Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 7
Húsavík
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988
7
Fjörutíu
þúsund fjár
slátrað
Húsavfk.
Sauðfjárslátrun hjá Kaupfé-
lagi Þingeyinga á Húsavík er
hafin og á henni að ljúka 7. októ-
ber.
Áætlað er að slátra tæplega
41.000 fjár sem er svipað og á sl.
ári en þá var slátrað nokkru af
riðufé sem ekki er á áætlun að
þurfi að gera núna. Útlit er fyrir
að dilkar reynist svipaðir að þyngd
og þeir voru í fyrra.
- Fréttaritari
Kosninga-
skýrslur
1874-1987
Hagstofan hefur nú gefið út í
einu lagi allar skýrslur sem gerð-
ar hafa verið um kosningar til
alþingis, sveitarstjórna og emb-
ættis forseta, svo og um þjóðarat-
kvæðagreiðslur, tímabilið
1874—1987. Kosningaskýrslurn-
ar eru 43 að tölu og alls 1.160
blaðsíður. Skýrslurnar eru ljós-
prentaðar og gefnar út í tveimur
bindum í venjulegu bókbandi.
í fréttatilkynningu frá Hagstofu
íslands segir:
„Almennar alþingiskosningar
hafa verið haldnar 35 sinnum frá
því Alþingi fékk löggjafarvald
1874. Á þeim hartnær 43 árum,
sem liðu frá stofnun lýðveldisins til
síðustu alþingiskosninga, hefur ver-
ið kosið 14 sinnum til Alþingis.
Fyrstu alþingiskosningarnar eftir
stofnun lýðveldisins fóru fram á
árinu 1946 og frá því hafa að með-
altali liðið 3 ár og U/2 mánuður
milli alþingiskosninga.
Þijár skýrslur hafa komið út um
forsetakosningar og tvær um þjóð-
aratkvæðagreiðslur. Skýrslur um
þijár aðrar þjóðaratkvæðagreiðslur
fylgdu skýrslum um alþingiskosn-
ingar sem fóru fram á sama tíma,
en gerð var grein fyrir kosningu
landskjörinna þingmanna 1916—
1930 og aukakosningum í skýrslu
um næstu almennar alþingiskosn-
ingar. Upplýsingar um þessar kosn-
ingar eru með sama hætti og í al-
þingiskosningaskýrslum, eftir því
sem við á.
Fyrstu skýrslur, sem Hagstofan
birti um sveitarstjómarkosningar,
voru um bæjarstjómarkosningamar
1930 og 1934, en síðan hefur hún
tekið saman skýrslur um hveijar
kosningar, en þær hafa verið reglu-
lega á fjögurra ára fresti. Ná skýrsl-
ur um sveitarstjómarkosningar því
til 15 kosninga, en ekki til landsins
alls í nokkur skipti. Fyrsta skýrslan
nær aðeins til kaupstaðanna, en
skýrslur um sveitarstjómarkosn-
ingar 1942 og 1946 ná til kaup-
staða og kauptúnahreppa.“
Fjölbýlis
HÚS-
FRIÐUR
Lausn fyrir húsfélög
Það getur verið óþægilegt og erilsamt að rukka - sérstaklega
nágranna sína.
Nú býðst gjaldkerum húsfélaga, að leggja annasama og oft erfiða innheimtu
á herðar Verzlunarbankans. Bankinn sér einnig um greiðslu reikninga og
bókhald. Þetta er tölvuþjónusta, sem auðveldar rekstur og tryggir öruggari
fjárreiður húsfélaga.
Verzlunarbankinn getur þannig stuðlað að góðu andrúmslofti og húsfriði
í fjölbýli.
HELSTU ÞJÓNUSTUÞÆTTIR ERU ÞESSIR:
1.
2.
3.
Bankinn annast mánaðarlega tölvuútskrift gíróseðils á hvem
greiðanda húsgjalds. Á gíróseðlinum em þau gjöld sundurliðuð sem
greiða þarf til húsfélagsins.
Þau gjöld sem húsfélagið þarf að greiða, færir bankinn af viðskipta-
reikningi og sendir til viðkomandi á umsömdum tíma.
Bankinn útvegar yfirlit sem sýnir stöðu hvers húsráðanda gagnvart
húsfélaginu, hvenær sem þess er óskað. Auk þess liggur fyrir í lok
hvers mánaðar yfirlit sem sýnir sundurliðaðar hreyfmgar, er mynda
grunn rekstrarbókhalds og í árslok heildarhreyfmgar ársins.
Ekið á mann á
mótorhjóli
UNGUR maður slasaðist nokkuð
þegar mótorhjól hans skall á bif-
reið á Suðurgötu í Hafnarfirði í
gærmorgun.
Slysið varð á mótum Suðurgötu
og Selvogsgötu. Maðurinn ók hjóli
sínu norður Suðurgötu. Fólksbifreið
var ekið í gagnstæða átt, sveigt til
vinstri inn á Selvogsgötu og þar
með í veg fyrir mótorhjólið, sem
skall á bifreiðinni. Maðurinn kast-
aðist af hjólinu og slasaðist nokk-
uð, hlaut meðal annars beinbrot.
Bifreiðin og hjólið eru mikið
skemmd.
4
5.
Tölvan gemr breytt upphæð húsgjalda í samræmi við vísitölu og
reiknað dráttarvexti, sé þess óskað.
Gíróseðlana má greiða í öllum bönkum, sparisjóðum og pósthúsum.
VERZLUNARBANKINN
-(MAiHWl rtteðfa&l!
wmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmm
HÚSI VliRSUINARlNNAR
KRINCil.UNNI 7
ÞVERHOL'l'I 6, MOSFELLSBÆ
VATNSNESVEGl 14, KEFLAVÍK
l’ARAHAKKA 3 BANKASTRÆTl S
l ] M FE RÐARMIDSIOÐ1N NI LAUC'.AVEGl 172
VATNSMÝRARVEGI 10 GRENSÁSVEGI 13