Morgunblaðið - 22.10.1991, Blaðsíða 1
56 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
240. tbl. 79. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 22. OKTOBER 1991
Prentsmiðja Morgunblaðsins
SAMIÐ UM EES
Samningurinn felur í sér tollfrelsi
fyrir um 95% af íslenskum útflutningi
sjávarafurða til EB - Fyrirvariís-
lendinga um fjárfestingar í sjávarút-
vegi samþykktur - íslendingar fá
30.000 tonn af loðnu fyrir 3.000
tonn af karfaígildum
Lúxemborg. Frá Kristófer M. Kristinssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
SAMKOMULAG um myndun Evrópska efnahagssvæðisins (EES)
tókst í Lúxemborg laust fyrir klukkan tvö að íslenskum tíma í nótt.
Sú afstaða Spánverja að ekki væri unnt að fallast á varanlega fyrir-
vara Islendinga hvað varðar fjárfestingar erlendra aðila í sjávarút-
vegi hérlendis stóð fram eftir nóttu í vegi fyrir samkomulagi um
efnahagssvæðið, sem taka mun til um 350 milljóna manna. Jón Bald-
vin Hannibalsson utanríkisráðherra sagði klukkan tvö í nótt er niður-
staðan lá fyrir: „Þetta hafðist. Við höfum náð samningsmarkmiðum
okkar. Þessi samningur er sögulegur, hann er veigamikill þáttur í
samrunaferlinu í Evrópu.” I máli utanríkisráðherra kom fram að
samningurinn hefði í för með sér að um 95% af íslenskum útflutn-
ingi sjávarafurða til Evrópubandalagsins yrðu tollfrjáls. Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráðherra sagði eftir fundinn: „Þetta er Ótvír-
ætt mjög góður samningur fyrir Island.” Sagði hann að Islendingar
létu Evrópuþandalaginu í té veiðiheimildir sem samsvöruðu 3.000
tonhum af karfa en í staðinn fengju Islendingar heimildir til veiða
á 30.000 tonnum af loðnu.
„Þetta hafðist. Okkur tókst að
bægja frá fjárfestingum í sjávarút-
vegi. Það er meiriháttar samnings-
árangur. Við höfum náð samnings-
markmiðum okkar, markaðsað-
gangurinn er um 95% án þess að
við höfum fallist á heimildir til fjár-
festinga í sjávarútvegi og án þess
að samþykkja miklar veiðiheimilir.
Við munum kynna þennan samning
rækilega á næstunni og þann gríð-
arlega ávinning sem náðst hefur,”
sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
Aðspurður sagði utanríkisráð-
herra að sér væri á þessari stundu
efst í huga þakklæti til samstarfs-
manna sinna. „Eg tel sérstaklega
að Hannes Hafstein sem aðalsamn-
ingamaður hafi allan tímann verið
réttur maður á réttum stað. Við
þurfum líka að hafa í huga að sam-
starfsþjóðir okkar í EFTA hafa
einnig lagt mikið af mörkum, sér-
staklega Norðmenn, sem tóku á sig
fórnir.”
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra sagði eftir fundinn: „Þetta
er ótvírætt mjög góður samningur
fyrir ísland. Fyrir sjávarútveginn
tókst að ná eins miklu fram og frek-
ast var að vænta. A samningstíma-
bilinu næst 96% tollfrelsi án þess
að í staðinn hafi verið látnar veiði-
heimildir eða opnað fyrir fjárfest-
ingar. Ég tel samninginn gefa ný
þróunartækifæri í íslenskum sjávar-
útvegi, sérstaklega með tollfrelsi á
fersk flök, saltfisk, söltuð flök og
söltuð síldarflök.”
Samhliða fundir ráðherra aðild-
arríkja Evrópubandalagsins og
EFTA hófust síðdegis í gær í Evrój)-
umiðstöðinni i Lúxemborg. Af Is-
lands hálfu tóku þeir Jón Baldvin
Hannibalsson utanríkisráðherra,
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
herra, Hannes Hafstein sendiherra
í Brussel, Kjartan_ Jóhannsson,
sendiherra í Genf, Árni Kolbeins-
son, ráðuneytisstjóri í sjávarútvegs-
ráðuneytinu og Gunnar Snorri
Gunnarsson, skrifstofustjóri við-
skiptaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins, þátt í viðræðunum.
Fyrir lá að ekki yrði unnt að
hefja samhliða fundina ef ekki tæk-
ist að leysa ágreining milli Sviss
og Austurríkis annars vegar og
Evrópubandalagsins hins vegar um
þungaflutninga um Alpana. Sam-
komulag náðist í gærkvöldi um
þetta atriði. Samkvæmt því verður
dregið úr mengun frá flutningabif-
reiðum Evrópubandalagsríkjanna
sem fara um Alpana ,um 60% á
næstu tólf árum. í staðinn verða
flutningar með járnbrautalestum
auknir. Svisslendingar heimila ferð-
ir flutningabifreiða sem vega meira
en 28 tonn að því gefnu að bílarnir
séu ekki eldri en tveggja ára og
að allar flutningalestir séu fullar.
Samgönguráðherrar EB féllust á
slíkan samning við Sviss og Austur-
ríki með auknum meirihluta. Ein-
ungis Grikkir lögðust gegn sam-
komulaginu og hótuðu á tímabili
að beita neitunarvaldi gegn EES-
samningnum í heild þótt samkomu-
lagið um flutningana væri óháð
honum. Seint í gærkvöldi féllu
Grikkir frá þessu eftir að Austurrík-
ismenn samþykktu að fjölga leyfi-
legum ferðum flutningabifreiða um
land sitt.
Sjá einnig fréttir á bls. 2 og 23.
* Morgunblaðið/Guðlaugur Tryggvi Karlsson
Fulltrúar Islands á Lúxemborgarfundinum í gær, (f.v.) Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra,
Hannes Hafstein sendiherra í Brussel og aðalsamningamaður íslands og Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra. Auk þeirra tóku þátt í fundunum Kjartan Jóhannsson sendiherra í Genf, Árni Kolbeinsson
ráðuneytisstjóri í sjávarútvegsráðuneytinu og Gunnar Snorri Gunnarsson skrifstofustjóri viðskiptaskrif-
•stofu utanríkisráðuneytisins.
Nýtt Æðsta ráð Sovétríkjanna kemur saman:
Gorbatsjov andvígur sjálf-
stæðum herjum lýðvelda
Einungis sjö lýðveldi taka þátt í fyrsta þingfundinum
Moskvu. Reuter.
MÍKHAÍL Gorbatsjov, forseti Sovétríkjanna, setti í gær fyrsta fund
nýs Æðsta ráðs Sovétríkjanna. Einungis sjö Sovétlýðveldi sendu full-
trúa á fundinn. Þar varaði Gorbatsjov lýðveldin við því að stofna
eigin heri.
Ákveðið var að mynda nýtt
Æðsta ráð eftir valdaránið mislukk-
aða í ágúst síðastliðnum og starfar
það tímabundið uns nýr sambands-
sáttmáli Sovétríkjanna hefur verið
samþykktur. Ráðinu er skipt í tvær
deildiij lýðveldisráðið og sambands-
ráðið. I lýðveldisráðinu eiga lýðveld-
in fulltrúa í samræmi við íbúatölu,
minnst tuttugu. Hvert lýðveldi hef-
ur þó einungis eitt atkvæði. í sam-
bandsráðinu er sætum einnig skipt
í hlutfalli við íbúatölu lýðvelda en
það hefur lítil formleg völd.
Fjarverandi í gær voru fulltrúar
Úkraínu, Moldovu, Armeníu, Az-
erbajdzhans og Georgíu.
Gorbatsjov flutti hálftíma ávarp
við setningu þingsins. „Reynt hefur
verið að þjóðnýta eða jafnvel einka-
væða herdeildir sovéska hersins,”
sagði Gorbatsjov. „Þetta er ekkert
Sátt um 3% launalækkun
í Finnlandi á næsta ári
## Helsinki. Frá Lars Lundsten, fréttaritara Morgfunblaðsins.
OLL helstu launþegasamtök Finnlands, samtök vinnuveitenda og
ríkisstjórn náðu í gær samkomulagi um lækkun launa og allsherjar
kjaraskerðingu til þess að treysta stöðu útflutningsgreinanna. í samn-
ingnum er kveðið á um 3% lækkun launa á næsta ári en einnig er
hlutur launatengdra gjalda færður frá vinnuveitendum yfir á laun-
þega, en samtals á þetta að lækka launakostnað fyrirtækja um 7%.
Auk þessa hafa launþegasamtök-
in fallið frá launahækkunum sem
þau áttu að fá' á næsta ári sam-
kvæmt kjarasamningum sem gerðir
voru í fyrra og giltu til. októberloka
á næsta ári.
Meðal þeirra samtaka sem sam-
þykkt hafa að taka á sig kjaraskerð-
ingu eru samtök opinberra stárfs-
manna, samtök háskólamenntaðra
launþega og verslunannenn. Stjórn
alþýðusambandsins, en innan vé-
banda þess eru faglærðir og ófag-
lærðir iðnverkamenn og flutninga-
verkamenn, sat á fundi í gærkvöldi
en hafði ekki tekið afstöðu til kjara-
skerðingarinnar þegar síðast frétt-
ist.
grín. Slíkt tal er hættulegt.” Svo
bætti hann við: „Ég bið þá sem
þessi orð eiga við um að draga við-
eigandi ályktanir af þeim ella verð-
ur gripið til stjórnskipulegra að-
gerða.” Síðar sagði Gorbatsjov við
fréttamenn að hann sem forseti
bæri ábyrgð á varnarmálum og
myndi nema úr gildi ákvarðanir af
þessu tagi því þær væru ólöglegar.
Stjórnvöld í Azerbajdzhan hafa þeg-
ar þjóðnýtt allar eignir sovéska
hersins í lýðveldinu. Verið er að
undirbúa stofnun hers í Úkraínu
og Rússar hafa boðað myndun þjóð-
varðliðs. í Georgíu hefur forsetinn,
Zviad Gamsakhurdia, haft þjóð-
varðlið til umráða um nokkurt
skeið.
Sagnfræðingurinn Júrí Afan-
asjev, sem er umbótasinnaður þing-
maður, hafði þetta að segja um
ræðu Gorbatsjovs: „Hann er ekki í
takt við tímann frekar en venju-
lega. Erindi Gorbatsjovs var veiklu-
legt, það miðaði við að atburðarásin
yrði friðsamleg, líkt og við værum
í Skandinavíu. Það endurspeglaði
ekki hætturnar sem leynast við
núverandi aðstæður.”
Vítold Fokin, forsætisráðherra
Úkraínu, sagði í gær að Úkraínu-
menn myndu undirrita sáttmála
Sovétlýðveldanna um samstarf í
pfnahagsmálum sem undirritaður
var í Moskvu sl. föstudag.