Morgunblaðið - 27.09.1988, Blaðsíða 1
80 SIÐUR B
220. tbl. 76. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 27. SEPTEMBER 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Ólympíuieikarnir í Seoul:
Ben Johnson
sviptur gullinu
Seoul. Reuter.
BEN Johnsorij sem sigraði í 100
m hlaupi á Ólympíuleikunum í
Seoul um helgina og setti um
leið heimsmet, 9,79 sek., féll á
lyfjaprófi og var sviptur gull-
verðlaununum í gærkvöldi.
Staðfest var í gær í Seoul að
jákvæð niðurstaða hefði fengist úr
lyíjaprófí Johnsons. Hann hefur
neytt anabólísks stera — lyfsins
stanozolol. Framkvæmdanefnd al-
þjóða ólympíunefndarinnar til-
kynnti í gærkvöldi einróma ákvörð-
un sína að fara að ráðleggingum
lyfjanefndar og svipta Johnson
verðlaunum sínum. Bandaríkjamað-
urinn Carl Lewis hlýtur gullverð-
laun í greininni og heimsmet John-
sons sem hann setti í Seoul verður
þurrkað úr metabókum og hann
settur í ævilangt keppnisbann.
Viðbrögð íþróttamanna í Seoul i
gær voru á einn veg — í fyrstu
Reuter
Ben Johnson með gullverðlaunin.
voru þeir vantrúaðir á að fótur
væri fyrir fréttinni, en eftir að hún
var staðfest af talsmanni lyfja-
nefndar alþjóða ólympíunefndarinn-
ar urðu menn sárir og reiðir. Haft
var eftir einum þeirra, franska tug-
þrautarmanninum Christian Plaz-
iat: „Þetta staðfestir það sem ég
hef hugsað. Það er ekki mögulegt
að hlaupa 100 metrana á 9,79 sek-
úndum án þess að neyta þess sem
hann neytti . . . Þetta er sérstak-
lega slæmt vegna bama sem hafa
litið upp til hans. í skólabekk gjalda
allir þess ef einn svindlar. Það er
eins í íþróttunum," sagði Plaziat.
Haft er eftir Juan Antonio Samar-
anch, forseta alþjóða ólympíunefnd-
arinnar, að lyfjataka Johnsons sé
mikið áfall fyrir Ólympíuleikana og
ólympíuhreyfmguna.
Sjá nánar á bls. Bl.
Wwfc*
Hi
Reuter
A flótta íJerúsalem
í gær kom til blóðugustu átaka á Vesturbakkan- ber-hverfi í Austur-Jerúsalem. Þeir voru á með-
um og Gaza-svæðinu í marga mánuði. ísraelski al tveggja þúsunda manna, sem efndu tíl mót-
herinn felldi þijá Palestinumenn og særði 70. Á mælagöngu vegna dauða tvítugs manns fyrr um
myndinni sjást ungir Palestinumenn forða sér daginn.
undan tárgassprengjum hersins í Jebel Muka-
Jafiiræði með Bush og Dukakis í fyrra sjónvarpseinvíginu:
Báðum frambjóðendunum
fagnað sem sigurvegurum
Winston-Saiem, Norður-Karólínu. Reuter.
STUÐNINGSMENN beggja
frambjóðenda til forsetaembætt-
is í Bandaríkjunum, Michaels
Dukakis og Georges Bush, Iýstu
yfir sigri eftir fyrri sjónvarps-
kappræður þeirra á sunnudags-
kvöld. Þótt kjósendur og stjórn-
málaskýrendur gætu vart gert
upp á milli frambjóðendanna
héldu þeir vígreifir á vit stuðn-
ingsmanna sinna í gær. „Hve
mörg ykkar sáu einvígið í gær?“
Framkvæmdastjóri fískimáladeildar EB:
Vonbrigði að hafa ekki
veiðiheimildir við ísland
Brussel. Frá Kristófer Má Kristinssyni,
AF HÁLFU Evrópubandalagsins
eru uppi óskir um að fá aðgang
að fiskimiðunum umhverfis ís-
land í staðinn fyrir markaðs-
ívilnanir fyrir íslenskar afurðir
innan bandalagsins. Hefur verið
staðið á móti þessum óskum af
íslands hálfu. Var ætlunin að
ræða þessi mál í Brussel í síðustu
viku en það fórst fyrir, þar sem
sjávarútvegsráðherra hætti við
Brussel-ferð vegna stjórnar-
kreppunnar.
Framkvæmdastjóri fiskimála-
deildar Evrópubandalagsins telur
að ísland og bandalagið hafi aðeins
samið um hluta samskipta sinna.
Bandalagið hafí ekki enn fengið
neinar ívilnanir til veiða við fsland,
þrátt fyrir aðgang íslendinga að
mörkuðum bandalagsins. „Viðræð-
ur um þetta hafa ekki einu sinni
fréttaritara Morfjunblaðsins.
hafíst. Þetta veldur okkur óneitan-
lega vonbrigðum," sagði fram-
kvæmdastjórinn í samtali við
fréttaritara Morgunblaðsins.
Ráðgert var að Halldór Ásgríms-
son, sjávarútvegsráðherra, færi til
viðræðna í höfuðstöðvum Evrópu-
bandalagsins í Brussel í síðustu
viku. Vegna stjómarkreppunnar
var þeirri heimsókn aflýst. Meðal
þeirra sem ráðherrann átti að hitta
var Antonio José Baptista Cardoso
e Cuhna, sem á sæti í fram-
kvæmdastjóm EB og fer þar með
sjávarútvegsmál.
f samtaii við fréttaritara Morg-
unblaðsins sagði framkvæmda-
stjórinn, að það væri ekki stefna
EB að stofna framtíð sjávarútvegs
í aðildarlöndunum í hættu, atvinnu-
greinin væri þannig að það væri
ekki auðvelt að segja þeim sem
stunda hana að snúa sér að öðm.
Og framkvæmdastjórinn bætti við:
„Auðvitað gerir þetta það einnig
að verkum að við skiljum betur
afstöðu íslendinga og íslenskra sjó-
manna m.a. til þess að opna físki-
miðin kringum íandið fyrir öðmm.
Ég vil leggja á það áherslu við
íslenska sjómenn að við munum
alltaf hafa skilning á þörf þeirra
fyrir að vemda atvinnu sína og
afkomu og sömuleiðis að Evrópu-
bandalagið vill alls ekki sýna þeim
yfirgang. Við trúum á samstarf
sem byggist á gagnkvæmum hags-
munum og teljum að tilefni til þess
verði sífellt fleiri í framtíðinni, ein-
angmn getur aldrei orðið lausn.
Við emm tilbúnir til viðræðna við
íslendinga um samskipti á sviði
fiskveiða á breiðum gmndvelli með
fyllstu virðingu fyrir hagsmunum
þeirra."
spurði Dukakis æpandi mann-
fjöldann á kosningafundi í Cleve-
Iand, „og hve mörgum ykkar
fannst ég betri?" bætti hann við.
Bush var ekki síður fagnað þegar
hann spurði stuðningsmenn sina
á fundi í Jacksonborg í Tenn-
essee: „Og hvernig tókst mér svo
upp?“.
Fyrirfram var búist við því að
kappræðumar gætu jafnvel ráðið
úrslitum um niðurstöðu forseta-
kosninganna hinn 8. nóvember
næstkomandi. Að undanfömu hefur
Bush haft nokkurt forskot á mót-
frambjóðanda sinn. Samkvæmt
skoðanakönnunum hafði þriðjungur
kjósenda ekki enn gert upp hug
sinn. Nú em menn hins vegar á því
að síðari kappræðumar, sem fram
fara um miðjan októbermánuð, vegi
þyngra á metunum því jafnræði
hafi verið með frambjóðendunum á
sunnudagskvöld.
Gallup-skoðanakönnun sem gerð
var fyrir tímaritið Newsweek sýndi
að áhorfendum hefði þótt jafnræði
vera með frambjóðendunum,
42%-41% Dukakis í vil. 47% kjós-
enda sögðu að Dukakis hefði verið
ömggari í framgöngu en 36% vom
á öndverðri skoðun. Hins vegar
sögðu fimmtíu af hundraði að-
spurðra að skoðanir Bush væm
svipaðar þeirra eigin en einungis
44% gátu sagt hið sama um stefnu
Dukakis.
Miklu þykir skipta hvemig fram-
bjóðendumir komu fyrir í kappræð-
unum. „Dukakis á til að vera of
þurr. Ég held honum hafi ekki tek-
ist að yfirstíga það á sunnudaginn.
Hann hefði þurft að leggja meira
af sjálfum sér í kappræðumar,"
sagði Robert Beckel, kosningafræð-
ingur á vegum demókrata. Lee At-
water, kosningastjóri Bush, sagði
Dukakis hafa sannað rétt einu sinni
að hann væri „tvístígandi í hveiju
málinu á fætur öðm“. Hlutlausir
stjómmálafræðingar sögðu Dukak-
is hafa verið betur undirbúinn og
hvassari í málflutningi sínum.
Ronald Reagan Bandaríkjafor-
seti hringdi í Bush að einvíginu
loknu og óskaði honum til hamingju
með orðunum: „Þér tókst vel upp“.
Þegar forsetinn var spurður hvemig
honum hefði Iitist á Dukakis, svar-
aði hann: „Ég er nú ekki agndofa.“
Sjá fréttir á bls. 28.
Pólland;
Nýr forsæt-
isráðherra
Varsjá. Reuter.
MIÐSTJÓRN pólska kommún-
istaflokksins tilnefiidi í gær eft-
irmann Zbigniews Messners for-
sætisráðherra. Fyrir valinu varð
Mieczyslaw Rakowski, sérfræð-
ingur miðstj ómarinnar í áróð-
ursmálum.
Rakowski, sem er 61 árs og á
sæti í Stjómmálaráðinu, tekur við
af Messner sem var leystur frá
embætti 19. september. Var honum
gefið að sök að hafa klúðrað efna-
hagsumbótum og mistekist að koma
í veg fyrir verkföll í ágúst til stuðn-
ings Samstöðu, hinum ólöglegu
verkalýðssamtökum.