Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.01.1990, Blaðsíða 1
88 SIÐUR B/C 5. tbl. 77. árg. SUNNUDAGUR 7. JANÚAR 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Gregor Gysi: Fækkað verði í þýskum heijum Austur-Berlín. Reuter. GREGOR Gysi, leið- togi kommúnista í Austur-Þýskalandi, lagði tii í gær að þýsku ríkin fækkuðu í herliði sínu um helming á næstu tveimur árum. Án afvopnunar væri ótrúverðugt að tala um einingu Þýskalands. Ennfremur hvatti hann til þess að herir banda- manna yfírgæfú þýska jörð fyrir alda- mót. Préttaskýrendur tejja Iíklegt að Gysi hafí rætt þessar tillögur við Sov- étmenn enda gera þær ráð fyrir að 380.000 sovéskir hermenn verði send- ir heim frá Austur-Þýskalandi. Straumur upp að altarinu Stokkhólmi. Reuter. SVÍAR sem verið hafa í óvígðri sam- búð giftu sig í stríðum straumum í desember. Skýringin var sú að um áramótin gengu í gildi lög sem skerða réttindi til ekknabóta. Þó var kveðið á um að þær ekkjur sem giftu sig fyrir þann tíma fengju greitt eftir gömlu lögunum. Samkvæmt upplýs- ingum frá hagstofú Svíþjóðar voru ný hjónabönd tvær fyrstu vikurnar í desember 6.589 en voru 2.999 allan desember 1988. í bænum Karlstad var t.d. tekin hópmynd af 51 nýgiftum hjónum og voru flest komin af létt- asta skeiði. Faldi sig fyrir Stalín í 42 ár Moskvu. Reuter. Sovétmaður, sem barðist fyrir foður- land sitt í seinni heimsstyrjöldinni, kom nýlega úr leyn- um eftir að hafa falið sig í skógi í Hvíta- Rússlandi í 42 ár af ótta við að verða hegnt fyrir að verja stríðshefju er féll í ónáð hjá Stalín. Maðurinn hafði reist kofa í skóginum og lifði á sveppum og berjum, auk þess sem hann veiddi dýr í gildru. Ættingjar hans færðu honum stöku sinnum fatnað og matVæli en það var ekki fyrr en þeir sýndu honum dag- blöð að hann sannfærðist um að breyt- ingar hefðu átt sér stað i Sovétríkjun- um. Sameiningarþrá Azera; * Oeirðirnar alvarleg ógnun við einingu Sovétríkianna Moskvu. Reuter og Daily Telegraph. ÓEIRÐIRNAR í Azerbajdzhan við landamæri írans og Sovétríkjanna síðustu daga eru alvarlegustu þjóðernisróstur undanfarinna ára í Sovétríkjunum, að mati Reuíers-frétta- stofunnar, og vega þær mjög að einingu landsins. I gær horfðu verðir á landamærum Irans og Sovétríkjanna aðgerðarlausir á mannfjöldann sem reif niður landamæragirðing- ar. Azerar, sem eru ein þjóð í tveimur löndum, þrá sameiningu og hefúr verið talað um landamærin sem „Berlínarmúr Sovétríkjanna". 6 milljónir Azera búa í Azerbajdzhan og 4 milljónir í samnefndu héraði í Iran. Geider Isajev, flokksleiðtogi í héraðinu Nakhitsje- van sem liggur að Iran, sagði af sér á fostudag vegna ástandsins. Verðfall á fjármálamörkuðum heims á föstudag er rakið til hins ótrygga ástands í Sovétríkjunum. Kaupsýslumenn virðast hafa óttast að harðlínumenn í Kreml væru að missa þolinmæðina gagnvart umburðarlyndi Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga. Gagnsókn þeirra gæti skapað gífurlega óvissu um allan heim. Gorbatsjov hefur aflýst flestum fundum með erlendum ráðamönnum út mánuðinn til að geta helgað sig vandamálunum heima fyrir. Og þau eru ærin. Gorbatsjov þarf að kljást við óánægju milljóna manna sem eru á barmi hungurs, efnahag sem er í rúst og gífurlega sVartsýni almennings. Eftir nær fimm ára valdasetu Gorbatsjovs er enn erfitt fyrir al- menna borgara að verða sér úti _um hráefni í sæmilega næringarríka máltíð. Á sáma tíma vex þjóðernissinnum í Eistlandi, Lettlandi og Litháen, Georgíu, Armeníu, Azerbajdzhan, Moldavíu og Úkraínu ásmegin. í næstu viku fer Gorbatsjov til Litháen þar sem kommúnistaflokkurinn hefur sagt sig úr lögum við Moskvuvaidið. Harðlínumenn í flokknum líta á ákvörðun Litháa sem alvar- legt fordæmi sem gæti reynst fyrsta skrefið í átt til þess að Sovétríkin liðist í sundur. 16-17 JÓL MEÐ GÓÐU FÓLKI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.