Morgunblaðið - 12.02.1991, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 12.02.1991, Blaðsíða 48
SYKURLAUSfWffs ffgmsMfifrtfe ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1991 VERÐ I LAUSASOLU 100 KR. Alþingi samþykkir um málefni Litháens: Stjórnmálasamband -verði tekið upp svo fljótt sem verða má ALÞINGI samþykkti í gærkvöldi þingsályktunartillögu, þar sem ríkis- stjórninni er falið að leiða til lykta viðræður við kjörin sljórnvöld í Litháen um stjórnmálasamband með því að taka upp sljórnmálasam- band við Litháen svo fljótt sem verða má. Tillagan var tekin fyrir í Sameinuðu Alþingi og var hún samþykkt með 41 atkvæði gegn einu. Utanríkismálanefnd Alþingis lagði fram tillöguna og mælti formaður nefndarinnar, Jóhann Einvarðsson, fyrirhenni. Tillagan er svohljóðandi: „Alþingi ályktar að staðfesta að viðurkenning ríkisstjómarinnar frá 1922 á sjálfstæði lýðveldisins Lithá- '"•fcns er í fullu gildi. Alþingi styður ákvörðun ríkis- stjórnarinnar frá 23. janúar 1991 að verða við ósk lýðræðislega kjörinna stjórnvalda í Litháen um viðræður um stjómmálasamband. Alþingi felur ríkisstjórninni að leiða málið til lykta með því að taka upp stjórnmálasamband við Litháen svo fljótt sem verða má.“ Þetta var eina málið á fundi Sam- einaðs þings í gærkvöldi. Harðar deilur urðu milli Olafs Þ. Þórðarson- ar, þingmanns Framsóknarflokks í Vestfjarðakjördæmi, og Jóns Bald- vins Hannibalssonar utanríkisráð- herra og taldi Ólafur ótímabært að samþykkja þessa tillögu og ekki í valdi íslendinga að viðurkenna sjálf- stæði Litháens. Að beiðni Ólafs voru atkvæði greidd um tillöguna í tveim- ur hlutum, síðustu málsgreinina sér. í atkvæðagreiðslu um fyrri hluta tillögunnar sögðu 46 þingmenn já, Ólafur Þ. Þórðarson sat hjá og 16 þingmenn voru fjarstaddir. I atkvæðagreiðslu um_ síðustu málsgreinina sögðu 43 já, Ólafur Þ. Þórðarson sagði nei, Guðmundur Ágústsson, Borgaraflokki, og Guð- rún Helgadóttir, Alþýðubandalagi, sátu hjá. Loks var tillagan í heild borin undir atkvæði og samþykkt með 41 atkvæði gegn einu atkvæði Ólafs Þ. Þórðarsonar. Fann ekki salemið og gekk út buxnalaus LÖGREGLUMENN á ferð um Þingholtin mættu buxnalausum manni á gangi aðfaranótt laugardagsins. Maðurinn var að öðru leyti afar snyrtilega klæddur, með bindi við hvíta skyrtu og í jakka í stíl við skóna. Hann hafði verið gestkom- 'andi í húsi í Þingholtunum og ætlaði á salerni en fór um vit- lausar dyr og vegna ölvunar hafði hann ekki ratað til baka þegar lögreglan varð á vegi hans. Morgunblaðið/Sigurgeir Guðmundur VE kom með fyrstu loðnuna til Vestmannaeyja á laugardaginn. Hann var með full- fermi, 900 tonn. Á mnfelldu myndinni sést Halldór Ásgríms- son ræða við fiskifræðinga og loðnuskipstjóra á Reyðarfirði í gær. Morgunblaðið/Benedikt Jóhannsson Kristján Ragnarsson formaður LIÚ um loðnuveiðarnar: Geri ráð fyrir að leyft verði að veiða 50-100 þúsund tonn Útflutningsverðmæti 110 þúsund tonna allt að 1,4 milljarðar „FISKIFRÆÐINGAR telja sig hafa náð góðri mælingu á þess- ari loðnugöngu við Suðaustur- land og niðúrstaðan er sú .að magnið sé 450 þúsund tonn. Þessi niðurstaða þýðir að lítils háttar svigrúm er til veiða,“ segir Hall- dór Ásgrímsson sjávarútvegsráð- herra í gær. „Ég geri ráð fyrir að við fáum að veiða 50-100 þús- und tonn af loðnu, þar sem reikn- að er með að um 400 þúsund tonn fái að hrygna,“ segir Kristj- án Ragnarsson framkvæmda- stjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna. Sjávarútvegsráðherra ræðir nið- urstöðu loðnumælinganna við hags- munaaðila í dag. „Jafnframt þurf- um við að taka ákvörðun um loðnu- veiðar í samráði við þær þjóðir, sem við höfum samið við um nýtingu á loðnustofninum, það er að segja Grænlendinga og Norðmenn. Rann- sóknaskipin halda hins vegar áfram að fylgjast með svæðinu og trúlega fer annað þeirra norður fyrir land,“ segir Halldór Ásgrímsson. Halldór segist ekki hafa komist að endanlegri niðurstöðu varðandi vanda loðnuverksmiðja, verkafólks og bæjar- og sveitarfélaga vegna lítillar loðnuveiði í vetur en hann hefur fundað með forsvarsmönnum atvinnulífs og verkalýðsfélaga á 8 stöðum undanfarna daga. „Eitt af Landsbréf hf.: Ávöxtunarkrafa húsbréfa hækkar vegna dræmrar sölu Húsbréf nú orðin mjög góður ávöxtunarmöguleiki, að mati forstjóra Landsbréfa ÁVÖXTUNARKRAFA húsbréfa hjá Landsbréfum hf. hækkaði í gær úr 7,4% í 7,6%. Er þetta í annað sinn sem ávöxtunarkrafan hækkar á skömmum tíma en hún hækkaði um síðustu mánaðamót úr 7,3% í 7,4%. Sú hækkun hafði hins vegar ekki þau áhrif sem vonast hafði verið eftir. Sala bréfanna hefur verið dræm að undanförnu og fram- boðið mun meira en eftirspurn, að sögn Gunnars Helga Hálfdánarson- ar, forsljóra Landsbréfa. Nærri lætur að út á markaðinn hafi komið um 600 milljónir króna í nýjum húsbréfum í febrúar en búist er við að húsbréfadeild Húsnæðisstofnunar afgreiði allt að einn milljarð á mánuði á næstunni. Hækkun ávöxtunarkröfunnar þýðir að afföll af bréfunum hækka úr 12,33% í 13,88%. Gunnar Helgi segir helstu ástæðuna fyrir lítilli eft- - rspurn eftir húsbréfum að stærstu kaupendur þessara bréfa, lífeyris- sjóðirnir, hafi haldið að sér höndum m.a. vegna óuppfylltrar kaupskyldu við Húsnæðisstofnun fyrir síðasta ár. Á sama tíma sé þrýst á þá að flýta kaupum vegna þessa árs. Jafn- framt sé vaxandi framboð af öðrum verðbréfum á markaðnum. Gunnar Helgi segir að húsbréf séu nú orðin mjög góður ávöxtunar- möguleiki miðað við að bréfin séu bæði ríkistryggð og eignarskatts- frjáls. „Ljóst er að húsbréfakerfið á íslandi er framtíðarkerfi en það tek- ur nokkurn tíma að finna svo miklu magni nýrrar tegundar bréfa farveg meðal kaupenda. Þess vegna er mik- ilvægt á meðan, að framboðinu sé stillt í hóf. Hins vegar má reikna með að þessi hagstæða ávöxtun muni laða fram nýja kaupendur en eftirspurn þeirra mun þegar fram í sækir hamla gegn frekari hækkun og jafnvel stuðla að lækkun ávöxtun- árkröfunnar. Jafnframt reikna ég með að hærri ávöxtunarkrafa muni draga talsvert úr framboðinu þar sem það er orðinn afar hagstæður kostur að eiga þessi bréf áfram í stað þess að selja þau,“ sagði Gunn- ar Helgi. Gert er ráð fyrir að lífeyrissjóðirn- ir veiti 18% af sínu ráðstöfunarfé til kaupa á húsbréfum á þessu ári sem er um 5 milljarðar. Þannig munu þeir kaupa húsbréf fyrir um 400 milljónir á mánuði. Má því reikna með að finna þurfi aðra kaupendur að 250-300 milljónum en að önnur bréf verði í umferð á fasteignamark- aðnum eða í eigu móttakanda bréf- anna. því, sem talað hefur verið um, er að veita loðnuverksmiðjunum ríkis- ábyrgð á bankalánum en þá er ver- ið að tala um að nota tæídfærið til að fækka verksmiðjunum. Það er vandfundin lausn á atvinnuleysinu, því það er því miður mikið -atvinnu- leysi víða á landinu," segir Halldór. „Yið teljum að veiða þurfi 50-100 þúsund tonn til að fullnægja eftir- spurn eftir frystri loðnu og loðnu- hrognum í Japan en það væri mjög slæmt að detta út af þeim mark- aði,“ segir Kristján Ragnarsson. Nú eru greiddar allt að 5 þúsund krónur fyrir tonnið af loðnu til bræðslu en í haust voru greiddar 4.200 krónur fyrir tonnið. Bjarni Ólafsson AK landaði um 150 tonn- um af loðnu til frystingar hjá Hrað- frystihúsi Eskifjarðar um helgina og fékk 9 þúsund krónur fyrir tonn- ið en loðnan var fryst til beitu. „Það eru deilumál um það hvern- ig eigi að úthluta þeim loðnukvóta, sem leyft verður að veiða. Sumir telja að líta eigi á hann sem nýjan kvóta en aðrir telja að um skertan eldri kvóta sé að ræða, þannig að sumir séu búnir að veiða sinn kvóta í vetur,“ segir Kristján Ragnarsson. Ef leyft verður að veiða 110 þúsund tonn af loðnu gæti það skil- að um 2 þúsund tonnum af heil- frystri loðnu og 5 þúsund tonnum af hrognum. Markaður er sagður fyrir þetta magn í Japan en þar er nú mikil eftirspurn eftir loðnu- hrognum. Verðmæti þessara afurða er um 800 milljónir króna en að auki myndu fást um 80 þúsund tonn af loðnu til bræðslu fyrir um 600 milljónir. Útflutningsverðmæt- ið gæti því orðið samtals 1,4 millj- arðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.