Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 10.01.1990, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIDVIKUDAGUR 1Q. JAþlÚAR 1990 25 Kaup Lanclsbankans á Samvinnubankanum: Ejjólfur K. Sigur- jónsson formaður bankaráðs Landsbankans: Sambandið fái um 60 milljón- ir króna í auknar vaxta- greiðslur „EG er mjög ánægður með kaup Landsbankans á meirihluta Sam- vinnubankans," sagði Eyjólfur K. Siguijónsson, formaður bank- aráðs Landsbankans í samtali við Morgunblaðið. Hann sagðist mundu leggja til í bankaráðinu að Sambandið fengi greiddar um 60 milljónir króna í vaxtagreiðsl- ur af 605 milljón króna kaup- verði bréfanna og miðaðist vaxtagreiðslutímabilið við 1. september sl. þegar upphaflegi kaupsamningurinn var gerður. Hann sagðist telja nýja samning- inn miklu raunhæfari en samning þann sem Sverrir Hermannsson, bankasljóri gerði við Guðjón B. Olafsson, forstjóra Sambandsins þann 1. september sl. „Við erum bara að kaupa hluta- bréfin og erum ekki með neinar skuldbindingar, frekar en aðrir hlutabréfaeigendur. Þessi tilboð eru því engan veginn sambærileg og við ýttum því gamla samningnum bara út af borðinu. Ég vildi ekki taka ábyrgð á því að Landsbankinn tæki Sambandið og kaupfélögin í óbreytt viðskipti, skilyrðislaust til fimmtán ára,“ sagði Eyjólfur. Hann sagði ennfremur að engar skuldbindingar hefðu verið gerðar af Landsbankanum í sambandi við starfsfólk Samvinnubankans, en í fyrri samningnum hafi verið gert ráð fyrir því að starfsmennirnir yrðu skilyrðislaust starfsmenn Landsbankans og fengju öll þau réttindi sem starfsfólk Landsbank- ans hefði. Eyjólfur sagði óráðið hvenær breyting yrði • á bankaráði Sam- vinnubankans og tveir fulltrúar Landsbankans kæmu þar inn. Aðal- fundur yrði líklega í marsmánuði. „Ég held að bankaráðið sé mér al- veg sammála í því að við ætlum að reka Samvinnubankann áfram í því formi sem hann hefur verið og erum ekki með áætlanir um neinar stórvægilegar breytingar næstu tvö árin. Við munum hafa samvinnu um það að samræma útibúarekstur bankanna og fækka útibúum," sagði Eyjólfur. Hann sagðist ekki vitað hvort viðræður við aðra eig- endur Samvinnubankans um sölu á þeirra hlut til Landsbankans hæfust á næstunni, enda væri engin skuld- binding þar að lútandi í samningn- um. „Mér finnst að það sé sanngirnis- mál, þar sem tdð tökum nú yfir bankann og fáum arð allt árið, að Sambandið fái reiknaða vexti af þessum 605 milljónum króna frá 1. september sl. Ég mun mæla með því að sá háttur verði hafður á, og þannig fái Sambandið um 60 millj- ónir króna aukreitis,“ sagði Eyjólf- ur. Sighvatur Björg- vinsson, formaður fjárveitinganeftidar: Þarf ekki að bera kaup á eignum Sambandsins undir Alþingi SIGHVATUR Björvinssson, for- maður Qárveitinganefndar AI- þingis segist ekki telja að bera þurfi hlutabréfakaup Lands- bankans í Samvinnubankanum undir Alþingi, né heldur fyrir- huguð kaup ríkisins á hlutabréf- um Sambandsins í Islenskum að- alverktökum. „Ég tel að ekki þurfi að leita samþykkis Alþingis vegna kaupa Landsbankans á hlutabréfum Sam- bandsins í Samvinnubankanum, því það eru ekki lagaákvæði um skyldu að leita samþykkis Alþingis þegar um hlutabréfaviðskipti er að ræða,“ sagði Sighvatur í samtali við Morg- unblaðið í gær. Hann sagði telja sama máli gegna um kaup ríkisins á hlutabréfum Sambandsins í ís- lenskum aðalverktökum. „Hins vegar er gert ráð fyrir því að slíka heimild Alþingis þurfi í frumvarpi okkar í fjárveitinga- nefnd, sem við lögðum fram um greiðslur úr ríkissjóði," sagði Sig- hvatur Björgvinsson. FISKVERÐ A UPPBOÐSMORKUÐUM 9. janúar. FISKMARKAÐUR hf. í Hafnarfirði Hæsta Lægsta Meðal- Magn Heildar- verð verð verð (lestir) verð (kr.) Þorskur 99,00 80,00 95,41 16,221 1.547.588 Þorskur(óst) 68,00 67,00 67,23 1,747 117.449 Ýsa 141,00 141,00 141,00 1,130 159.330 Ýsa(ósl.) 120,00 120,00 120,00 0,410 49.200 Karfi 54,00 54,00 54,00 0,078 4.212 Ufsi 48,00 43,00 46,93 31,574 1.481.812 Steinbítur 67,00 52,00 53,87 0,233 12.551 Hlýri 58,00 55,00 56,40 0,835 47.095 Langa 50,00 50,00 50,00 0,252 12.600 Lúða 300,00 300,00 300,00 0,015 4.500 Keila 23,00 23,00 23,00 0,034 782 Tindaskata 5,00 5,00 5,00 0,090 450 Hrogn 109,00 109,00 109,00 0,319 34.771 Samtals 65,59 52,938 3.472.340 í dag verður selt óákveðið magn úr bátum. FAXAMARKAÐUR hf. í Reykjavík Þorskur 71,00 71,00 71,00 0,362 25.702 Þorskur(ósL) 69,00 54,00 57,53 10,784 620.414 Ýsa(ósl.) 130,00 121,00 128,57 0,953 122.531 Karfi 75,00 46,00 51,28 19,545 1.002.321 Lúða 455,00 455,00 455,00 0,054 24.570 Skötuselur 200,00 200,00 200,00 0,050 10.000 Samtals 56,87 31,548 1.805.538 í dag verður meðal annars selt óákveðið magn af þorski og ufsa úr Má SH. FISKMARKAÐUR SUÐURNESJA hf. Þorskur 95,50 87,50 90,29 28,260 2.551.720 Ýsa 136,00 73,00 128,97 3,256 419.938 Karfi 49,00 49,00 49,00 0,036 1.764 Steinbítur 60,00 56,00 59,08 0,584 34.504 Langa 55,00 55,00 55,00 0,050 2.750 Lúða 300,00 300,00 300,00 0,065 19.500 Skarkoli 77,00 77,00 77,00 0,124 9.548 Keila 21,00 21,00 21,00 0,200 4.200 Hrogn 168,00 168,00 168,00 0,045 7.560 Samtals 93,55 32,620 3.051.484 | Selt var úr Skarfi GK og Sighvati GK. 1 dag verðurselt úr dagróðrabátum. Mikilvægur áfangi til að auka hag- kvæmni í bankakerfinu - segirJónSig- urðsson, við- skiptaráðherra „Ég tel þetta mjög mikilvægan áfanga í átt til þess að fækka bankaeiningum og auka hag- kvæmni í bankakerfinu. Það er þannig Ijóst að nú munu nást stórir áfangar með stofhun Is- landsbanka og samstarfi Lands- banka/Samvinnubanka til þess að gera íslenska bankakerfið hagkvæmara og betra til þess að þjóna íslenskum atvinnuvegum og almenningi,“ sagði Jón Sig- urðsson, viðskiptaráðherra, að- spurður um álit sitt á kaupum Landsbankans á hlut Sambands- ins íSamvinnubankanum. Hann sagði að hann hefði ekki ennþá séð greinargerð Sambands- ins vegna ákvörðunar um kaupin, þannig að þar kynnu að koma fram atriði sem honum væru ekki kunn. Hann sagði að komið hefði fram á Alþingi beiðni um skýrslu um þessi áformuðu kaup og að sjálfsögðu yrði slík skýrsla gefin jafnfljótt og kostur væri þegar þing væri saman- komið. Jón sagði að hér væri um að ræða kaup Landsbankans á hlut Sambandsins í Samvinnubankan- um, en ekki ákvörðun um samruna bankana eða yfirtöku. Það þyrfti því ekki að koma til samþykkis eða synjunar viðskiptaráðuneytisins við slíkri beiðni. Málið væri í talsvert öðrum farvegi en í september þegar það hefði hafist. Verðið væri lægra en þá var rætt um og eingöngu væri í þessum áfanga verið að ræða um kaup á liðlega helmingshlut í Samvinnubankanum. Vaflaust gæfu kaupin tækifæri til náins sam- starfs og hagræðis í rekstri beggja stofnananna ekki síst vegna þess að í nýsettum lögum til að heimila sameiningu bankana fjögurra sem mynduðu Islandsbanka, væru ákvæði sem gerðu það einnig kleift að fullnýta til atkvæða hlutafjár- eign bankastofnunar í öðrum banka. Vilhjálmur Jónsson: Samnings- staða minni hluthafa sterk VILHJÁLMUR Jónsson forstjóri Olíufélagsins hf segir sarnnings- stöðu minni hluthafa í Samvinnu- bankanum sterka og ekkert reki á eftir flestum þeirra að selja Landsbankanuin sinn hlut ef sóst verður eftir. Hann kveðst ekki vera reiðubúinn til að tjá sig um sölu Sambands íslenskra sam- vinnufélaga á hlut þess í Sam- vinnubankanum. Olíufélagið er einn af stærstu hluthöfum í bank- anum og Vilhjálmur á sæti í bankaráði Samvinnubankans. . Hann segir ekkert skylda Olíufé- lagið til að selja. Það sé ljóst að Landsbankinn hafi tekið hlutabréf Sambandsins upp í skuld. „Svo er það auðvitað dálítið merkilegt ef bankar úti í heimi hafa mikinn áhuga á því að Sambandið selji óveðsettar eignir, þær litlu eignir sem þeir eiga ennþá óveðsettar, til eins aðila upp í skuldir við hnn.“ Vilhjálmur kveðst þarna eiga við umrædd hlutabréf, að svo miklu leyti sem þau eru óveðsett. Vilhjálmur var spurður hvort hann telji að til dæmis Olíufélagið gæti fengið betri kjör en Samband- ið við að selja hlut sinn í Sam- vinnubankanum til Landsbankans. „Það er auðvitað ekki hægt að neita því, að samningsstaða litlu hluthaf- anna er sterk ef þeir taka sig sam- an nokkrir. Það eru sjálfsagt ein- hveijir sem liggur á að selja, en ég held að hjá flestum sé ekkert sem rekur á eftir að selja,“ sagði Vil- hjálmur Jónsson. Geir Magnússon: Hef engíir. upplýsing- ar fengið GEIR Magnússon bankastjóri Samvinnubankans kveðst engar upplýsingar hafa fengið varðandi sölu á hlut Sambandsins i bank- anum aðrar en þær sem hafa birst í fjölmiðlum. 4 Hann segist þó eiga von á að gegna stöðu sinni áfram. „Mér skilst að engin breyting verði hér á í bili. Að öðru leyti get ég ekkert sagt, því að þeir sem eru að selja og þeir sem eru að kaupa hafa ekkert talað við mig,“ segir Geir Magnússon. Vestmannaeyjaflug Arnarflugs: Sætanýtingin er fimmtíu prósent Dormer-flugvélin kemur til landsins 25. janúar ARNARFLUG innanlands hf. hef- ur haldið uppi áætlunarflugi til Vestmannaeyja frá 2. janúar og að sögn Jörundar Guðmundsson- ar, aðstoðarframkvæmdasljóra, hefúr flugið gengið ágætlega. „Slæmt veður hefúr komið í veg fyrir að við höfum getað flogið til Vestmannaeyja í nokkra daga það sem af er árinu," sagði Jör- undur. Jörundur sagði að áætlunarflug- ið kæmist ekki í fastar skorður fyrr en nýja Dornier-flugvélin kæmi frá V-Þýskalandi 25. janúar. „Við flug- um þijár ferðir um síðustu helgi með þéttsetnar flugvélar. Aftur á móti hefur farþegafjöldinn ekki verið mikill í miðri viku, þetta átta til tíu farþegar í ferð. Janúar og febrúar hafa ekki verið miklir ferða- mánuðir, en þetta á að fara að glæðast í mars. Flestir farþegar til Vestmannaeyja eru yfir sumarið. Við ætlum okkur ekki stærri bita en við ráðum við. Farþeganýtingin hefur verið fimmtíu prósent það sem af er árinu, en við þurfum sextíu prósent nýtingu til þess að gott geti talist,“ sagði Jörundur Guðmundsson. Arnarflug notar Twin Otter- flugvélar í Vestmannaeyjaflugið. Stolinn bíU eyðiiagður LÖGREGLAN í Reykjavík leitar vitna í sambandi við stuld og skemmdir á hvítum Skoda. Bílnum var stolið frá Snorrabraut 69 aðfaranótt nýarsdags, 1. janúar. Hann fannst fimmtudaginn 4. jan- úar við Barmahlíð 1, mikið skemmdur að framan og er talinn ónýtur. Telur lögreglan að honum hafi verið ekið á ljósastaur og er tjónið mjög tilfinnanlegt fyrir eig-** andann. Þeir sem gætu gefið upp- lýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við slysarann- sóknadeild lögreglunnar í Reykjavík. ■ FÉLAG íslenskra fræða held- ur fund í Skólabæ á homi Suður- götu og Kirkjugarðsstígs, í kvöld, miðvikudaginn 10. janúar, kl. 20.30. Guðmundur Andri Thors- son, bókmenntafræðingur, spjallar á þessum fundi um jólabækur nýaf- staðinnar vertíðar. Gagnrýnendur og höfundar eru hvattir til að mæta og taka þátt í umræðum. Þetta er fjórði Skólabæjarfundurinn sem haldinn er á vegum félagsins á þess- um vetri. Næsti fundur verður eftir tvær vikur, og þá mun Halldór Guðmundsson, bókmenntafræðing- ur, gera nokkra grein fyrir sögum Halldórs Stefánssonar. • Skrifstofutækninám Betra verð - einn um tölvu Tölvuskóli íslands S: 67 14 66

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.