Morgunblaðið - 29.09.1991, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.09.1991, Blaðsíða 1
120 SIÐUR B/C/D 221. tbl. 79. árg. SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1991 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Of margl fólk með of fá nöfn Þegar lögreglan í Shanghai ætlaði að yfirheyra mann, sem nefnist Li Ming, vegna morðmáls nýlega kom upp vandamál vegna þess að íbúaskrár sýndu að hundruð manna bera þetta nafn í borginni. Lögreglan vissi nokk- urn veginn um aldur og starf mannsins og þegar hún hafði beitt útilokunarað- ferðinni komu enn 26 til greina. Hún gat því ekki annað gert en að yfir- heyra þá alla. Eiginkona eins af þessum 26, sem reyndist saklaus, tók yfir- heyrsluna svo nærri sér að hún ákvað að fremja sjálfsmorð. Þetta er ein af afleiðingum þess að fólkið í Kína er of margt og nöfnin, sem greina það í sundur, eru of fá. Til að mynda eru 2.300 menn sem heita Zhang Li og 2.000 Zhang Ying í Peking. Ekki er sama Mac- Neili o g MacLean Upp er komið óvenjulegt mál í Bret- landi er varðar höfundarréttarlög og hefur það verið tekið fyrir í héraðsdóm- stólnum í Stratford upon Avon. Tildrög málsins eru þau að bókaútgáfa nokkur fékk ungan mann til að skrifa tvær skáldsögur byggðar á drögum að sögu- þræði, sem rithöfundurinn frægi Alistair MacLean skildi eftir sig er hann lést 1987. Höfundurinn ungi heit- ir Alastair MacNeill og saksóknaranum þykir engin tilviljun hversu lík nöfnin eru. Ennfremur finnst honum bók- arkápurnar villandi, þar sem nafn Alistairs MacLeans gnæfir yfir nafni Alastairs MacNeills. Þá furðar hann sig á því að bókaútgáfan skuli hafa valið mann, sem hafi enga reynslu af skrift- um, til að skrifa bækurnar og efast um hæfileika hans sem rithöfundar. Bæk- urnar heita Death Train (Dauðalestin) og Night Watch (Næturvaktin) og hafa selst í 400.000 eintökum frá því í jan- úar í fyrra. Bangladesh; Eiturslöngur bana 1.600 manns á ári Eiturslöngur bíta 7.500 manns á ári í Bangladesh og þar af deyja 1.600, sam- kvæmt skýrslu sem birt var í gær. Aðeins um sjö af hundraði fórnarlamb- anna reyndust leita læknis vegna sára sinna. Hinir fóru til slöngutemjara, sem taldir eru geta læknað slöngubit með því að sjúga blóð fórnarlambanna. Morgunblaðið/RAX LANDGANGA í VIÐEY Bretar boða einnig fækkun kjamavopna Gorbatsjov segir ákvörðun Bush afar mikilvægt framlag til afvopnunar London, Brussel, Washington. Reuter. BRETAR fylgdu eftir frumkvæði Bandarikjamanna í fækkun kjarnavopna, sem George Bush Bandaríkjaforseti skýrði frá í sjónvarpsræðu í fyrrinótt, og tilkynntu í gærmorgun um fækkun skammdrægra kjarnorkuvopna. í ræðu sinni tilkynnti Bush að Bandaríkjamenn myndu eyðileggja öll vígvallarkjarnorkuvopn sem ætlað var að nota til að verjast sovéskri innrás í Vestur-Evrópu og hundruð Tomahawk- stýriflauga yrðu tekin úr kafbátum og herskipum og eytt. Segja fréttaskýrendur það vera mesta einhliða niðurskurð vopna frá því vopnakapphlaup risaveldanna hofst eftir stríð. Míkhaíl Gorbatsjov Sovétforseti fagnaði ákvörðun Bush og lýsti henni sem afar mikil- vægu framlagi til afvopnunar, að sögn tals- manns Sovétforsetans. Búist var við að Gorb- atsjov héldi sjónvarpsræðu síðdegis í gær þar sem hann kynnti hver viðbrögð Sovét- manna yrðu, en Bush skoraði á Sovétmenn að koma til móts við ákvörðun sína og fækka einnig kjarnorkuflaugum. Tom King, varnarmálaráðherra Breta, sagði að Bretar myndu eyðileggja skamm- drægar kjarnaflaugar og vígvallarkjarnorku- vopn og fjarlægja kjarnorkudjúpsprengjur úr herskipum. Munu Bretra því granda Lance-eldflaugaskotpöllum sínum, en þeir eru 12 að tölu, og um 70 landflaugum. Að sögn Kings verður endurnýjun Polaris-kaf- bátaflotans haldið áfram til þess að Bretar hafi yfír að ráða lágmarks fælingarmætti, en ætlunin er að Trident-kafbátar leysi þá af hólmi á næstu árum. Manfred Wörner, framkvæmdastjóri At- lantshafsbandalagsins (NATO), fagnaði ræðu Bush í gær og hvatti Sovétmenn til að „grípa þetta einstæða tækifæri til að fækka verulega í vopnabúri sínu og stuðla þannig að mun friðsamlegri veröld". Helmut Kohl, kanslari Þýskalands, og Toshiki Kaifu, forsætisráðherra Japans, tóku í sama streng. Þá sagði ráðgjafí Roh Tae-woo Suður-Kóreu- forseta að búist væri við að ákvörðun Bush fæli í sér að bandarísk kjarnorkuvopn, sem komið hefði verið fyrir í Suður-Kóreu, yrðu mjög fljótlega flutt burt. Háttsettur bandarískur embættismaður sagði í gær, að Bandaríkjamenn myndu halda áfram langdrægum fjölodda kjarnorkuflaug- um um borð í kafbátum, en þær eru þyrnir í augum Sovétmanna og sögðust sérfræðing- ar telja í gær að Sovétmenn fengjust ekki til að fækka hundruðum fjölodda SS-18 eld- flauga sinna sem skotið er af landi meðan Bandaríkjamenn fækkuðu ekki þessum kaf- bátaflaugum. ‘TIÞOBF A "7/MÍ7OT FJÁRMÁLUM Ihugsunm- io HÆTTI - segir Friðrik Sophusson fjórmólaróðherra GALL BLADRAN TEKIN 18 CASTRO 16 EINANGRAÐUR

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.