Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.10.1991, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. ÖKTÓBER 1991 Minning: Guðni Gestsson frá Mel íÞykkvabæ 33 Minning: Jóhannes Hjálmars■ son frá Siglufirði Fæddur 17. mars 1909 Dáinn 4. október 1991 m í dag’ verður jarðsunginn frá ® Keflavíkurkirkju, elskulegur afí okkar og langafí, Guðni Gestsson, en hann lést í Sjúkrahúsi Keflavík- ur 4. október sl. Okkur langar í fáum orðum að minnast afa sem var okkur svo kær. Afi ólst upp í Þykkvabæ. Þar stundaði hann landbúnaðarstörf ásamt því að sækja vertíðar. Þeg- ar hann svo flutti til Keflavíkur haustið 1946 ásamt eiginkonu sinni Vigdísi Pálsdóttur og fimm börnum þeirra, en Vigdís (Vigga amma) gekk þá með sjötta bamið. Fór afí að vinna ýmsa verka- mannavinnu og liðtækur var hann 3 með hamarinn. Nutu ættingjar og vinir góðs af er þeir voru að koma gj sér upp þaki yfír höfuðið. Það gekk vel undan honum. Hann snéri sér ekki að neinu með hangandi ■ hendi. Á seinni ámm gerði afí mikið af því að leggja kapal og var han ólatur við að kenna okkur á spilin. Hann var hæglátur og flíkaði ekki tilfinningum sínum. Gott var að tala við afa, þó sérstaklega í ein- rúmi. Það sem var rætt fór ekki langt. Afí og amma áttu lengst af heima á Heiðarvegi 12 þar til fyr- ir fáeinum ámm að þau fluttu í hús aldraðra við Kirkjuveg og áttu þar notalegt heimili. Þar var oft þröngt á þingi enda þau hjónin góð heim að sækja. Á laugardags- og sunnudagsmorgnum var oft p margt um manninn þegar afkom- endurnir fjölmenntu á fund, eins og við kölluðum það. Þá var afi ) búinn að baka handa okkur pönnu- kökur sem alltaf voru jafn vinsæl- Er við hjónin vorum á ferð í Þýskalandi í lok ágústmánaðar í sumar barst okkur sú fregn frá Köln að dr. Löffler hefði fengið aðsvif á heimili sínu í Köln og lægi þungt haldinn á sjúkrahúsi þar í borg. Þar andaðist hann 3. sept- ember síðastliðinn á 92 aldursári. Utför hans var gerð í kyrrþey, aðeins nánustu ættingjar og vinir, samkvæmt hans eigin ósk, enda " honum líkt að vilja ekki vera í sviðs- ljósinu, hvorki í lífí né dauða. Þegar hljóðlega lokast dyr í £S* hinsta sinn, vitja minningarnar manns, hlýjar og gefandi um innileg samskipti og vináttu við þennan ” mæta mann og íslandsvin sem nú er kvaddur með trega og virðingu í hárri elli, og saknað af öllum er til þekktu. Saddur lífdaga og sáttur við alla kvaddi dr. Löffler þetta líf, eftir langa og viðburðaríka starfs- ævi. Hann var andlega hress til hins síðasta, þótt líkaminn væri farinn að hröma og hann hélt 6. maí síðastliðinn upp á 91 árs af- mæli sitt með venjulegri reisn og höfðingsskap. Sagði hann þá með kímnissvip að úr því að hann hefði náð níræðisaldri, gæti hann vel hugsað sér úr þessu að doka við til hundruðasta aldursársins. Dr. Löffler fæddist 6. maí árið 1900 í Köln-Deutz, útborg á hægri bakka Rínarfíjótsins. Ilann var sá yngri af 2 sonum foreldra sinna, v sem þeir misstu ungir og voru síðan aldir upp af frænku þeirra. Eldri bróður sinn, Helmut, missti hann í ► síðari heimsstyijöldinni. Dr. Löffler lauk hagfræðiprófí frá hagfræði- deild Kölnarháskóla og síðar dokt- orsgráðu. Stundaði hann síðan hag- ar, þótt sumum fyndust. þær held- ur sykraðar. Elsku amma, og við öll, höfum mikið misst, en minninguna tekur enginn frá okk- ur, hana geymum við hjá því dýr- mætasta sem við eigum. Við vitum að vel hefur verið tekið á móti afa er hann kvaddi þetta tilverustig. Gleymum ekki að þakka Guði það sem við höfum nú og höfum haft. Elsku amma. Við biðjum algóð- an Guð að vera með þér og okkur öllum er syrgjum afa og að gefa okkur styrk í sorginni. Blessuð sé minning afa. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þðkk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Anna María, Ari og börn. Guðný og Júlli. Ingiberg Þór. Eg vil með fáum orðum minn- ast tengdaföður míns og votta honum virðingu og þakklæti. Guðni fæddist 17. mars 1909 að Mel í Þykkvabæ og ólst þar upp. Hann var þriðja barn foreldra sinna, Kristínar Þórðardóttur og Gests Helgasonar. Elstur var Fel- ix, þá Amfríður, Helga og Lilja, öll látin, en uppeldisbróðir, Ólafur Guðbrandsson, býr á Akranesi. Guðni kvæntist eftirlifandi konu sinni, Vigdísi Pálsdóttur frá Ekru í Oddahverfí, og eignuðust þau sex börn; Svein, Elínu, Ingunni, Gest, Pálínu og Kristínu. Bamabörnin em 19 og barnabarnabörn 10. Guðni og Vigdís hófu búskap í Þykkvabæ, fyrst að Tjörn en fluttu fljótlega að Vesturholtum. Haustið 1946 flutti fjölskyldan til Keflavík- ur á Heiðarveg 12 en fyrir þrém áram á Kirkjuveg 11. Guðni starf- aði á uppvaxtar- og búskaparárum að Vesturholtum við almenn sveit- astörf. Ungur hóf hann sjósókn á vertíðarbátum frá Vestmannaeyj- um og réri alls ellefu vetrarvertíð- ir þaðan. Við húsasmíðar vann hann mikið með sveitabúskapnum og fyrstu árin í Keflavík hjá Þór- arni Ólafssyni. Um 1949 hóf hann störf hjá Huxley Ólafssyni, fyrstu þijú árin við fiskverkun og síðan um þijátíu ára skeið við Fiskiðjuna í Keflavík við smíðar og fleira. Guðni var hlédrægur en undir bjó glettni, ávallt sterkur talsmaður þeirra er minna máttu sín, hafði yndi af leiklist, lék í mörgum leik- ritum ásamt systkinum og fleiri Þykkvabæingum. Flestar frístund- ir sem til féllu nýtti hann til að aðstoða ættingja og vini við hús- byggingar. Nú er leiðir skilur kveð ég vin með söknuði, votta Vigdísi, bömum hennar og öðram ástvin- um innilegar samúðarkveðjur. Ellert B. Skúlason fyrir land og þjóð, ef þörf reyndist, enda voru þau bæði í eðli sínu ákaf- lega jákvæð og fluttu allt til betri vegar. Fyrir áram seldi dr. Löffler fyrir- tæki sitt „Cyclop International” enda orðinn lúinn og heilsan tekin að bila. Margt fleira mætti rita um líf og störf þessa ágætismanns, sem hér skal ekki farið út í, en nú, þeg- ar leiðir skilur að sinni, þá er það ættingjum og vinum huggun að fögur minning lifir með öllum þeim sem áttu því láni að fagna að hafa kynnst og verið um tíma samferða- menn þessa aldna heiðursmanns. Einnig héðan frá landi ísa og elda, fylgja honum á þeim leiðum, sem hann hefur nú lagt út á, þakkir vinanna mörgu, bæði hér heima og erlendis, sem senda eftirlifandi syni og öðruml nákomnum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning dr. Ottos Löfflers. Geir R. Tómasson Fæddur 3. október 1917 Dáinn 3. október 1991 Minningarnar verða að myndum á stund tregans. Ég geng inn í hús á firðinum, hús undir háu fjalli. — Það er alltaf svo hlýtt í þessu húsi. — Það er blómstrandi rós í suður- glugganum, beijalyng fyrir ofan húsið og útsýni yfír ijörðinn. í eld- húsinu sest ég á háa stólinn við stóra eldhúsborðið sem á eru heimabakað- ar kökur. Jói frændi segir sögur með djúpri rólegri rödd og Kristbjörg hlæi' sínum dillandi hlátri. — Það er alltaf svo hlýtt í þessu húsi en það mikilvægasta er ósýnilegt aug- unum. Nú hefur Jóhannes Hjálmarsson kvatt okkur — síðastur af systkin- unum þrettán frá Húsabakka í Að- aldal — sem flutti til Sigluíjarðar með foreldrum sínum Kristrúnu Snorradóttur og Hjálmari Kristjáns- syni. Öll hafa systkinin kvatt á þeim tíma ársins er litir og ljós taka að hopa fyrir skammdegisskuggunum, enda vora þau börn lita, Ijóss og ljóða. Það er trúa mín að nú séu þau sameinuð þar sem tilveran er ljóð og ljós. Jóhannes var íþróttakennari og starfaði við það framan af — og íþróttamaður var hann góður. Hann lagði gjörva hönd á margt á starfs- ævi sinni, en best man ég eftir Jóa frænda sem sjómanni, og þá fyrst og fremst á trillunni sinni, sem hét Kristbjörg. Það sannaðist á Jóa að þeir fiska sem róa, því hann sótti björg í bú á sumrin, einn á trillunni og varð síðhærður og sæbarinn er haustaði og þá fannst mér hann verða eins og persóna úr sögum um frækna sægarpa. — Og hann kunni að segja sögur. Jóhannes var gæfumaður. Hann kvæntist Kristbjörgu Marteinsdóttur frá Ystafelli. Þau eignuðust sjö börn og bjuggu í húsi undir háu íjalli á Siglufirði. Börnin eru Marteinn, kvæntur Sigurlaugur Haraldsdóttur og búa þau í Hveragerði. Þorsteinn kvæntur Helgu Þorvaldsdóttur, þau búa á Siglufirði. Sigríður gift Eiríki Jónssyni, þau búa á Akureyri. Hjálmar kvæntur Kolbrúnu Friðriks- dóttur, heimili þeirra er á Siglufirði. Kara, hún býr í Hveragerði. Kristín, hennar maður er Þorkell Rögnvalds- son, þau búa á Akureyri. Signý gift Þórði Björnssyni, þau búa á Siglu- "* firði. Áður en Jóhannes kvæntist eignaðist hann dóttur, Kristbjörgu, sem gift er Jóni Þór Bjamasyni og búa þau í Reykjavík. Bamabörnin eru tuttugu og tvö og barnabörnin eru fjögur. Jói frændi var jafnaðarmaður og trúr þeirri stefnu. Hann var Ijóðelsk- ur og unni náttúrunni og landinu. Hann var ekkert fyrir hjóm. Hann var hreinskilinn og var lítt fyrir að látast. Hann var hagmæltur en flík- aði því ekki. Áleit að aðrir væru * færari. Á kveðjustund áttum við okkur á því að sú stund veldur þáttaskilum í lífi okkar sem eftir lifum, lífíð verð- ur ekki eins og það var. Af því að Jói frændi er farinn. Minningarnar lifa og þakkirnar eru kærar fyrir að hafa átt móðurbróður með djúpa og rólega rödd og vinarþel sem aldrei gleymist. Elsku Kristbjörg og fjölskylda, innilegar samúðarkveðjur. Guð blessi ykkur og minninguna um Jó- hannes Hjálmarsson. Sigríður K. Stefánsdóttir ® Minning: Dr. Otto Löffler fræðistörf hjá ýmsum stofnunum og fyrirtækjum, en gerðist loks meðeigandi að stórfyrirtækinu „Cyclop” í Köln, sem síðar stofnaði útibú í nokkram löndum, bæði .í Evrópu og Ameríku. Konu sína Beatrix, fædd Erkes, missti hann 1973. Þeim varð sjálfum ekki bama auðið, en kjörsonur þeirra Henner, hefur reynst öldraðum föður sínum einstaklega vel, og miklir kærleikar verið þeirra í milli. Það sama má segja um bamabömin tvö, sem þótti mjög vænt um afa sinn og sakna nú^góðs vinar. í gegnum tengsl sín við Erkes- fjölskylduna komst dr. Löffler í kynni við ísland og íslenskar fjöl- skyldur og bast þannig óijúfa bönd- um öllu sem íslenskt var. Hann hefur frá árinu 1938 heimsótt ís- land ótal sinnum og nú síðastliðið ár með skemmtiferðaskipinu „m.s. Europa”, er hann leit landið hinsta sinni. Einnig eftir lát konu sinnar hefur hann ávallt látið sér annt um þá íslendinga sem til Rínarlanda hafa leitað, hvort heldur til náms eða annara erinda og verið reiðubú- inn að rétta þeim hjálparhönd. Ár- leg rausnarboð dr. Löfflers fyrir Islendinga búsetta í Rínarlöndum voru vel þekkt og mikils metin. Þessi íslandsvinur var konsúll fýrir ísland í Rínarlöndum í fjöldamörg ár og fyrir öll hans störf á þessum árum sýnid íslenska ríkið honum verðuga viðurkenningu með því að sæma hann íslensku fákaorðunni. Löfflershjónin voru alla tíð einlægir aðdáendur og vinir íslands og slepptu aldrei neinu tækifæri til að fegra og dásama sérkennilega feg- urð landsins og halda uppi málsVörn t Eiginmaður minn og faðir okkar, HAUKUR JÓMSSON, Þverholti 26, Reykjavík, lést þann 10. október. Rósa Einarsdóttir, Kolbrún Hauksdóttir, Auður Hauksdóttir, Berglind Hauksdóttir, tengdasynir og barnabörn. t Astkær eiginmaður minn, ÞÓRIR ÞORLEIFSSON, húsgagnabólstrari, Gerðhömrum 1, varð bráðkvaddur 10. október. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Guðrún Sturludóttir. ■1 Útför I- INGIBJARGAR E. KRISTINSDÓTTUR, Hlemmiskeiði, sem lést í Borgarspítalanum 4. vallakirkju 15. október kl. 14.00. október, verður gerð frá Ólafs- Kristín Eiríksdóttir, Ingólfur Bjarnason, Vilhjálmur Eiríksson, Ásthildur Sigurjónsdóttir, Leifur Eiriksson, Ólöf S. Ólafsdóttir, Guðrún Eiríksdóttir, Steingrímur G. Pétursson, barnabörn, tengdabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.