Morgunblaðið - 27.08.1988, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 27.08.1988, Blaðsíða 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 27. ÁGÚST 1988 Landslagið er Ragna Hermannsdóttir opnar málverkasýningu í Austursal Kjarvalsstaóa í dag, laugardaginn 27. ájfúst. A sýningunni eru 54 olíumálverk, máluð á pappír, kar- ton og striga, auk einnar stórrar dúkristu. Verkin eru öll unnin á þessu ári en nú er rétt ár Iiðið siðan Ragna sýndi grafíkmyndir í Nýlistasafninu við Vatnsstig. Ragna Hermannsdóttir stundaði nám við Myndlista- og handí- ðaskólann 1980-1982, fór síðan tii eins árs námsdvalar til Bandaríkjanna, kom svo aftur heim og settist á skólabekk f MHI á nýjan Ieik, en stundaði síðan framhaldsnám við Ríkisakademíuna í Amsterdam í Hollandi 1984-1987. Síðastliðið ár hefur Ragna starfað hér heima og afraksturinn gefur að líta í Austursal Kjarvalsstaða næstu tvær vikumar. Eftir að hafa rennt augum yfir myndimar á sýningu Rögnu spyr ég hana hvort hún hafi snúið sér að landslagsmálun eftir heimkomuna frá Hollandi. Hún jánk- ar því. „Þetta er allt meira og minna málað undir áhrifum frá landslagi en ég gerðí mér ekki grein fyrir því að ég væri að mála landslag fyrr en myndimar vora tilbúnar. Það er ekki hægt að komast hjá slikum áhrifúm hér heíma á íslandi — lands- lagið er svo sterkt.“ Aðspurð um ákveðnar fyrirmyndir úr íslenskri náttúra hristir hún höfuðið. „Nei, ég Uet ímyndunaraflið ráða ferðinnL Það má líka segja að þetta séu alls konar tilraunir með liti og litasam- setningar. Ég hef Iíka hugsað og undirbúið myndimar á þessa sýn- ingu sem eina heild — málað í salinn eins og sagt er,“ segir Ragna. Ragna býður þó gestum sýningar- innar að skoða fleira en litagieðina svo sterkt Segir Ragna Hermannsdóttir myndlistarkona Morgunblaðið/ÍCGA Ragna Hermannsdóttir myndlist- armaður. í landslagi ímyndunaraflsins því á sýningunni bregður fyrir figúra- tívum myndum — stemmningum væri kannski rétt að segja. „Þetta era rómantískar myndir, vetramæt- ur í snjó og tunglskini," segir Ragna um tvær myndraðir sem blaðamanni verður starsýnt á. Nokkrar mynd- anna snúast um hringi og í sumum þeirra bregður fyrir einkennilegum skepnum. „Nei, ég veit ekki hvaða skepnur þetta era,“ segir Ragna „Mér sýnast þetta vera fuglar eða hestar. Ég hef mjög gaman af því þegar aðrir horfa á myndimar minar og sjá eitthvað allt annað en ég sé sfálf.“ Ragna hefur orð á því að þessar myndir séu mjög ólíkar þeim sem hún sýndi í Nýlistasafiiinu fyrir- ári.„Ég held að þetta sé umhverfis- breytmgin. Maður málar öðruvisi á íslandi en í Hollandi.“ Ferill Rögnu Hermannsdóttur myndlistarmanns er ólíkur þvi sem margur á að venj- ast. Ragna venti kvæði sínu í kross á þeim punkti í lífi sfnu þegar aðrir hafa fellt allt í fastar skorður. Hún tók sig til eftir áralangt starf sem Ijósmyndari og settist á skólabekk í myndlistinni — fullorðin konan — og hefur hvergi slegið slöku við síðan. Hún hefur tekið þátt í fimm samsýningum hér heima og erlendis og sýningin núna á Kjarvalsstöðum er sjöunda einkasýningin síðan 1985. „Ég fékk þessa myndlistar- dellu uppúr ljósmynduninni og sé ekki eftir þvf. Ég hef getað sinnt myndlistinni óskipt síðan en það er alltaf óvissa um framhaldið. Ég veit ekki hvað verður. Mér finnst mjög gott að vera komin heim og vinna hér aftur,“ segir Ragna. Aðspurð hvort þessi miklu lunskipti f Ifflnu hafi verið ómaksins virði segir Ragna af sánnfæringu: „Já, svo sannarlega." H. Sig. 4 Amaldur Arnarson gitarleikari. Amaldur Arnarson gítarleikari er einn þeirratón- Iistarmanna íslenskra sem lagt hafa Iand undir fót og stundað f ramhaldsnám erlendis. Slíkt er tæpast í frásögur færandi þar sem enginn telst fullnuma tónlistarmaður án framhaldsnáms á há- skólastigi í viðurkenndum konservatoríum eða akademium úti í heimi. En Amaldur hefur bætt um betur og fyrir fjórum árum sló hann sér niður í borginni Barcelona á Spáni og tekur þar þátt í rekstri Luthier- tónlistarskólans ásamt sambýliskonu sinni, Aliciu Alcalay, en hún er stofnandi og stjórnandi skólans. Amaldur og Alicia hafa dvalið hér á landi I sumar ogþvi var kjörið tækifæri að forvitnast um skólann þeirra, tónlistarkennslu á Spáni og gera jafnvei einhvem samanburð á tónlistaraámi á íslandi ogá Spáni. Eg spurði Amald fyrst hvemig þetta hefði allt borið við, skólarekst- ur og kennsla í Barcelona. „Ég lank mínu gítamámi frá Royal Northem College of Music í Manchester á Englandi vorið 1982. Veturinn á eftir var ég hér heima og starfaði við gítarkennsiu. Veturinn 1983- 1984 fór ég til Alicante á Spáni og sótti þar einkatíma hjá gítarleikar- anum José Tomás. Sfðan 1984 hef ég starfað í Barcelona. Aðdragand- inn að ferð minni þangað var dálít- ið tilviljanakenndur, ég fór með kennára mínum þangað en hann hafði verið fenginn að Luthier- tónlistarskólanum til þess að halda stutt námskeið. Ég fylgdi hornun eiginlega mestan part af forvitni, mig langaði til að skoða Barcelonu- borg og dvaldi þar í nokkra daga. Sfðan má segja að málin hafi þró- ast á þann veg sem þeim er nú háttað," segir Amaldur og brosir Arnalds, Shakespeare, Tunström, Tsjekov Hallmar Sigurðsson, leikhússtjóri LR segir frá verkefnum leikársins Á haustdögum hefst starfsár leik- húsanna á ný, eftir sumarfrí starfsfólks. Leikfélag Reykjavík- ur mnn hefja starfsemi sína hinn 1. september og af því tflefni kom biaðamaður að málí við Hallmar Signrðsson, leikhússtjóra og bað hann að segja frá verkefnum leik- ársins framnndan. „Fyrsta framsýning vetrarins verður á nýju verld eftir Ragnar Arnalds sem hann nefiiir Sveitasin- fóniu. Þetta er kímin frásögn aí sveitalífí fyrir tveim til þrem áratug- um, með alvarlegum undirtón þó. Verkið er ekki sögulegt, en §allar um atburði og persónur sem við könnumst við úr raunveraleikanum, án þess að eiga sér beinar fyrirmynd- ir. Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs- son, leikmynd gerir Siguijón Jó- hannsson og tónlistin er eftir Atla Heimi Sveinason. Með viðamikil hlutverk fara Valdimar Öm Flygenr- ing, Edda Heiðrún Bachmann, Margrét Akadóttir og Gunnar Ey- jólfsson. Frumsýning verður um 20. september". „Um mánaðamótin september október verður svo uppfærsla Kjart- ans Ragnarssonar á Hamlet tekin

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.