Morgunblaðið - 20.06.1989, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 20.06.1989, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. JÚNÍ 1989 Utanríkisþj ónustan: fastalulltrúi íslands hjá SÞ BENEDIKT Gröndal, heimasendi- herra, hefur dregið tii baka upp- sögn sína úr utanríksþjónustunni og mun hann taka við stöðu fasta- fulltrúa íslands hjá Sameinuðu þjóðunum í haust. Þá lætur af því starfi Hans G. Andersen, sendi- herra, fyrir aldurs sakir. Bæði Benedikt og Jón Baldvin Hannib- alsson, utanríkisráðherra, segjast ánægðir með þessa niðurstöðu. „Eg hafði farið þess á leit við Benedikt Gröndal að hann birti ekki afsagnarbréf sitt fyrr en mér hefði gefizt kostur á því að ræða við hann,“ sagði Jón Baldvin Hanni- balsson, utanríkisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær. „Ég sagði honum að mér þætti mjög miður að málið hefði verið gert opinbert með þessum hætti áður en okkur gafst kostur á að ræðast við. Tilgangur fundar míns með honum fyrir helgi var sá að fá hann til að hætta við þá ákvörðun. Þetta varðar fram- kvæmd á tillögum ráðuneytisins um breytt skipulag og starfshætti. Að sjálfsögðu hafði ráð verið fyrir því gert að um leið og hin svokölluðu heimasendiráð verða lögð niður, að fela heimasendiherrunum önnur verkefni. Úr því sem komið er, er það ekk- ert launungarmál að ég bauð Bene- dikt Gröndal starf skrifstofustjóra alþjóðadeildar ráðuneytisins og þar með starf staðgengils ráðuneytis- stjóra. Benedikt hafnaði því enda hafði hann tjáð mér að hann hefði ekki hug á að veita forstöðu sendi- ráði erlendis. Hans G. Andersen, þjóðréttarfræðingur og sendiherra, hefur á undanfömum árum gegnt störfum sem fastafulltrúi íslands hjá Sameinuðu þjóðunum með aðsetur í New York. Hann lætur af störfum fyrsta október fyrir aldurs sakir. Það hafði ekki í skipulagstillögunum enn verið tekin ákvörðun um það hver tæki við af honum. Niðurstaða mín varð því sú, að ég lagði þá tillögu fyrir Benedikt, að hann tæki við þessu starfí með skýrskotun til margvíslegrar reynslu hans fyrr af starfi á vettvangi Sameinuðu þjóð- anna og til þess góða orðs sem hann gat sér á sínum tíma þegar hann var sendiherra í Stokkhólmi og fullltrúi íslands á ráðstefnunni um svokallað- ar traustvekjandi aðgerðir í afvopn- unarmáium í Evrópu. Þrátt fyrir að Benedikt hefði áður sagt mér að hann hefði ekki hug á því að veita forstöðu séndiráði erlendis, tók hann þetta til skoðunar. Niðurstaðan varð sú, að hann ákvað að draga uppsögn sína til baka og taka tilboði um nýtt starf. Ég tel þetta vel ráðið, þó ég hafí áður gert ráð fyrir öðru“ sagði Jón Baldvin. Bendikt Gröndal. sagði í samtali við Morgunblaðið, að uppsögn hans hefði verið tilkomin vegna óánægju hans með verkefnaskort sem heima- sendiherra, en starfíð hefði að mestu verið lagt niður frá síðustu áramót- um. „Ég sá ekki hvað við tæki og undi því illa að vera verklaus og lagði þess vegna inn afsögn mína. Reglan er sú, að þegar starf hjá hinum opin- bera er lagt niður, skal þeim, sem VEÐURHORFUR í DAG, 20. JÚNÍ YFIRLIT í GÆR: Vestan- og suðvestanátt á landinu, hvöss á stöku stað norðanlands en víðast kaldi eða stinningskaldi. Frá sunnan- verðum Vestfjörðum. ( Mýrdal var skýjað en léttskýjaö annars stað- ar. í sólskininu var 11-16 stiga hiti en nokkru svalara undir skýja- breiðum. SPÁ: Sunnan- og suðvestanátt, sumstaðar allhvöss, og rigning sunnanlands og vestan en heldur hægari og úrkomulítið norðaust- an til á landinu. Lægir þó líklega og styttir upp að mestu vestan- lands undir kvöld. Hiti 10-15 stig. 1/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestanátt. Fremur svalt eða vætu- samt á Suöur- og Vesturlandi en léttskýjað og hlýtt að deginum norðanlands og austan. HORFUR Á FIMMTUDAG: Vestanátt víðast hvar á landinu. Kalt miðað við árstíma og rigning eða skúrir á Vestur- og Norðurlandi en þurrt sumstaðar léttskýjað á Suðaustur- og Austurlandi. VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hlti veður Akureyri 12 skýjað Reykjavik 8 skýjað Bergen 21 léttskýjað Helsinki 20 skýjað Kaupmannah. 25 léttskýjað Narssarssuaq 7 rigning og súld Nuuk 0 þoka Ósló 26 léttskýjað Stokkhólmur 23 léttskýjað Þórshöfn 12þoka Algarve vantar Amsterdam 27 léttskýjað Barcelona 25 léttskýjað Berlín 23 léttskýjað Chicago 19 þokumóða Feneyjar vantar Frankfurt 26 léttskýjað Glasgow 27 léttskýjað Hamborg 25 léttskýjað Las Palmas 25 léttskýjað London 26 léttskýjað Los Angeles 17 hálfskýjað Lúxemborg 26 léttskýjað Madríd vantar Malaga 27 léttskýjað Mallorca 25 skýjað Montreal 17 léttskýjað New York 22 mistur Orlando 23 heiðskírt París vantar Róm 23 þokumóða Vín 22 skýjað Washington 23 mistur Winnipeg vantar Benedíkt Gröndal það skipar, boðið sambærilegt starf. Ráðherra fór þá leið og bauð mér annað starf, en gaf þess engan kost að hætt yrði við að leggja heima- sendiráðin niður,“ sagði Benedikt. „Þar kom að hann bauð mér stöðu fastafulltrúa hjá Sameinuðu þjóðun- um að ég ákvað að taka því boði frekar en að fara á ellilaun. Þessi staða er mjög frábrugðin annarri utanríkisþjónustu og á jjessum vett- vangi þekki ég vei til. Ég gleðst yfír þessari niðurstöðu úr því sem komið er, en ég hafði áður óskað þess, að er ég kæmi heim frá Stokkhólmi, fengi ég að Ijúka starfsferlinum heima. Svo verður nú ekki, en ég er sáttur við það eftir efnum og ástæð- um,“ sagði Benedikt Gröndal. Hannes Jónsson Dr. Jakob Jónsson Dr. Jakob Jónsson látinn LÁTINN er í Reykjavík dr. Jakob Jónsson prestur, fræðimaður og rithöfimdur. Jakob fæddist 20. janúar 1904 á Hofi í Álftafírði í Suð- ur-Múlasýslu, sonur hjón- anna Jóns Finnssonar prests þar og konu hans Sigríðar Hansdóttur. Jakob lauk stúdentsprófi frá MR 1924 og guðfræðiprófí frá Háskóla íslands 1928. Hann stundaði framhaldsnám í há- skólanum í Winnipeg 1934-35, tók licentiat-próf í guðfræði í Lundi 1961 og varð doktor í guðfræði frá HI 1965 fyrir bók sína um kímni og skop í Nýja testamentinu. Jakob varð aðstoðarprestur föður síns á Djúpavogi og prest- ur á Norðfirði 1929-35. Hann þjónaði sem prestur íslenskra safnaða vestanhafs 1935-40 og í Hallgrímsprestakalli ' í Reylqavík 1941-1974. Hann kenndi við bamaskóla, mennta- skóla og guðfræðideild háskól- ans og samdi fjölda rita og bóka. Eftirlifandi eiginkona Jakobs er Þóra Einarsdóttir. Vítavert athæfi - segir utanríkisráðherra um ummæli Hannesar Jónssonar heimasendiherra Utanríkisráðherra kallaði Hannes Jónsson, heimasendi- herra, á sinn fiind í gærmorgun vegna ummæla hans á þá leið að ráðgjafar utanríkisráðherra væru fúskarar. „Án þess að skýra frá samtali okkar í smáatriðum, var niðurstaða þess sú, að ég krafðist þess að sendi- herrann bæðist velvirðingar á þess- um ummælum þar sem þau væru óviðurkvæmileg og samræmdust ekki skyldum hans sem sendiherra,“ sagði Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra, í samtali við Morg- unblaðið. „Auk þess sagðist ég von- ast til þess að því mætti treysta að framkoma af þessu tagi endurtæki sig ekki. Honum var tjáð að hann fengi formlega áminningu frá ráðu- neytisstjóra vegna þessara ummæla og hana hefur hann þegar fengið. Utanríksráðherra er auðvitað ábyrgur fyrir þeim tillögum um skipulagsbreytingar á utanríkisþjón- ustunni, sem kynntar hafa verið. Þær hafa verið í undirbúningi í hálft ár, þar hefur víða verið leitað fanga og áður en þær voru birtar voru haldnar um þær sérstakir fundir með ráðu- neytisstjóra og skrifstofustjórum að- alskrifstofa ráðuneytisins auk þess sem skýrslan hefur verið send öllum starfsmönnum utanríkisþjónustunn- ar og þar með gefínn kostur á því að fá athugasemdir og tillögur frá fólkinu og ýmsir þeirra hafa notfært sér það. Það, sem ekki er ásættan- legt, er að einstakir embættismenn sem, sem eiga að framfylgja stefnu ráðherra og ríkisstjómar, skuli vekj- ast upp í ijölmiðlum með órökstudd- an skæting um stefnu ráðuneytisins í mikilvægum málum og grafa þann- ig undan trausti almennings og ann- arra, sem málið varðar, eins og til dæmis erlend ríki. Þetta er með öllu óviðunandi, ósæmilegt og vítavert athæfí af hálfu sendiherra. Til skýringar má nefna eftirfar- andi dæmi: Ef utanríkisráðherra birt- ir eða boðar nýjar tillögur á sviði utanríksmála, til dæmis um afvopn- unarmál, má öllum ljóst vera að sendiherra utanríkisþjónustunnar, sem kæmi fram í fjölmiðlum og kall- aði ráðgjafa ráðherrans fúskara eða tillögumar byggðar á fáfræði, væri óhæfur til að vinna að framgangi þeirra mála. Þess hlyti að verða krafizt að slíkur maður segði.af sér. Þegar um er að ræða tillögur, sem varða skipulagsbreytingar, gegnir sama máli. Sendiherrar em ráðnir með sérstökum skilmálum, sem fela í sér að þeir kunna að vera sendir til starfa á vettvangi sendiráða er- lendis eða færðir til í starfí í sam- ræmi við ákvarðanir yfirmanna sinna. Þegar um er að ræða skipu- lagsbreytingar, fela þær að sjálf- sögðu í sér að verði störf lögð niður, eiga menn kost á öðrum störfum. Te\ji þeir hins vegar slíkar tillögur óásættanlegar og vilji ekki una þeim, eiga þeir að sjálfsögðu þann kost, að segja af sér og ávinna sér þannig rétt til að gagnrýna þær opinber- lega,“ sagði Jón Baldvin Hannibals- son. Ekki náðist í Hannes Jónsson sendiherra eftir fund hans með ut- anríkisráðherra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.