Morgunblaðið - 06.06.1989, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
125. tbl. 77. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 6. JUNI 1989
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Vélbyssum og skriðdrekum beitt gegn almenningi í Peking;
Þúsundir manna falla
í grimmilegnm átökum
Hætta talin á borgarastyrjöld - Tvö herfylki sögð andspænis hvort öðru
Almennir borgarar stóðu and-
spænis skriðdrekum og her-
mönnum með alvæpni á götum
Peking í gær. Þessi mynd er tek-
in við gatnamót í nágrenni sendi-
ráðahverfisins. Villidýr! Villidýr!
hrópaði fólkið þegar vígdrekarn-
ir fóru fram hjá. Hermennirnir
munduðu byssur sínar og skutu
á þá, sem voru í vegi þeirra.
Skipan herliðsins þótti bera þess
merki, að foringjar þess byggju
sig undir átök við aðra en vopn-
lausan almenning. Orðrómur var
á kreiki um að slegið hefði í
brýnu milli hersveita.
Peking, Washington, London, Hong Kong. Reuter. Daily Telegraph.
ÞÚSUNDHt manna hafa fallið í
Peking síðan herinn var sendur
gegn námsmönnum á Torgi hins
himneska friðar fyrir rúmum
tveimur sólarhringum. Sumar
heimildir segja að 7.000 manns
hafi týnt lífi og aðrar 10.000 en
BBC hafði eftir starfsmönnum
Rauða krossins í Peking í gær-
kvöldi að hinir látnu skiptu þús-
undum. Sjúkrahús og læknar anna
ekki að sinna slösuðum. Að morgni
þriðjudags í Peking (klukkan þar
er níu tímum á undan okkar) ótt-
uðust menn frekari blóðsúthell-
ingar og stjórnleysi í borginni og
víðar í Kína. Ræddu fréttamenn
um hættu á borgarastyijöld og
sumir Kinveijar sögðu að hún
væri þegar hafin. Fregnir bárust
um að tvö herfylki stæðu and-
spænis hvort öðru grá fyrir járn-
um í höfuðborginni. Sérfiæðingar
bentu á að mun meiri herafli hefði
verið sendur inn í borgina en
nauðsynlegur væri til að bijóta
andstöðu námsmanna á bak aftur.
Bandaríska sjónvarpsstöðin NBC
sagði orðróm á kreiki um að Deng
Xiaoping, leiðtogi kommúnista-
flokksins, lægi fyrir dauðanum.
Hrottaskapur hermannanna, er
réðust inn á Torg hins himneska frið-
ar aðfaranótt sunnudags í Peking,
var ógurlegur. Þeir óku skriðdrekum
yfir tjöld þúsunda sofandi stúdenta
sem mótmælt hafa yfirgangi komm-
únistastjómarihnar um margra vikna
skeið. Andófsmenn sýna ótrúlegt
hugrekki gegn ofureflinu; ungur
maður stóð í vegi fyrir skriðdreka
er nálgaðist og stökk upp á hann.
Síðan reyndi hann að telja áhöfnina
á að ganga í lið með lýðræðissinnum.
Félagar námsmannsins leiddu hann
síðan á braut.
Þrálátur orðrómur var í gærkvöldi
um hörð átök milli kínverskra her-
sveita í útjaðri Peking. Atvinnulíf er
í lamasessi í höfuðborginni og í mörg-
um öðrum borgum, þ. á m. Shang-
Reuter
hai, Xian og Nanking, eru verkföll
og samgöngur hindraðar af tug-
þúsundum borgara.
„Hermennimir skutu af byssum
sínum í götuna fyrir framan stúdent-
ana,“ sagði sjónarvottur um aðdrag-
anda blóðsúthellinga vestan við frið-
artorgið á sunnudag. „Fólk sem ekki
sá hvað var að gerast hóf að kasta
gijóti í hermennina og skyndilega
skutu þeir inn í stúdentahópinn."
Stúdentar við Pekingháskóla hafa
náð á sitt vald handvopnum og ein-
hveiju af þyngri vopnum. Þeir
hengdu í gær upp borða á háskólalóð-
inni þar sem stjómartaumar í landinu
voru sagðir í höndum „fasista". Ótt-
ast er að stjómvöld láti til skarar
skríða og ráðist inn á lóðina.
George Bush Bandaríkjaforseti
bannaði í gær sölu á hergögnum til
Kína en sagði að ekki yrði slitið
stjómmálatengslum við landið; slíkt
skref myndi ekki þjóna hagsmunum
kínverskra lýðræðissinna.
Menn óttast nú um framtíð bresku
nýlendunnar Hong Kong sem á að
hverfa undir stjóm Kína 1997; verð-
bréf hröpuðu á markaði þar í gær.
Margaret Thatcher, forsætisráðherra
Bretlands, sagði að atburðimir í Pek-
ing sýndu áþreifanlega muninn á
lýðræðisstjómarfari og einræði.
Sjá einnig forystugrein á
miðopnu og fréttir frá Kina á
bls. 30
Kosningarnar í Póllandi:
Kommúnistar játa afhroð sitt
Varsjá. Reuter.
TALSMENN pólska kommúnistaflokksins viðurkenndu í gær að Sam-
staða hefði unnið „afgerandi sigur“ i þingkosningunum á sunnudag.
Þegar dijúgur hluti atkvæða hafði verið talinn var Ijóst að Samstaða
hafði unnið yfírburðasigur í kosningunum sem voru hinar fyrstu í ætt
við fijálsar kosningar í landinu í rúm 40 ár. Jan Bisztyga, talsmaður
kommúnistaflokksins, sagði að flokkurinn yrði samkvæmur sjálfum sér
og lyti úrskurði þjóðarinnar. Lech Walesa, leiðtogi Samstöðu, hvatti
stuðningsmenn sína til að hafa hemil á sigurgieðinni. „Við verðum að
sína stillingu. Ef við látum tilfínningarnar í ljós núna þá verða næstu
kosningar ekki ftjálsar og lýðræðislegar," sagði Walesa.
Annar háttsettur samstöðumaður,
Bronislaw Geremek, sagði að lítil
kjörsókn, eða 62% af 27 milljónum
á kjörskrá, sýndi að margir van-
treystu málamiðlun stjómvalda og
Samstöðu.
Bisztyga ítrekaði þá áskorun Woj-
ciechs Jaruzelskis hershöfðingja og
flokksleiðtoga til Samstöðu að sam-
tökin tækju þátt í myndun nýrrar
ríkisstjórnar að kosningunum lokn-
um. Geremek sagði að nú sem fyrr
yrði Samstaða í stjómarandstöðu en
hún væri reiðubúin að aðstoða stjórn-
völd við að leysa gífurlegan efna-
hagsvanda þjóðarinnar.
I gærkvöldi voru opinberir fjöl-
miðlar í Póllandi enn þöglir um úr-
slit kosninganna. Janusz Onyszk-
iewicz, talsmaður Samstöðu, sagði
að allir frambjóðendur stjómarand-
stöðunnar til Sejms, neðri deildar
þingsins, hefðu náð kjöri. Samstaða
hafði fyrirfram fallist á að sækjast
einungis eftir 161 sæti í neðri deild-
inni en þar sitja samtals 460 þing-
menn. Kómmúnistaflokkurinn og
samtök terigd honum sátu því ein
að 299 sætum. Það leit út fyrir að
alls staðar þar sem Samstaða bauð
fram hafi frambjóðendur hennar
fengið hreinan meirihluta þannig að
ekki þurfi að ganga til atkvæða í
seinni umferð 18. júní. Þá átti að
kjósa milli tveggja efstu manna.
Samstaða virtist einnig hafa unnið
yfirburðasigur í kosningu til öld-
ungadeildar þingsins.
Ýmsir áhrifamenn þar á meðal
forsætisráðherrann, Mieczyslaw
Rakowski, virðast hafa verið strikað-
ir út og ná því ekki kosningu þrátt
fyrir engan mótframbjóðanda.
Khomeini látinn:
Þjóðareorg
ríkir 1 Iran
Teheran. Reuter.
AÐ MINNSTA
kosti átta manns
biðu bana og um
500 urðu fyrir
meiðslum í mikilli
mannþröng sem
varð er hundruð
þúsunda Irana
vottuðu Khomeini
trúarleiðtoga
virðingu sina í
hinsta slnn í gær. Khomeini lést
af hjartaáfalli á laugardagskvöld.
Lík Khomeinis var til sýnis í kældri
glerlíkkistu á bænastað í Teheran
og að sögn talsmanna Byltingarvarð-
anna komu tvær milljónir manna til
að votta honum virðingu sína.
í erfðaskrá Khomeinis er farið
hörðum orðum um stórveldin og hóf-
sama arabaleiðtoga, Fahd konungi
Saudi-Arabíu t.a.m. óskað bölvunar
Guðs og leiðtogum Bandaríkjanna
lýst sem hryðjuverkamönnum.
Ali Khameini forseti var útnefndur
æðsti valdamaður írans í stað Khom-
einis innan við 20 stundum eftir and-
lát trúarleiðtogans.
Sjá einnig fréttir á bls. 30.