Morgunblaðið - 17.01.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 17.01.1990, Blaðsíða 1
48 SIÐUR B 13.tbl. 78. árg. MIÐVIKUDAGUR 17. JANÚAR 1990 Prentsmiðja Morgunblaðsins Genscher í Rúmeníu: Heitir þýska minni- hlutanum landvist Bukarest. Reuter. HANS-Dietrich Genscher, utanríkisráðherra Vestur-Þýskalands, kom til Rúmeníu í gær og ræddi m.a. við fólk úr þýska þjóðabrotinu í landinu. „I öllum bænum, hjálpaðu okkur að komast á brott!“ hrópuðu sumir. Ráðherrann hét því að þeir sem þess óskuðu gætu fengið að setjast að í V-Þýskalandi. Nicu, yngsti sonur Ceausescu-hjónanna, verð- ur dreginn fyrir rétt í þessari viku ásamt systur sinni og bróður og nokkrum nánum samstarfsmönnum Ríkissaksóknari Rúmeníu, Gheorghe Robu, skýrði frá þessu á mánudag en vildi ekki tiltaka þær ákærur sem lagðar yrðu fram gegn Nicu. Hann var f lokksleiðtogi komm- únista í borginni Sibiu og annálað fúlmenni. Að sögn breska útvarps- ins, BBC, hefur gengið erfiðlega að yfirheyra hann m.a. sökum þess að Grænland: Veiða hrefiiu hjónanna illræmdu. hann er tæpast læs og skrifandi. Hans-Dietrich Genscher sagði stjórn sína ekki myndu neita Rúmen- um af þýskum ættum um dvalarleyfi en heldur ekki hvetja þá til að flytj- ast úr landi. Kvað hann fulltrúa þýska minnihlutans hafa tjáð sér að 60 til 80 prósent þeirra, um 120.000 til 180.000 manns, vildu flytjast til V-Þýskalands. Genscher lýsti yfir stuðningi við hina nýju valdhafa landsins en lagði áherslu á að skil- yrði stórfelldrar efnahagsaðstoðar yrði að kjör þýska minnihlutans í landinu bötnuðu. Reuter Armenskar konur á fjölmennum mótmælafundi fyrir utan aðalstöðvar kommúnistaflokksins í Moskvu í gær. Fólkið heimtaði að yfirvöld kæmu í veg fyrir frekari fjöldamorð á Armenum í Azerbajdzhan. umfram kvóta Sovésku Kákasuslöndin: Mannfall vex í blóðugfum átökum Azera og Armena Moskvustj órnin segist hafa sent 11.000 manna herlið á vettvang Moskvu, Genf, Washington, Nikósíu. Reuter og dpa. Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun, frétta- ritara Morgunblaðsins. KOMIÐ hefúr í ljós að Grænlend- ingar hafa ekki staðið við skuld- bindingar sínar gagnvart Alþjóða- hvalveiðiráðinu (IWC) varðandi hrefhuveiðar. Hefúr einnig sann- ast að Grænlendingar veiða hnúfú- bak og sandreyði sem eru friðaðar hvalategundir. Kaj Egede, sem sæti á í græn- lensku heimastjórninni, sagði í sam- tali við grænlenska útvarpið í gær, að eftirlit með hrefnuveiðunum væri í molum og sömuleiðis það kerfi sem viðhaft hefði verið við veitingu veiði- leyfa. Byggðist það á því að sveitar- stjórnir skiluðu veiðiskýrslum til heimastjórnarinnar í Nuuk en marg- ar þeirra hefðu brugðist þeirri skyldu. í framtíðinni mun kvóta verða úthlutað til einstakra veiðimanna en ekki veittur einn heildarkvóti til byggðarlaga, eins og verið hefur. SOVESKIR embættismenn telja að alls hafí 56 manns fallið og 156 særst í átökum Armena og Azera undanfarna daga en stjórnarmál- gagnið Ízvcstíja sagði í gær að milli 80 og 100 manns hefðu týnt lífi. Að sögn stjórnvalda í gær- kvöldi hafa verið sendir sex þús- und vopnaðir liðsmenn öryggis- lögreglunnar, KGB, auk fímm þús- und manna úr landhernum til átakasvæðanna. Að sögn TASS- fréttastofúnnar sovésku minnir hið umdeilda hérað Nagorno- Karabak, þar sem fyrir voru um 5.000 KGB-hermenn, í Azerbajdz- han á fremstu víglínu í stórstyrj- öld. Gennadíj Gerasímov, talsmað- ur sovéska utanríkisráðuneytisins, viðurkenndi aðspurður í gær að í sovésku Kákasuslöndunum rikti „næstum því“ borgarastyrjöld. „Við höfum ekki enn fengið fleiri hermenn, þeir eru allt of fáir og við myndum með ánægju taka á móti liðsmönnum landhersins, reyndar hvaða hjálp sem bærist," sagði full- trúi nefndar Moskvustjórnarinnar sem stjórnar Nagorno-Karabak. TASS lýsti í gær ástandinu þar og í nokkrum öðrum héruðum þar sem lýst hefur verið yfir neyðarástandi. „Skotgrafir hafa verið grafnar í þorpunum, vegatálmar settir upp á þjóðvegum og sjálfskipaðar öryggis- sveitir borgaranna halda uppi eftir- liti.“ Stór hópur vopnaðra hermdar- verkamanna hafði safnast saman við þorpið Ajkent. Þeir réðu, að sögn fréttastofunnar, yfir vélbyssum, sprengjuvörpum og öðrum þungum vopnabúnaði og skotið var á her- þyrlur með loftvarnabyssum. Frétta- maður TASS sagði frá klesstu málmbraki við vegarkant; þar hefði stolnum brynvagni verið ekið yfir smábíl með fjórum hermönnum inn- anborðs. Málgagn Sovétstjórnarinnar, íz- vestíja, sagði ræningjaflokka Azera í höfuðborg Azerbajdzhans, Bakú, hafa rænt og ruplað á um 1.000 heimilum Armena sem bjuggu í borg- inni. Flestir þeirra 200 þúsund Arm- ena sem bjuggu í Bakú hafa verið fluttir á brott. Mikil spenna ríkir í borginni en ekki virðist hafa verið lýst yf ir útgöngubanni eins og Sovét- stjórnin hafði fyrirskipað. Nær 30 Armenar eru taldir hafa fallið í borg- inni um síðustu helgi. Sovéskir embættismenn segja að ráðist hafi verið á skotfærageymslur víða um Armeníu. Moskvuútvarpið hélt því fram að armenskir embættis- 'menn hefðu verið handteknir er þeir reyndu að smygla vopnum, þ. á m. hlaupsöguðum haglabyssum og sprengiefnum, til kristinna þjóð- bræðra sinna í Nagorno-Karabak. Sovéskir hermenn segja að þeir liggi undir árásum beggja stríðsaðila. Alkirkjuráðið sendi frá sér yfirlýs- ingu á mánudag þar sem lýst var samstöðu með Armenúm. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi var hvattur til að vernda þá fyrir árásum Azera. Gögn úr leyniþjónustu A-Þýskalands hverfa: Hvað verður um njósnara erlendis? Austur-Berlín. Reuter og dpa. „FÓLKIÐ framdi skemmdar- verk á pjósnadeildinni og sum- ar skýrslur vantar," sagði Walt- er Reinke, sem á sæti í eftirlits- nefnd með austur-þýsku örygg- islögreglunni (Stasi), við er- lenda fréttamenn í gær þegar þeim voru sýnd verksummerki eftir árás fjölda fólks inn í höf- uðstöðvar Stasi. Reinke sagði að það hefði verið fyrsta verk manna i gærmorgun að tryggja að hægt væri að halda njósna- deildinni starfandi „því líf fólks væri í hættu“. Vestrænir sérfræðingar telja að Austur-Þjóðverjar hafi þúsundir njósnara á sínum snærum erlend- is, einkum í Vestur-Þýskalandi. Reinke, sem er í nefnd almennra borgara sem sér um að leysa Stasi upp, upplýsti í gær að njósnadeild- in væri enn starfrækt enda ekki annað hægt. Menn óttuðust nú að upplýsingar um dulargervi njósnara á erlendri grund hefðu komist í hendur þeirra sem brut- ust inn í höfuðstöðvarnar við Nor- mannenstrasse í Austur-Berlín á mánudagskvöld. Þrátt fyrir umbæturnar í Aust- ur-Þýskalandi er ekkert lát á flóttamannastraumnum til Vest- ur-Þýskalands. Talið er að um 3.000 manns hafi flust vestur á dag frá áramótum. Skýringanna er leitað í óánægju með hversu vel kommúnistum hefur gengið að treysta sig í sessi eftir fyrstu áföllin síðastliðið haust. Einnig veldur stjórnarandstaðan von- brigðum vegna stefnuleysis og klofnings. Vestur-þýska ríkis- stjórnin tilkynnti í gær að skipuð hefði verið nefnd til að kanna með hvaða hætti mætti draga úr flóttamannastraumnum og er einkum rætt um að skerða rétt- indi Austur-Þjóðveija til margvís- legrar félagslegrar þjónustu í Vestur-Þýskalandi. Reuter Fyrsta óháða dagblaðið í A-Þýskalandi, Thiiringer Allgemeine, hóf göngu sína í gær.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.