dýrinu nafn, hugsað um það og síðan laumað því upp á kvöldverðarborðið?". Eva Nordenson, forstöðumað- ur dýragarðsins í Stokkhólmi, sagði að Molly hefði verið aflífuð í nóvember vegna plássleysis í dýragarðinum. Hefðu starfs- mennimir síðan haldið happ- drætti og hinir heppnu haldið heim með kjötbita. FIMMTUDAGUR 31. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Sveitum Irans og Kuwaits lendir saman á Persaflóa Kross á minnisvarða franskra sjómanna á Fáskrúðsfirði. Morgunblaðið/Helena Stefánsdóttir Kuwait, Baghdad, Nikósíu. Reuter. HERSVEITIR frá íran og Kuwait skiptust á skotum í gær í fyrsta skipti frá því ófriður braust út við Persaflóa fyrir tæpum átta árum. I tilkynningu varnarmálaráðuneytis Kuwaits sagði að þrír íranskir fallbyssubátar hefðu ráðist á herstöð Kuwaitbúa á eyjunni Bubiyan á norðanverðum Persaflóa. Fylgdi og fréttinni að tveir hermenn hefðu særst i árásinni. íranir sögðu hins vegar að engin slík árás hefði átt sér stað. í tilkynningu varnarmálaráðu- neytisins sagði að Kuwaitbúar áskildu sér rétt til að svara slíkum árásum en ekki var frá því skýrt hvort íranir hefðu orðið fyrir mann- i falli. Herstöðin á eyjunni Bubiyan er framvamarstöð Kuwaitbúa og liggur brú yfir á fastalandið. Engir óbreyttir borgarar búa á eyjunni. Útvarpið í Teheran bar fréttir þessar til baka í gær og sagði þær vera „hugarburð ráðamanna í Kuwait". Var haft eftir talsmanni írönsku herstjómarinnar að fréttir þessar væru áróðursbragð og til þess fallnar að réttlæta vem banda- rískra herskipa á Persaflóa. KUNA, hin opinbera fréttastofa Kuwaits, hafði það eftir háttsettum embættismanni að árásin myndi leiða til aukinnar spennu á þessum slóðum, sem þó væri ærin fyrir, og að „afleiðingar hennar“ gætu orðið til þess að raska stöðugleika í þess- um heimshluta. Sagði og að mót- mælum hefði verið komið á fram- færi við stjórnvöld í íran. Jórdanir fordæmdu árásina þeg- ar í stað og hétu stjómvöldum í Kuwait stuðningi. Egyptar gagn- rýndu og írana sökum þessa og sögðu að ástandið á Persaflóa myndi fara versnandi í kjölfar árás- arinnar auk þess sem hún væri ögrun við þær þjóðir heims sem reynt hefðu að miðla málum í stríði írana og íraka. íranir fullyrða að Kuwaitbúar leyfí íröskum hersveitum að halda til á eyjunni Bubiyan. Hafa þeir hótað að hertaka eyjuna og aðrar eyjar Kuwaitbúa á Persaflóa vegna þessa. Kuwaitbúar hafa þráfaldlega vísað ásökunum þessum á bug. Kuwaitbúar hafa stutt íraka frá því ófriðurinn braust út við Persa- flóa og hafa Iranir löngum haft í hótunum við þá. Af þessum sökum fóru Kuwaitbúar þess á leit við Bandaríkjamenn í júlí á síðasta ári að 11 olíuskip þeirra yrðu skráð í Bandaríkjunum til að þess að þau gætu notið vemdar bandarískra herskipa á Persaflóa. Akváðu Bandaríkjamenn að verða við þess- ari beiðni. Á síðasta ári skutu Iran- ir ekki færri en sex flugskeytum að olíuvinnslustöðvum í Kuwait en ekki hefur komið til vopnaðara átaka milli ríkjanna fyrr en nú. Irakar skutu í gær þremur flug- skeytum á borgina Esfahan í íran og sögðu íranir fjökia óbreyttra borgara hafa fallið. íranir hefndu árásarinnar með miklum sprengju- árásum á borgina Sulaymaniyah í norðausturhluta íraks og sagði út- varpið í Teheran að tíu tonnum af sprengiefni hefði rignt yfir borgina. I fréttum útvarpsins kom einnig fram að íranir hafa ákveðið að loka skólum í þeim hlutum landsins sem taldir eru í mestri hættu vegna flug- skeytaárása íraka. ísrael: Fréttastofu Pal- estínumanna lokað Nazaret. Jcrúsalem, Reuter. ÍSRAELSKAR herlögreglusveitir lokuðu í gær fréttastofu Palestínu- manna í austurhluta Jerúsalemborgar og hersveitir skutu ekki færri en fjóra Palestinumenn til bana á vesturbakkanum. í gær voru 12 ár liðin frá því að lögreglumenn felldu sex araba í Galíleu sem mót- mælt höfðu eignarnámi lands þeirra og óttuðust yfirvöld víðtækar mótmælaaðgerðir araba í minningu þeirra. Þúsundir lögreglu- og hermanna voru í viðbragðsstöðu í bæjum og þorpum araba með ísra- elskt ríkisfang en mótmælin fóru að mestu friðsamlega fram. „Fréttastofa Palestínu" (PPS) í austurhluta Jerúsalem hefur verið ein helsta heimild erlendra frétta- manna sem fylgst hafa með uppreisn Palestínumanna á herteknu svæðun- um undanfama fjóra mánuði. ísra- elsher tilkynnti í gær að fréttastof- unni hefði verið lokað næstu sex mánuðina. Hermenn skutu Qóra menn til bana á vesturbakkanum og særðu um 30 manns til viðbótar, suma al- varlega. Fréttir bárust af mótmælum víða á herteknu svæðunum en þeim hefur verið lokað undanfama tvo daga. Þúsundir her- og lögreglumanna héldu uppi gæslu í þorpum og bæjum araba með ísraelskt ríkisfang. Höfðu yfirvöld óttast flölmenn mótmæli í minningu arabanna sex sem féllu árið 1976 en dag þennan hafa ara- bar upp frá því nefnt „Dag lands- ins“. Hópar manna söfnuðust víða saman en mótmælin fóru friðsamlega fram.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.