Morgunblaðið - 29.09.1991, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 29.09.1991, Blaðsíða 27
en ljóst þykir að a.m.k. nokkrir demókratar sem óska eftir útnefn- ingu ættu að öllu óbreyttu að eiga góða möguleika á að vinna hylli kjósenda. Jerry Brown: Ríkisstjóri Kalifor- níu, stærsta fylkis Bandaríkjanna frá 1974-1982. Hann hefur gagn- rýnt spillingu í bandarískum stjórn- málum og margir álíta að ásakanir hans á hendur „gráðugum embætt- ismönnum sem láta stjórnast af fámennum sérhagsmunahópum“ eigi hljómgrunn meðal almennings. Hann tók sér frí frá stjórnmálum í sex ár til að læra búddisma í Japan og sinna hjálparstarfi hjá Móður Teresu í Indlandi. íhalds- samir gagnrýnendur segja hann vera „furðufugl og tækifæris- sinna“. Bill Clinton: Ríkisstjóri í Arkans- as. Hann þykir fremur hægrisinn- aður og gæti því átt erfitt uppdrátt- ar meðal demókrata á vinstri væng flokksins. Annað sem gæti orðið honum fjötur um fót er nokkuð sem kjósendur hefðu án efa meiri áhuga á en stjórnmálaskoðanir hans er einkalíf hans. Clinton, sem er ung- ur, 45 ára og afar myndarlegur að auki, þykir mikill kvennamaður og demókratar hafa engan áhuga á öðrum Gary Hart. Tom Harkin: Þingmaður frá Iowa, 51 árs. Hann nýtur mestrar hylli meðal flokksmanna og er sá frambjóðandi sem repúlíkanar hafa mestar áhyggjur af. Skoðanir hans þykja nokkuð langt til vinstri og gætu kostað hann atkvæði hægri- sinnaðra demókrata. Ílann segist þó sjálfur vera fulltrúi millistéttar- fólks en ekki „lágstéttarinnar" sem ekki virðast eiga sér neina öfluga málsvara. Bob Kerrey: Þingmaður frá Nebraska og fyrrum ríkisstjóri fylkisins. Hann hlaut heiðursorðu fyrir frammistöðu sína í Víetnam þar sem hann missti hægri fótinn í orrustu. Demókrötum hefur verið legið á hálsi fyrir að sinna ekki varnarmálum, en repúblíkanar munu eiga erfitt með að beina slík- um ásökunum að Kerrey. Hann þykir fremur fijálslyndur, en fortíð hans I viðskiptaheiminum er talin geta aflað honum fylgis meðal hægrisinnaðra demókrata. Kerrey, sem er 48 ára, hefur margt til brunns að bera sem bandarískir kjósendur kunna að meta. Hann er stríðshetja, er mynd- arlegur og hefur mikla persónu- töfra. Meðal sumra Bandaríkja- manna er Kerrey ef til vill þekkt- ari fyrir ástamál sín en stjórnmál, en hann bjó um tíma með leikkon- unni Debru Winger. Paul Tsongas: Fyrrum þingmað- ur frá Massachusettes. Hann gaf kost á sér í apríl en fremur lítið hefur borið á honum. Hann hefur lýst því yfir að Demókrataflokkur- inn þurfí að breyta um afstöðu til ýmissa mikilvægra mála, sérstak- lega efnahagsmála. Hann þykir einlægur og stefnufastur en sum- um þykir hann of alvarlegur í fasi, segja tillögur hans um úrbætur í efnahagsmálum vera of flóknar fyrir hinn almenna kjósanda. Tsongas, sem er 50 ára, átti í bar- áttu við krabbamein en vann bug á sjúkdómnum. Douglas Wilder: Ríkisstjóri í Virginíu; fyrsti svertingi í Banda- ríkjunum til að gegna embætti rík- isstjóra. Hann boðar samdrátt í rík- isfjármálum til að létta byrðar hins almenna skattborgara. Hann er talinn eiga möguleika á atkvæðum frá fólki í millistétt, bæði frá svört- um og hvítum. Ferill hans í stjórn- málum þykir þó fremur stuttur og margir efast um að hann geti sann- fært kjósendur um að hann ráði við ýmis mikilvæg mál, sérstaklega utanríkismál. Heimildir: Los Angeles Times, Time Magazine, San Diego Union. Viðtal við Dr. Pol.Sci. Richard Hofstetter. Höfundur stundar nám í fjölmiðlafræði við ríkisháskólann í San Diego í Kaliforníu. ieei íiaaMaTrag .es íiuoAauvíviug aiGAjanuoHOM MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29. SEPTEMBER 1991 3S 27 „Grænt kort“ USA Lögmannsstofa í New York veitir upplýsingar og aðstoð þeim íslendingum, sem áhuga hafa á að taka þátt í „græna korts“happdrætti Bandaríkjastjórnar. Vinsamlegast hafið samband við Magnús G. Þor- steinsson, lögfræðing, í síma 901 212 759 4488, fax 901 212 888 5271. Thorstenn & Thorstenn, Attorneys at Law, 641 Lexington Avenue, NewYork, NewYork 10022. ESAB RAFSUÐUVCIAR vírogfylgihlutii HEÐINN .< cn VÉLAVERSLUN SÍMI 624260 SÉRFRÆÐIÞJÓNUSTA - LAGER LOFTBRÚIN ALLA LAUGARDAGA OG ÞRIÐJUD. í NÓVEMBER 3, 4, OG 7 DAGA Ver& frá 23. 595 kr. 2ja daga aukaferð 26. nóv. Verð frá kr. 13.900.- Beint leiguflug með nýjum vélum Flugleiða I N N I F ALIÐ: Flug, gisting með skoskum morguverði, íslensk fararstjórn, flutningur milli flugvallar og hótels í Edinborg. rrrcfxvm | ■ ( ' ; . .. .. ' . '■ . -/ , % ' FERÐASKRIFSTOFA, BORGARKRINGLUNNI, SÍMI 679888

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.