Morgunblaðið - 11.08.1989, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 11.08.1989, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ EÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 1989 5 Ríkið yfir- tekur starf- semi heilsu- gæslustöðva RÍKIÐ yfirtekur starfsemi heilsu- gæslustöðva í landinu um næstu áramót. Verður þá þeim starfs- mönnum stöðvanna sagt upp, sem ráðnir eru af sveitarfélögum, en ríkið mun bjóða þeim sam- bærileg störf. Ríkið tekur yfir rekstur allra heilsugæslustöðva i landinu um næstu áramót, samkvæmt lögum um verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga, sem samþykkt voru á Al- þingi í vor. Hefur heilbrigðisráðu- neytið sent sveitarstjórnum bréf, þar sem þeiin er bent á að segja upp þeim starfsmönnum heilsu- gæslustöðvanna, sem ráðnir eru af þeim. Jafnframt er sagt, að ríkið muni fyrir 1. október næstkomandi bjóða þessum starfsmönnum sam- bærilegar störf. Að sögn Eddu Her- mannsdóttur, skrifstofustjóra í heil- brigðisráðuneytinu, er gert ráð fyr- ir því að allir starfsmenn stöðvanna verði þar áfram, þar sem hér sé ekki um að ræða neina uppstokkun, hagræðingu eða samruna stöðva, heldur eingöngu tilflutning frá sveitarfélögunum til ríkisins. Heilsugæslustöðvar, eða sel sem rekin eru í tengslum við þær, eru milli 70 og 80 í landinu, að sögn Eddu Hermannsdóttur. Er stór hluti starfsmanna heilsugæslustöðvanna í landinu þegar á launaskrá hjá ríkinu, svo sem læknar, hjúkrunar- fræðingar, sjúkraþjálfarar og ljós- mæður en sveitarfélögin greiða laun hinna. Vesturgata 7: Ibúðaverð á bilinu 4 til 8 milljón- ir króna VERÐ íbúða í nýja hýsinu að Vesturgötu 7 er á bilinu 4 til 8 milijónir króna. I húsinu eru 26 íbúðir sérhannaðar fyrir aldraða og hafa þær allar verið seldar að sögn Hjartar Hjartarsonar hjá skrifstofu Reykjavíkurborgar. íbúðirnar eru mjög misstórar, þær minnstu eru 36 fermetrar að flatarmáli en sú stærsta 82 fermetr- ar. í húsinu eru 8 einstaklingsí- búðir og losar verð hverrar íbúðar 4 milljónir króna. Verð íbúða sem ætlaðar eru hjónum er um 6 milljón- ir króna. Stærsta og dýrasta íbúðin í húsinu kostar tæplega 8 milljónir króna. Hjartavernd: Happdrætti í tilefni afmælis HJARTAVERND, landssamtök hjarta og æðaverndarfélaga, er tuttugu og fimm ára á þessu ári. í tilefhi afmælisins hefur Hjarta- vernd hleypt af stokkunum sér- stöku afmælishappdrætti. Frá upphafi hefur Hjartavernd haft með höndum mikla fræðslu- starfsemi um einkenni, áhættuþætti og megingerð hjarta- og æðasjúk- dóma. Happdrætti Hjartaverndar hefur löngum verið aðal íjáröflunar- leið samtakanna. í tilefni afmælis- ins hefur verið hleypt af stokkunum sérstöku afmælishappadrætti. Verðmæti vinninga í afmælishapp- drættinu eru 8.3 miljónir króna. Morprunblaðið/Árni Sæberer Bergshús flutt á Arbæjarsafti Unnið er að því að flytja ris Bergshúss á Skólavörðustíg 10 í Reykjavík á Árbæjarsafnið. Þar mun fyrsta hæð hússins endur- byggð í upphaflegri mynd. Alexíus Árnason lögregluþjónn í Reykjavík mun hafa reist þetta hús um 1870. Það er kennt við Berg Þorleifsson söðlasmið sem bjó þar frá 1885 til 1930. Einn leigjenda Bergs var Þórbergur Þórðarson rithöfundur sem bjó í risinu í fjögur ár, frá 1909 til 1913, en hann segir frá dvöl sinni þar í Ofvitanum. Frá 1960 hefur verið rekin verslun í húsinu, nú síðast leikfangaverslun. 8PRENGI VIKA! Lengi hefur safnast í sprengipott hjá íslenskum Getraunum og því er til mikils aö vinna. Auk þess kostar röðin aðeins 10 kr. Ert þú viðbúinn stórum vinningi á laugardaginn? Láttu þá ekkert stöðva þig. Getraunaseðillinn er líka fyrir þig. - ekkibara heppni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.