Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 05.01.1990, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 3. tbl. 78. árg. FOSTUDAGUR 5. JANUAR 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Tékkneska stjórnin: Leggja til að Com- econ verði leyst upp Mun segja sig úr bandalaginu ella Varsjá. Reuter. TÉKKNESK stjórnvöld ætla að lcggja til, að Comecon, Efnahags- bandalag Austur-Evrópu- ríkjanna, verði lagt niður og segja sig úr því verði ekki á tillöguna fallist. Kom þetta fram hjá Vaclav Klaus, íjármálaráðherra Tékkó- slóvakíu, í viðtali við pólskt dag- blað í gær. Klaus, sem verið hefur í Varsjá til viðræðna við pólsk stjórnvöld, Svíþjóð: Rausnargjöf til vísinda- rannsókna Stokkhólmi. Frá Erik Liden, fréttaritara Morgunblaðsins. GÖRAN Gustafsson, einn af mestu fasteignaeigendum í Svíþjóð, hef- ur gefíð sænsku vísindaakade- míunni rúmlega 2,7 milljarða ísl. kr. Er hér um að ræða mestu gjöf frá einum einstaklingi, sem um getur í landinu, ef undan er skilið framlag Alfreds Nobels til Nóbels- verðlaunasjóðsins. Gjöfin verður notuð til að stofna sjóð í nafni Gustafssons og veitt úr honum til ýmissa raunvísindarann- sókna. Er hugmyndin sú, að styrk- þegar geti helgað sig rannsóknunum einum í fimm ár samfleytt. Göran Gustafsson er sjötugur að aidri, fæddur í Norðurbotni þar sem hann ólst upp við kröpp kjör ásamt 14 systkinum sínum. Hann sneri sér snemma að fasteignaviðskiptum en á þessum áratug hefur fasteignaverð hækkað mikið og Gustafsson notaði hagnaðinn til að styrkja vísindarann- sóknir. Hefur hann samtals gefið til þeirra rúmlega 4,4 milljarða ísl. kr. sagði í gær í viðtali við stjórnarmál- gagnið Rzecspospolita, að hann myndi leggja tillöguna fram á árs- fundi Comecons í næstu viku og yrði hún felld myndu Tékkar segja sig einhliða úr bandalaginu. Sagði Klaus, að pólska stjómin ætlaði að styðja tékknesku tillöguna og hann kvaðst telja, að Comecons biði ekk- ert annað en að brotna upp í ríkja- hópa, sem byggðu á tvíhliða samn- ingum sín í milli. Aðildarríki Comecons eru 10, Sov- étríkin, Búlgaría, Tékkóslóvakía, Austur-Þýskaland, Ungveijaland, Pólland og Rúmenía og að auki Kúba, Mongólía og Víetnam. Nokkrir pólskir þingmenn hafa látið í ljós þá skoðun, að Pólland og Tékkóslóvakía ættu að taka upp náið samband sín í milli með tilliti til hugsanlegrar'sameiningar Þýska- lands. Leggja þeir áherslu á, að þeir óttist ekki um landamæri ríkjanna, heldur sé ástæða til að stilla saman strengi gagnvart pólitískum og efna- hagslegum mætti Þýskalands. Bandaríkin: Reuter Manuel Noriega, fyrrum einvaldur í Panama, í höndum tveggja starfsmanna bandaríska eiturlyfjaeftir- litsins. Er Noriega þarna kominn um borð í flugvélina, sem flutti hann til Bandaríkjanna þar sem hon- um hafa verið birtar ákærur um eiturlyfjasmygl. Noriega leiddur fyrir rétt sakaður um eiturlyfíasmygl Miami, Washington, Panamaborg. Reuter. MANUEL Noriega, fyrrum ein- valdur í Panama, kom í gær fyrir rétt í Miami í Bandaríkjunum þar sem honum voru birtar ákærur um eiturlyfjasmygl. Svaraði hann sakargiftunum með því að bera brigður á lögsögu bandarísks dómstóls í málum sínum. Uppgjöf Noriega, sem gaf sig fram við bandaríska hermenn, hefúr verið fagnað ákaflega í Panama og þá ekki síður í Bandaríkjunum enda var það einn megintilgangur íhlutunarinnar að hafa hendur í hári hershöfðingjans. Það var í fyrrinótt, sem Noriega gafst upp eftlr 10 daga dvöl í sendi- ráði Páfagarðs í Panamaborg, en þá hafði erkibiskupinn í Panama gert honum ljóst, að hann ætti að- eins tveggja kosta völ: að hírast áfram í húsinu umsetinn og eins og fangi eða reyna að veija sig fyrir bandarískum dómstól. Það, sem reið Leiðtogi rúmenskra útiaga: Hundurinn drepinn en keðjunni haldið Búkarest. París. Moskvu. Reuter. SOVÉSK stjórnvöld hafa neitað því að þau hafí heitið stuðningi við byltingu gegn Nic- olae Ceausescu. Þjóðarráðið í Rúmeníu og talsmenn þess neitaðu því einnig í gær að samsæri hefði verið gert til að steypa harð- stjóranum af stóli. Ion Ratiu, leiðtogi sam- taka rúmenskra útlaga, sagði hins vegar í gær að kommúnistar færu með völd í Þjóðar- ráðinu og þeir væru að reyna að stela bylt- ingunni. Hann vitnaði í rúmenska skrýtlu og sagði að „hundurinn hefði verið drepinn en keðjunni haldið". Petre Roman, forsætisráðherra Rúmeníu, sagði í gær f viðtali við franska dagblaðið Le Monde að byltingin í Rumeníu hefði verið fyrir- varalaus og hann hefði fyrst heyrt getið um Þjóðarráðið 22. desember, daginn sem Ceauses- cu var steypt. Hins vegar hefði rúmenska örygg- islögreglan komist að því að Ion Uieseu, núver- andi forseti Rúmeníu, og Nicolae Militaru, nú- verandi vamarmálaráðherra, hefðu hist fyrir Reuter Margir Rúmenar lýóta um þessar mundir fijálsra íjöimiðla í fyrsta skipti á ævinni. Hér sjást þrír borgarar taka sér hvíld frá snjómokstri til að lesa nýjustu fréttir. hálfu ári til að ræða óánægju sína með Ceauses- cu. Þetta kynni að valda þeim misskilningi að byltingin hefði verið skipulögð. Silviu Brucan, talsmaður framkvæmdanefnd- ar Þjóðarráðsins, sagði í gær að í ríki Ceauses- cus hefði verið útilokað að skipuleggja byltingu. A miðvikudag sagði Brucan hins vegar að Sovét- menn hefðu heitið sér stuðningi við byltingu í lok nóvember. Gennadíj Gerasímov, talsmaður sovéska utanríkisráðuneytisins, vísaði þessari staðhæfingu á bug í gær. Ion Ratiu, forseti Heimssambands fijálsra Rúmena, fagnaði á fundi með fréttamönnum þeim breytingum sem orðið hefðu í Rúmeníu en sagði að allir félagar í Þjóðarráðinu væru sannfærðir kommúnistar. Ratiu sem hefur verið útlægur í hálfa öld sagðist ætla að snúa heim innan tíðar og ganga í Smábændaflokkinn með það fyrir augum að bjóða sig fram í kosningun- um í apríl. Einnig var tilkynnt í gær að nokkr- ir félagar í Þjóðarráðinu ætluðu að bjóða sig fram fyrir ráðið en ekki undir nafni neins ákveð- ins flokks. Sjá „Byltingin . . . “ á bls. 21. baggamuninn, var þó líklega, að á miðvikudag söfnuðust tugþúsundir Panamamanna saman fyrir utan sendiráð Páfagarðs til að krefjast framsals Noriega til Bandaríkjanna og þegar fréttin um uppgjöf hans var f lutt þusti fólk út á götur til að fagna tíðindunum. Noriega var umsvifalaust fluttur til Homestead-flugbækistöðvarinnar skammt frá Miami og í gær var honum birt ákæra um eiturlyfja- smygl. Var um að ræða sömu ákær- urnar og birtar voru að honum fjar- stöddum fyrir tveimur dómstólum á Flórída í febrúar 1988 en verði hann fundinn sekur um öll ákæruatriði á hann yfir höfði sér fangelsi í 145 ár. Ströng gæsla var um Noriega þegar hann kom til réttarsalarins og er honum höfðu verið birt ákæru- atriði í spænskri þýðingu lýsti veij- andi hans yfir, að um hefði verið að ræða ólöglega innrás í Panama og sem þjóðhöfðingi landsins væri hann undanþeginn lögsókn í Banda- ríkjunum. Túlkaði dómarinn þá yfir- lýsingu þannig, að Noriega segðist vera saklaus. Fyrr í gær hafði veij- andi Noriega lýst yfir, að skjólstæð- ingur sinn myndi krefjast þess, að lögð yrðu fram „nokkur viðkvæm skjöl“ um fyrri tengsl sín við CIA, bandarísku leyniþjónustuna. Bandaríkjamenn, almenningur sem embættismenn, fögnuðu í gær uppgjöf Noriega og þykja lyktir málsins ávinningur fyrir George Bush forseta. Sjá „Uppgjöf . . . “ á bls. 18.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.