Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.02.1991, Blaðsíða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIRÞRIÐJUDAGUR 5. FEBRÚAR 1991 KORFUKNATTLEIKUR / URVALSDEILDIN FRANC BOOKER: 17 Vildi sjá heiminn“ ÞEGAR félögin i úrvalsdeildinni fá nýja útlendinga taka þau oft mikla áhættu. Umboðsmennirnir í Ameríku spara ekki stóru orð- in og segja ieikmenn sína í f remstu röð en oft kemur annað á daginn. Reynslan hefur kennt manni að taka slíku með varúð. Þannig var það þegar ÍR-ingar sögðu að nýi leikmaðurinn þeirra hefði verið í 14 manna hópi hjá liðum í NBA-deildinni. Já já, sagði maður, og ég heiti Steingrímur Hermannsson. Það er álíka líklegt og að maður úr NBA-deildinni fari að spila með ÍR. g n eftir fyrsta leikinn fór maður Logi B. Eiðsson skirfar að velta því fyrir sér hvort eitt- hvað væri til í þessu. ÍR-ingar, sem fram að þessu höfðu aðeins unnið einn.leik, og reyndar ekki verið sérlega nálægt því að vinna fleiri, stóðu í ís- landsmeisturum KR. Og framhaldið var enn ótrú- legra. Liðið vann Snæfell í bikar- keppninni og svo Hauka, Tindastól og Val í úrvalsdeildinni. Þrátt fyrir töluverðar breytingar á liðinu var það augljóst hver átti heiðurinn af þessum stakkaskiptum; Banda- ríkjamaðurinn Franc Booker. Vildi sjá heiminn Fyrsta spurningin er að sjálf- sögðu hvað í ósköpunum maður á borð við hann er að gera á Islandi: „Ég var að beijast fyrir því að kom- ast inní NBA-deildina og vantaði herslumuninn. Eftir að hafa verið hjá þremur liðum sagði ég við sjálf- an mig að nú væri kominn tími til að reyna eitthvað nýtt, gleyma deildinni og sjá heiminn. Mig lang- aði til að fara til Ástralíu eða Spán- ar en ísland varð fyrir valinu. Ég vissi nánast ekkert um landið en allt sem ég hef séð hefur komið mér skemmtilega á óvart. Ég gæti haft meira uppúr krafsinu annars- staðar í Evrópu en ég kann vel við mig hér og sé alls ekki eftir því að hafa komið. Ætlaði í fótbolta Booker, sem er 25 ára, er fædd- ur í Augustin í Georgíu og er átt- undi í röð tíu systkina. „Ég hafði alltaf meiri áhuga á fótbolta [ruðn- ing] og stefndi að því að ná langt. Ég þótti góður í vörninni í körfu- bolta en flestir sögðu mér að fram- tíðin væri í fótboltanum. Á síðustu stundu ákvað ég að taka körfubolt- ann framyfir og fékk tækifæri til að sanna mig í sumarbúðum. Þar hitti ég Larry Brown, þjálfara Kansas [núverandi þjálfara San Antonio Spurs], og hann vildi fá mig til Kansas, sem var eitt besta liðið í háskóladeildinni. En ég ákvað að fara til Bowling Green, sem var skemmtilegur skóli með gott lið. Þegar Booker útskrifaðist var hann valinn af New Jersey Nets í sjöundu umferð í háskólavalinu. „Þjálfarinn bjóst ekki við miklu en mér gekk vel og hann vildi halda mér hjá liðinu og bjóða mér samn- ing. En hvert lið má aðeins hafa tólf leikmenn og hann þurfti því „Það sem skipt- ir mestu máli núna erað vinna og halda ÍR í deildinni" „Langaði til ^ að fara til Ástralíu eða Spánaren Is and varð fyrir valinu að losna við einn bakvörð. Sá var hinsvegar með langan samning sem hann vildi ekki sleppa og ég varð að taka pokann. Það sama gerðist hjá Miami Heat og Cleveland Cav- aliers. En ég átti svosem von á þessu, það er erfítt að komast inní deildina en ég hef ekki gefist upp,“ segðir Booker. „Það er farið að gjósa“ Booker segir að sér hafi ekki lit- ist á blikuna þegar hann kom til Keflavíkur. „Það voru vandræði með pappíra og ég þurfti að bíða góða stund. Á meðan leit ég út og það kom mér á óvart hve bjart var yfír öllu en kuldalegt. En þó held ég að það sé hlýrra hér en í Bow- ling Green, eða öðruvísi kuldi og ég sætti mig við veðrið. Það er líka gam^an að geta hringt til vina sinna, frá íslandi, og sagði að veðrið sé gott en það sé farið að gjósa,“ seg- ir Booker og hlær. Margir góðir Booker segir að geta íslenskra leikmanna hafi komið sér á óvart. Booker á fuliri ferð með knöttinn. Morgunblaðið/Einar falur Tölurnar „Það eru margir mjög sterkir leik- menn á deildinni." Hann nefnir sem dæmi Pál Kolbeinsson, Jón Arnar Ingvarsson, Magnús Matthíasson og Pétur Guðmundsson. „Það sem kemur mér hinsvegar á óvart er hve lítið þeir æfa. í Bandaríkjunum æfa menn þijá til fjóra tíma á dag. Þar er alltaf hægt að komast í sal og skjóta á körfu og menn æfa Tölurnar hjá Franc Booker eru býsna merkilegar og hér má sjá leiki hans með ÍR í úrvalsdeildinni, hve mörg stig hann hefur gert og hve margar þriggja stiga körfur: iIR-UMFN.............. 99:106 KR-ÍR..................105: 91 IÍR—Snæfell............ 88: 93 ÍR—Haukar.............. 88: 80 ÍR—Tindastóll.......... 86: 82 Valur-ÍR............... 83: 93 Samtals..............545:549 321 (66) Meðatal................ 91: 92 54 (11) Booker gerir tæplega tvo þriðju stiga sinna með þriggja stiga skotum og vítanýting hans 54 (10) 55 (15) 60 (14) 44 (10) 49 ( 3) 59 (14) er um 77%. !R-ingar fagna sigri mikið sjálfir. Hér þurfa menn hins- vegar að sætta sig við tæplega klukkutíma á dag. Ég held að þetta, og ómarkvissar æfingar, standi körfuboltanum fyrir þrifum,“ segir Booker. Góður hópur Booker segist kunna vel við sig hjá ÍR. „Liðið er ein stór heild og við eru mikið saman utan vallar. Við höfum náð vel saman og það i hefur mikið að segja fyrir liðið. í körfubolta skiptir hugarfarið miklu máli og ég hef séð verulega breyt- ingu milli leikja. Það er líka gaman að sjá að fólk kemur á leikina til að hvetja okkur og nú erum við farnir að spila sem lið, fullir af sjálf- strausti. Það hefur mikið að segja.“ „Vil koma affur“ Þrátt fyrir að NBA-deildin sé takmarkið segir Booker að hann útiloki ekki að hann leiki með ÍR næsta vetur. „Ég vil koma aftur og það fer eftir því hvernig mér gengur úti. En ég er ekki farinn að veita því alvarlega fyrir mér. Það sem skiptir mestu máli núna er að vinna og halda ÍR í deildinni.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.