Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 05.05.1988, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLABIÐ, FTMMTUDAGUR 5. MAÍ 1988 Málflutningur í kaffibaunamáli fyrir Hæstarétti: Starfsmenn SIS vissu að viðskiptin voru sviksamleg - sagði Bragi Steinarsson, vararíkis- saksóknari, í sóknarræðu sinni STARFSMENN SÍS gerðu sér grein fyrir því að af þeirra hálfu hefðu viðskipti SÍS við Kaffibrennslu Akureyrar verið sviksamleg. Þetta kom meðal annars fram í sóknarræðu Braga Steinarssonar, vararikissaksóknara, fyrir Hæstarétti í gær. Bragi hóf ræðu sína á að reifa málið og forsögu þess og fór yfír ákæruna. Þar kom fíam, að Erlend- ur Einarsson, fyrrum forstjóri SÍS, og Hjalti Pálsson, fyrrum fram- kvæmdastjóri innflutningsdeildar SÍS, eru ákærðir fyrir flársvik og þrír starfsmenn fyrirtækisins, þeir Sigurður Ámi Sigurðsson, Gísli Theódórsson og Amór Valgeirsson, em ákærðir fyrir hlutdeild í brotum yfirmanna sinna. Héraðsdómur sýknaði ákærðu af ákæm um skjalafals og sagði Bragi að þeim sýknulið væri ekki áfrýjað, en hins vegar hefði ákæmvaldið áfrýjað sýknudómi yfír Erlendi Einarssyni. Þá vitnaði Bragi í niðurstöður hér- aðsdóms f málinu, en þeirra er get- ið á öðmm stað hér á síðunni, ásamt tildrögum málsins. Bragi fór yfír reikninga vegna viðskiptanna og tók fram, að ákæmefnið lyti að öllu þvf, sem teldist umfram venjuleg umboðs- laun. Hann sagði, að þegar reikn- ingar, sem hefðu verið hærri en raunvemlegt kaupverð sagði til um, hefðu verið sendir til Kaffibrennsl- unnar, þá hlyti það að vera vegna þess að ákvörðun um slíkt hefði verið tekin hjá SÍS. Slfkar ákvarð- anir tækju undirmenn ekki, heldur yfirmenn. Þá væri ljóst, að sú full- yrðing, að tvöfalt kerfí vörureikn- inga, hærri og lægri, væri frá Bra- ilíumönnum komið og SÍS hefði orðið að notast við það, væri al- röng. Það væri umhugsunarefni hvort Brasilfumenn hafí þá ein- göngu krafíst þessa á ákæmtfma- bilinu. Hvergi komi fram að sér- stakar óskir um slíkt kerfí hafí komið frá Brasilíumönnum, nema í tveimur tilfellum, þegar greitt var fyrir kaffíð í Sviss. Allar óskir um þetta kerfí hafi ýmist komið frá SÍS eða að beiðni SÍS frá NAF, Norr- æna samvinnusambandinu, sem SÍS er aðili að. Kaffibrennslan vissi ekki um tekjurnar Varðandi samninga um kaffí- kaup milli NAF og Brasilfumanna sagði Bragi að vottað væri að þess- ir samningar hefðu verið sendir til SÍS, þó ákærðu hafí ekki kannast við að hafa séð þá. Vitnaði hann þar til framburðar Hjalta Pálssonar fyrir sakadómi, þar sem Hjalti kvaðst ekki hafa séð reikningana fyrr og að hann áliti að þeir sem stóðu í kaffíviðskiptunum hafí ekki taiið ástæðu til að sýna sér þá. Bragi benti á, að forráðamenn Kaffíbrennslu Akureyrar hefðu ekki fengið vitneskju um þær miklu tekj- ur, sem SÍS hafði af kaffíviðskipt- unum, fyrr en í ársbyijun 1981, þegar einhliða ákvörðun hafði verið tekin hjá SÍS _um að endurgreiða hluta þeirra. Á þessum tfma hafí verið farið að þrengja að Kaffí- brennslunni, sem einmitt þá lagði fram beiðni til verðlagsstjóra um hækkun á kaffíverði. Fram- kvæmdastjóri Kaffíbrennslunnar hafí sent verðlagssfjóra gögn um innkaupsverð kaffís, án þess að vita að þau gögn sýndu ekki raunveru- legt kaupverð kaffísins. Hjalti Páls- son hafi tekið þá ákvörðun, að frá fyrri hluta árs 1981 skyldi Kaffí- brennsian fá helming teknanna af innflutningnum. Hins vegar hafí forráðamenn Kaffibrennslunnar ekki vitað að tekjur höfðu áður runnið óskiptar til SÍS. Þessu næst ræddi Bragi hversu mjög þessar tekjur SÍS vegna af- sláttar af kaffikaupum hefðu aukist árið 1980 og 1981. Þá hefðu háar fjárhæðir safnast upp hjá skrifstofu SÍS í London, sem fékk senda greiðslu Kaffíbrennslunnar og greiddi sjálf lægri reikninginn til seljanda. Vegna þessara uppsöfri- uðu tekna hefði þurft að taka ákvörðun um það innan SÍS hvert þær skyldu renna. Þessar telcjur hafí verið fluttar á reikning SÍS fyrir umboðslaun innflutningsdeild- arinnar. Bragi vitnaði í skýrslu Geirs Geirssonar, endurskoðanda SÍS, þar sem fram kemur að þar sem um háa fjárhæð hafí verið að ræða, sem hafí verið flutt milli reikninga á óvenjulegan hátt, hafí verið getið um þetta í skýrslu hans til stjómar SÍS. Þar hafí verið gerð sú athugasemd, að tekjur þessar stöfuðu af sérstökum afslætti í kaffíviðskiptum. Seljendur veittu afslátt, sem greiddur væri f formi ávísana á frekari kaffíkaup, en ekki greiddur út í reiðufé. Þá benti Bragi á, að Geir hafí borið að árið 1980 hafí afslátturinn aukist mjög og verið orðinn stór hluti af kaffí- verði. Því hefði mátt vera ljóst að tekjur vegna afsláttarins ættu betur heima hjá endanlegum kaupanda kaffísins, Kaffíbrennslunni, heldur en SÍS. Vorið 1980 fór Geir Geirsson á skrifstofu SÍS í London til að endur- skoða gögn þar. Bragi benti á að Geir hefði þá ekki rekist á tvöfalda reikninga vegna kaffíviðskiptanna og hefði borið fyrir dómi að hann hefði frétt að þáverandi forstöðu- maður skrifstofunnar, Gísli Theó- dórsson, hefði haldið þessum gögn- um aðskildum frá þeim bókhalds- gögnum, sem verið var að endur- skoða. Þá hafí Geir borið að hann hefði heyrt að Hjalti Pálsson hafí gefíð fyrirskipanir um að tvöfalt kerfí reikninga skyldi notað f við- skiptunum. Bragi Steinarsson Qailaði þessu næst um viðbrögð við skýrslu Geirs Geirssonar, endurskoðanda, til stjómar SlS. Komið hefði fram að Valur Amþóreson, stjómarformað- ur SÍS og Kaffíbrennslunnar, hefði fengið vitneskju um miklar tekjur SÍS vegna afsláttarins daginn fyrir aðalfund Sambandsins. I samtali hans við Geir hefði komið fram að það væri álit Erlendar Einaresonar og Hjalta Pálssonar að SÍS bæru þessar tekjur vegna aðildar Sam- bandsins að NAF. Valur hefði hins vegar kannað málið nánar og sent Geir til London til að kanna gögn þar. Sigurður Ámi Sigurðsson, þá- verandi foretöðumaður skrifstof- unnar f London, hafí borið að Geir hafi komið þangað fyrirvaralaust í september 1981, að beiðni Vals. Sigurður hafí þá beðið um frest ti) að ræða við yfírmann sinn, Erlend Einarsson, og hafí Erlendur sagt að Geir gæti skoðað gögn um við- skiptin í Reykjavík. Bragi benti á, að þegar Geir var þá á ferð í Lon- don hafí verið skammt liðið sfðan hann var þar við endurekoðun síðast, en þá hafí gögnum verið haldið frá. Bragi sagði, að f máli þessu vörpuðu yfírmenn sökum á undirmenn sfna, en undirmenn gerðu slfkt sfður, enda ættu þeir atvinnu sína undir velvild yfírmann- anna. Valur Amþóreson skipaði síðan nefnd til að kanna þessi viðskipti nánar og hveijum bæra þessar af- sláttargreiðslur. Hann fékk Geir Geirsson og Guðmund Skaftason, lögfræðilegan ráðunaut Kaffi- brennslunnar, til að sitja í nefnd- inni. Með þeim störfuðu Geir Magn- ússon, yfírmaður fjármáladeildar SÍS og Snorri Egilsson, skrifstofu- sfjóri innflutningsdeildar. Guð- mundur Skaftason taldi kaffí- brennsluna eiga afsláttinn, þar sem um pmboðsviðskipti hefði verið að ræða, en Sambandsmenn töldu að afslátturinn skyldi renna til SÍS, þar sem hann væri til kominn vegna aðildar SÍS að NAF. Engin nicur- bandinu. Hann vísaði til framburðar Gísla Theódórssonar hjá lögreglu um að hann hafí fengið fyrirmæli frá Hjalta Pálssyni og Sigurði Áma Sigurðssyni um að innheimta brúttóreikninga hjá Kaffíbrennsl- unni. Fyrirmæli til seljenda kaffis- ins um tvöfalda reikninga hafí kom- ið frá innflutningsdeild SÍS, en mis- munur upphæðanna á reikningun- um hafí verið lagður inn á reikning skrifetofunnar í London. Gísli hafí sfðan sagt fyrir dómi að hann hafí fengið boð frá fóðurvöradeild SÍS um að tveir reikningar vegna við- skiptanna væra væntanlegir og ætti að innheimta brúttóreikninginn reglurannsókn, en Hjalti dró þau til baka fyrir dómi og vildi kalla viðskiptin „samráðskaup". Þá benti Bragi á að Sigurður Árni, Gísli og Amór teldu allir að um umboðs- viðskipti hafí verið að ræða. Kaffí- kaupin hafí verið færð í bókhaldi Kaffíbrennsiunnar sem bein að- fangakaup og Kaffíbrennslan talin innflytjandinn. SÍS hafi hins vegar ekkert bókað hjá sér um viðskiptin nema hvað tekjur vegna þeirra vora færðar sem umboðslaun. Þessu næst fjallaði vararíkissak- sóknari um þær vamarástæður að um bein kaup SÍS hafí verið að ræða, en ekki umboðsviðskipti. Hann taldi slíkt Qarstæðu, enda hefði SÍS þá þurft að leggja spilin á borðið, færa viðskiptin tii bókar hjá sér og senda verðlagsstjóra verðútreikninga. Veijendur hafí bent á, að SÍS hafí tekið lán í Lon- don til að fjármagna kaffíkaupin og á sumum reikningum hafí SÍS verið tilnefnt sem kaupandi. „En hvað liggur að baki því að SÍS greið- ir reikningana í London?", spurði Bragi. Hann benti á að eðli viðskipt- anna hafí ekkert breyst við þá til- högun og það hafí aldrei verið ætl- Við upphaf sóknarræðu vararík- issaksóknara, Braga Steinars- sonar, þegar málflutningur f kaffibaun&málinu hófst fyrir Hæstarétti f gær. Sex dómarar hlýða á málflutning, en finun munu dæma málið. Er þetta gert vegna umfangs málsins, svo tryggt sé að dómur sé fullskipað- ur þó einn dómara forfallist. Reiknað er með að málflutningur standi fram f miðja næstu viku. staða fékkst, en SÍS ákvað síðar einhliða að endurgreiða Kaffí- brennslunni. „Oftekin umboðslaun“ endurgreidd Bragi fíallaði um samþykkt stjórnar SlS, þar sem tekjur af kaffibaunainnflutningnum vora til umræðu. Hann benti á, að stjómin hafí talið að SÍS hafí eignað sér hærri umboðslaun en efni stóðu til. Því bæri að endurgreiða Kaffí- brennslunni afslátt fyrir árin 1979, 1980 og 1981. Þá lagði Bragi á það mikla áheralu, að stjóm SIS hafí samþykkt að láta gera könnun á hveijir bæra ábyrgð á þessari til- högun viðskiptanna. Stjómin hafí tekið fram, að hver vörategund ætti að standa undir sér og hagstæð innkaup ættu að koma neytendum til góða. Þá sé það orðað svo í sam- þykkt stjómarinnar að samþykkt sé að endurgreiða Kaffíbrennslunni oftekin umboðslaun, samtals rúmar 42 milljónir. Nefndin, sem kanna átti hver bæri ábyrgð á viðskiptun- um, hafí aldrei starfað og verið lögð niður þegar opinber rannsókn á málinu hófst. Þessu næst ræddi Bragi nánar þá fullyrðingu sína, að kerfí tvö- faldra reikninga væri ekki frá Bras- iifumönnum komið, heldur Sam- hjá Kaffíbrennslunni. Gísli kvaðst hafa rætt þetta við Sigurö Áma, en ekki við Hjalta eða Erlend. Hann teldi þó að ákvörðun um slíkt hefði Sigurður Ámi tæpast tekið, hún hlyti að vera frá Hjalta komin. Máli sínu til stuðnings benti Bragi einnig á framburð Sigurðar Áma, sem bar að hann teldi SÍS hafa beðið NAF um tvöfalda reikn- inga og NAF komið skilaboðum um það til seljenda í Brasilíu, eða SÍS óskað beint eftir því við seljendur. Ákvörðun um þennan þátt viðskipt- anna hafí komið frá íslandi. Þá hafí Sigurður Ámi gefíð Lundúna- skrifstofunni fyrirmæli um að senda hærri reikningana tii Kaffíbrennsl- unnar, að skipan yfírmanns síns, Hjalta. Bragi sagði að SÍS hefði lagt áherelu á að Kaffibrennslan frétti ekki af afslættinum. í skeyti SÍS til brasilískra seljenda kæmi fram að fyrir misskilning hefðu reikning- ar vegna viðskiptanna verið sendir beint til banka á Akureyri, þrátt fyrir samning um að þeir yrðu send- ir til skrifstofunnar I London. Vora seijendumir beðnir um að tilkynna banka sfnum að þessir reikningar yrðu aldrei greiddir á íslandi. Eina leiðin til að fá greiðslu væri að fá bankann á Akureyri til að senda skjölin til London. Þá hafí Sigurður Ámi sent NAF skeyti með tilmæl- umum að sendur yrði nýr reikning- ur yfír ákveðna sendingu, þar sem eingöngu yrði tilgreint brúttóverð. Umboðsviðskiptí í máli þessu hefur mjög verið deilt um hvemig líta beri á við- skipti Sambandsins og Kaffi- brennslunnar. Bragi sagði f ræðu sinni að ekki Iéki vafí á því að um umboðsviðskipti væri að ræða. Vísaði hann þar til ummæla Þrastar Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Kaffíbrennslunnar, Vals Amþórs- sonar, Guðmundar Skaftasonar og ummæla Hjalta Pálssonar við lög- unin. Þvf sé röksemd veijendanna að þessu leyti Iéttvæg. Og það að SÍS hafí verið tilgreint sem kaup- andi á einhveijum reikningum stafí einungis af því að NAF leit á SÍS og Kaffíbrennsluna sem eitt og hið sama. Viðskiptin hafí þrátt fyrir þetta verið umboðsviðskipti og SÍS hafi aðeins getað krafíst hæfilegr- ar, sanngjamrar þóknunar fyrir milligönguna. ✓ Loks §allaði Bragi um þá laun- ung, sem verið hefði á viðskiptunum gagnvart Kaffíbrennslunni og sagði, að ástæða hennar hefði verið sú, að forráðamenn Sambandsins og aðrir starfsmenn hafí vitað, að um sviksamlegt athæfí var að ræða. Hann vitnaði í framburð Þrastar Sigurðssonar, framkvæmdastjóra Kaffíbrennslunnar, en þar kom fram, að Þröstur vissi ekkert um tilvist tveggja reikninga fyrir hveija sendingu. Hann hefði ekki vitað betur en allar bætur vegna kaup- anna hefðu rannið til Kaffibrennsl- unnar, eftir að SÍS hafði tilkynnt að greiðslur skyldu renna þangað. Bragi benti á að Valur Amþóreson hefði ekki vitað um afsláttargreiðsl- umar fyrr en hann sá skýrslu end- urekoðandans. Þá hafí Sigurður Gils sagt að það væri ljóst að verið var að plata Kaffíbrennsluna og það hefði lengi tfðkast og Geir Geirason hafí ekki vitað um tilvist tvöfaldra reikninga fyrr en hann fór til Lon- don til að endurekoða gögn skrif- stofunnar þar. Geir Magnússon hefði heldur ekkert um þetta vitað fyrr en hann fékk yfírlit um tekjur Lundúnaskrifetofunnar. „Þetta sýnir hvílík leynd var viðhöfð," sagði vararíkissaksóknari og bætti við að ljóst væri að ákærðu í málinu hafí vitað að viðskiptin væra svik- samleg. Bragi Steinarsson lauk ekki sóknarræðu sinni í gær og heldur áfram f dag þar sem frá var horfið. Að ræðu hans lokinni taka veijend- ur til við að flytja ræður sínar. fcí
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.