Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 01.09.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B 198. tbl. 76. árg. FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988 Prentsmiðja Morgnnblaðsins Póiska stjórnin vill ræða um viðurkenningu á Samstöðu: ' Walesa hvetur til að verkföllum verði hætt Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, ræðir við fréttamenn að afloknum fundi þeirra Czeslaws Kiszczak, innanríkisráðherra Póllands. Eftir fundinn hélt Walesa rakleiðis til Gdansk og hvatti verkfallsmenn um land allt til að hætta aðgerðum sínum. Reuter Varsjá. Reuter. PÓLSK stjórnvöld hafa fallizt á að hefja viðræður við Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, um hugsanlega viðurkenningu hinna óháðu verka- lýðsfélaga, sem bönnuð voru í ársbyijun 1982. Walesa átti í gær þriggja klukkustunda fund með Czeslaw Kiszczak, innanríkisráðherra, og hélt að honum loknum rakleiðis til Lenín-skipasmíðastöðvarinnar í Gdansk þar sem hann hvatti verkfallsmenn víða um land til þess að hætta aðgerðum. Óljóst var hvort verkföllum hafði verið aflýst þegar Morgun- blaðið fór í prentun. „Stjómin hefur samþykkt að ræða um framtíð Samstöðu," sagði Andrzej Stelmachowski, fulltrúi ka- þólsku kirkjunnar, sem verið hefur milligöngumaður milli stjómvalda og Samstöðumanna, eftir viðræður Wa- lesa og Kiszczak. Fundur þeirra er fyrsti fundur Walesa með fulltrúa Sovétríkin: Viðurkenna að hafa ráð- ist á Kunduz Moskvu. Reuter. SOVÉTMENN viðurkenndu í gær að þeir hefðu sent flugvélar frá Sovétríkjunum til þess að veija afgönsku borgina Kunduz. Gennadíj Gerasímov, talsmaður utanríkisráðuneytisins í Moskvu, neitaði því liins vegar að með því hafi Sovétmenn brotið Genfarsam- komulagið um brottflutning sovézku innrásarheijanna frá Afg- anistan. Gerasímov sagði að flugvélarnar hefðu verið sendar til þess að verja sovézkar hersveitir og sovézka borgara, sem enn hefðu verið í Kunduz er afganskir skæruliðar tóku borgina 11. ágúst sl. pólsku stjómarinnar frá setningu herlaga í desember 1981. í kjölfar herlagasetningarinnar kom það í hlut Kiszczak að fyrirskipa að Walesa skyldi hnepptur í 11 mánaða stofu- fangelsi. Fund þeirra bar upp á þann dag, sem Samstaða var stofnuð átta ámm áður. Stelmachowski spáði því að sam- komulag Walesa og stjómvalda væri aðeins upphafið að öðru mikilvæg- ara. Búast mætti við tímafrekum samningum og að reyna mundi á þolinmæði samningamanna við mót- un starfshátta og skipulags Sam- stöðu. Hann sagði að nokkrir fundir Walesa og Kiszczak væm nauðsyn- legir áður en hringborðsumræður fulltrúa hinna ýmsu þjóðfélagshópa og samtaka um pólitískar og efna- hagslegar umbætur gætu hafist. „Stjómvöld em minnug atburðanna er leiddu til setningar herlaga. Þau þurfa að fá fullvissu fyrir því að at- burðir af því tagi endurtaki sig ekki,“ sagði Stelmaehowski. Woj- ciech Jarazelski, leiðtogi pólska kommúnistaflokksins, hefur ítrekað sagt að hann muni ekki leyfa aftur- hvarf til þess sem hann hefur kallað tímabil stjómleysis og ringulreiðar á þeim tíma sem starfsemi Samstöðu •var heimil á ámnum 1980-1981. Alexander Perczynski, aðstoðar- upplýsingaráðherra, sagði í viðtali við brezku sjónvarpsstöðina Channel Four í gærkvöldi að ef Samstaða hlyti viðurkenningu stjómvalda, sem Reuter Tvær þotur farast ÞRETTÁN manns að minnsta kosti biðu bana og 30 slösuðust er Boeing-727-þota bandaríska flugfélagsins Delta fórst i flugtaki frá flugvellinum í Dallas-Fort Worth í gær. Óttast var að talan ætti eftir að hækka. Þotan var á leið til Salt Lake City í Utah með 114 manns innanborðs. Það sem af er árinu hafa níu far- þegaþotur í áætlunarflugi farizt og með þeim um 300 manns. í gær fórst einnig Trident-þota kínverska ríkisflugfélagsins CAAC í lendingu í Hong Kong og með henni sjö menn, þar af sex manna áhöfn. Sjá ennfremur „Sjö manns fórust ...“ á bls. 28. hann vildi ekki útiloka, þá yrði það með öðmm hætti en 1980. Um miðjan ágúst var efnt til mestu verkfalla í Póllandi frá setningu her- laga og var aðalkrafa verkfalls- manna að stjórnvöld leyfðu starfsemi óháðu verkalýðsfélaganna að nýju og viðurkenndu Samstöðu. Bandaríkjastjóm fagnaði í gær- kvöldi viðræðum Walesa og stjóm- valda og sagði þær mikið framfara- spor. Minnisvarði um ofsóknir Stalínstímans reistur í Moskvu: Solzhenítsyn skipað- ur í byggingamefnd Moskvu, New York. Reuter. ALEXANDER Solzhenítsyn, hinn útlægi sovézki rithöfundur, hefur verið skipaður í nefnd til þess að hafa eftirlit með bygg- ingu minnisvarða um milljónir Sovétmanna sem urðu fyrir barðinu á ofsóknum í stjórnartíð Jósefs Stalíns. ‘Ásamt Solzhenítsyn hafa verið skipaðir í nefndina þeir Andrei Sakharov, einn kunnasti andófs- maður Sovétríkjanna, Roy Medvedev, sagnfræðingur, sem var bannfærður á Stalínstímanum, og Boris Jeltín, sem settur var af sem formaður Moskvu-deildar sovézka kommúnistaflokksins í vetur. Það em samtök að nafni Minnis- varðinn, sem ætla að stuðla að byggingu minnisvarðans, sem reistur verður í Moskvu. Að baki samtakanna standa hin vinsælu vikurit Ogonjok og Literatumaja Gazeta. Samtökunum er ætlað að rannsaka ofsóknir Stalíns. Útgefandi Solzhenítsyns í Bandaríkjunum, sagði að rithöf- undurinn hefði haft pata af því að hann hefði verið skipaður í nefnd- I ina en ekki fengið tilkynningu þar að lútandi. Talsmenn Minnisvarð- ans sögðu hins vegar að bréf, sem | þeir hefðu sent skáldinu, hefði ver- ið endursent ffá Bandaríkjunum með áletruninni „ónákvæmt heim- ilisfang". Þrír liðsmenn IRA skotnir á Irlandi Belfast. Reuter. ÍRSKI lýðveldisherinn (IRA) viðurkenndi í gær að mennirnir þrír, sem víkingasveitir brezka hersins skutu skammt frá landamærum írska lýðveldisins í fyrradag, hefðu verið hryðjuverkamenn. I yfirlýsingu IRA sagði að menn- irnir hefðu verið á leið „í aðgerð" þegar þeir féllu. Heimildir úr röðum lögreglunnar herma að mennirnir hafi ætlað að reyna að ráða her- mann af dögum. Sátu fjórir menn úr víkingasveit brezka hersins (SAS) fyrir þeim og hófu skotárás er mennimir vom í þann mund að láta til skarar skríða. Tveir hryðju- verkamannanna vom bræður. Hafa 11 liðsmenn IRA verið vegnir það sem af er árinu. Þá handtók vestur-þýzka landa- mæralögreglan tvo meinta hryðju- verkamenn IRA við hollenzku landamærin í gær. Skotvopn fund- ust í fómm þeirra. Ennfremur biðu maður og kona bana er þau fóm inn í yfirgefið hús í hverfi kaþólskra í Londonderry í gær. Talsmaður IRA sagði að sprengjan hafi verið ætluð brezkum hermönnum, sem hryðjuverkasam- tökin hefðu ætlað að tæla inn í húsið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.