Morgunblaðið - 21.01.1990, Blaðsíða 1
96 SIÐUR B/C
17. tbl. 77. árg.
Fóstur verði
borin til grafar
Stokkhólmi. Reuter.
YFIRVÖLD félagsmála í Sviþjóð hafa
lagt til að lögum um fóstureyðingar verði
breytt á þann veg að 12 vikna fóstur og
eldri verði borin til grafar eftir að þeim
hefur verið eytt, æski foreldrarnir þess.
Tálsmaður Félagsmálaráðs Svíþjóðar
sagði að tillaga þessi væri borin fram
vegna þess að algengt væri að konur sem
gengjust undir fóstureyðingu kæmu
síðar á viðkomandi sjúkrahús og vildu
vita hvað gert hefði verið við fóstrið sem
fjarlægt hefði verið. Sagði talsmaðurinn
að þau mál væru víða i ólestri á sænskum
sjúkrahúsum. Lagt væri til að fóstur
yrðu brennd og borin til grafar í ómerkt-
um gröfurn en ekki væri gert ráð fyrir
því að trúarlegar athafnir færu fram.
N oregskonung-
ur með lesblindu
Ósló. Frá Runc Timberlid, fréttaritara Morgunblaðs-
ins.
ÓLAFUR Noregskon-
ungur skýrir frá því í
viðtalsbók, sem gefin
verður út bráðlega í
Bretlandi, að hann sé
haldinn lesblindu. Leik-
konan Susan Hamps-
hire, sem einnig er les-
blind, ritaði bókina og
heitir hún „Every Lett-
er Counts“ (Hvert orð skiptir máli). Les-
blinda er arfgeng og fram kemur i bók-
inni að hún hafi hrjáð margar konunga-
ættir Evrópu.
Eldflaugum
breytt í penna
Moskvu. Daily Telegraph.
I RÁÐI er að breyta
sovéskum kjarnorku-
eldflaugum í penna og
verja ágóðanum af sölu
þeirra til mannúðar-
mála. Leonard Ches-
fire, sem þekktur er í Bretlandi fyrir
störf sín í þágu fyrrverandi hermanna,
sagði í Moskvu á þriðjudag að Sovétmenn
hefðu boðið sér málm úr skammdrægum
kjarnorkueldflaugum, sem eyðilagðar
voru nýlega samkvæmt afvopnunar-
samningi stórveldanna. Málmurinn yrði
notaður til að framleiða 100.000 penna.
Ágóðinn af sölu pennanna rynni í sjóð,
sem hann hefúr stofnað til minningar
um þá sem týndu lífi í báðum heimsstyrj-
öldunum. Chesfire kvaðst vona að 500
milljónir punda, um 50 milljarðar ísl.
kr., fengjust fyrir pennana.
SUNNUDAGUR 21. JANÚAR 1990 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Uppreisnin í Azerbajdzhan:
Morgunblaðið/Sverrir
Ráðhúsið undir þak
Framkvæmdir við Ráðhúsið í Reykjavík ganga ve! og nú í vikunni var verið að koma fyrir sperrum í þaki. Áætlað er, að ytra
frágangi verði lokið að mestu í vor en fullbúið verður húsið á næsta ári.
Tugir eða hundruð manna
féllu í árás hersins á Bakú
Azerska sjálfstjórnarhéraðið Nakítsjevan lýsir yfir úrsögn úr Sovétríkjunum
Moskvu. Reuter, dpa.
SOVÉSKIR hermenn hafa náð miðborg Bakú, höfúðborg Azerbajdzhans, á sitt vald
eftir harða bardaga við vopnaðar sveitir azerskra uppreisnarmanna. Var ráðist gegn
götuvígjunum á skriðdrekum og hermennirnir, sem fylgdu í kjölfarið, skutu fyrst upp
í loftið en síðan á fólk, sem reyndi að hindra för þeirra. Sovéska innanríkisráðuneyt-
ið segir, að 50 manns hafi fallið, hermenn og óbreyttir borgarar, en talsmaður Þjóð-
fylkingarinnar í Azerbajdzhan segir, að 120 að minnsta kosti hafi týnt lífi. Hefúr
Þjóðfylkingin hvatt til þriggja daga allsherjarverkfalls. Sovéski herinn lét til skarar
skríða eftir að Sovétstjórnin hafði gefið út tilkynningu, sem Mikhail Gorbatsjov for-
seti undirritaði, um neyðarástand í Bakú.
Þeir ruddust gegnum götuvígin á skrið-
drekum," sagði Mahmoud Kesam-
anly, einn af frammámönnum Azersku þjóð-
fylkingarinnar, þegar fréttamanni Reuters
tókst að ná símasambandi við hann í Bakú,
og Rasoul Gusenli, sem sæti á í Þjóðvarnar-
ráðinu, sagði, að mikil skothríð hefði verið í
borginni og margir fallnir og særðir. Tals-
maður Þjóðfylkingarinnar sagði, að hermenn-
irnir hefðu skotið á fólk á bak við götuvígin
að fyrra bragði og ekki sinnt áskorunum
Azera um samningaviðræður. „Miðborg Bakú
er nú á valdi hersins, yfirfull af skriðdrekum,
brynvörðum bifreiðum og hermönnum,“ sagði
hann.
TASS-fréttastofan sovéska og útvarpið í
Bakú, -sem nú er í höndum hersins, sögðu,
að margir hefðu fallið þegar hermennirnir
hefðu neyðst til að svara árásum „þjóðernis-
sinnaðra glæpa- og öfgamanna", sem hefðu
gert uppreisn gegn lögmætum yfirvöldum
og tekið í sínar hendur yfirráðin í mestum
hluta Azerbajdzhan. í tilkynningu sovéska
innanríkisráðuneytisins sagði, að 50 manns
hefðu fallið en talsmaður Þjóðfylkingarinnar
í Azerbajdzhan sagði, að vitað væri um 120
manns látna og væri mannfallið vafalaust
miklu meira. Sagði hann, að Þjóðfylkingin
hefði lýst yfir þriggja daga þjóðarsorg og
hvatt til allsheijarverkfalls í landinu á sama
tíma.
Talsmaður Þjóðfylkingarinnar í Moskvu,
Fikret Sadychly, sagði í gær í viðtali við
vestur-þýsku fréttastofuna dpa, að þingið í
Nakítsjevan, sem er sjálfstjórnarhérað í Az-
erbajdzhan en umlukt armensku og írönsku
landi, hefði í fyrrinótt lýst formlega yfir úr-
sögn úr Sovétríkjunum. Iranska fréttastofan
IRNA greindi einnig frá þessu.
SKATINN
GERIR
SKURK
Athafnamaöurijin
Haraldur Haraldsson
10
IIYAI) \ KARMI)
SÍÐASTA
VIRKIÐ
Utlagakonungur
Albaníu hvetur
til uppreisnar
gegn stalínistum
18