Morgunblaðið - 08.05.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
102. tbl. 79. árg.
MIÐVIKUDAGUR 8. MAI 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Stríðsástand á Kákasus:
Gorbatsjov skellir
skuldinni á Armena
Jerevan, Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sov-
étríkjanna, sagði í gær, að skæru-
liðasveitir Armena bæru mesta
ábyrgð á óöldinni í Kákasus-lýð-
veldunum Armeníu og Azerbajd-
zhan og væru aðgerðir hersins
eingöngu í því fólgnar að uppræta
þær.
Gorbatsjov sagði, að það væri hlut-
verk hersins að afvopna skæruliða-
Grænland:
Harðneita að
hætta við ferð
yfir jökulinn
Kaupmannahöfn. Frá N.J. Bruun,
fréttaritara Morgunblaðsins.
FJÓRUM norskum stúlkum var
nýlega komið til hjálpar þar
sem þær voru á leið vestur
yfir Grænlandsjökul frá Amm-
assalik til Ilulissat (Jakobs-
havn) á skíðum. Grænlensk
yfirvöld ákváðu að þær fengju
aðeins vistir sem nægja til að
snúa aftur til Ammassalik og
vilja að stúlkurnar hætti við
ferðina en þær hafna þeim til-
mælum.
Stúlkurnar sendu frá sér neyð-
armerki eftir að þær höfðu orðið
uppiskroppa með eldsneyti og
matvæli, týnt prímusnum og
þjáðust einnig af niðurgangi.
Lögreglustjórinn í Nuuk hefur
krafist þess að stúlkurnar hætti
við leiðangurinn. Hann hefur
reyndar lagt til að tekið verði
alveg fyrir slíka leiðangra áhuga-
manna. „Afskipti af slíkum
„skátaferðum" eru of mikið álag
á björgunarsveitirnar sem eru
starfræktar til að bjarga okkar
eigin fólki þegar mikið liggur við,
ekki ævintýramönnum."
sveitir, hvetjar sem þær væru, en
kenndi aðallega Armenum um. Varn-
armálaráðherra og innanríkisráð-
herra Sovétríkjanna eru á sama
máli og einnig ráðamenn í Az-
erbajdzhan, sem segja, að. azersk
þorp, í Nagorno-Karabakh eða við
armensku landamærin, liggi undir
stöðugri skothríð frá armenskum
þjóðernissinnum.
Levon Ter-Petrosjan, forseti Arm-
eníu, sagði hins vegar, að sovéskar
og azerskar hersveitir héldu enn
uppi árásum á armensk þorp og bæi
og hefðu nokkur verið hertekin, þar
á meðal bæirnir Terkh, Shurnukh
og Kornidzan. Kvaðst hann hafa það
eftir vitnum, að hermennirnir hefðu
unnið mikil grimmdarverk, skotið
fanga og flett höfuðleðrinu af látnum
mönnum. Sagði Ter-Petrosjan, að
um væri að ræða skipulegar aðgerð-
ir af háifu sovéskra stjórnvalda með
það að markmiði að hræða Armena
til undirgefni við Moskvuvaldið.
Sjá „Gorbatsjov lét flytja...“ á
bls. 22.
Reuter
Nýbakaðir lögregluþjónar íPrag
Fiðlari leikur lag á brú í Prag á meðan nýjustu lög-
regluþjónar borgarinnar ríða hestum sínum framhjá.
Ný lögreglusveit tók til starfa í borginni í gær, skip-
uð 20 lögregluþjónum sem hafa 12 hesta til umráða
og fá það verkefni að annast löggæslu í almennings-
görðum borgarinnar.
Heryfirvöld í Júgóslavíu segja borgarastyrjöld í reynd skollna á:
Herinn býr sig undir bar-
daga og varalið kallað út
Belgrad. Reuter, The Daily Telegraph.
LEIÐTOGAR Júgóslavíu efndu
til neyðarfundar og varalið hers-
ins var kallað út í gær eftir að
heryfirvöld höfðu lýst því yfir
að borgarastyrjöld væri í reynd
skollin á í landinu og varað við
því að hermenn myndu beita
skotvopnum ef ráðist yrði á þá.
Júgóslavneskir heimildarmenn
sögðu að skriðdrekum hefði verið
ekið úr höfuðborginni, Belgrad, og
um lýðveldið Bosníu-Hercegovínu.
Hörmungarnar í Bangladesh:
„Höfum aðeins séð fyrsta
þáttinn í harmleiknum“
Dhaka, Bangladesh. Reuter.
SHAKERA Begum horfði I\jálparvana á hrægamma og hunda rífa
í sig rotnandi lík eiginmanns síns og barna. Skammt frá mátti sjá
lík kornabarna, sem fólk hafði í örvæntingu sinni reynt að forða
undan flóðinu með því að binda föst í efstu greinarnar.
Þannig er ástandið á hörmung- þeim ekki en það var allt til einsk-
arsvæðunum í Bangladesh. Dauð-
inn blasir hvarvetna við og nálykt-
ina leggur fyrir vitin; tíu milljónir
manna eru heimilislausar og hung-
urvofan og sjúkdómar eiga eftir
að taka sinn toll. Talin hafa verið
lík 125.000 manna en enginn veit
hve mörg eru ótalin, þúsundir eða
tugþúsundir veltast um í flóðinu
og til sumra svæða hefur varla
verið komist enn.
„Foreldrar reyndu að binda
yngstu börnin sín við greinar stórra
tijáa í þeirri von, að flóðið næði
is. Veðurofsinn var slíkur, að þau
áttu sér aldrei neina von,“ sagði
Moudid Ahmed, fyrrverandi vara-
forseti Bangladesh, eftir að hafa
farið um flóðasvæðin. Sagði hann,
að 60% þeirra, sem farist hefðu,
væru konur og börn.
„Þegar hungrið sverfur að fara
vannærðu börnin að deyja eftir
fjóra daga og konurnar í Bangla-
desh, sem þjást flestar af vannær-
ingu, fara að týna töhmni eftir tíu
daga. Eftir 15 daga er röðin komin
að karlmönnunum," sagði í yfirlýs-
ingu frá hjálparstofnuninni Care
og þar var varað við rotnandi líkum
og skepnuhræjum, sem eitruðu
drykkjarvatnið og yllu sjúkdómum
eins og blóðkreppusótt, kóleru,
taugaveiki og lifrarsýkingu.
Starfsmenn hjálparstofnana
segja, að margt af fólkinu, sem lifði
af fellibyiinn, hafí orðið fyrir and-
legu áfalli og neiti enn að skiljast
við lík ástvina sinna, barna eða
maka, sem nauðsynlegt er að grafa
strax. „Við höfum aðeins séð fyrsta
þáttinn í harmleiknum. Ég óttast,
að þeir, sem á eftir fylgja, hungrið
og farsóttirnar, verði enn skelfi-
legri,“ sagði einn embættismanna
Bangladeshstjórnar.
Hersveitir hefðu einnig farið úr
herstöðvum sínum til óróasvæðanna
snemma í gærmorgun. Heryfirvöld
vildu ekki staðfesta þetta.
„Borgarastyijöld hefur þegar
brotist út í Júgóslavíu,“ sagði
Veljko Kadijevic hershöfðingi, varn-
armálaráðherra landsins, við Bor-
islav Jovic forseta á neyðarfundi
forsætisráðs Júgóslavíu. „Herinn
bregst við hvers kyns árásum á
hermenn og herstöðvar eins og um
stríð væri að ræða og skotvopnum
verður beitt,“ sagði hann. Ráðherr-
ann bætti við að hermönnum hefði
verið fyrirskipað að vera í við-
bragðsstöðu eftir að nítján ára gam-
all hermaður beið bana í mótmælum
að minnsta kosti 30.000 manna við
flotastöð í hafnarbænum Split í
Króatíu á mánudag. Stjórnarerind-
rekar sögðust í gær hafa heimildir
fyrir því að herinn hefði kallað út
varalið.
Átök og óeirðir héldu áfram í
landinu í gær. Þúsundir manna
komu í veg fyrir að skriðdrekar
kæmust um bæinn Polog í Bosníu-
Hercegovínu með því að . reisa
vegatálma. Til skotbardaga kom í
nokkrum bæjum í austurhluta Kró-
atíu. Ennfremur sprungu tvær
sprengjur í þorpinu Brsadin og
sprengju var varpað inn í kaffihús
í eigu Serba í nágrannabænum
Borovo. Skriðdrekasveitir fylgdust
með umferð um þrjár brýr milli
Rfki Júgóslavfu
1 Slóvenía 4 Serbía*
2 Króatia 5 Svartfjallaland
3 Bosnia-Hersegóvina 6 Makedónia
*Til Serbiu heyro sjólfstjórnar-
feuier______héruðin Vojvodina 09 Kosovo.
austurhluta Króatíu og héraðsins
Vojvodinu, sem er byggt Serbum.
Fréttaritarar skýrðu frá því að her-
lögreglan væri á verði við margar
brýr í vesturhluta Króatíu.
Forsætisráð Júgóslavíu efndi til
neyðarfundar með forsetum júgó-
slavnesku lýðveldanna sex í gær.
Fulltrúar lýðveldanna og tveggja
sjálfstjórnarhéraða eiga sæti í ráð-
inu, sem hefur vald til að lýsa yfir
neyðarástandi.