Morgunblaðið - 15.06.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 15.06.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JÚNÍ 1989: Ráðherrafundur EFTA: Við úrskurði á tilteknum svið- um nægir meirihlutasamþykki „Samstöðureglan enn meginregla,44 segir Jón Baldvin Hannibalsson Morgunblaðið/Róbert Schmidt Togarinn Elín Þorbjarnardóttir. Suðureyri: Innsigli togarans Elínar Þorbjarnardóttur rofið Suðureyri. Sýslumaðurinn á ísafirði hefur gefið hreppsljóra Suðureyrar- hrepps leyfi til að rjúfa innsigli togarans Elínar Þorbjarnardótt- ur, sem Hlaðsvík gerir út. Staðgreiðsluskuld hefur verið greidd að fullu og fer togarinn væntanlega á veiðar í kvöld. I sam- tali við Grétar Schmidt, verkstjóra hjá Freyju, sagði hann að verið væri að reyna að fá lánað hráefni að, til þess að geta unnið fram að helgi, en togarinn kæmi fljótlega inn aftur eftir helgina og þá færi þetta að lagast. Gretar er bjartsýnn á útlitið framundan og vonast til að nú fari að rofa til í þessum málum. - R. Schmidt Utanríkisviðskiptaráðherrar Fríverslunarbandalags Evrópu (EFTA) lýstu í gær yfir ánægju sinni með að hafíð væri nýtt skeið í samskiptum bandalagsins við Evrópubandalagið (EB). Að sögn Jóns Baldvins Hannibalssonar, utanríkisráðherra, var á fundin- um, sem haldinn var í Kristians- sand í Noregi, gripið til ráðstaf- ana til að styrkja innviði EFTA, metnar voru fyrstu niðurstöður vinnuhópa sem kannað hafa aðild EFTA-ríkja að hinu fjóreina frelsi EB, gerð var tímaáætlun um hvenær undirbúningi þess starfs skuli lokið og komið var skipulagi á hvemig skera mætti úr um ágreining innan banda- lagsins á tilteknum sviðum. „Á ráðherrafundi EFTA var fyrst og fremst reynt að meta stöðuna í undirbúningi EFTA-ríkjanna undir nýtt og skipulagt samstarf við VEÐURHORFUR I DAG, 15. JUNI YFIRLIT í GÆR: Yfir Skandinavíu er 1.037 mb hæð. Um 200 km suðsuðaustur af Vestmannaeyjum er 1.006 mb lægð sem þokast norðaustur og grynnist en um 700 km suðaustan af Hvarfi er 997 mb lægð sem þokast norðnorðaustur. Milt verður áfram. SPÁ: Þykknar upp með austan- og suðaustanátt þegar líður á daginn, kaldi eða stinningskaldi og rigning við suöurströndina siðdegis, en hægari og þurrt að mestu annars staðar. Hiti á bilinu 8 til 18 stig. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Hæg suðlæg átt og lítilsháttar rigning við norður- og austurströndina og skúrir við strendur sunnan- og vestanlands. Þurrt í innsveitum. Hiti 9-14 stig. HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustanlæg átt og dálítil súld eða rigning suðaustanlands en breytileg átt, skýjað og líklega þurrt vestanlands. Skýjað með köflum norðanlands. Hiti 9-14 stig. V; x Norðan, 4 vindstig: Vindörin sýnir vind- 1 0 Hitastig: 10 gráður á Cel< stefnu og fjaðrirnar V Skúrir Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. * V Él Léttskýjað / / / / / / / Rigning — Þoka / / / = Þokumóða Hálfskýjað * / * ’, ’ Súld Skýjað f * f * Slydda / * / OO Mistur * * * —j* Skafrenningur Alskýjað * * * * Snjókoma # * * Þrumuveður m VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 17 hálfskýjað Reykjavík 12 skýjað Bergen 21 léttskýjað Helsinki 15 léttskýjað Kaupmannah. 17 léttskýjað Narssarssuaq 8 alskýjað Nuuk 1 léttskýjað Ósló 20 hðlfskýjað Stokkhólmur 15 léttskýjað Þórshöfn 13skýjað Algarve vantar Amsterdam 25 skýjað Barcelona 25 léttskýjað Berlín 21 hálfskýjað Chicago 14 þoka Feneyjar vantar Frankfurt 25 skýjað Glasgow 18 hilfskýjað Hamborg 23 skýjað Las Palmas vantar London 27 mlstur Los Angeles 16 þokumóða Lúxemborg 23 léttskýjað Madrid 29 léttskýjað Malaga 28 léttskýjað Mallorca 26 léttskýjað Montreal 15 skýjað New York 16 alskýjað Orlando 24 léttskýjað Paris vantar Róm vantar Vín 22 skýjað Washington 22 skýjað Winnipeg vantar EB,“ sagði Jón Baldvin Hannibals- son í samtali við Morgunblaðið í gær. Þáttaskil urðu á leiðtogafund- inum í Ósló í mars en þá skuld- bundu EFTA-ríkin sig til þess að hefja könnunarviðræður við EB um nánara og skipulagðara samstarf og aðild að hinu ijóreina frelsi, þ.e.a.s. fijálsum vöru-, fjármagns-, þjónustu- og fólksflutningum. Á fundinum nú var metið starf fjög- urra starfshópa um þetta efni sem skiluðu af sér fyrstu skýrslum en munu ljúka störfum í júlí. Síðdegis í gær hittu ráðherrarnir Henning Christophersen, einn af varaforsetum framkvæmdastjómar Evrópubandalagsins. Hann gerði grein fyrir undirbúningi bandalags- ins að samstarfinu við EFTA. Að sögn Jóns Baldvins kom fram á fundinum að báðir aðilar em nokk- uð ánægðir með gang mála og telja að verkið gangi eftir áætlun. Eitt þeirra mála sem var á dag- skrá ráðherrafundarins var efling EFTA sem samningsmiðils aðild- arríkjanna sex, íslands, Noregs, Svíþjóðar, Finnlands, Sviss og Aust- urríkis, og spurningar um vinnu- brögð innan EFTA og hvemig skera mætti úr um ágreiningsefni. „Sviss- lendingar hafa öðmm fremur lagt á það áherslu að EFTA ætti að halda áfram að vera samtök sjálf- stæðra þjóðríkja og hafa samstöðu- regluna sem gmndvallarreglu í samstarfi þjóðanna," sagði Jón Baldvin. „Það lá fyrir álitsgerð frá sérfræðinganefnd um lög og stofn- anir sem gerði þá tillögu að EFTA tæki upp þá reglu í skilgreindum undantekningartilvikum að meiri- hluti atkvæða gæti ráðið. Niður- staðan varð sú að árétta að sam- stöðureglan skuli gilda sem megin- regla. Hins vegar var samþykkt að því er varðar úrskurð deilumála að meirihlutareglan geti gilt í sérstök- um umsömdum tilvikum. Ef til dæmis berst kæra frá einstaklingi eða fyrirtæki innan svæðisins vegna brots á samþykki EFTA um afnám ríkisstyrkja þá verður gangur máls- ins eftirfarandi: í fýrsta lagi fjallar EFTA-ráðið um kæmna. í öðm lagi hefur það heimild til að kveða á um að viðkomandi ríki sé ekki heim- ilt að veita ríkisstyrki á meðan ver- ið er að fjalla um kærana. í þriðja lagi er þessu kærumáli vísað til sérfræðinganefndar og í fjórða lagi kveður EFTA-ráðið upp úrskurð á gmndvelli tillagna þaðan sam- kvæmt meirihlutareglunni. Hér er ekki verið að taka upp yfirþjóðlega stofnun innan EFTA heldur er hér um að ræða dómstól til þess að skera úr í árgreiningsmálum sem rísa út af samningsskuldbindingum. Við íslendingar emm tilbúnir til að fallast á það enda mörg fordæmi fyrir því t.d. í sambandi við mann- réttindadómstól Evrópu.“ Ráðgjafamefnd EFTA hafði í sínum tillögum sem lágu fyrir fund- inum einkum lagt áherslu á styrk- ingu innviða bandalagsins. Sagði Jón Baldvin að tekið hefði verið til- lit til þessa að mestu leyti. Til dæm- is var ákveðið að fjölga starfsliði EFTA í Genf og Bmssel um 15%. Því var einnig lýst yfir að leið- togafundir skyldu haldnir oftar en verið hefur. „Það var mat manna að atburðarásin væri svo hröð í EFTA að það myndi koma að því á seinni hluta ársins að taka veiga- miklar pólitískar ákvarðanir um skuldbindingar, sem ríkisstjómir verða að standa klárar á þegar komið er fram í september eða byrj- un október," sagði utanríkisráð- herra. Að sögn Jóns Baldvins þarf til dæmis að svara þeirri spumingu hvort EFTA-ríkin séu reiðubúin að taka að fullu og öllu upp reglur EB í innflytjendamálum eða hvort þau vilji setja skilyrði um aðild að sam- komulagi þar að lútandi. „Á það má benda að innan EB hafa einstök ríki sett skilyrði eins og Portúgal og Lúxemborg. Við getum gert ráð fyrir því að einstök EFTA-ríki muni setja fyrirvara á þessu sviði. ísland myndi væntanlega hafa hliðsjón af þeim fyrirvömm sem t.d. Lúxem- borg hefur gert,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson að lokum. Millilent í vegna sjö SEINKUN á seinkun ofan varð til þess, að DC - 8 þota Flugleiða í Ieiguflugi til Spánar siðastliðið þriðjudagskvöld varð að milli- lenda í Glasgow og bíða þar á þriðju klukkustund eftir' nýrri áhöfn. Seinkanirnar urðu til þess, að vinnutími áhafiiarinnar hefði farið um það bil sjö mínútur fram yfir samningsbundinn vinnutíma í einni ferð, ef flogið hefði verið í einum áfanga frá Malaga á Spáni til Keflavíkur. Hámarksvinnutím- inn í einni ferð er níu klukkustund- ir á þessum flugvélum, og að öllu eðlilegu hefði átt að vera hægt að fara þessa leið innan þess tíma. Upphaflega átti önnur hinna nýju Boeing 737 - 400 flugvéla að fara þetta leiguflug. Á þeim flugvélum er hámarksvinnutíminn styttri, eða átta klukkustundir, og því þarf að millilenda í Glasgow til að skipta um áhafnir þegar farið er í leiguflug til Spánar. Þar sem hinar nýju þotur höfðu verið kyrrsettar, var ákveðið að farið yrði á DC - 8. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins seinkaði brottför í byijun um eina klukkustund vegna kyrr- setningar Boeing vélanna. Þegar far- þegamir, sem vom sólarlandafarar í hópferð, komu til Keflavíkur var tilkynnt um 45 mínútna seinkun að auki og að þeim tíma liðnum varð enn nokkur töf. Eftir að um borð í flugvélina var komið, þurfti enn að bíða í um 45 mínútur, „... sem okkur Glasgow mínútna var sagt að væri vegna hægagangs flugumferðarstjóra,“ sagði einn far- þeganna í samtali við Morgunblaðið. Þá þegar var orðið tæpt að ná allri ferðinni innan hámarksvinnutíma áhafnarinnar. Flogið var til Alicante og þaðan til Malaga á Spáni og á báðum stöð- um gekk afgreiðsla flugvélarinnar hratt og snurðulaust. Farþegum til íslands, sem komu í vélina á Spáni, var tilkynnt að flogið yrði í einum áfanga til Keflavíkur, þrátt fyrir að fyrirsjáanlega yrði farið um 7 mínút- ur fram yfir hámarksvinnutímann. Eftir um hálfs annars klukkutíma flug var hins vegar tilkynnt að milli- lent yrði í Glasgow og skipt um áhöfn. Gaf flugstjórinn þá skýringu að fynrmæli hefðu borist þar að lút- andi. í Glasgow var aðeins varaáhöfn á Boeing flugvél, en engin á DC - 8. Þurftu farþegarnir, rúmlega hundrað manns, að bíða hálfa þriðju klukku- stund í flugstöðinni á meðan sérstök flugvél kom með áhöfn. Einar Sigurðsson, blaðafulltrúi Flugleiða, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að eftir því sem hann kæmist næst hefði áhöfn flugvélar- innar ákveðið að fljúga ekki heim, til fara ekki fram yfir vakttímann og því hafi verið sjálfgert að lenda í Glasgow. Ekki hefðu komið fyrir- mæli um það frá íslandi fyrr en ljóst hefði verið að áhöfnin var ekki tilbú- in til að fljúga heim.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.