Morgunblaðið - 24.01.1989, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 24.01.1989, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. JANÚAR 1989 Guðsþjónusta „á grænu ljósi“ SÓKNARPRESTAR Akureyrar- kirkju auglýstu guðsþjónustu sina í útvarpinu á sunnudaginn, eins og venja er, en þó með nokkuð öðrum hætti: „Frá Akur- Hákarli stolið ÞORRINN er genginn í garð eins og flestir vita væntan- lega. Hákarl er meðal þess sem íbúar þessa lands snæða þá af miklum móð og ljóst er að ekki eru allir á því að greiða fyrir þessa vöru: 50 til 100 kílóum af hákarli var nefiiilega stolið úr hjöllum í eigu Utgerðarfélags Akur- eyringa norðan bæjarins um helgina. Rannsóknarlögreglan á Ak- ureyri hefur málið til rannsókn- ar, en enn hefur hvorki hákarl- inn né þjófurinn fundist. Lög- reglunni hefur enn ekki tekist að „renna á lyktina" eins og það var orðað. eyrarkirkju. Munið helgi hvíldardagsins. Guðsþjónustan klukkan tvö er þvi á grænu ljósi. Sóknarprestarnir." Ástæðan var fundur ráðher- ranna Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars í Alþýðuhúsinu á sama tíma. „Það eru skýlaus ákvæði um það í lögum að almennir fundir eru ekki leyfðir frá klukkan ellefu til þijú á sunnudögum. Við vitum að farið er allavega með þetta, en það er þó í lögum. Auglýsing okkar var höfð í gamansömum tón til að skapa mótvægi," sagði séra Þór- hallur Höskuldsson, annar sóknar- prestanna, í samtali við Morgvn- blaðið. „Það er oft athugunarleysi hjá mönnum að halda fundi eða aðrar samkomur um leið og messur, og svo mun hafa verið hjá fundarboð- endum nú. Tímasetningin mun hafa verið orsök mistaka í upphaf- lega fundarboðinu. Því létum við þessa áminningu nægja. En við höfum fengið jákvæð viðbrögð við auglýsingunni, hún hefur greini- lega náð eyrum fólks því við höfum fengið hringingar víða að vegna hennar." Þórhallur sagði mætingu í messuna á sunnudaginn hafa verið „þokkalega, miðað við veður og aðstæður". Ekki kennt í Síðuskóla: Kennaramir veður- tepptir í Reykjavík SÍÐUSKÓLI á Akureyri var einn þeirra skóla landsins þar sem kennsla fór ekki fram í gær. Það var þó ekki vegna slæmrar færð- ar eða veðurofsa á Akureyri, heldur vegna þess að flestir kennarar skólans voru veðurtepptir í Reykjavík! „Við fórum á fimmtudaginn suð- ur í kynningarferð, skólaheimsókn og í heimsókn í námsgagnastofnun. Við erum sex eða sjö hér í dag, af um það bil þijátíu kennurum," sagði Sigrún Ásbergsdóttir, einn kennara skólans, sem Morgunblaðið náði sambandi við á kennarastofu skól- ans í gær. Flestir kennaramir ætl- uðu að koma norður á sunnudag- inn, en þá var ekkert flogið, en nokkrir voru komnir á laugardag. Nokkrir krakkar komu í skólann í gærmorgun, en voru send heim aftur. Fáeinir aðrir komu eftir há- degi, en þeir fengu einnig frí. Terrence Lee Ermert - Minning Fæddur 24. janúar 1969 Dáinn 19. nóvember 1988 Okkur langar að minnast Terrý frænda okkar á tvítugsafmæli hans og þakka honum samfylgina. Hann var sonur elstu systur okk- ar, Ólínu K. Óladóttur, og manns hennar, Terrence Lee Ermert, flug- stjóra hjá Flying Tigers. Ólína er dóttir Kristínar Kristjánsdóttur frá Isafírði og Óla Péturs Kjartansson- ar, sem lést áður en hún fæddist. Hún ólst upp að mestu leyti hjá móðurforeldrum sínum á Isafirði, þeim Margréti J. Magnúsdóttur og Kristjáni Gíslasyni á Sólgötu 7. Terrý var fæddur og uppalinn í Kalifomíu, en sótti mikið til Islands og var afar hreykinn af íslenskum uppruna sínum. Þó samverustund- imar yrðu ekki eins margar og við hefðu óskað okkur, var hann alltaf hluti af okkar stóru §ölskyldu og hjörtu okkar slógu í takt í gleði og sorgum. I hugum okkar sem þekktum hann vel, var hann ekki bara stór vexti, heldur „stór“ í fyllstu merk- ingu þess orðs. Hann var með stórt hjarta, örlátur og sannur vinur vina sinna og alveg síðan hann var lítill drengur, og ekkert aumt mátti sjá, átti hann sér þann draum að engum þyrfti að líða illa. Þeim draumi fylgdi hann eftir með því að læra til læknis. Fann hann sig vel í nám- inu og reyndist góður nemandi. Við „University of Davis" hefur verið settur á stofn minningarsjóður um hann, sem styrkja á efnilega nemendur til læknisfræðináms. Þó svo heimsókrir Terrý frænda verði ekki fleiri á Sogaveginn til ömmu Stínu og afa Steina, þá trúum við að leiðir liggi saman síðar. Við biðj- um þess að nú sé hann í þeim kærleikshöndum sem hann trúði á. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fjölmenni var á fiindi Ólafs Ragnars og Jóns Baldvins í Alþýðuhúsinu á Akureyri á sunnudaginn. „Á rauðu ljósi** á Akureyri: Jón Baldvin útilokar ekki að ríkisstjórnin hlutist til um kjarasamninga JÓN Baldvin Hannibalsson utan- ríkisráðherra útilokar ekki að ríkisstjórnin setji lög á kjara- samninga ef „skynsamlegir samningar" nást ekki þegar þar að kemur. Þetta kom fram á fúndi hans og Ólafs Ragnars Grimssonar, Qármálaráðherra, í Alþýðuhúsinu á Akureyri á sunnudaginn. Jón Baldvin var spurður hvort ríkisstjómin ætlaði að banna samn- ingsrétt ef ekki næðust skynsam- legir samningar. Hann svaraði því til að ef hér yrði „upplausn og vit- leysa í kjaramálum, sem sprengja á upp launastig umffarn greiðslu- getu," og umfram það sem skyn- samleg markmið og reynsla hafi kennt okkur, þá myndi hann „ekki lýsa því yfir fyrirfram að ríkis- stjómin hlutist ekki til um kjara- samninga". Utanríkisráðherra tók dæmi frá Noregi, og sagði að verkalýðshreyf- ingin þar hefði náð samkomulagi um tiltölulega hóflegar kauphækk- anir, „en það lá fyrir að vissir hóp- ar með sterka samningsaðstöðu myndu sprengja þetta í loft upp. Við biðjum Guð að styrkja hans ástkæru foreldra, Ollý og Terrý, hans besta vin og systur, Margréti Jóhönnu, og hans hjartkæru ömmu, Lee. Megi sorgin bera ávöxt skiln- ings og þakklætis. Fyrir hönd ást- vina á íslandi kveð ég kæran vin. Laufey Verkalýðshreyfíngin norska gerði samkomulagið, en krafðist þess að samkomulagið yrði lögbundið og að ríkisstjómin framfylgdi því að þeir sem kæmu á eftir og ætluðu að taka meira í sinn hlut, hálauna- Ráðherra sagði, að ríkisforstjórar yrðu eins og forstjórar einkafyrir- tækja að fara frá ef þeir rækju fyrirtæki sín ekki nógu vel. „Það Einn fundargesta hvatti Ólaf Ragnar og Jón Baldvin til að spara í ríkisrekstrinum, og beindi því til þeirra að þeir ættu að sýna gott for- dæmi með því að byija á að lækka eigin laun — þó ekki væri nema um þúsundkall. „Það er rétt að fara þarf rækilega í gegnum ríkisreksturinn, og við erum byijaðir á því,“ sagði Ólafur Ragnar. Hann sagði ennfrem- ur að vel yrði fylgst með hvemig spamaðurinn gengi allt þetta ár: í hveijum mánuði verður leitað svara við því hvað hafí verið gert til að spara, í þeim stofnunum, sem undir ráðuneytin heyra, sagði hann. Báðir vilja fækJka hátæknisjúkrahúsum í sambandi við spamað hjá ríkinu voru þeir félagar sammála um að fækka ætti hátæknisjúkrahúsum í Reykjavík úr þremur í tvö, því „við höfum ekki efni á að vera með þijú,“ sagði Ólafur Ragnar, og Jón Baldvin bætti því við að ekki væri „nóg fram- boð af sjúkdómum til þess“ að reka mennimir í þjóðfélaginu, gætu það ekki. Það getur vel verið að til slíkra örþrifaráða þurfi að grípa, en auð- vitað vilja allir að þessum hlutum sé ráðið til lykta af skynsemi,“ sagði Jón Baldvin. þýðir ekki alltaf að koma til okkar og biðja um hækkun á afnotagjöld- um eða gjaldskrám," sagði fjár- málaráðherra. þijú slík hús. í fjármálaráðherratíð sinni var Jón Baldvin einmitt uppi með hugmyndir um að leggja Landa- kotsspítala niður sem slíkan og nýta húsnæðið sem hjúkrunarheimili fyrir aldraða. Þá sagði Ólafur Ragnar að ýmsir hópar í lækna- og sérfræðinga- stétt hefðu of mikil laun, 7-15 millj- ónir á ári. Hann sagði velferðarkerf- ið á íslandi ekki vera til þess að gera menn sem hafa farið í háskóla að milljónamæringum. Naga blýanta í Seðlabankanum Jón Baldvin skaut því inn í umræð- una, að ekki þyrfti alls staðar að spara í ríkisrekstrinum. Hann sagði að til dæmis störfuðu aðeins 40 manns í fjármálaráðuneytinu, og væri þá allt með talið, þ.á m. fjár- laga- og hagsýslustofnun. „Hinum megin við götuna, undir svörtuloft- um, er Seðlabankinn þar sem starfa 166 manns — þar af að minnsta kosti 150 við að naga blýanta,“ sagði ráðherrann. Ríkisfyrirtæki: Stjórnendur fari frá ef þeir standa sig ekki ÓLAFUR Ragnar sagði það sína skoðun að þeir stjórnendur ríkis- fyrirtækja og stofnana sem ekki stæðu sig í stykkinu yrðu að hætta, en til þess yrði að breyta lögum. Itarlegar tillögur um spamað í næstu viku ÓLAFUR Ragnar Grímsson, Qármálaráðherra, leggur fram ítarlegar tillögur í ríkisstjórninni i næstu viku um það hvernig á að spara skv. fjárlögum í öllum ráðuneytum og öllum stærstu ríkisstofhunum. Hann sagði þetta á fundinum á Akureyri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.