Morgunblaðið - 24.10.1991, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 24.10.1991, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 24. OKTÓBER 1991 37 hlaupa undan þeim þangað til að sundur dró með þeim tveimur, þá sneri hann við, tuktaði þann fyrri til, hljóp svo á móti þeim seinni og lét hann einnig fá að finna til te- vatnsins. Miðvikudaginn átjánda febrúar 1976 breyttist bernska hans. Faðir okkar, sem þá var sjómaður, var kominn í land. Þar sem við eldri bræðurnir vorum í skóla fór Böggi einn með mömmu að sækja pabba. Ljósin á gatnamótum Sóleyjar- götu og Hringbrautar voru biluð. Það var engin lögregla til að stjórna umferðinni og þegar móðir mín ætlaði yfir gatnamótin kemur strætisvagn á mikilli ferð, eins og þeirra er gjarnan vani, og keyrir harkalega aftaná vinstri hlið bíls- ins. Faðir minn og skipsfélagi hans sluppu með lítilsháttar meiðsli. Móðir mín höfuðkúpubrotnaði og finnur síðan hvorki lykt né bragð. Bróðir minn hlaut varanlegan heila- og mænuskaða sem varð til þess að hann vaknaði aldrei til fullrar meðvitundar. Ég var ellefu ára gamall og Halldór bróðir minn átta ára. Þetta var á miðvikudegi. Það er undarleg tilviljun að víð bræður erum allir fæddii' á miðvikudegi. Við vissum í raun ekki hvaðan á okkur stóð veðrið, okkur var sagt eins og foreldrum okkar að hann ætti góðar líkur á bata en eftir því sem árin liðu varð okkur æ ljósara að svo yrði líklega aldrei. í sextán ár lá hann meðvitundar- laus eins og það var kallað, en heyrði þó og sá að einhveiju marki. Eftir því sem tíminn leið fékk hann fleiri og fleiri lyf og honum hrakaði smámsaman. Kvef og aðrar pestir lögðust þungt á hann. Það var að lokum lungnabólga sem dró hann til dauða nítjánda október síðastlið- inn. Hann fékk hægt andlát og mér er sagt að það hafi verið friður yfir honum. Við ættum ekki að vera sorg- mædd vegna hans, hann þjáist ekki meira. En við mættum kannski vera sorgmædd í dag vegna okkar sjálfra, sem höfum allt sem hann hafði ekki: heilsu, 'líf og framtið, en erum samt svo vanþakklát og sýnum því samt svo litla virðingu. Steirin Armann Magnússon Löngu og erfiðu stríði er lokið — veikindastríði ungs manns sem hófst svo snögglega vetrarmorgun einn fyrir nær 16 árum. Hann Björgvin, þessi kraftmikli litli drengur, átti sitt bernskuheimili í Krókahrauninu. Þar sem tilveran snerist um leiki og smástrákapör. Þá var lífið leikur, og öryggið sótt til foreldranna góðu og eldri bræðranna tveggja, sem ávailt voru tilbúnir að létta undir með þeim yngsta. Þarna hófst vinátta tveggja lítilla drengja, Bögga og Sverris sem léku saman flesta daga, og ófáar voru næturnar sem þeir fengu leyfi til að sofa hvor hjá öðrum. Þaðan eru minningarnar sem ekki gleymast, og grópast hafa dýpra í hugann en margar aðrar, — kannski vegna þess sem síðar gerðist, en kannski bara vegna þess að þær tengjast því fegursta í lífi okkar, — bernskunni. En skjótt skipast veður í lofti, og 18. febrúar 1976 lenti Björgvin ásamt foreldrum sínum í svo slæmu bílslysi að hann komst ekki meir til meðvitundar. Það er mikið áfall að missa ást- vin sinn ungan, en álagið sem það er að horfa upp á barnið sitt eða bróður meðvitundarlausan árum saman, er eitthvað sem venjulegt fólk á ómögulegt með að hugsa sér. Því er það, að maður hefur oft spurt sjálfan sig þess, hver geti verið tilgangur almættisins að leggja svo þunga byrði á lítið barn, og ijölskyldu þess. En Drottinn tekur, og Drottinn gefur, og hann gaf íjölskyldu Björg- vins, styrk til að efia með sér æðru- ieysi og þroska. Það er aðdáunar- vert hve Sella og Maggi hafa öll þessi ár annast Björgvin vel, hvort heldur hann lá inni á sjúkrastofnun- um eða heima, eins og lengst af var. Þeirra hjúkrunarstörf voru unnin af svo mikilli umhyggju og sam- viskusemi, að einstakt var. Elsku Sella og Maggi, við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur og strákana í sorg ykkar. Sverrir, Elsa, Guðbjörg og Ingjaldur * Kolbrún Amunda- dóttir - Kveðjuorð Fædd 7. apríl 1956 Dáin 13. október 1991 Að kvöldi 13. október sl. barst mér sú harmafregn að Kolla væri dáin. Ég varð harmi sleginn, og mið setti hljóðan. Á þessu átti ég síst von að svo ung kona hyrfi í einu vetfangi af sjónarsviðinu. Þrem dögum áður hafði ég rætt við hana og var hún þá svo kát og hress eins og hún var oftast, þrátt fyirr alla þá erfiðleika sem hún hafði orðið að ganga í gegnum á undanförnum árum. Ég kynntist Kollu fyrst fyrir 18 árum á Akureyri, en þá var ég þar við sjómennsku. Kynni okkar þá voru stutt, en skemmtileg. Leiðir okkar lágu svo aftur saman nokkr- um árum síðar, eða árið 1980. Upp úr því hófum við svo sambúð. Fyrst í Reykjavík en lengst af á Sauðár- króki. Kolla kom inn í líf mitt með lítinn sólargeisla, Helgu Valdísi, 5 ára gamla, sem ég tók miklu ást- fóstri við. Árið 1982, 5. ágúst, eign- uðumst við dóttur, Aðalheiði írisi. Það var mikil hamingja sem fylgdi þessu barni, og því varð höggið þyngra er við misstum hana aðeins þriggja ára gamla vegna hjarta- galla sem enginn mannlegur máttur gat komið í veg fyrir. Missirinn var Kollu mjög þungbær, ekki síst vegna þess að hún átti þá við van- heilsu að stríða og hafði nokkru áður gengið undir erfiða iæknisað- gerð. Þrátt fyrir þessa erfiðleika og ýmsa aðra er að steðjuðu lyfti Kolla sér upp af sinni eðlislægu bjartsýni og léttu lund. Kolla var í eðli sínu ákaflega lífsglöð sem ekk- ert aumt mátti sjá, hvort sem um var að ræða menn eða málleys- ingja. Við Kolla slitum samvistir fyrir tæpum tveim árum, þó hélst ávallt góð vinátta milli okkar og Helga Valdís hefur oft dvalið hjá mér síðan. Kolla verður okkur öllum harm- dauði, en þyngst og erfiðast verður þetta Helgu Valdísi _sem sér nú á bak góðri móður. Ég bið Helgu Valdisi, Diddu, systkinum Kollu og öðru venslafólki guðs blessunar í harmi þeirra um leið og ég þakka Kollu minni samfylgdina og öll góðu árin sem við áttum saman. Minning- in um Kollu mun seint gleymast. Nonni BUNUIJPUR SEM POUA PVOTT VIÐ 4-0 GRAÐUR Hlýr og þœgilegur kostur — á góöu veröi Hagkaup býður hlýjan og góðan kost fyrir veturinn; dúnúlpu sem þvo má við 40 gráðu hita. Úlpan fæst í tveimur litum, svörtu og 'ÍD® fjólubláu, í bamastærðunum Q^x/ Q 116-176 og kostar aðeins ‘ 5.595,- krónur. Notaleg vöm gegn vetramæðingnum, á einstöku verði. Verið velkomin í verslanir Hagkaups. HAGKAUP Reykjavík • Njarðvík • Akureyri REYKJAVÍK - Húsasmiðjan - Ellingsen - B.B. byggingavörur - Metró i Mjódd - HAFNARFJÖRÐUR - Húsasmiðjan - KEFLAVÍK - Járn og Skip - AKRANES - Málninaarþjónustan - BORGARNES - Kaupf. Borgtirðinga - ÓLAFSVÍK - Verslunin Vfk - GRUNDARFJÖRÐUR - Verslunin Hamar - ÍSAFJÖRÐUR - ÁRAL - BOLUNGARVÍK - Vélsm. Bolungarvikur - HVAMMSTANGI - Kaupf. V-Húnvetninga - BLÖNDUOS - Kaupf. Húnvetninga - SAUÐÁRKRÓKUR - Kaupf. Skagfirðinga - SIGLUFJÖRÐUR - Verslunin Torgið - DALVÍK - Kaupf. Eyfirðinga - AKUREYRI - KEA - HÚSAVÍK - Kaupf. Þingeyinga - SEYÐISFJÖRÐUR - Stálbúðin - REYÐARFJÖRÐUR - Kaupf. Héraðsbúa - EGILSSTAÐIR - Kaupf. Héraðsbúa - ESKIFJÖRÐUR - Verslunin Nýjung - NESKAUPSTAÐUR - Kaupf. Fram - FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR - Kaupf. Fáskrúðsfj. - HÖFN - KASK - HVOLSVÖLLUR - Kaupf. Rangæinga - SELFOSS - G.Á. Böðvarsson Melobo Kraftur - Ending - Öryggi NÚ ÞARF ENGAN LYKIL FYRIR SLÍPIROKKINN. ÝTIÐ TVISVAR Á GULA HNAPPINN OG SKIPTIÐ UM SKÍFU. GERIR MÖGULEGT AÐ VEUA ÁKVEÐINN HRAÐA OG HALDA HONUM JÖFNUM í LAUSAGANGI OG UNDIR ÁLAGI EF VERKFÆRIÐ FESTIST ( FYRIRSTÖÐU KEMUR ÖRYGGISKÚPLING i VEG FYRIR BAKSLAG SEM GETUR REYNST HÆTTULEGT. IÐNAÐAE- VERKFÆSI SEM ENDAST OG ENDAST ... SÖLUSTAÐIR METABO /Quickf

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.