Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. OKTOBER 1991 Já, leiklistargagnrýni - fyrir hvern o g hvernig? eftir Guðrúnu Alfreðsdóttur í sunnudagsblaði Morgunblaðsins 6. okt. sl., er að fmna greinarkorn eftir leiklistargagnrýnanda blaðsins, Súsönnu Svavarsdóttur, með yfir- skriftinni „Fyrir hvern er leiklistar- gagnrýni?” Þar leitast Súsanna við að svara fyrrnefndri spurningu, við- brögð leikhússfólks við gagnrýni dagblaðanna og „faglegar kröfur” þeirra eru henni hugleiknar og nýjar staðreyndir um dagblaðsgagnrýni eru fram settar. Trúiega hafa orð verið lögð í belg af minna tilefni... Súsanna bendir í upphafí rétti- lega á að nokkrar umræður hafi verið að undanfömu um leiklistar- gagnrýni og einkum þá er birtist í dagblöðum. Segir hún menn velta því fyrir sér fyrir hvem sú gagnrýni sé: „Er hún fyrir gagnrýnandann persónulega? Er hún fyrir leikhúss- fólk ? Er hún fyrir áhorfendur frum- sýninga? Er hún fyrir hinn almenna lesanda?” Þá telur Súsanna það vera almenna skoðun leikhússfólk s að sú leiklistargagnrýni sem tíðkast hjá daglöðunum eigi ekki rétt á sér því „gagnrýnendur séu ekki leiklist- armenntaðir - og því vanhæfir: Þeir skilji ekki leikhúsið og þau lögmál sem þar er unnið eftir”. Og hún heldur áfram: „Hugleiðingar af þessu tagi em ekki undarlegar þeg- ar á það er litið að leikhússfólk er stöðugt að krefjast „faglegrar” gagnrýni, eins og það er kallað.” Eftir formála í þessum dúr leiðir Súsanna okkur lesendur í allan sannleikann um eðli dagblaðs: „Dagblað er dagblað. Þar er fyrst og fremst hugsað um að vinna hlut- ina á augnablikinu - vera með fersk- ar fréttir og umfjöllun um menn og máiefni.” Hún segir dagblað ekki vera fagblað um listir og fullyrðir að Mörgunblaðsfólk hafí ekki talið sig vera með „gagnrýni” eða fag- lega úttekt á leiksýningum - heldur „umsögn” og á því sé „reginmun- ur”. Síðan útskýrir hún í stórum T Hcílsuvörur nútím^fólks YAMMAH Bátavélar Rafstöðvar 0 dráttum þann mun sem er á fag- legri gagnrýni og umsögn dagblaða. Hið síðamefnda segir hún „nær fréttamennsku”, þar sé aðallega hugsað um að lýsa upplifun og áhrif- um sýningarinnar. Þetta eru sannarlega „ferskar fréttir” en um leið grunar mann að þær séu óstaðfestar. Skilgreining Súsönnu á faglegri gagnrýni annars vegar og umsögn hins vegar stenst út af fyrir sig, en eftir stendur sú staðreynd að umfjöllun um leiklist, í Morgunblaðinu sem og öðrum dag- blöðum, hefur ávallt verið meira í ætt við gagnrýni en umsögn. Enda tíðkast fagleg listagagnrýni í helstu dagblöðum heims og þaðan er fyrir- bærið vafalaust hingað komið. Nú væri fróðlegt að vita hvað gagnrýnendur almennt hafa að segja um þessar fullyrðingar Sús- önnu Svavarsdóttur og það að í raun séu þeir alls ekki gagnrýnendur heldur aðeins umsagnaraðilar. Um leið vaknar sú spurning hvort ekki sé tímabært að endurvekja félag gagnrýnenda svo þeir geti skoðað málið og komist að niðurstöðu um hvers eðlis leiklistammljöllun dag- blaðanna eigi að vera í framtíðinni. (Ekki efa ég að leikhúsunnendur kjósi fremur að lesa faglega gagn- iýni en lauslega umsögn, jafnvel þó að hún sé í æsifréttastíl.) Einnig gætu gagnrýnendur velt fyrir sér spurningunni um fýrir hvern gagn- rýnin (umsögnin) eigi að vera, ef fleiri skyldu vera í vafa. Ég held að leikhúslistafólk velkist ekki í neinum vafa um hveijum hefðbundin, fagleg gagnrýni eigi að þjóna. Auðvitað lesendum fyrst og fremst, væntanlegum áhorfendum og þess vegna birtist hún í blöðum. En einnig getur hún verið gagnleg þeim sem þegar hafa séð sýning- una, hjálpað til við að skoða og skilgreina. Þá getur gagnrýni líka vissuiega verið listamönnunum holl og góð, sé hún heiðarleg og upp- byggileg. (Þar er Súsanna því miður ekki á sama máli.) Og þá er komið að starfi gagnrýn- andans og „kröfum” leikhússfólk s um „faglega” gagnrýni. Það að skrifa gagnrýni í blöð er afar vanda- söm og ábyrgðarmikil iðja, einfald- lega vegna þess að máttur hins rit- aða máls er mikill. Þetta þarf gagn- rýnandinn að hafa í huga er hann sest við skriftir. Mörg dæmin sanna að lengra eða styttra líf leiksýninga hefur mátt rekja beint til gagnrýni dagblaðanna. Og fljótfærnisleg út- listun á starfí og hæfni listamanns getur haft áhrif á listræna framtíð hans. Þá er ekki út í hött að álíta að megintilgangurinn með blaða- gagnrýni sé sá að vekja áhuga á viðfangsefninu, hvort sem um hrós eða skammir er að ræða, fremur en að fæla lesendur frá með nei- kvæðri, einhliða afgreiðslu. í ljósi þessa telja leikhúslistamenn varla til of mikils ætlast þó að gerð- ar séu þær kröfur að opinber gagn- týni sé byggð á faglegri þekkingu á viðkomandi listgrein. Fagleg þekking þarf vel að merkja ekki að þýða það sama og fræðileg þekking og þarf ekki að útskýra nánar. Raunar er nauðsynlegt að gera fleiri „Öneitanlega gerir leikhússfólk töluverðar kröfur til gagnrýnenda, en eru þær svo ósann- gjarnar miðað við völd þeirra og óvéfengjan- legan áhrifamátt?” kröfur til gagnrýnenda; svo sem áhuga og elsku á listgreininni (sem verður þó að ætla að flestir hafi sem gefa kost á sér í starfið), óhlut- drægni og þess að þeir hafí a.m.k séð sýninguna tvisvar áður en penn- inn er mundaður. Öll erum við nefni- lega með þeim ósköpum gerð að vera misjafnlega upplögð frá degi til dags. Það að þurfa að sitja leik- sýningu þreyttur eða argur er lík- lega ekki alltaf vænlegt til jákvæðr- ar afstöðu, hvað þá að þurfa síðan að skrifa leikdóm og jafnvel í tíma- hraki. Já, óneitanlega gerir leikhússfólk töluverðar kröfur til gagnrýnenda, en eru þær svo ósanngjarnar miðað við völd þeirra og óvéfengjanlegan áhrifamátt? Það tel ég ekki vera. Listamenn geta ekki og eiga ekki að sætta sig við það að listagagn- rýni eða umsögn sé hespað af með hraða fréttamennskunnar, eins og hvert annað efni byggt á bláköldum, einföldum staðreyndum úr hinu dag- lega lífi. Leiksýning, list augnabliks- ins sem sjaldan er eins í tvö skipti, er og verður alltaf matsatriði hjá þeim sem á horfir. Gæði listar verða aldrei sett undir mælistiku til að finna hið eina rétta svar. Gagnrýn- andi þarf, eins og hver annar, tíma til að meðtaka og „melta” heildar- áhrif sýningar, en auk þess þarf hann á þekkingu sinni að halda til að kafa dýpra áður en hann myndar sér endanlega skoðun. Skoðun sem segir lesendum meira en það hvort sýning hafi verið góð, vond, leiðinleg eða skemmtileg. Fullyrðing Súsönnu í grein henn- ar, um að það sé „viðtekin skoðun leikhússfólks” að gagnrýnendur sem ekki eru leiklistarmenntaðir séu „vanhæfir”, er auðvitað hæpin al- hæfing. Sagan segir okkur líka að sú er ekki alltaf raunin. En á hinn bóginn eru athugasemdimar um kröfur leikhússfólks um faglega gagnrýni mjög athyglisverðar. Það er nefnilega svo að sjálfgefið þykir að þeir sem skrifað hafa gagnrýni í dagblöðin um t.d. tónlist, sönglist, myndlist, listdans og bókmenntir, séu meira eða minna menntaðir eða reyndir á sínu listasviði. Af hveiju í ósköpunum ætti annað að gilda um leiklist? Og að lokum þetta: Fagleg, uppbyggileg gagnrýni er ölium í hag - þó að Súsanna telji það mikinn misskilning að gagn- rýni/umsögn sé fyrir leikhúsið og starfsfólk þess. Hvað um það, les- endur eiga þó alltént skilið að fá að njóta þess besta og virðulegt dagblað sem tekur sig alvarlega sér fyrir því. Höfundur er formaður Félags íslcnskrn leikara. SKOVERSLUN Odýru kuldaskórnir komnir aftur Stærðir: 36-46 Litur: Svartur. Dökkbrúnn Verðfrákr. 3.295." Ath.: Ur mjúku leðri með grófum sóla. 5% staðgrei&sluafsláttur. Póstsendum samdægurs. Kringlunni, Toppskórinn, Domus, ,s. 689212. Veltusundi, sími 21212. s. 18519. CAHY S I H P I B I L l SPARNEYTINN OG ÓDÝR í REKSTRI Til afgreiðslu strax: Tilboðsverð m/vsk. 796.000.- árl/vsk. 639.000.- $SUZUKI SUZUKI BÍLAR HF SKEIFUNNI 17 SlMI 66 61 00 Sá&astm dagur úfsölunnar/ Sófav', stóla/r, borð, speglar. Komið og kynnið ykkur sértilboð dagsins d húsgögnum. Veruleg verðlœkkun. Opið í dag 11-16. Borgartúni 29, sími 20640.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.