Morgunblaðið - 07.05.1991, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MAÍ 1991
Kaup á björgunarþyrlu fyrir Gæsluna:
Ákvörðun ekki væntan-
leg á næstu mánuðum
FRIÐRIK Sophusson fjármála-
ráðherra segir að nokkrir mán-
uðir líði áður en endanleg
ákvörðun um kaup á björgunar-
þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna
verður tekin.
„Þetta mál er í athugun og verð-
ur að vera það eitthvað áfram.
Það er í biðstöðu og ég sé ekki
að það sé komið á neina endastöð.
Ég hygg að það líði mánuðir áður
en sú ákvörðun verður tekin. Það
er heimild til um það að setja 100
milljónir til þyrlukaupa ef um und-
irskrift er að ræða, en hún er ekki
orðin,“ sagði fjármálaráðherra.
Þórhallur Arason, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði
að verið væri að vinna að saman-
tekt um eiginleika þeirra véla sem
skoðaðar vora í ferð fulltrúa dóms-
og fjármálaráðuneytis og Land-
helgisgæslunnar fyrir nokkrum
vikum. „Ég held að menn þurfi
einfaldlega að skoða kostina bet-
ur. Ég held að menn kaupi ekki
svona tæki sem kostar einn millj-
arð á tveimur vikum,“ sagði Þór-
hallur.
Hann sagði að verið væri að
skoða hvemig rekstur slíkrar vélar
kæmi inn í starfsemi Landhelgis-
gæslunnar. Vél af þessari stærð
yrði að hafa önnur verkefni sam-
hliða björgunarstarfsemi. Hann
sagði að drátturinn á því að
ákvörðun væri tekin um þessi kaup
stafaði af tæknilegum ástæðum,
ekki af slæmri stöðu í ríkisfjármál-
um.
Veðrið með hlýrra móti í vetur
VEÐRIÐ var með hlýrra móti í vetur miðað við síðustu áratugi.
Úrkoma á landinu var heldur meiri en í meðalári en snjókoma nokk-
uð minni.
Trausti Jónsson, veðurfræðingur,
segir að veðrið í vetur hafi verið
þokkalega milt hvort sem miðað sé
við mánuðina desember til mars eða
nóvember til apríl. Það hafi verið
með hlýrra móti og til dæmis hafi
þetta verið hlýjasti vetur á Akur-
VEÐUR
eyri síðan 1972. I Reykjavík hafi
hins vegar verið álíka hlýtt veturinn
1986 til 1987.
Trausti segir að úrkoma hafí
verið heldur meiri í vetur en í meðal-
ári en snjókoma heldur minni þó
þar muni ekki miklu.
VEÐURHORFUR í DAG, 7. MAÍ
YFIRLIT: Milli íslands og Noregs er 1.010 mb lægð á leið aust-
norðaustur en hæðarhryggur fyrir vestan land þokast austur. Við
Hvarf er 1.000 mb lægð á hreyfingu norðaustur.
SPÁ: Suðaustanátt, kaldi eða stinniagskaldi og á stöku stað all-
hvasst. Rigning um sunnan- og vestanvert landið, en þurrt og létt-
skýjað frameftir degi norðaustanlands. Fremur hlýtt í veðri.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á MIÐVIKUDAG: Suðvestanátt og skúrir suðvestanlands
en suðaustanátt og víðast rigning í öðrum landshlutum. Hiti 5-10
stig.
HORFUR Á FIMMTUDAG: Breytileg og siðar heldur vaxandi norð-
anátt. Suðaustanlands léttir til en f öðrum landshlutum verður rign-
ing eða skúrir. Kólnandi veður, einkum norðanlands.
Svarsfmi Veðurstofu íslands — Veðurfregnir: 990600.
TÁKN:
/ Norðan, 4 vindstig:
Vindörin sýnir vind-
stefnu og fjaðrirnar
vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig.
r r r
r r r r Rigning
r r r
* r *
r * r * Slydda
r * r
* * *
* * * * Snjókoma
* * *
10 Hitastig:
10 gráður á Celsius
ý Skúrir
*
V El
= Þoka
= Þokumóða
’, ’ Súld
OO Mistur
—J- Skafrenningur
Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12.00 i gær að ísl. tíma
hitl veður
Akureyri 8 léttskýjað
Reykjavik 4 skýjað
Bergen 11 léttskýjað
Helsinki 13 skýjað
Kaupmannahöfn 4 rigning
Narssarssuaq 5 léttskýjað
Nuuk +3 hálfskýjað
Osló ' 8 rigning
Stokkhólmur 7 þokumóða
Þórshöfn 10 léttskýjað
Algarve 23 léttskýjað
Amsterdam 11 mistur
Barcelona 16 mistur
Bérlín 7 rigning
Chlcago 10 skýjað
Feneyjar 18 þokumóða
Frankfurt 8 rigning
Qlasgow 9 skýjað
Hamborg 8 skýjað
Las Paimas vantar
London 7 rigning
LosAngeles 14 þokumóða
Lúxemborg 10 rigning
Mádríd 24 hálfskýjað
Malaga 21 léttskýjað
Mallorca 18 skýjað
Montreal 11 skúr
NewYork 11 þokumóða
Orlando 24 skýjað
París 16 skýjað
Róm vantar
Vín 15 skúr
Washington 17 þoka
Winnipeg 0 fskorn
Morgunblaðið/Kenneth Johannsson
Dís í Las Vegas
Fegurðarsamkeppnin Ungfrú Alheimur, Miss Universe, fer fram
á Aladdin-hótelinu í Las Vegas í Bandaríkjunum föstudaginn 17.
maí nk. Stúlkurnar sem þátt taka í keppninni eru þegar komnar til
Las Vegas. Myndin var tekin af fulltrúa Cook-eyja og íslenzka fulltrú-
anum, Dís Sigurgeirsdóttur frá Vestmannaeyjum. Dís varð í 4. sæti
í keppninni Ungfrú ísland í fyrra.
Hafrannsóknarstofnun:
Ný jarðhitasvæði
við Grímsey
NÝ jarðhitsvæði fundust neðansjávar við Grímsey í leiðangri, sem
farinn var á hafrannsóknarskipinu Árna Friðrikssyni norður fyrir
land. Að sögn Jóns Ólafssonar haffræðings og leiðangursstjóra,
er svæðið nokkur hundruð metrar á hvorn veg en verið er að rann-
saka sýnin sem tekin voru.
Jón sagði, að leiðangurinn hefði
gengið nokkuð vel. Meðai annars
hafi orðið vart við jarðhita á svæði
austur af Grímsey, sem lítið var
vitað um áður, og sömuleiðis svæði
vestan við eyna, þar sem fannst
uppstreymi. Þá var jarðhitasvæðið
sem vitað er um á Kolbeinseyjar-
hrygg rannsakað.
Tekin voru sýni af hafsbotni á
þessum stöðum sem verið er að
rannsaka. „Þarna komu upp útfell-
ingar eins og vænta mátti'þar sem
um jarðhita er að ræða,“ sagði Jón.
„Nýju svæðin við Grímsey eru
ekki stór en á nokkrum stöðum
virtist bóla upp af eða sjá mátti
stróka."
Aldís Schram látin
ALDÍS Þorbjörg Brynjólfsdótt-
ir Schram, til heimilis í Sörla-
skjóli 1 í Reykjavík, andaðist á
Landspítalanum að morgni 5.
maí á 75. aldursári.
Aldís fæddist í Reykjavík 23.
mars árið 1917 og ólst þar upp.
Hún var yngsta barn hjónanna
Brynjólfs Jónssonar, sjómanns og
síðar baðvarðar við Miðbæjar-
skóla, og Margrétar Magnúsdótt-
ur, en fimm systkini hennar kom-
ust upp.
Aldís vann í Braunsverslun í
Reykjavík áður en hún gifti sig
árið 1936. Hún rak stórt heimili
í Reykjavík og lét félagsmál mikið
til sín taka. Hún starfaði mikið
með bridsfélögum borgarinnar og
var um tíma formaður bridsfélags
kvenna.
Eftirlifandi eiginmaður Aldísar
er Björgvin Schram stórkaupmað-
ur í Reykjavík og eignuðust þau
sjö börn, Bryndísi, Ellert, Mar-
Aldís Þorbjörg Brynjólfsdóttir
Schram.
gréti, Björgvin, Magdalenu, Ólaf
og Önnu Helgu.