Morgunblaðið - 26.04.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 26.04.1990, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 1990 Kögun verður almenningshluta- félag eftir 1995 KÖGUN hf., sem hafa mun veg og vanda af þróun og viðhaldi á Is- lenska loftvarnakerfinu, IADS, er hlutafélag í eigu Þróunarfélags ís- lands og 38 íslenskra hugbúnaðarfyrirtækja. Skýrt var frá því í Morgun- blaðinu í gær að gert er ráð fyrir að tölvukerfið, sem tekur við upplýs- ingum á íslenska flugstjórnarsvæðinu frá fjölmörgum heimildum, kom- ist í gagnið 1994. Þróunarfélagið er langstærsti hluthafinn í Kögun með yfir 70% hlutafjár. Hlutafé er 20 milljónir króna. Að sögn Gunnlaugs Sigmunds- sonar, stjórnarformanns Kögunar, er forsagan sú að stjómvöld ákváðu á sínum tíma að Kögun hf. sæti eitt að þróun og viðhaldi á hugbún- aðarkerfinu að uppfylltum vissum skilyrðum og að íslenskum hugbún- aðarfýrirtækjum yrði boðin aðild að fyrirtækinu. „Þróunarfélagið tók að sér að ábyrgjast að lágmarks- hlutafjár yrði aflað. Síðan er samn- ingur í gildi milli Þróunarfélagsins og utanríkisráðuneytisins um hvemig beri að gera Kögun að al- menningshlutafélagi í áföngum, þó þannig að fyrirtækið ábyrgist að það verði hæft til að taka við þróun og viðhaldi íslenska loftvarnakerf- isins á árunum 1994-1995. Þegar því er náð er sú kvöð í samningnum að við seljum öll hlutabréf fyrirtæk- isins á almennum hlutabréfamark- aði. Jafnframt er okkur skylt að reyna að tryggja að mikil dreifing verði á sölu hlutabréfanna,“ sagði Gunnlaugur. Þróunarfélaginu, sem er stærsti hluthafí í Kögun, er samkvæmt þessum samningi heimilt að selja allt að 49% hlutafjár Kögunar fram til ársins 1995 en hefur jafnframt skuldbundið sig gagnvart utanríkis- ráðuneytinu að selja ekki meirihluta fyrir þann tíma. Gunnlaugur sagði að enn hefðu hlutabréf ekki verið seld í fyrirtæk- Ratsjárstöðin á Gunnólfsvíkur- fjalli inu frá stofnun þess en hins vegar hefði fjöldi fyrirtækja og einstakl- inga skrifað sig á lista og lýst yfír áhuga á því að kaupa hlut í fyrir- tækinu þegar sala á hlutabréfum hæfist. „Við höfum ekki hafíð sölu á bréfunum vegna þess að fyrirtækið hefur tæpast hafíð starfsemi ennþá og höfuðstóll þess hingað til ein- göngu verið kostnaður,“ sagði Gunnlaugur. Hann kvaðst þó eiga von á því að sala á hlutabréfum myndi heíjast á þessu ári. VEÐUR Heimild: Veðurstofa Islands (Byggt á veðurspá kl. 16.15 i gær) /' DAG kl. 12.00: VEÐURHORFUR í DAG, 26. APRÍL YFIRLIT í GÆR: Yfir Langanesi er 966 mb lægð sem þokast norð- vestur og síðar norðnorðaustur, en 1.025 mb hæð yfir Norðvestur- Grænlandi. SPÁ: Smám saman dregur úr norðvestanáhlaupinu, hvass vindur um norðaustanvert landið fram á kvöld, jafnvel stormur. Norðan- lands, a.m.k. á annesjum, talsverður éljagangur fram eftir degi. Vestanlands léttir til fyrir hádegi og síðdegis lægir. Undir kvöld verður komið besta veður. Á Suður- og Suðausturlandi léttskýjað en talsverður strekkingur fram eftir degi. Kalt áfram og búast má við talsverðu næturfrosti. Á föstudag tekur að hlýna. VEÐURHORFUR NÆSTfJ DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG: Vaxandi suðlæg átt og hlýnandi veður. Snjókoma og síðar slydda eða rigning um sunnan- og vestanvert landið. Þykknar upp norðaustanlands en úrkomulítiðfram eftir degi. HORFUR Á LAUGARDAG: Suðlæg eða suðvestlæg átt og hlýtt í veðri, einkum austantil á landinu. Rigning sunnanlands og vestan en þurrt að mestu norðaustanlands. 10° Hitastig: 10 gráður á Celsíus ý Skúrir * V El = Þoka = Þokumóða ’, ’ Súki oo Mistur —j- Skafrenningur Þrumuveður TAKN: -/4 Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað x Norðan, 4 vindstig: " Vindörin sýnir vind- stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. r r r r r r r Rigning r r r * r * r * r * Slydda r * r * # * * * * * Snjókoma * * * VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12:00 í gær að ísl. tíma hiti veður Akureyri 0 úrk. í grennd Reykjavik 0 úrk.fgrennd Björgvin 14 skýjað Helsinki 16 léttskýjað Kaupmannahöfn 18 skýjað Narssarssuaq +12 léttskýjað Nuuk vantar Ósló 17 léttskýjað Stokkhólmur 17 léttskýjað Þórshöfn 5 rigning Algarve 19 léttskýjað Amsterdam 18 léttskýjað Barceiona 16 hálfskýjað Berlfn 12 skúrásíð.klst. Chicago 19 skýjað Feneyjar 14 þokumóða Frankfurt 12 skýjað Glasgow 11 skýjað Hamborg 16 hálfskýjað Las Palmas 20 skýjað Lundúnir 19 léttskýjað Los Angeles 13 léttskýjað Lúxemborg 11 skýjað Madríd 15 skýjað Malaga 18 mistur Mallorca 19 skýjað Montreal 11 skúr New York 11 alskýjað Orlando 19 iéttskýjað París 15 léttskýjað Róm 17 léttskýjað Vín 14 skýjað Washington 13 mistur Winnipeg 8 þokumóða Þrír togarar á út- hafskarfaveiðum TOGARAR Sjólastöðvarinnar hf. í Hafiiarfirði, Sjóli HF og Haraldur Kristjánsson HF, eru nú á úthafskarfaveiðum 250-260 mílur út af Reykjanesi og togarinn Ýmir HF, sem er í eigu Stálskipa hf. í Hafnar- firði, er einnig farinn á úthafskarfaveiðar, að sögn Helga Kristjáns- sonar útgerðarstjóra Sjólastöðvarinnar hf. Helgi sagði að rannsókna- skipið Bjarni Sæmundsson væri einnig á úthafskarfamiðunum og einn maður frá Hafrannsóknastofhun væri um borð í Sjóla HF. Helgi Kristjánsson sagði að leið- indaveður hefði verið á úthafskarfa- miðunum undanfarið. Hins vegar hefði verið búið að frysta 17-18 tonn af úthafskarfa um borð í Sjóla HF á þriðjudag en eitthvað minna um borð í Haraldi Kristjánssyni HF. Hann sagði að tveir rússneskir tog- arar og einn norskur togari hefðu verið á úthafskarfaveiðum út af Reykjanesi að undanförnu en Austur-Þjóðverjar og Búlgarar hefðu einnig stundað þessar veiðar. Helgi sagði að aflaverðmæti Haraldar Kristjánssonar HF hefði verið um 53 milljónir króna í síðustu veiðiferð, þannig að hásetahlutur- inn hefði verið um 550 þúsund krón- ur. Togarinn var 25 daga í veiði- ferðinni og kom úr henni 14. apríl. í þessari veiðiferð fékk skipið sam- tals 572 tonn upp úr sjó, þar af 198 tonn af ufsa, 189 tonn af þorski, 135 tonn af karfa og 47 tonn af ýsu. Karfinn er seldur til Japans, ufsinn til Vestur-Þýskalands en þorskurinn og ýsan til Bretlands, að sögn Helga Kristjánssonar. Stöð 2: Tilboðið í hlutabréf- in stendur ekki lengur -segir Gunnsteinn Skúlason TILBOÐ þriggja aðUa í hlutabréf Eignarhaldsfélags Verslunar- bankans í Stöð 2, stendur ekki áfram og verður ekki endurnýj- að, að sögn tilboðsgjafa. Meirihluti stjórnar Eignarhalds- félagsins hafnaði kauptilboðinu á þriðjudag, en Orri Vigfússon, einn stjómarmanna, sagði að til greina kæmi að skoða tilboðið aftur, eftir aðalfund félagsins sem verður á laugardag. Gunnsteinn Skúlason, einn þeirra sem að tilboðinu stóð, sagði við Morgunblaðið í gær að það yrði ekki endumýjað. Komið hefur fram að tilboðsgjaf- ar hafí ætlað, með stuðningi fyrri aðaleigenda Stöðvar 2, að opna hlutafélagið um stöðina almenn- ingi, og leita síðan eftir samningum við Sýn hf. um sjónvarpsreksturinn. Jón Ottar Ragnarsson fyrmm sjón- varpsstjóri Stöðvar 2, sagði að síðastliðið haust hefði legið fyrir samstarfssamningur milli Stöðvar 2 og Sýnar. Nýir hluthafar í Stöð 2 hefðu hins vegar ekki sinnt því máli, og það þýddi að þeir væru komnir í samkeppni, sem helming- aði verðið á hlutabréfum Stöðvar- innar. „Þessi tilraun nú var síðasta tækifærið til að bjarga hlutabréfum allra aðila, með því að ná fram sameiningu við Sýn. Það tækifæri er glatað,“ sagði Jón Óttar. A stjómarfundi Eignarhaldsfé- lags Verslunarbankans, þar sem kauptilboðinu var hafnað, létu Gísli V. Einarsson og Þorvaldur Guð- mundsson bóka að niðurstaðan hefði orðið sú að hagsmunir hlut- hafa félagsins hefðu verið fyrir borð bornir í málinu. Hannes Þ. Sigurðsson lét bóka, að teknu tilliti til forsögu málsins, og þeirra samn- inga sem Eignarhaldsfélagið hefði gert og dagsettir væm 9. janúar og 22. mars 1990, teldi hann það andstætt góðu viðskiptasiðferði og ekki þjóna hagsmunum Eignar- haldsfélagsins, að ganga að kauptil- boðinu. Islensk menningarvika í Finnlandi: Vigdís verður heið- ursdoktor í Tampere Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgunblaðsins. FORSETI íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hlýtur heiðursdoktors- nafnbót við háskólann í Tampere (Tammerfors) í Finnlandi. Athöfnin fer fram sunnudaginn 21. október nk. en um þær mundir verður forsetinn í Finnlandi sem heiðursgestur á íslenskri menningarviku í Tampere. Heimspekideild háskólans í Tampere tók ákvörðun um doktorsnafiibót Vigdísar á miðviku- daginn. Að sögn forsvarsmanna deildarinnar er sérstaklega verið að minnast starfsemi forsetans á sviði leikhús- og menning- armála. Innan deildarinnar starfar m.a. stofnun sem útskrifar háskólamenntaða leikara. Dagana 19.-24. október verður íslensk menningarvika sem nefn- ist Islandia í Tampere, sem er næst stærsta borg Finnlands. Miðdepill menningarvikunnar verður ráðstefnuhúsið „Tampere- húsið" sem verður tekið í notkun nokkrum vikum áður. Menningar- vikan er viðamesta kynningin á íslenskri menningu í Finnlandi hingað til. í för með forseta |s- lands verða samtals um 200 ís- lendingar, m.a. biskup íslands, herra Ólafur Skúlason, Svavar Gestsson, menntamálaráðherra, Sinfóníuhljómsveit íslands, Kór Langholtskirkju ásamt rithöfund- um og öðrum menningarfrömuð- um. Sinfóníuhljómsveitin fer í fyrstu tónleikaferð sína um Norð- urlönd en Tampere verður fyrsti áfangastaður hennar. Síðan verð- ur haldið til annarra borga í Finn- Tandi, Svíþjóð og Danmörku. Á menningarvikunni verður íslensk menning kynnt frá mörg- um hliðum. Auk tónleika og list- sýninga verða höfundarkynningar og málþing en einnig er ætlunin að kynna íslenska hestamennsku, matargerðarlist, kvikmyndir og ferðamál. Þá verður messa á íslensku og finnsku í dómkirkj- unni í Tampere með þátttöku þeirra Ólafs Skúlasonar og Paavo Kortekangas, biskups í Tampere.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.