Morgunblaðið - 30.05.1991, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
OVOlUMllIiílílÍíl
STOFNAÐ 1913
119. tbl. 79. árg.
FIMMTUDAGUR 30. MAI 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Reuter
Blóðug mótmæli íAddis Ababa
Eþíópískur skæruliði hlúir að særðum stjórnarhermanni. Skæruliðar
skutu í gær á mörg þúsund manna hóp stuðningsmanna marxistastjórn-
arinnar í Addis Ababa er nú hefur verið hrakin frá völdum og féllu
nokkrir. Útgöngubann er í borginni en þar eru flestir íbúar af þjóð-
flokki Amhara eins og föllnu stjórnarherrarnir. Fólkið hafði gengið um
götur, hrópað kröfur um einingu ríkisins og ókvæðisorð um andstæð-
inga gömlu stjórnarinnar auk þess sem Bandaríkjamönnum var kennt um ófarir marxista. Að sögn skæru-
liðaleiðtoga var skotið á liðsmenn þeirra er svöruðu í sömu mynt. Leiðtogi frelsishreyfíngar héraðsins
Eritreu, Issaias Afwarki (innfellda myndin), sagði í gær að þar yrði mynduð bráðabirgðastjórn. íbúarnir
fengju að segja hug sinn til krafna hreyfingarinnar, er barist hefur fyrir sjálfstæði Eritreu, í fijálsum
kosningum.
Varnarmálaráðherrar NATO;
Samstarfið aðlagað
breyttum aðstæðum
Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
VARNARMÁLARÁÐHERRAR aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins
(NATO) boðuðu á fundi sem lauk í Brussel í gær breytingar á uppbygg-
ingu hernaðarsamstarfs NATO. I lok fundarins lagði Manfred Wörn-
er, framkvæmdastjóri NATO, áherslu á að fyrir dyrum stæðu róttæk-
ustu breytingar á bandalaginu frá stofnun þess. Um þær væri full
samstaða meðal aðildarríkjanna. Sú endurskoðun á stefnu og starfsað-
ferðum NATO sem boðuð var á leiðtogafundi í London á síðasta ári
væri langt komin og yrði lögð fyrir leiðtogafund síðar á árinu.
Vamarmálaráðherramir urðu
sammála um að koma á fót fjölþjóð-
legum hraðsveitum innan NATO sem
beita mætti innan NATO-svæðisins
auk þess sem umtalsverð fækkun
yrði í fastaheijum ríkjanna.
Manfred Wörner sagði að þróun
NATO í framtíðinni réðist að miklu
leyti af því hvernig til tækist um þær
miklu breytingar sem ættu sér stað
í Mið- og Austur-Evrópu. Innan
NATO væri mikill áhugi á því að sem
bestur árangur næðist í þróuninni til
lýðræðis og markaðsbúskapar í þess-
um ríkjum. Ljóst væri að Atlants-
hafsbandalagið, í krafti varnar- og
öryggissamvinnu aðildarríkjanna,
væri besta tryggingin fyrir því að
ágreiningsmál yrðu leyst eftir frið-
samlegum leiðum í Evrópu. Innan
NATO væri lögð á það áhersla að
aukin samvinna Evrópuríkja innan
Vestur-Evrópusambandsins (VES)
setti ekki til hliðar þau fimm NATO-
ríki í Evrópu sem ekki ættu aðild
að VES. Aðspurður kvaðst Wörner
ekki trúaður á að Evrópubandalagið
kæmi sér upp sérstökum EB-her-
deildum í náinni framtíð.
Miðausturlönd:
Bush setur fram tillögur
um takmörkun vígbúnaðar
ísraelar leggja áherslu á fækkun hefðbundinna vopna
Colorado Springs. Tel Aviv. Reuter.
GEORGE Bush Bandaríkjafor-
seti kynnti í gær tillögur um
takmörkun vígbúnaðar í Mið-
austurlöndum. Markmiðið með
þeim er einkum að uppræta
gereyðingarvopn í þessum
heimshluta og takmarka sölu
hefðbundinna vopna þangað.
Þó er gert ráð fyrir að hverju
ríki sé heimilt að hafa nægilega
öflugan her til að verjast árás.
ísraelar brugðust varfærnis-
lega við þessum hugmyndum í
gær. Avi Pazner talsmaður
Yitzhaks Shamirs, forsætisráð-
herra Israels, sagði nauðsynlegt
að stemma stigu við hefðbundn-
um vopnum en að öðru leyti
ættu stjórnvöld eftir að skoða
tillögurnar nánar. Bresk stjórn-
völd fögnuðu tillögum Bush í
gær.
Bush kynnti hið nýja afvopnun-
arfrumkvæði í ræðu við útskrift í
Háskóla flughersins í Colorado
Springs. Bush og ráðgjafar Banda-
ríkjastjórnar hafa unnið að tillög-
unum samhliða samningaumleitun-
um James Bakers utanríkisráð-
herra síðan Persaflóastríðinu lauk
28. febrúar síðastliðinn.
Helstu þættir tillagna Banda-
ríkjaforseta eru þessir:
★ Hvatt er til þess að þau ríki sem
eiga fastafulltrúa í öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna og eru jafn-
framt fimm helstu vopnaútflytjend-
ur heims, Bandaríkin, Bretland,
Frakkland, Kína og Sovétríkin,
hittist fljótlega til þess að setja
reglur um takmörkun sölu á hefð-
bundnum vopnum og gereyðingar-
vopnum. Frakkar hafa boðist til
að halda slíkan fund en dagsetning
hefur ekki verið ákveðin.
★ Hætt verði sölu, framleiðslu og
prófun landeldflauga á svæðinu
með það að markmiði að útrýma
slíkum vopnum.
★ Bönnuð verði framleiðsla og
kaup á úrani til vopnasmíði. Jafn-
framt lúti öll kjarnorkuvinnsla al-
þjóðlegum öryggisreglum.
★ Ríki svæðisins eru hvött til að
skuldbinda sig til að Ijúka sem fyrst
gerð samnings sem leggur bann
við efnavopnum.
★ Lagt er til að samningur frá
árinu 1972, sem bannar sýklavopn,
verði endurbættur.
Dick Cheney, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, kom í gær
til Israels til að kynna hinar nýju
hugmyndir. Þaðan fer hann til
Kaíró í Egyptalandi. Bandarískir
embættismenn sem eru með í för
sögðu i samtölum við Reuters-
fréttastofuna í gær að búast mætti
við andstöðu í Israel en talið er að
það sé eina ríkið í Miðausturlöndum
sem hefur yfir kjarnorkuvopnum
að ráða. Einnig kynnu sum ar-
abaríki að bregðast ókvæða við,
einkum þau sem vinna nú að upp-
byggingu hefðbundins herafla síns.
Frekari umræður um varnarstefnu
NATO fara fram á fundi utanríkis-
ráðherra bandalagsins sem verður í
Kaupmannahöfn 6.-7. júní nk. Fyrir
hönd Islands sátu fund ráðhérranna
Sverrir Haukur Gunnlaugsson sendi-
herra, fastafulltrúi hjá NATO, og
Róbert Trausti Árnason, sendiherra
og skrifstofustjóri varnarmálaskrif-
stofu utanríkisráðuneytisins.
Sjá „Viðbúnaði og samsetningu
heraflans ... “ á bls. 26.
Spánn:
Sex farast
í tilræði
Barcelona. Reuter.
SPRENGING varð í búðum
spænska þjóðvarðliðsins, Guardia
civil, í smáborginni Vic, nálægt
Barcelona, í gær. Sex fórust, þar
af þrjú börn, og 45 slösuðust.
Embættismenn telja að um
bílsprengju hafi verið að ræða og
gruna ETA, hryðjuverkasveitir
baskneskra sjálfstæðissinna, um
tilræðið.
Börnin voru að leik á skólaleik-
velli rétt við búðirnar þegar spreng-
ingin sundraði byggingunni svo að
útveggirnir einir stóðu uppi. I búðum
varðliðsins bjuggu 14 liðsmenn þess
með fjölskyldum sínum. Einn mann-
anna fórst ásamt eiginkonu sinni og
tengdamóður, að sögn yfirvalda. Þau
segja að öll málsatvik bendi til þess
að hryðjuverkamenn ETA hafi verið
að verki en þeir hafa gert sprengju-
árásir á margar búðir þjóðvarðliða
víða á Spáni. Enginn hafði lýst
ábyrgð á hendur sér er síðast fréttist.
ETA hefur orðið um 650 manns
að bana sl. 23 ár og óttast yfirvöld
í Barcelona að samtökin reyni að
vekja athygli á sér með hryðjuverk-
um í tengslum við Ólympíuleikana
er verða í borginni á næsta ári.
Nýr formaður
þýskra jafn-
aðarmanna
Eins og búist hefur verið við uncÞ
anfarna mánuði var Björn Eng-
holm, forsætisráðherra
Slésvíkur-Hoitsetalands, í gær
kjörinn formaður þýskra jafnaðar-
manna. Hlaut hann 458 atkvæði
af 470 á flokksþingi sem nú stend-
ur yfir í Bremen. A myndinni
fagnar Engholm (fyrir miðju)
kjöri sínu með Willy Brandt, fyrr-
um kanslara, (t.h.) og Hans-Joc-
hen Vogel, fráfarandi formanni.
Sjá „Geðþekkur lífsnautnamað-
ur... “ábls. 27.
Reuter