Morgunblaðið - 18.05.1989, Blaðsíða 32
32
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. MAI 1989
ATVINNUAÍ 'C :/ YSINGAR
Ólafsvík
Umboðsmann vantar til að annast dreifingu
og innheimtu fyrir Morgunblaðið.
Upplýsingar í síma 91-83033.
Barnagæla?
Umhyggjusöm, vel gefin stúlka á aldrinum
18-28 ára óskast sem heimilishjálp í út-
hverfi Washington D.C. í starfinu felst: Gæsla
á ungabarni, sem fæðist í okt. ’89, þrif, elda-
mennska, þvottur og innkaup. Ráðning til
2ja ára (sem má endurskoða). Innifalið: Sér-
herb. m/baði, matur, laun og bíll til umráða,
auk þess 2 farseðlar til íslands á ári. Laust
nú þegar. Umsækjandi má ekki reykja, vera
hraustur, áhugasamur og opinn fyrir um-
hverfinu. Gildandi ökuskírteini og grunn-
skólapróf æskilegt, stúdentspróf ekki fyrir-
staða. Sendið umsókn og nýlega mynd
ásamt meðmælum til:
Joseph and Rhonda Manduke,
14636 Mustang Path, Glenwood, MD 21045,
sími: 901-301-290-6969 (vinnusími).
Trésmiðir
Viljum ráða trésmiði til starfa á Reykjavíkur-
svæðinu.
Upplýsingar í símum 74502 og 73767.
Garðvinna
Get tekið að mér umhirðu garða við einbýlis-
hús. Vönduð og góð vinnubrögð. Meðmæli
ef óskað er.
Sími 41323.
Atvinna íboði
Okkur vantar eftirtalið starfsfólk:
Vanan flakara og afgreiðslumann.
Upplýsingar á staðnum ekki í síma.
Fiskbúðin Sæbjörg,
Eyjaslóð 7.
Tónlistarkennarar!
Kennara vantar við Tónlistarskóla Vest-
mannaeyja næsta vetur sem kennt getur á
píanó og kjarnagreinar. Einnig vantar stunda-
kennara á fiðlu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í srha 98-12551
og 98-12396.
Sölufólk
(Bóksala um allt land)
Því ekki að starfa sjálfstætt í sumar? Getum
bætt við sölufólki núna. Um er að ræða
bækur og ritverkfrá flestum helstu forlögum.
Upplýsingar: Þórhallur í síma 689133.
Söluskrifstofa Bjarna og Braga,
Bolholti 6.
Ræsting
Norræna húsið óskar að ráða starfskraft til
ræstinga sem fyrst.
Aðalvinnutími erfrá kl. 7 til 11 á morgnana.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Gunnar
Heiðdal, húsvörður, í síma 1 70 30 milli kl. 9
og 11.
Norræna húsið.
Innanhússarkitekt
óskast
Vegna sumarfría og mikilla anna vantar innan-
hússarkitekt til starfa, sem fyrst.
Um er að ræða sumarvinnu, jafnvel lengur.
FinnurP. Fróðason, FHI,EP Skúlagötu 61,
Reykjavík.
Sími 629565.
Orðabók Háskólans
Orðabók Háskólans óskar eftir að ráða
starfsmann í fullt starf hið fyrsta. Starfið
felst einkum í því að þýða úr ensku á íslensku.
Krafist er góðrar íslenskukunnáttu, BA-prófs
eða sambærilegrar menntunar.
Umsóknum skal skilað til Orðabókar Háskól-
ans, Árnagarði við Suðurgötu, fyrir 25. maí
nk., ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf.
Yfirmatreiðslumaður
Staða yfirmatreiðslumanns við Sjúkrahúsið
í Keflavík er laus til u’msóknar.
Um er að ræða 100% stöðu. Æskilegt er
að umsækjandi hafi þekkingu og reynslu af
sjúkrafæði.
Umsóknir skulu hafa borist undirrituðum fyr-
ir 25. maí nk. Allar nánari upplýsingar gefur
undirriíaður í síma 92-14000.
Framkvæmdastjóri.
Bókaverslun
Bóksala stúdenta óskar eftir starfsmanni
hálfan daginn sem fyrst. Starfið felst aðal-
lega í vélritun og innpökkun, auk almennrar
afgreiðslu eftir þörfum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf sendist Bóksölu stúdenta
v/Hringbraut fyrir 24. maí.
bók/a.l\ /túderxta,
Tónlistarskóli
Bessastaðahrepps
auglýsir eftir kennara á þverflautu og klarinett.
Nánari upplýsingar veitir skólastjóri í síma
54459.
Framkvæmdastjóri
Staða framkvæmdastjóra í meðalstóru fyrir-
tæki í Reykjavík er laus til umsóknar.
Starfið er laust nú þegar eða eftir nánara
samkomulagi.
Um er að ræða krefjandi stjórnunarstarf í
fyrirtæki, sem rekur heildsölu og dreifingu
matvæla og smásöluverslun.
Leitað er að starfsmanni, sem hefur hald-
góða viðskiptamenntun og reynslu í stjórnun.
Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun
og starfsreynslu, sendist Lögmönnum við
Austurvöll, pósthólf 476, 121 Reykjavík,
merktar: „Gasa“. Farið verður með allar
umsóknir sem trúnaðarmál.
R AÐ AUGL YSINGAR
HÚSNÆÐIÓSKAST
Verslunarhúsnæði
um 100 fm
Gott verslunarhúsnæði um 100 fm stærð
óskast miðsvæðis í Reykjavík fyrir mjög sér-
hæfða smásöluverslun. Góð bílastæði.
Upplýsingar á skrifstofunni.
Opið frá kl. 9-12 og 13-15.
SimSÞJÓMISM n/f
Brynjolfur Jonsson • Noatun 17 105 Rvik • simi 621315
• Alhliöa raóningaþjonusta
• Fyrirtækjasala
• Fjarmalaraögjof fyrir fyrirtæki
HÚSNÆÐI í BOÐI
Til leigu við Ármúla
salur sem er 241 fm á götuhæð, innréttaður
sem danssalur með öllu tilheyrandi. Allt í
mjög góðu ástandi. Langtímaleiga.
Upplýsingar gefur:
Fjárfesting, fasteignasala,
sími 624250.
BÁTAR-SKIP
Humar
Kaupum humar á komandi humarvertíð.
Greiðum kr. 980,- fyrir 1. flokk og kr. 420,-
fyrir 2. flokk.
Upplýsingar í síma 92-14666.
TIL SÖÍU
Kjarvalsmálverk
Til sölu vandað Kjarvalsmálverk 140x90.
Tilboð sendist til auglýsingadeildar Mbl. fyrir
20. maí merkt: „Kjarval - 2700".
Tiísöíu
flökunarvél, Baader 189 í mjög góðu ástandi.
Leiga kemur einnig til greina.
Upplýsingar í símum 11870 og 19520 virka
daga og á kvöldin í síma 76055.
Sportvöruverslun
Til sölu sportvöruverslun v/Laugaveg.
Ath.: Góður sölutími framundan.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl., merkt:
„Sumar - 9798“.
Sumarbústaðalönd
Til sölu sumarbústaðalönd (eignarlönd) í
landi Úteyjar I við Laugarvatn. Gott land á
fallegum útsýnisstað. Aðgangur að köldu vatni
og mögulega heitu. Mjög stutt í silungsveiði.
Upplýsingar í síma 98-61194. (Útey I).
Skóverslun til sölu
Þekkt og gamalgróin skóverslun í Reykjavík
með sérhannaðar innréttingar til sölu. Lager
hæfilega stór og nýlegur. Góð viðskiptasam-
bönd. Hugsanlegur kaupandi með trygg fast-
eignaveð gengur fyrir.
Upplýsingar í síma 30986 eftir kl. 19 á kvöldin.
FUNDIR ■ MANNFAGNAÐIR
Háteigssöfnuður
Aðalfundur safnaðarins verður haldinn í Há-
teigskirkju fimmtudaginn 18. maí kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Sóknarnefnd.