Morgunblaðið - 10.05.1989, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 10.05.1989, Blaðsíða 1
48 SIÐUR STOFNAÐ 1913 103. tbl. 77. árg. MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 1989________________________________Prentsmiðja Morgunblaðsins PLO sækir um inn- göngu í UNESCO Utanríkisráðherra Bandaríkjanna kemur til Moskvu: Óvissa um fundareftiið Helsinki. Washington. Reuter og Daily Telegraph. JAMES Baker, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kemur til Moskvu í dag til fundar við sovéska ráðamenn. Er hér um að ræða fyrsta eigin- lega vinnufundinn sem háttsettir fulltrúar ríkisstjórnar George Bush eiga með Sovétstjórninni. Baker verður tvo daga í Moskvu, í dag hitt- ir hann Edúard Shevardnadze, utanríkisráðherra Sovétríkjanna, og á morgun Míkhaíl Gorbatsjov, Sovétleiðtoga. Embættismönnum stórveld- anna ber ekki saman um hvað helst verði rætt í Moskvu, Bandaríkja- menn vilja einkum Qalla um svæðisbundnar deilur en Sovétmenn kre§- ast skýrari stefnumótunar hjá Bandaríkjasljórn í afvopnunarmálum. Samkvæmt heimildum breska dagblaðsins Daily Telegraph í Was- hington verður ekki rætt um hugs- anlegan leiðtogafund stórveldanna nema Sovétmenn bryddi sérstaklega upp á slíku enda hefur Bush marg- oft lýst því yfír að hann hafi ekki áhuga á leiðtogafundi til þess eins að kynnast Gorba,tsjov. I ræðu sem Baker hélt í síðustu viku sagðist hann fyrst og fremst vilja kanna hver hugur fylgdi máli hjá umbótasinnanum Gorbatsjov. Nú gæfist til dæmis tækifæri til að þrýsta á Sovétmenn um breytta af- stöðu í svæðisbundnum deilum eins og í Mið-Ameríku. Afstaða Sovétstjórnarinnar fyrir heimsókn Bakers einkennist af óánægju með að Bandaríkjastjórn hafi ekki ennþá mótað utanríkis- stefnu sína. Sovéska fréttastofan TASS sagði í gær að niðurskurður langdrægra kjarnorkuflauga hlyti að verða aðalumræðuefnið í heim- sókn Bakers. Baker hefur tilkynnt að hann muni leggja til að START-viðræð- urnar um fækkun langdrægra kjarn- orkuvopna hefjist á ný. Samkvæmt Daily Telegraph mun Baker leggja til að hafist verði handa í lok júní. Sjá „Undanskilja ber geim- vamir . . . á bls. 22 Reuter Ríkiseinokun mótmælt Reiðir Aþenubúar mölbrjóta hér sjónvarpstæki við gríska fjölmiðla- ráðuneytið til að mótmæla einokun ríkisins á sjónvarpi. Gríska ríkis- sjónvarpið sendir út á þremur rásum, en einkasjónvarp er bannað í landinu. Frelsissamtök Palestínumanna, PLO, sóttu í gær um aðild að Menn- ingarmálastofhun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, og hyggjast sækja um inngöngu í tvær aðrar stofnanir SÞ. Áður höfðu samtökin sótt um aðild að Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni, WHO, og verður gengið til atkvæðagreiðslu um umsóknina í dag. Jón B. Hannibals- son utanríkisráðherra hefiir sagt að ísland muni greiða atkvæði gegn aðild PLO að stofnuninni. Keuter Israelar sögðust í gær svartsýnir á að þeim tækist að koma í veg fyrir aðild PLO að WHO. Banda- ríkjamenn hafa hótað því að minnka framlög sín til stofnunarinnar fái PLO aðild að henni. Omar Massalha, áheyrnarfulltrúi PLO hjá UNESCO í París, sagði að arabaríki væru að kanna hvern- ig þau gætu brugðist við hótun Bandaríkjamanna. PLO hefði í hyggju að sækja um aðild að Mat- væla- og landbúnaðarstofnun Sam- einuðu þjóðanna í Róm og Alþjóða- vinnumálastofnuninni í Genf. Yasser Arafat, leiðtogi PLO, sendi einnig UNESCO formlega, beiðni um aðild. Talið er líklegt að ríki þriðja heimsins styðji aðild PLO að stofnuninni og því sé líklegt að af henni verði, að sögn Reuters- fréttastofunnar. Panamísk kona stendur hér andspænis hermönnum, sem röðuðu sér fyrir framan höfuðstöðvar kjör- sljórnarinnar í Panamaborg í gær. Konan var að mótmæla töfum á talningu atkvæða, sem greidd voru á sunnudag. Stjórnvöld í Panama sökuð um viðamikið kosningasvindl; Bush Banclaríkj aforseti íhugar að beita hemuni U/aahínrrtAn Pmitor Washington. Reuter. GEORGE Bush Bandaríkjafor- seti íhugar að beita hervaldi og öðrum ráðum, svo sem frekari efnahagslegum refsiaðgerðum, til að koma Manuel Antonio Nor- iega hershöfðingja frá völdum, að því er Marlin Fitzwater tals- maður Bandaríkjaforseta skýrði frá í gær. Samkvæmt fyrstu kosningatölum, sem yfírvöld birtu, unnu stuðningsmenn Nor- iega stórsigur og hafa sfjómar- andstaðan og alþjóðleg eftirlits- nefhd, sem fylgdist með kosning- unum, sakað stjórnvöld um stór- fellt kosningasvindl. Talsmenn samsteypu stjórnarandstæðinga lýstu því yfír í gærkvöldi að henni bæri að fara með völdin í landinu eftir kosningarnar. I „Bush íhugar ýmis ráð, svo sem að beita hervaldi og ýmsum efna- hagslegum aðgerðum," sagði Marl- in Fitzwater. Bandaríkjastjórn hef- ur reynt að koma Noriega frá völd- um síðan birtar voru ákærur á hendur honum í Flórída í fyrra, þar sem hann var sakaður um eitur- lyfjasmygl. Fitzwater neitaði að svara því hvort hugsanlegt væri að Bandaríkjamenn gerðu innrás í Panama. Hann sagði að Banda- ríkjastjórn tæki ákvörðun um hvernig bregðast skyldi við kosn- ingunum þegar lokatölur lægju fyr- ir. „Afstaða okkar er ennþá sú að Noriega verður að víkja,“ sagði tals- maðurinn og vildi ekki svara því hvort hershöfðinginn þyrfti að yfir- gefa Panamá eða aðeins að afsala sér völdum. Ríkisútvarpið í Panama skýrði frá því í gær að fyrstu tölur sýndu að stuðningsmenn Noriega hefðu unnið stórsigur. Daginn áður hafði Jimmy Carter fyrrum Bandaríkja- forseti, er var einn af formönnum alþjóðlegu nefndarinnar sem fýlgd- ist með kosningunum, lýst því yfir að stjórnvöld hefðu gerst sek um kosningasvindl. Bandarískir eftir- litsmenn segja að óháðar skoðana- kannanir, sem kaþólska kirkjan gerði fyrir utan kjörstaði á sunnu- dag, sýni að stjórnarandstaðan hafi unnið með 68 af hundraði atkvæða gegn 23 prósentum. Bush Banda- ríkjaforseti hvatti Noriega til að virða úrslit kosninganna. Bretland; Falla fr á einhliða afvopnun Lundúnum. Reuter. Framkvæmdastjórn breska Verkamannaflokksins sam- þykkti í gær tillögu um að falla frá þeirri stefnu flokks- ins að Bretar fækki kjarn- orkuvopnum sínum einhliða. Sautján stjómarmenn voru hlynntir tillögunni, en átta voru á móti. „Með þessari ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar mun flokkurinn aðeins beita sér fyrir kjamorkuafvopnun með viðræð- um við önnur ríki,“ sagði tals- maður flokksins í utanríkismál- um, Gerald Kaufman. Verka- mannaflokkurinn hefur undan- farin átta ár heitið því að útrýma einhliða kjamorkuvopnum Breta innan fímm ára frá því Verka- mannaflokkurinn kæmist til valda og talið hefur verið að sú stefna hafi átt mikinn þátt í ósigmm flokksins í síðustu tveimur þingkosningum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.