Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 14.09.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVTKUDAGUR 14. SEPTEMBER 1988 Breytingartillögnr Alþýðuflokksins Ráðherrar Alþýðuflokksins lögðu fram á ríkisstjórnarfundi í gærmorgfun „Tillögur ráðherra AJþýðuflokksins um breytingar á drögum forsætisráðherra að yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir í efnahagsmálum, dags. 12. september 1988. Helstu breytingar eru auðkenndar með undirstrikun," segir í inngangin- um og hér á eftir eru þau atriði feitletruð. Ríkisstjómin hefur í framhaldi af frestun á hækkun launa og bú- vöruverðs ákveðið aðgerðir í efna- hagsmálum sem hafa að markmiði að færa niður verðbólgu og vexti, bæta afkomu útflutnings- greina, einkum frystiiðnaðarins, og treysta atvinnuöryggi í landinu. Jafnframt stuðla þær að lækkun fjármagnskostnaðar heimilanna og treysta fjárhags- grundvöll þeirra. Gefin hafa verið út bráðabirgðalög um efnhagsað- gerðir sem taka þegar gildi. Að- gerðimar em þessar. Verðstöðvun Rikisstjórnin hefur ákveðið með heimild i 7. gr. laga nr. 56/1978 um verðlag, samkeppn- ishömlur og óréttmæta viðskipta- hætti og að fengnu áliti Verð- lagsráðs að framlengja verð- stöðvun sem í gildi er frá 27. ágúst 1988 til 29. febrúar 1989 með þeirri breytingu að heimilt verður að hækka verð vöru og þjonustu sem nemur hækkun á erlendu innkaupsverði eða hækkun á verði á innlendum grænmetis- og fiskmörkuðum. Jafnframt er því lýst yfir að ríkisstjórnin mun flytja frum- varp til laga á Alþingi til þess að framlengja verðstöðvun þessa til 10. april 1989. Gjaldskrár fyrirtækja á vegum ríkis eða sveitarfélaga verða óbreyttar til 10. apríl 1989 að öðru leyti en því að heimilt verð- ur að taka tillit til hækkana á erlendu innkaupsverði aðfanga. Fjárhæðir launaliða í gjaldskrám sjálfstætt starfandi sérfræðinga em frystar til 10. apríl 1989. Sama gildir um hvers kyns útselda vinnu og þjónustu. Oheimilt er að hækka húsa- leigu á tímabilinu 1. september 1988 til 10. apríl 1989. FiskverA á uppboðsmörkuðum 13. september. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnaríirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 41,00 39,00 39,90 25,610 1.021.768 Undirmál 20,00 20,00 20,00 0,447 8.946 Ýsa 59,00 42,00 44,04 7,351 323.744 Ufsi 22,00 19,00 20,72 27,318 566.069 Karfi 35,0Ó 32,00 33,54 29,433 ■ 987.273 Steinbítur 25,00 25,00 25,00 1,468 36.694 Langa 31,00 31,00 31,00 2,149 66.616 Lúða 190,00 70,00 122,55 0,616 75.497 Skötuselur 120,00 120,00 120,00 0,058 6.990 Samtals 32,75 94,451 3.093.597 Selt var aðallega úr Otri HF. I dag verða m.a. seld 15 tonn af þorski úr Júlíusi Geirmundssyni (S, 7 tonn af þorski, 1,5 tonn af ýsu og fleira úr Stakkavík ÁR og 5 tonn af karfa úr ýmsum skipum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 43,00 39,00 42,41 14,245 604.159 Ýsa 74,00 21,00 64,02 14,023 897.807 Ufsi 20,50 20,00 20,31 11,408 231.741 Steinbítur 19,00 19,00 19,00 0,025 475 Hlýri 22,00 19,00 21,86 3,316 72.492 Langa 27,00 26,00 26,35 0,719 18.949 Lúða 155,00 105,00 128,98 0,666 85.900 Skarkoli 48,00 48,00 48,00 0,500 24.000 Skötuselur 130,00 130,00 130,00 0,367 47.710 Samtals 43,81 45,268 1.983.234 Selt var úr Gandí VE, Ásbirni RE og Jóni Vidalín ÁR. I dag verða m.a. seld 70 tonn af þorski, karfa og ýsu úr Jóni Baldvinssyni RE. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 39,50 39,50 39,50 2,224 87.872 Ýsa 43,00 43,00 43,00 1,080 46.440 Ufsi 21,00 19,50 20,32 27.852 565.941 Karfi 15,00 15,00 15,00 0,200 3.000 Steinbítur 12,00 12,00 12,00 0,049 588 Hlýri+steinb. 20,00 20,00 20,00 0,450 9.000 Langa 27,00 27,00 27,00 1,530 41.310 Blálanga 24,50 24,50 24,50 0,100 2.450 Skarkoli 49,00 49,00 49,00 0,770 37.730 Lúða 65,00 65,00 65,00 0,031 2.015 Samtals 23,23 34,287 796.364 Selt var aðallega úr Ólafi Jónssyni.GK og Aðalvík KE. ( dag verða m.a. seld 5 tonn af karfa og 8 tonn af ufsa úr Fönix KE og 15 tonn af þorski, 2 tonn af ýsu og fleiri tegundir úr Höfrungi II GK. Grœnmetlsverð á uppboðsmörkuðum 13. september. SÖLUFÉLAG GARÐYRKJUMANNA Gúrkur 124,35 5,500 683.920 Smágúrkur 129,82 0,085 11.035 Sveppir 450,00 0,192 86.400 Sveppir(2.fl.) 220,00 0,044 9.680 Tómatar 136,96 5,028 688.644 Bufftómatar 136,54 0,078 10.650 Sérrítómatar 302,78 0,009 2.725 Paprika(graen) 254,68 1,640 417.670 Paprika(rauð) 333,82 1,140 380.560 Paprika(blá) 221,00 0,005 1.105 Gulrætur(pk.) 112,95 2,000 225.900 Gulrætur(ópk.) 107,14 1,980 212.130 Gulr. m/káli 113,00 0,010 1.130 Steinselja 37,47 340 búnt 12.740 Spergilkál 145,63 0,355 51.700 Kínakál 82,25 4,740 389.880 Rauðkál 86,00 0,020 1.720 Toppkál 59,00 0,025 1.475 Hvítkál 59,00 4,040 238.360 Skrautkál 41,00 125 búnt 5.125 Grænkál 38,00 120 búnt 4.560 Blómkál 86,93 2,709 235.494 Blómkál(2.fl.) 53,11 0,133 7.063 Rófur 66,00 2,100 138.600 Jöklasalat 154,00 0,445 64.080 Blaðlaukur 157,74 0,190 29.970 Eggaldin 151,00 0,020 3.020 Chilipipar 403,00 0,006 2.418 Selleri 155,84 0,255 39.740 Dill 43,00 240 búnt 10.320 Salat 62,86 1.050stk 66.000 Samtals 4.033.814 Næsta uppboö hefst klukkan 16.30 næstkomandi þriðjudag. Frysting launa og búvöruverðs Samningsbundnar og Jögbundnar launahækkanir em frystar til 10. apríl 1980. Sama gildir um bú- vöruverð. Jafnframt er fellt úr gildi ákvæði um ársíjórðungslegar hækkanir til bænda í tengslum við breytingu á verðlagsgmndvelli bú- vöm. Frysting f iskverðs Almennt fiskverð sem ákveðið var í júníbyriun framlengist óbreytt til 10. apríl 1989. Verðjöfnun til fiskiðnaðarins Stjórn frystideildar Verðjöfn- unarsjóðs fiskiðnaðarins er heimilt að taka innlent eða erlent lán með ríkisábyrgð að fjárhæð 600 milljónir króna. Andvirði lánsins skal nota til greiðslu verðbóta vegna framleiðslu á freðfiski og hörpudiski á tímabil- inu 1. júní 1988 til 10. apríl 1989. Sjóðsstjórnin ákveður nánar hvernig að greiðslu verðbótanna verður staðið en skal taka sér- stakt tillit til afkomu frystiiðnað- arins. Stjórn Verðjöfnunarsjóðs fisk- iðnaðarins er heimilt að taka sérstakt tillit til afkomu rækju- vinnslu á þann hátt að viðmiðun- arverð við greiðslu verðbóta verði meðalmarkaðsverð undan- genginna tveggja ára og að verð- bætur svari að fullu til fráviks markaðsverðs frá viðmiðunar- verði. Skuldaskilasjóður útflutningsatvinnuvega Með samstarfi lánastofnana útflutningsatvinnuvega verði settur á stofn sérstakur skulda- skilasjóður sem hafi það verkefni að leysa fjárhagsleg vandamál útflutningsfyrirtækja þannig að þeim verði kleift að starfa á hin- um nýja rekstrargrundvelli. Þessi sjóður mun fá 1.000 millj- ónir króna til ráðstöfunar á næstu tveimur árum. Framlag ríkissjóðs til Atvinnuleysistrygg- ingasjóðs renni til skuldaskila- sjóðins næstu tvö ár, auk þess fái hann lánsfé með Verðjöfnun- arsjóð fiskiðnaðarins að bak- hjarli. Lækkun vaxta og fjármagnskostnaðar Akvörðun ríkisstjórnarinnar um verðstöðvun hefur þegar haft það í för með sér að mjög hefur dregið úr verðbólgu. Þessi mikla lækkun verðbólgu skapaði skil- yrði fyrir 10-12% lækkun nafn- vaxta í byijun þessa mánaðar og ætti að gefa færi á öðrum álíka stórum áfanga til lækkunar vaxta í þessum eða næsta mánuði og á frekari lækkun síðar. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að fjármálaráðherra beiti sér fyrir lækkun vaxta á spariskírteinum ríkissjóðs um 3% í samningum við lánastofnanir og lífeyrissjóði og hefur falið Seðlabankanum að fylgja þeirri breytingu eftir á öðrum sviðum lánamarkaðarins og vinna að almennri lækkun raunvaxta. Ríkisstjórnin hefur falið Seðla- bankanum í samráði við viðskipta- ráðuneytið að halda áfram viðræð- um við lánastofnanir um lækkun vaxta. Leiði þessar viðræður hins vegar ekki til samkomulags um vaxtaþróun samþykkir ríkisstjómin beina íhlutun Seðlabankans um vaxtaákvarðanir innlánsstofnana skv. 9. gr. Seðlabankalaga nr. 36/1986 til þess að viðunandi niður- staða náist. Breyttur útreikningur dráttarvaxta Dráttarvextir skulu framvegis reiknast sem dagvextir en hingað til hefur verið heimilt að reikna fulla mánaðarvexti fyrir brot úr mánuði. Jafnframt skal Seðlabank- inn reikna dráttarvexti eigi sjaldnar en mánaðarlega. Vaxtamunur afurðalána Stjórn Seðlabankans er heimilt að ákveða sérstaklega vaxtamun innlánsstofnana við ákvörðun vaxta á afurðalánum til útflutn- ingsatvinnuvega. Fjármagnsmarkaður Sett verði lög um starfsemi á fjármagnsmarkaði utan banka- kerfis á grundvelli frumvarpa viðskiptaráðherra. Skylt verði að skrá skuldabréf og eigendaskipti á þeim á nafn. Bankar og önnur fjármálafyrirtæki. verði upplýs- ingaskyld gagnvart skattyfir- völdum. Eiginfjárstaða fyrirtækja Ríkisstjómin mun undirbúa að- gerðir til að treysta eiginfjárstöðu atvinnufyrirtækja. Með þessum að- gerðum verður dregið úr lántöku- * þörf atvinnurekstrarins og undir hann skotið styrkari stoðum. Aðhald í ríkisfjármálum og lánsfjármálum í ljósi þeirrar þenslu sem enn ríkir í efnahagsmálum og þar sem horfur eru á því að þjóðar- tekjur verði í besta falli svipaðar á næsta ári og í ár er nauðsyn- legt að halda aftur af þjóðarút- gjöldum á næstu misserum. Mik- ilvægast í því skyni er að fjárlög fyrir árið 1989 verði afgreidd með tekjuafgangi. Til að sú nið- urstaða náist er nauðsynlegt að lækka útgjöld einstakra ráðu- neyta að raungildi og ríkissjóðs í heild, meðal annars með því að fresta framkvæmd nýrra laga, með skipulagsbreytingum og hagræðingu í rekstri og með sölu ríkisfyrirtækja. Það sem þá vant- ar upp á til að tekjuafgangur náist verður að jafna með auk- inni tekjuöflun fyrir ríkissjóð og má í því sambandi nefna skatt- lagningu fjármagnstekna. Auk þess sem brýnt er að fjárlög verði samþykkt með tekjuafgangi er f nauðsynlegt að lánsfjárlög fyrir næsta ár byggist á ströngu að- haldi að erlendum lántökum: Skattur á erlendar lántökur verði framlengdur. Lög og regl- ur um erlendar lántökur verði endurskoðuð. Ríkissjóður hætti að bera ábyrgð á lántökum banka og fjárfestingarlánasjóða er- lendis. Flugleiðum boðnar F-50 vélar í innanlandsf lugið HOLLENSKU flugvélaverk- smiðjurnar Fokker hafa boðið Flugleiðum að kaupa vélar af gerðinni Fokker 50 í stað hinna fimm Fokker F27 Friendship, sem félagið notar nú í innan- landsflugi. Fokker 50 er að mörgu leyti svipuð Fokker F27, en tækjabúnaður vélarinnar er fullkomnari og farþegasæti fleiri. Flugvélar af gerðinni Fokker F27 Friendship hafa verið notaðar í inn- anlandsflugi hér á landi frá 1965 og eiga Flugleiðir nú fimm slíkar vélar. Forráðamenn félagsins kanna nú möguleika á endumýjun innan- landsflugflotans og koma Fokker 50 vélamar til greina í þvi sam- bandi, ásamt hinum fransk-ítölsku ATR 42 vélum og DASH-vélunum kanadísku. Morgunblaðið/PPJ Fokkerverksmiðjurnar og Flugleiðir kynntu Fokker 50 í gær með flugferð til Akureyrar. Margt er svipað með hinum nýju Fokker 50 vélum og F27 Friends- hip. Mesta breytingin er fólgin í fullkomnari siglingatækjum og nýj- um hreyflum. Nýju vélarnar eru hraðskreiðari en um leið spameytn- ari. Hámarkshraði Fokker 50 er 280 hnútar og hámarksflughæð 25 þús- und fet. Fokker 50 getur tekið 54 farþega í sæti, en þær Friendship-vélar sem Flugleiðir eiga, taka einungis 44. Gluggar eru helmingi fleiri á nýju vélunum, 21 á hvorri hlið. Farang- ursrými hefur verið aukið og geymslur fyrir handfarangur stækkaðar. Að auki er hægt að taka burt nokkrar sætaraðir og auka þannig rými til vöruflutninga. Fokker 50 er einnig hljóðlátari en eldri vélamar. Fokker 50 kom á markaðinn í ágúst 1987. 27 vélar hafa þegar verið afhentar en 86 pantanir hafa borist verksmiðjunum. Verð vélar af þessari tegund er um það bil 11.000.000 bandaríkjadala, eða rúmur hálfur milljarður íslenskra ' króna. Ur stjórnklefa F-50.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.