Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 08.12.1990, Blaðsíða 4
4 B MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. DESEMBER 1990 4- Föng úr f ortiö nútiö „Eitt sinn um vor - það var víst vorið sem Bretinn hernam landið - höfðu mér áskotnast vatnslitir og fór strax með þá og litla teikniblokk út í hraun. Þar riðu bændur hjá á leið í smalamennsku. I kyrrðinni heyrði ég, að þeir ræddu um að þessi sonur hans Sigurðar í Uthlíð væri víst eitthvað undarlegur; einn að teikna úti í hrauni ... Strákurinn væri víst ekkert fyrir fé. Þvílík framtíð." Gísli Sigurðsson Morgunblaðið/Árni Sæberg Þessi litli drengur var Gísli Sigurðsson, sem í dag opnar sýningu á olíu- myndum á Kjaivals- stöðum. Hann teiknaði fjöllin sundur og saman - kunni utanað hvert gil og hvernig gróður- torfurnar teygðust uppeftir hlíðun- um eins og fatnaður í henglum. Til- komumestar þóttu honum Jarlhett- urnar og Langjökull í baksýn. „Mér finnst það raunar ennþá,“ segir Gísli, „og ef ég á annað borð mála lands- lag, þá er það auðnin með Jarlhet- turnar eins og skörðóttan tanngarð að baki. Einhvern veginn finnst mér áhrifameira að hafa í huga þetta sérstaka svæði, þennan ákveðna berangur, fremur en að skálda það alveg. En alla nákvæma staðfræði læt ég lönd og leið, nær lagi væri að segja að ég máli tilfinninguna sem eftir stendur. Ég hef málað eina endurminningu frá þessari grýttu slóð. Sá atburður Quo vadis? Rœtt við Gísla Sigurðsson, sem opnar sýningu á olíumálverkum á Kjarvalsstöðum í dag Fólk víll sinn söguþróð eg engar refjar HVERSDAGSHÖLLIN, í samnefndri skáldsögu Péturs Gunnarssonar, er hús sem stendur skammt frá Landakotskirkjunni, hús þar sem býr stór fjölskylda; afi, amma, foreldrar, og börn. Þar er sambýli þriggja kynslóða. Sögumaðurinn horfir aftur um þrjátíu ár, til þess tíma þeg- ar hann var að alast upp; hugrenningar kvikna um einstakar persón- ur, um leikara, kvikmyndir og ljósmyndir, og um hverfið. Pétur er vinsæll höfundur, bækur hans hafa selst mjög vel margar hverjar, og því hefur hann upp á siðkastið verið umsetinn af fjölmiðlafólki og áhugasömum einstaklingnm. Allir vilja heyra eitthvað um söguþráð- inn, en Pétur veit ekki alveg hvað hann á að segja. Fólk vill fá útdrátt,“ segir Pétur, „ og það er hálf- gert' snuðerí að endur- segja texta sem maður hefur verið að skrifa; þó auðvitað sé einhver söguþráður og andrúmsloft sem hægt er að kom- mentera á.“ Þá er best að hvíla þá endursögn í bili. Það eru liðin fimm ár frá síð- ustu skáldsögu þinni. „Já, Sagan öll kom út 1985, og Hversdagshöllin var byrjuð að fæð- ast þegar hún var á endasprettinum. Þetta efni hefur síðan verið meira og minna á skrifborðinu hjá mér síðan, en ég hef þó stundum lagt það til hliðar og sinnt öðru; gaf út greinasafn 1987, Vasabók í fyrra, sem var allt annars eðlis. Þar voru hvorki sögur eða greinar, heldur athuganir og allskonar hugleiðingar. En Hversdagshöllin var alltaf í gerj- un. Mér lætur ágætlega að vinna í tömum, það kemur ailtaf að því að maður skrifar sig upp að vegg, og þá er ráð að fjarlægjast um tíma, leggja í salt, og koma ferskur til verksins seinna.“ Þetta er fyrsta bókin eftir að flokknum um Andra lauk, var kannski erfitt að komast frá þeim söguheimi og skápa nýjan? . „Ja, yrkisefnin koma að innan og leita á. Formlega séð eru Andrabæk- urnar sagðar í þriðju persónu, en samt klofnar Sagan öll, og þar skýt- ur einnig upp fyrstu persónu frá- sögn, sem að því leyti til kann að hafa verið fyrirboði að Hversdags- höllinni.“ Og formlega byggir þú enn mikið á stuttum köflum. „Það er rétt að mínar bækur eru settar saman úr atriðum sem eru ekki mjög löng, og gefa ákveðið frelsi. Ég er hræddur við og mótfall- inn ákveðinni klisju í skáldsöguform- inu. Það er svo rosalega plægður akur, að það er hætt við að í hann séu komin djúp hjólför og jafnvel færibönd, þú segir fyrstu setninguna og hitt getur komið sjálfkrafa. Það eru ákveðnir kækir í skáldsögunni og í minni aðferð felst ákveðin við- leitni til að sneiða hjá þessum klisjum og kækjum með atriðaskiptunum. Þar get ég losað um mig og fundið nýja fleti.“ Við erum epísk þjóð Þetta býður upp á ákveðið ljóð- rænt frelsi. „Já, og það er einmitt hlutur sem ég leyfði mér algjörlega í vasabók- inni; þar eru atriðin bara nokkrar setningar. Þá bók hafði ég afspyrnu gaman af að vinna, gat leikið mér með brotin og þurfti ekki að hafa söguþráð. En annars vill lesandinn söguþráð. Við erum epísk þjóð, frá- sagnarhefðin er mjög sterk, fólk vill sinn söguþráð og engar refjar." Má þá taka það sem svo að þú hafir ekki gaman af að spinna sögu- þráð, brotin veiti meiri gleði? „Það má örugglega til sanns veg- ar færa. Að vísu er full sterkt að segja að ég hafi ekki gaman af sögu- þræði, en ég vil alls ekki að hann taki af mér völdin. Ég vil geta hægt á frásögninni, leikið mér að orðun- um, og sukkað í málinu." En þá komum við að því að þú segir ákveðna sögu í bókinni. „Já, vissulega er ákveðin saga og ákveðin framvinda. Hún snýst mikið um þetta hús og þijár kynslóðir sem búa í húsinu. Þessu persónugalleríi tengjast ýmsir þræðir sem liggja frá húsinu og að. ‘Sögumaðurinn hefur alist upp í því, og er að horfa til baka þijátíu árum seinna." Þú talaðir um epíkina og frásagn- arþörfina, en íslendingar eru líka sólgnir í ævisögur. Er þetta sjálfs- ævisaga að einhveiju leyti? „Nei. Þó ólst ég upp í svona fjöl- skylduhúsi, og það er víst ekki svo algengt. Ég hef reynslu af svona húsi sem verður kjalfesta og þunga- miðja í lífinu, en ég er alveg fijáls af þeirri reynslu í sögunni, ég bý til persónur í þéssa hversdagshöll; en set hana þó niður í hverfið sém ég ólst upp í. Sagan gerist í nágrenni við Landakotskirkju, þetta er eins- konar vem-leiku: Ákvéðið gefið ástand er tekið, ísland og allt sem því fylgir, en síðan er skáldað inn í; leikið með tilbúna atburðarás. Þetta er veruháttur allflestra skáld- sagna. Gengið er út frá ákveðnum ramma og afgangurinn er skáld- skapur.“ Vitund barnsins stendur nærri skáldskapnum Það fer ekki hjá því að tónninn virki á köflum sem nostalgískur, enda er það árátta hjá jnönnum að setja bernskuna í goðsagnalegt sam- hengi. „Eg held það megi tala um nost- algíu í bókinni að því leyti að lífið er glatað á vissan hátt. Það er þó hægt að endurheimta það í minning- unni, en því fylgir viss söknuður. Orðið nostalgía er ekki svo vitlaust í þessu samhengi, það þýðir víst orðrétt að langa aftur á tiltekinn stað, og það er einmitt lóðið með sögumanninn, hann munar aftur í bernskuna í húsinu. - segirPétur Gunnarsson um brotaform, Ijóð- rœnu ogþráð í nýrri skáldsögu sinni Barnið, og skynjun þess, er uppá- haldsyrkisefni hjá mér. Heimsmynd- ir barna og hvernig heimsmyndin verður til með þeim. Ég hef gaman af að skoða huglægar hugmyndir okkar af veruleikanum; hvernig þær verða til, þróast, og nýjar taka við.“ Mikið hefur verið talað um þessar bernskusögur ungra rithöfunda, og þær hafa jafnvel með neikvæðum formerkjum verið kallaðar stráka- sögur. En það hlýtur að vera spenn- andi að nota ómótaða vitund barns til að sýna heiminn? ' „Vitund barnsins stendur mjög nærri skáldskapnum. Hún er frum- læg, og að því leytinu til fersk. Allir hafa verið börn og kynnst börnum, og þegar við berum þær stöðnuðu heimsmyndir sem við endum í, sam- an við lifandi sýn og fijóar heims- myndir bernskunnar, er það síðar- nefnda vitanlega þakklátara yrkis- efni. Barnið upplifir kannski eina heimsmynd á dag á vissu þroska- ferli, en okkar eru gatslitnar, út- þvældar og margnota.“ Kvikmyndir koma mikið við sögu. „Það helgast af því að sögumaður- inn er bíófrík, eins og allir af þeirri kynslóð, hann elst að hluta upp í kvikmyndahúsum. Og þegar hann leggur mat á fólkið umhverfis, þá hefur hann hliðsjón af kvikmyndalei- kurum og persónum kvikmyndanna. Síðan er þarna ein persóna í bók- inni, Frímann, sem er áhugakvik- myndatökumaður, hann tekur kvik- myndir á 8mm vél og sýnir í afmæl- II

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.