Morgunblaðið - 27.01.1990, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.01.1990, Blaðsíða 1
64 SIÐUR B/LESBOK 22. tbl. 78. árg.__________________________________LAUGARDAGUR 27. JANÚAR 1990___________________________ Prentsmiðja Morgunblaðsins Reuter Boeing-þotan brotnaði í þrennt er hún hrapaði í aðflugi aðfaranótt föstudags skammt frá- Kennedy-flugvelli í New York og sýnir myndin hluta flaks flugvélarinnar þar sem það lenti í skóglendi nærri ibúðarhúsi. Á innfelldu mynd- inni eru björgunarmenn að störfum í bol kólombísku þotunnar. Talið er að skjót við- brögð þeirra hafi bjargað fjölda mannslífa en rúmlega 80 manns slösuðust, margir alvarlega. 67 manns farast í flugslysi í New York: Orsökin talin vélarbilun eða eldsneytisskortur New York. Reuter. Eldsneytisskortur eða vélar- bilun er talið hafa valdið flug- slysinu í New York aðfaranótt föstudags en þá fórst Boeing 707-þota frá kólombíska flugfé- laginu Avianca og með henni 67 manns. Meira en 80 slösuðust og marg- ir mjög alvarlega en alls voru 158 manns um borð, farþegar og áhöfn. Vélin kom niður í skóglendi á Long Island, skammt frá Kennedy-flugvelli, og brotnaði í þrennt. Meira en 1.000 björgunar- menn komu strax á vettvang og er það talið hafa bjargað lífi margra hve viðbrögðin voru skjót og fumlaus. Sjá fréttir á bls. 2 og 20. Markmiðið að upp- ræta Þj óðfylkingnna - segir Dmítrí Jazov, varnarmála- ráðherra Sovétríkjanna Moskvu, Reuter, dpa, The Daily Telegraph. DMÍTRI Jazov, varnarmálaráðherra Sovétríkjanna, sagði í viðtali sem birtist í gær i Ízvestíja, málgagni Sovétstjórnarinnar, að ráða- menn í Kreml hefðu ákveðið að uppræta Þjóðfylkinguna, hreyfingu þjóðernissinna í Azerbajdzhan. Sökum þessa hefði verið ákveðið að senda stjórnarherinn og sveitir öryggislögreglu inn í lýðveldið. Umbótasinnaðir þingmenn í Moskvu hafa hvatt til þess að hafiiar verði samningaviðræður við leiðtoga þjóðernissinna í Azerbajdzhan. Jazov lýsti yfir því á fundi með fréttamönnum í Bakú, höfuðborg Azerbajdzhan, að allt skipulag Þjóðfylkingarinnar miðaði að því að grafa undan Kommúnistaflokki Sovétríkjanna. Þjóðernissinnar hefðu þá þegar ákveðið að taka öll völd í lýðveldinu í sínar hendur. Verkefni heraf lans, sem sendur var til Kákasuslandanna síðasta laugar- dag, væri ekki það að handtaka alla liðsmenn fylkingarinnar heldur væri markmiðið það að uppræta hreyfinguna með öllu. Fram til þessa hafa talsmenn Sovétstjórnar- innar sagt að hermenn hafi verið kallaðir út til að stilla til friðar með Armenum og Azerum. Þá eru þessi ummæli einnig í ósamræmi við yfir- lýsingu Vadíms Bakatíns innanrík- isráðherra sem hvatti yfirmenn lög- reglu fýrr í vikunni til að leita eftir samstarfi við „uppbyggileg öf 1“ innan Þjóðfylkingarinnar. Umbótasinnar á þinginu í Moskvu kröfðust þess í gær að ástandið í Kákasuslöndunum yrði tekið til umræðu. Sögðu þeir um- bótastefnu Míkhaíls S. Gorbatsjovs Sovétleiðtoga í hættu ef skálmöld- inni linnti ekki. Talsmaður samtaka umbótasinna sagði á blaðamanna- fundi að þeim hefði tekist að sann- færa Anatolíj Lukíjanov, varafor- seta Sovétríkjanna, um réttmæti þess að hafnar yrðu viðræður við forystumenn þjóðernissinna í Az- erbajdzhan. Þessa yfirlýsingu hafa stjórnvöld ekki staðfest. Hins vegar skýrði sovéska fréttastofan TASS frá því í gærkvöldi að friðarviðræð- ur milli leiðtoga þjóðernissinna í Armeníu og Azerbajdzhan myndu hefjast í dag, laugardag. Skilyrði austur-þýskra andstöðuhópa fyrir þátttöku í ríkisstjórn: Allir ráðherrar kommún- ista segi skilið við flokkinn Austur-Berlín. Reuter, dpa. ANDSTÆÐINGAR kommúnista í Austur-Þýskalandi samþykktu í g-ær að ganga til samstarfs við þá til að koma í veg fyrir allsherjar upplausn í landinu og tryggja að fijálsar kosningar fari fram þann 6. maí nk. Fyrr um daginn höfðu leiðtogar Bændaflokksins hótað að slíta stjórnar- samstarfinu og krefjast kosninga tafarlaust tækju stjórnarandstæðing- ar ekki sæti í ríkisstjórn Hans Modrows forsætisráðherra. Á flmmtu- dag sagði flokkur kristilegra demókrata skilið við stjórnina. stjórnarandstöðunnar verður það í fyrsta skipti í sögu A-Þýskalands sem landið lýtur ekki stjórn komm- únistá. Japanskir heimilisfeður í sálarháska Tókíó. dpa. JAPANSKIR geðlæknar og sál- fræðingar segja að þess verði vart í vaxandi mæli að japanskir eiginmenn kvíði því að halda heim á leið að afloknum vinnu- degi. Fælni þessa nefna japanskir sér- fræðingar „kitaku-kyofu“ og lýsir hún sér í sjúklegri hræðslu við heim- ilið. Sagt er að japanskir eiginmenn eigi í erfiðleikum með að nálgast fjölskyldu sína er þeir koma heim úr vinnu auk þess sem staða þeirra inni á heimilinu hafi breyst á und- anförnum árum. Áður fyrr hafi þeir verið húsbændur á heimilum sínum og æðsta yfirvald fjölskyld- unnar en þjóðfélagsbreytingar og mikið vinnuálag hafi grafið undan stöðu þeirra. Sérfræðingar segja að allir eigi þessir menn það sam- eiginlegt að vera hreint ótrúlega alvörugefnir, þeir eigi sér engin áhugamál, hafi engan áhuga á samtímaviðburðum auk þess sem þeim sé öldungis fyrirmunað að njóta lífsins. Stjórnarandstæðingar ákváðu að ganga til samstarfs við kommúnista eftir löng og ströng fundahöld. Modrow hvatti þá til að mynda „neyðarstjórn" á mánudag er hrun stjórnar hans blasti við. Talsmaður stjórnarandstöðunnar, en til hennar heyra 12 flokkar og samtök, sagði að gerð yrði krafa um a.m.k. fimm mikilvæg ráðherraembætti og nefndi sem dæmi ráðuneyti innanríkismála, dómsmála, félagsmála, atvinnumála og utanríkismála. Hann lagði jafn- framt áherslu á að stjórnin myndi aðeins sitja fram til kosninganna í maímánuði. Talsmaðurinn tók fram að sett yrði það skilyrði að ráðherrar bráða- birgðastjórnarinnar væru óflokks- bundnir og þannig yrði þess krafist að Modrow og aðrir ráðherrar segðu sig úr kommúnistaflokknum. Þá væri gert ráð fyrir því að þátttakend- ur í hringborðsumræðum stjórnar og stjórnarandstöðu tilnefndu ráð- herranna. Modrow sagði í Vínarborg í gær að hann teldi sig fyrst og fremst hafa skyldur gagnvart aust- ur-þýsku þjóðinni og kvað ótíma- bært að ræða hvort hann segði skil- ið við f lokk austur-þýskra kommún- ista. Gangi Modrow að kröfum í höfuðstöðvum Stasi Berlín. Frá Birni Bjarnasyni, bladamanni Morgunblaðsins. VIÐ innganginn í fyrrum höfuðstöðvar öi’yggislögreglunnar, Stasi, í Austur-Berlín sitja nú tveir fulltrúar borgaranefndar sem hefur húsaþyrpinguna undir sljórn sinni með aðstoð almennrar lögreglu. Þegar blaðamaður Morgunblaðsins kom þangað í gær þurfti leyfi þessara fiilltríia til að liann fengi að fara inn í bygginguna í von um að geta skoðað, að minnsta kosti hluta hennar. Marga daga þyrfti til að fara um húsakynnin öll því þarna störfuðu um 20.000 manns. Vingjarnlegur lögregluþjónn spurði hvort ætlunin væri að hitta einhvern sérstakan. Sett var fram ósk um að fá að skoða hluta hús- anna og helst íslensku deildina eða skjalasafnið! Nokkur stund leið þar til svarið kom: því miður væru all- ir á fundi sem gætu sinnt slíku erindi. Ef til vill hefðu þeir tíma í næstu viku. Fyrir utan húsið var maður sem, gekk þaðan út með tvo plastpoka, tekinn tali. Hann sagðist aðeins hafa átt erindi í húsið til að ná í persónulegar eigur. Hann hefði verið skrifstofumaður hjá Stasi en væri nú atvinnulaus. Rætt var við mann sem verið hafði við gæslustörfstörf á vegum borgaranefndarinnar. Sagði hann að allur hlerunarbúnaður hefði verið tekinn i sundur og að ákveð- ið hefði verið að breyta bækistöðv- unum í Sjúkrahús. Rauði herinn í Azerbajdzhan:

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.