Morgunblaðið - 11.09.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.09.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 205. tbl. 79. árg. MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1991 Prentsmiðja Morgunblaðsins Norski verkamannaflokkurinn: Lagt að Brundt- land að segja af sér Hún segir að enginn geti tekið við af sér Ósló. Frá Jan Gunnar Furuly, frétteritara Morgunblaðsins. ÞAÐ VAR sem pólitískur jarðskjálfti hefði riðið yfir Noreg í gær þeg- ar úrslitin úr sveitar- og fylkisþingskosningunum í fyrradag voru ljós. Miðflokkurinn og Sósíalíski vinstriflokkurinn (SV), sem eru á móti aðild Noregs að Efnahagsbandalaginu (EB) og samningi um Evrópskt efnahagssvæði (EES), urðu sigurvegarar kosninganna, en Verkamanna- flokkurinn fékk verstu útreið í kosningum síðan á þriðja áratugnum. Leiðtogar Verkamannaflokksins í fylkjunum Rogalandi og Nordlandi tilkynntu í gær að þeir vildu að stjómin segði af sér og Hægriflokkur- inn tæki við stjórnartaumunum. Miðflokkurinn og SV hlutu 12,1% fylgi hvor, en Verkamannaflolíkurinn hlaut aðeins 30,4% atkvæða, sem er 5,5 prósentustigum minna en í síð- ustu kosningum. Hægriflokkurinn fékk 21,8% atkvæða og tapaði lítil- lega fylgi, Fra'mfaraflokkurinn fékk 7,0% og tapaði næstum helmingi þess fylgis sem hann hlaut síðast. Kristilegi þjóðarflokkurinn stóð í stað, fékk um 8% atkvæða. maður Miðflokksins. „Sigur okkar er því að þakka að fólkið hefur tekið afstöðu gegn sér- hyggjunni og vill að samstaðan verði aftur sett í öndvegi," sagði formaður SV, Erik Solheim. „Við munum setja þrýsting á Verkamannaflokkinn og krefjast þess að stjórnmálaumræ^a færist meira til vinstri og lögð verði aukin áhersla á umhverfismál, at- vinnumál og hreppapólitík." Reuter Frá mannréttindaráðstefnu Ráðstefnunnar um öryggi og samvinnu í Evrópu (ROSE). Myndin var tekin við setningarathöfn ráðstefnunnar í Moskvu i gær, en Mikhail Gorbatsjov Sovétforseti setti hana. • • Mannréttindaráðstefna ROSE í Moskvu: Gorbatsjov falast eftir efna- hagsaðstoð vesturveldanna Eystrasaltsríkin fá aðild að RÖSE Moskvu. Reuter. EISTLAND, Lettland og Litháen fengu í gær aðild að Ráðstefnunni u öryggi og samvinnu í Evrópu (RÖSE). Var það samþykkt á sérstök- u fundi utanríkisráðherra aðildarríkja RÖSE sem haldinn var fyrir se íingu mannréttindaráðstefnu stofnunarinnar, samkvæmt upplýsing- u Borís Pankíns, utanríkisráðherra Sovétrikjanna. I setningarræðu f llaði Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti vesturveldin og bað þau að \ \ lýðveldunum og ríkjasambandinu efnahagsaðstoð til þess að greiða f ir umbótum og tryggja lýðræði í sessi. Enn á ný voru það deilur um EB sem skóku Noreg - næstum 20 árum eftir að Norðmenn höfnuðu EB-aðiId í kosningum 1972. Eftir ósigurinn viðurkenndi Gro Harlem Brundtland, forsætisráðherra og formaður Verk- amannaflokksins, að það yrði ekki auðvelt að stjórna Noregi nú. Sam- kvæmt Dagbladet mun ríkisstjómin fara fram á stuðningsyfirlýsingu þegar Stórþingið kemur saman í október. Forsætisráðherrann mun þá krefjast fullvissu um að a.m.k. þrír af hveijum fjórum þingmönnum styðji stefnu stjórnarinnar um EES, en ljóst er að stjórnin mun ekki breyta þeirri stefnu sinni fyrir næstu samningalotu sem hefst í Brussel 23. september. „Eina ástæðan fyrir því að ég legg ekki niður völd nú, er að enginn getur tekið við af mér,“ sagði Brund- tland við fréttamenn aðfaranótt gær- dagsins þegar ljóst var hvert afhroð Verkamannaflokkurinn hafði goldið. Hún taldi sig greinilega hafa beðið mikinn persónulegan ósigur. „Þetta voru kosningar um EB og við unnum fyrstu lotu. Við munum nýta valdið sem okkur hlotnaðist," sagði Anne Enger Lahnstein, for- Við þörfnumst hjálgar og reiðum xur á vesturveldin. Ég vona inni- ga að þau taki það, sem ég hef svo t beðið um, til nánari athugunar nú,“ sagði Gorbatsjov. Hann sagði misheppnað valdarán í síðasta mán- uði hafa sprengt umbótum nýjan farveg og nú væri jarðvegur fijór fyrir vesturveldin að auka efnahags- aðstoð sína og hjálpa til við að koma á markaðsbúskap í Sovétríkjunum. Vestrænir stjórnarerindrekar sögðu í gær að þrátt fyrir andstöðu Bandaríkjamanna og Japana hefðu líkur aukist á því að vesturveldin kæmu Sovétmönnum senn til hjálpar með meiriháttar efnahagsaðstoð. James Bakers, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að Bandaríkin væru reiðubúin að veita Sovétríkjunum efnahagsaðstoð ef stjórnvöld þar sýndu vilja til umbóta og til að rétta við efnahag landsins. „Þeir verða ekki að sýna það í fram- kvæmd, heldur sýna vilja til slíkra framkvæmda," sagði Baker. Þetta bendir til breyttrar afstöðu Banda- ríkjamanna til efnahagsaðstoðar. I ávarpi sínu fjallaði Gorbatsjov um valdaránið og aðdraganda þess. Sagðist hann bera hluta ábyrgðar- innar þar sem vissar gerðir sínar hefðu stuðlað að því. „Sá lærdómur sem við drögum af þessu atviki er að við hefðum átt að fara okkur mun hraðar í lýðræðisumbótum og við að koma á markaðsbúskap," sagði for- setinn. Gorbatsjov sagði ennfremur að ósigur valdaránsmanna væri sigur fyrir þau gildi sem sett hefðu verið fram í lokaskjali Helsinkifundarins 1975. Sá fundur héfði markað upp- haf þess að draga tók úr vantrausti milli austurs og vesturs og framför hefði orðið í mannréttindamálum. Það væri að þakka þeirri hugarfars- breytingu sem orðið hefði í kjölfar fundarins að Sovétríkin væru ekki lengur talin fjandsamleg. Hans-Dietrich Genscher, utanrík- isráðherra Þýskalands, sagði að Evr- ópuríkin þyrftu að efla efnahagsleg og pólitísk völd sín til þess að geta afstýrt hugsanlegri einræðisþróun. Marin lagði áherslu á að endur- skoðun fiskveiðistefnunnar sem fer fram á þessu ári fæli m.a. í sér breyttar áherslur í samskiptum við ríki utan EB. Þorsteinn Pálsson, sjáv- arútvegsráðherra, sat fundinu auk Árna Kolbeinssonar, ráðuneytis- stjóra. Marin sagði að unnið væri að skýrslu um endurskoðunina innan framkvæmdastjórnarinnar. Ljóst væri að verndun og uppbygging fisk- stofna innan lögsögu EB yrði mikil- vægasti þátturinn í nýrri fiskveiði- stefnu. Nauðsynlegt væri að aðlaga fískveiðiflota EB breyttum aðstæð- um og aðstoða byggðariög við að mæta þeim. Jafnhliða niðurskurði á fiskiskipaflotanum yrði að taka fullt tillit til hagsmuna þeirra byggðar- laga sem byggðu afkomu sína á sjáv- Tilraunin' til að ræna Gorbatsjov völdum í síðasta mánuði hefði sýnt fram á að efla þyrfti lýðræði og koma ríkjum til hjálpar sem byggju við veikburða efnahag. Genscher hvatti ennfremur til þess að utanríkisráðherrar RÖSE gerðu ráðstafanir til þess að hægt yrði að senda eftirlitssveitir til ríkja sem grunuð væru um mannréttindabrot, jafnvel þótt stjórnir þeirra væru mótfallnar því. arútvegi. Ná yrði samstöðu innan bandalagsins um fyrirkomulag sölu og markaðssetningar sjávarafurða þannig að hagsmunir vinnslu innan EB yrðu sem best tryggðir. Að sama skapi væri brýnt að ná samningum við ríki utan EB um veiðiheimildir til þess að draga úr sívaxandi við- skiptahalla EB við ríki utan þess í viðskiptum með sjávarafurðir, en hann hefur vaxið að jafnaði um 20% á ári síðustu ár. Marin taldi að ný gerð samninga við ríki utan EB yrði að vera sveigjanlegri en til þessa, t.d. með því að tengja þá efnahags- þróuninni í viðkomandi ríkjum. Auk þess að endurskoða stefnu EB í samningum við ríki utan bandalags- ins yrði að huga að tollastefnu bandalagsins. Reuter Olæti í Englandi Til átaka kom í bænum North Shields í norðausturhluta Englands í gær á milli lögreglu og ungmenna sem vopnuð voru bensínsprengjum og gijóti. Ungmennin kveiktu í húsum, fóru ránshendi um verslanir og hentu gijóti og bensínsprengjum að lögreglu. p:''ífrur þeirra voru handtekin og nokkrir menn urðu sárir í látunum. Sei-. ^ðingar í afbrotamálum telja að atvinnuleysi, tortryggni í garð lögreg' og heitt veðurfar séu orsakir ólátanna. Á myndinni sjást slökkviliðsmi nn beijast við eld í húsi sem ungmennin kveiktu í. Sjávarútvegsstefna EB: Skynsamleg nýting fisk- stofna forgangsverkefni Brussel. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunbladsins. MANUEL Marin, sem fer með sjávarútvegsmál innan framkvæmda- stjórnar Evrópubandalagsins (EB), sagði í erindi sem hann flutti á fundi 40 sjávarútvegsráðherra á Spáni, að uppbygging og skynsamleg nýting fiskstofna væri forgangsverkefni nýrrar fiskveiðistefnu EB.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.